Tíminn - 30.07.1976, Page 3
Föstudagur 30. júli 1976.
TÍMINN
3
Á FJÓRÐA HUNDRAÐ
ÍBÚAR FÁ HRAUN-
HITAVEITU FYRIR
VETUR KOMANDI
-hs—Rvik. — Reynt veröur aö ljúka viö aö tengja hraunhitaveituna í
allt hverfiö, sem afmarkast af Sólhliö, Kirkjuvegi, Vestmannabraut og
hraunjaörinum, I næsta mánuöi, og siöan veröur hafizt handa viö aö
tengja hraunhitagjafann viö fjarhitunarkerfiö I vesturbænum og er
ætlunin aö ljúka þvi verki fyrir veturnætur, sagöi Páll Zophoniasson,
bæjarstjóri I Vestmannacyjum, i gær.
Þegar ofangreindum framkvæmdum er lokiö, veröa á fjóröa hundraö
manns búnir aö fá ylinn úr hrauninu i hibýli sin, aö sögn Páls.
Gert er ráö fyrir rúmlega 40% lægri hitunarkostnaöi meö hraunhita-
veitunni, heldur en með beinni olíuhitun. Kostnaöur viö oliuhitun 430
rúmmetra húss I eitt ár er metinn á um 162 þúsund krónur, en meö
fjarhituninni lækkar hitunarkostnaðurinn niöur i 94 þúsund krónur.
Einn þriöji af tengigjaldi sama húss er 52 þúsund, þannig aö sparnað-
urinn kemur strax fram.
Nýir kjarasamningar sjómanna:
Kauptrygging og skipta-
prósenta hækka nokkuð
gébé—Rvik. — Nýir sjómanna-
samningar, fyrir undirmenn,
voru undirritaöir seint á miö-
vikudagskvöld hjá sáttasemj-
ara rikisins, milli Sjómanna-
sambands tslands og Lands-
sambands islenzkra útvegs-
manna. Nokkur hækkun veröur
á kauptryggingu og skipta-
prósentu, samkvæmt hinum
nýju samningum — 1/2% eftir
þvi sem Timinn kemst næst —
og þegar skipin landa erlendis,
veröur tollafrádrátturinn
minnkaöur úr 20% 113%, sem þó
veröur aöeins á meöan bókun 6
er f gildi. Akveöiö var, eftir
slæma reynslu siöastliöins vetr-
ar, aö hafa sameiginiega at-
kvæöagreiöslu i öilum aöildar-
félögum Sjómannasambandsins
og aö sögn Jóns Sigurössonar,
formanns Sjómannasambands-
ins, eráætlaö aö þeirri atkvæöa-
greiöslu ljúki seinni hluta ágúst-
mánaöar, en atkvæöagreiöslan
stendur þetta lengi til þess aö
sem flestir sjómenn geti notiö
atkvæöisréttar sins. — Sam-
komulag hefur hins vegar ekki
náöst hjá yfirmönnum og hafa
þeir kært mál sitt til Félags-
dóms.
Þessi nýi kjarasamningur
kemur i staö samningsins, sem
var undirritaöur 1. marz i vetur,
en var þá felldur i nær öllum
sjómannafélögunum og siöan
var verkföllunum frestaö, svo
sem menn rekur minni til.
Útgeröarmenn hafa hins vegar
farið eftir þeim samningum,
sem voru undirritaöir I vetur
þar til nú.
Þaö voru félögin á Eyrar-
bakka, Skagaströnd, Akranesi,
Vestmannaeyjum, Grindavik og
Þorlákshöfn, sem samþykktu
samningana I vetur, en þessi
félög munu einnig fá þær
hækkanir, sem verða sam-
kvæmt hinum nýju kjarasamn-
ingum, ^em nú hafa veriö undir-
ritaöir.
Jón Sigurösson sagöi, aö I
stórum dráttum væru breyting-
arnar á kjarasamningunum
þær, aö einhver hækkun yröi á
kauptryggingu, ásamt skipta-
prósentu, og þá sérstaklega á
minni skipum, 300-500 rúmlesta,
og minni skuttogurunum, 260-
500 rúmlesta, og mun þessi
breyting gilda frá 16. mai s.l. —
Þegar skipin landa erlendis,
minnkar tollafrádrátturinn úr
20% i 13% meðan bókun 6 er i
gildi, en ef hún fellur úr gildi,
skulu aöilar koma saman og
semja um nýja frádráttar-
prósentu. Ef samkomulag næst
ekki hjá Sjómannasambandinu
og LÍÚ, mun Þjóöhagsstofnunin
skera úr, sagöi hann.
Þá sagöi Jón Sigurðsson, aö
nú myndu atkvæöi veröa talin
upp úr einum potti, en sam-
þykkt var i samninganefnd, og
reyndar ákveöiö lika á kjara-
ráöstefnu sambandsins, aö hafa
sameiginlega atkvæöagreiðslu
fyrir öll sjómannafélögin.
Kvaöst Jón búast viö aö at-
kvæðagreiöslu lyki seinni hluta
ágústmánaöar. Siöastliöinn vet-
ur tókst ekki samkomulag um
aö hafa sameiginlega atkvæöa-
greiðslu, eins og kunnugt er.
Samningarnir hafa þegar ver-
iö sendir til sjómannafélaganna
úti á landi, og þar verða þeir
kynntir.
Rofar til með heyskapinn ó Suðurlandi
ASK-Reykjavík. — Þetta gengur frekar treglega, viö
fengum þrjá þurrkdaga um daginn, sem björguöu miklu,
en meira þarf til ef ekki á aö fara illa, sagöi ólafur Guö-
mundsson bóndi I Hellnatúni, Asahreppi 1 samtali viö
Timann i gær. — Þaö er vel sprottiö og ef tiö batnar veröur
gengiö aö þessu meö oddiog egg. Menn hafa verið aö grlpa
I heyskapinn ööru hvoru, en meö hægö þvi ekki hefur gefiö
neina sólarglætu aö ráði. Nokkuö liggur flatt, en þaö er
hins vegar ekki neitt aö ráöi.
Olafur sagöist véra rösklega hálfnaöur aö losa túnin,
en hann á litiö sem liggur flatt eöa er i göltum. Þá sagöi
Ólafur aö þeir bændur, sem heföu súgþurrkun væru
nokkuö betur á vegi staddir, þeir heföu getaö tekiö inn
rakt hey. Ekki sagöi Ólafur, aö um neinar stórrigningar
heföi verið aö ræöa nú undanfariö, nema I gær, þá var
hellirigning.
—-Enn er ekkert vandræðaástand, þaö er i raun og veru
ekki ástæöa til aö kvarta fyrr en I næsta mánuöi ef svipað
veðurlag helzt.
Litlar framkvæmdir eru i Asahreppi, tvö Ibúöarhús eru
þar i smíðum, á Áshóli og Syðri-Hömrum. Ekki er um ný-
smiöar aö ræöa á þessum bæjum og sagöi Ólafur, aö ekki
heföi verið byrjað á neinum byggingum i ár.
Þaö var betra hljóöiö i Gissuri Jóhannessyni bónda á
Herjólfsstööum I Alftavershreppi. Hann kvaö hafa veriö
IJjllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllliyii
iTF-TÚN [
jdreifir |
jáburði I
(í Eyjum |
S -hs-Rvik. Landgræösiuflug- e
E vélin TF-Tún er nú stödd i =
= Vestmannaeyjum viö =
= áburöardreifingu. Veriö er =
= aö Ijúka viö aö moidarbera e
= vikursvæöin, sem ekki voru =
= hreinsuö, og er þvi verki =
= nánast lokiö svo og gróöur- =
= setningu, en flugvélin átti =
= siöan aö dreifa áburöi I gær =
| og I dag. |
= Að sögn Páls Zophanias- e
1 sonar, bæjarstjóra I Eyjum, =
s eru þetta mjög þarfar fram- §
= kvæmdir, bæði að hreinsa |j
= burt vikurinn og gróöursetja, =
1 og raunar grundvöllur þess, =
= að búandi sé á staðnum. =
= Vikurfokið væri bæði skað- =
= legt mönnum og munum, en =
1 nú virtist vera að sjást fyrir =
= endann á þvi. §
= Viðlagasjóður hefur kostaö =
= þessar framkvæmdir, |
j§ nokkuð var um, að fólk ynni =
E að þessum störfum i sjálf- 1
= boðavinnu, einkum i fyrra. =
flllllllllllllllllllllllllllllllimilllilllllllllllllllllllllllíiíl
sæmilega þurrka nú I hálfa aöra viku. Yfirleitt væru
bændur búnir meö um helming heyskaparins, þannig aö
ekki væri yfir neinu aö kvarta. Rikjandi hefur veriö
vestanátt á svæöinu, en þá er þaö tiltölulega fritt viö
rigningar, en aftur á móti sagöi Gissur aö gert hefði skúrir
oöru'hvoru og'bænöur sag'Öi'hann ol'fhafa Hirt'fúllblautt
hey.
— Ég er búinn aö hiröa um helming heyfengsins, sagöi
Gissur. — Þetta ætti aö hafast eftir tiu daga eöa svo meö
svipuðu veöurlagi. Hér er nær eingöngu hirt I þurrhey og
það vantar mikiö aö fá hingaö meiri súgþurrkun. Hér er
hvergi súgþurrkun meö föstum blásurum. Þaö vantar
hingað viða rafmagn^viö höfum einfasa rafmagn og það
þýðir eölilega einfasa mótora. Þeir eru miklu dýrari svo
okkur finnst viö vera beittir órétti i þeim málum.
Guöjón Sigurösson I Gaulverjabæ, sagöi aö nú virtist aö-
eins vera aö rofa til. Þurrkur var I gær og bændur voru aö
snúa og slá. Veöurspáin var þokkaleg og sagöi Guöjón aö
ef hún brygöist ekki þá færi allt i fullan gang strax I dag.
Mikiö hey er I göröum og sagöi Guöjón þaö vera aöeins
fariö að skemmast, en þaö ætti að nást sæmilega gott geri
þurrk nú næstu daga.
— Hey verða væntanlega mikil að magnj, en trúlega
verða þau ekki góö. Þaö kallar á meiri fóöurbæti, sem
mun hækka töluvert nú I haust. Ef til vill er þaö Iskyggi-
legast fyrir bændur, sagöi Guöjón.
— Þaö er litið aö frétta af okkur, sagöi Arni Sæmunds-
son, bóndi I Stóru-Mörk.— Hér hefur verið stopp i þrjár
vikur á stóru svæöi. Fyrir um þaö bil hálfum mánuöi
náöist upp töluvert, flestir eru hálfnaöir meö heyskapinn,
en ástandið mun vera betra undir fjöllum. —
Grassprettu sagöi Arni vera mjög góöa, jafngóöa
sprettu sagöi hann ekki hafa komið i mörg ár. Þetta á
jafnt viö úthaga sem ræktuö tún.
Hjá Sigurði Hannessyni, Villingavatni I Grafnings-
hreppifékk blaöiö þær upplýsingar, aö gras væri litt fariö
að spretta úr sér, en spretta er seinni á feröinni þar en á
láglendinu. Þaö hafa verið stööugar skúrir I um hálfan
mánuö og er blaöiö ræddi viö Sigurö þá var komin helli-
rigning. Mikiö hey liggur þar flatt eöa i görðum, en Sig-
urður sagði þaö ekki vera neitt hrakiö.
Aö lokum ræddi Timinn viö Guðmund Eyjólfsson, bónda
I Húsatóftum I Skeiðahreppi. Hann sagöi aö einu verulega
góðu dagarnir heföu verið 17.-19. júli.
— Viðförum langverst út úr votviörunum á þessu horni,
það er strax betra uppi i Þjórsárdal. Hér skiptir alveg um'.
Égereinungis búinnaöhiröa um 200 hesta, en heildarhey-
fengurinn er um 2000 hestar svo þú sérö að þaö er æöi-
mikiö eftir.
veiðihornið
Mokveiði i Viðidalsá.
Stærsti laxinn 26 pund!
—Veiöin hefur gengiö mjög
vel aö undanförnu, sagöi
Daniel Viöarsson, leiðsögu-
maöur i gær, og þaö hefur
rætzt mjög vel úr henni. A
hádegi I gær, voru komnir 370
laxar úr ánni og i bókum
VEIÐIHORNSINS má sjá, að
þann 24. júli i fyrrasumar,
höföu veiðzt um 350 taxar,
þannig aö talan nú er mjög
svipuöog þá. Á timabili I sum-
ar var munurinn mestur um
150 laxar miðaö viö veiöina I
fyrra.
—Þyngsti laxinn, sem hefur
komiö á land i sumar reyndist
vera hvorki meira né minna
ep 26 pund, sagöi Daniel, og
einnig hefúr einn 23 punda
fengizt. Báöir veiddust þeir á
flugu og voru erlendir
laxveiöimenn þar aö verki.
—Vatniö er tiltölulega gott I
ánni núna, kannski heldur of
mikiö eftir rigningarnar, sem
hafa lika oröiö þess valdandi
aö þaö ér litiö eitt gruggugt,
sagöi Daniel, en þaö virðist
vera nóg af laxi i henni.
Þverá i Borgarfirði
A Guönabakka i gær, fékk
VEIÐIHORNIÐ þær upplýs-
ingar, aö 691 lax væri kominn
á land á neöra svæöinu og aö
sögn er veiöin á efra svæöinu
mjög svipuö, þó
VEIÐIHORNINU hafi ekki
tekizt aö afla upplýsinga um
nákvæma tölu. Gott vatn er i
ánni, en þyngsti laxinn sem
enn hefur komiö var 21 punda
hængur. Veiðin i Þverá hefur
veriö mjög góö i allt sumar og
hafa fengizt úr henni álika
margir laxar og á sama tima I
fyr ra.
Hofsá i Vopnafirði
—Þaö hefur veiözt heldur
betur hér undanfarna daga,
sagöi Sólveig Einarsdóttir i
Teigi i gær, og áleit aö nokkuö
á fjóröa hundraö laxar væru
komnir á land. Þó er þaö
nokkuö minni veiöi en á sama
timaifyrra. Sagöi Sólveig aö
nokkuö bæri á smálaxa-
göngum i ánni núna, en tölu-
vert heföi veiözt af 9-18 punda
laxi og mest af 14 punda.
Miðfjarðará
—Þaö voru komnir 694 laxar
á land úr ánni á hádegi i gær,
aö sögn Elsu í veiöihúsinu.
Sama dag I fyrra, 29. júii, voru
komnir um 750 laxar á land,
skv. bókum VEIÐIHORNS-
INS. Veitt er á níu stangir, en
siöasta holl, sem var viö veið-
ar I 3 daga, fékk 155 laxa og
holliö þar á undan, sem var i 2
daga, fékk 113 laxa. Agætt
vatn er i ánni og er þaö tært
þrátt fyrir rigningarnar aö
undanförnu.
Skjálfandafljót
Laxveiöin hófst I
Skjálfandafljóti þann 20. júni
og lýkur 20. september. Aö
sögn Hlöðvers Þ. Hlöövers-
sonar, Björgum, hefur veiöin
ekki veriö mikil, en hann haföi
engar handbærar tölur um
hana. — Það hafa þó veriö
einstaka dagar, sem hafa
gefiö mjög góöa veiöi á
sumum stööum i fljótinu,
sagöihann, og fengustt.d. átta
laxar á tveim timum I svo-
nefndum Barmafellshvammi,
þarsem Djúpá rennur i fljótiö.
Veiöiskilyröin hafa veriö
slæm i ánni þaö sem af er, þvi
mikill jökulkorgur er í henni
aö sögn Hlöövers. —Viö
vonumst þó til aö þetta fari aö
batna, þvi jökulkorgurinn
viröist fara minnkandi, en
hann hefur veriö mikill í fljót-
inu I sumar, vegna mikillar
sólar og leysinga, sagöi hann,
en sagöi jafnframt aö svo
virtist sem nokkuö góö laxa-
gengd hafi veriö i fljótinu aö
undanförnu. Bezti veiöitiminn
i Skjálfandafljótier allur eftir,
en hann er í ágústmánuöi og
alveg þangaö til veiöi lýkur,
20. septembr.
Veitt er á fjórar laxastangir
fyrir heila daga, en ein hálf
stöng er sex daga I viku I
Barmafellshvammi. Þá er
einnig nokkuð um silungaveiöi
i Skjálfandafljótí og eru veiöi-
leyfi seld á fjórar stangir.
Laxveiöin i fljótinu var
mjög léleg siöastliöiö sumar
og kvaöst Hlöðver vonast eftir
betri veiði i sumar þvi eins og
hann sagöi er bezti veiðitim-
inn eftir ennþá.
—gébé—