Tíminn - 30.07.1976, Side 7
Föstudagur 30. júli 1976.
TÍMINN
7
HVERT Á AÐ FARA
UAA VERZLUNAR-
MANNAHELGINA?
Nú nálgast óöum hin mikla
ferðamannahelgi, tileinkuð
verzlunarstéttinni i landinu. Hinir
rötgrónu skemmtistaðir eins og
Galtalækjaskógur og Húsafell
munu bjóða upp á skemmtiatriði
fyrir alla fjölskylduna að vanda.
Skátar hafa einnig skipulagt og
auglýst mikið mót fyrir yngri
kynslóðina og ekki sparað til hvað
snertir skemmtikrafta. Má búast
við miklu fjölmenni á þann stað ef
marka má þá miklu auglýsinga-
herferð, sem henni er samfara.
Ennþá eru samt nokkrir, sem
kjósa að eyða helginni i kyrrð og
næði og tjalda úti i guðsgrænni
náttúrunni fjarri mannabyggð.
Timinn fór á stúfana og spurði
ungt verzlunarfólk hvert ferðinni
væri heitið næstu helgi
Páll Guðmuodsson
Ég! Til Akureyrar auövitað og
beint i Sjallann. Bakkus mun ekki
vera með i förinni, þar sem ég er
blátær bindindismaður.
Elsa Mogensen
t sólina á Akureyri og svo auðvit-
að á sveitaball. Stóru mótin eins
og „Rauðhetta” freista min ekk-
ert, allir alltaf svo fullir.
Ég fer sko ekki á svona staði
vegna ofdrykkju unglinga.
Rúnar Ingvarsson.
Ég hef ekkert hugsað út i það enn-
þá, kannski að maður skreppi á
Laugavatn, sem fer auðvitað eftir
efnum og ástæðum þegar að þvi
kemur. Þar getur maður slappað
af og farið i gufu.
Anna Hjaitested Pétursdóttir
Ég ætla að vera heima. t fyrra fór
ég i Húnaver og Miðgarð og
skemmti mér vel. Að visu mundi
ég þiggja að fara i útilegu núna
nokkur saman en ekki eitthvert
mót.
Aðalheiöur Gunnlaugsdóttir
Ég? Kannski á Borg ef ég fæ
barnapiu. Það eiga að vera þrjú
böll yfir helgina og svo ætla ég
auðvitað að detta i það.
tris Bender
Ætli ég fari ekki norður, og eyði
helginni á fallegum og rólegum
sveitabæ. Siðast fór ég á Laugar-
vatn.
Bændadagur
Eyfirðinga
Bændadagur Eyfirðinga var
hátiðlegur haldinn að Laugarborg
I Hrafnagilshreppi sunnudaginn,
25. júli. Hófst hann klukkan tvö
eftir hádegi með helgistund séra
Bjartmars Kristjánssonar
sóknarprests.
Aðalræðu dagsins flutti Asgeir
Bjarnason, formaður Búnaðar-
félags íslands og forseti Samein-
aðs þings. Avarp flutti Jóhannes
Sigurgeirsson á Ongulsstöðum
III, en Lúðrasveit Akureyrar lék
á milli atriða. Þá söng Arni John-
sen þjóðlög og gamanvlsur, Einar
Kristjánsson frá Hermundarfelli
las upp og Þórir Valgeirsson i
Auðbrekku flutti gamanmál.
Veitt voru og afhent verðlaun
Búnaðarsambands Eyjafjarðar
fyrir snyrtilega umgengni og
hlutu hjónin i Ártúni i
Höfðahverfi, Sveinn Sigurbjörns-
son og Matthildur Þórhalls-
dóttir, þau. Auk þess hlutu opin-
berar stofnanir viðurkenningu, en
þær eru: Hrafnagilsskóli og
Urðakirkja og kirkjugarðurinn
þar. Verðlaun Skógræktarfélags
Eyjafjarðar hlutu ábúendur i
Holtsseli, þau Egill Halldórsson
og Svanhildur Eggertsdóttir og
Sigurður Pálmason og Guðrún
Egilsdóttir.
Til skemmtunar var keppni á
milli Ongulsstaðarhrepps og
Hrafnagilshrepps i gömlum hey-
skaparaðferðum og vann önguls-
staðahreppur. Keppt var I slætti
og heybindingi. Þá var keppni I
plöntugreiningu og sigraði þar
Sigurður Jósefsson bóndi i Torfu-
felli. Þá má geta þess, aö drengir
kepptu I knattspyrnu og að lokum
var stiginn dans.
Aðalfundur málarameist-
arafélags Reykjavíkur
Aðalfundur Málarameistara-
félags Reykjavikur var haldinn
fyrir nokkru. I frétt segir að i
skýrslu formanns hafi komið
fram að atvinnuástand I stéttinni
var lakara en undanfarin ár, sem
orsakast af hinum mikla sam-
drætti i byggingaiðnaðinum. Að
öðru leyti gekk starfsemi félags-
ins á sama hátt og undanfarin ár.
Félagið er aðili að samtökum
Norrænna málarameistara-I sept.
n.k. mun þingið verða i'Kaup-
mannahöfn, en þing þessi eru
haldin annað hvert ár i löndunum
á vixl.
Stjórn félagsins var endurkos-
in, en hana skipa eftirtaldir
menn: Form. ólafur Jónsson,
málaram. varaform., Páll
Guðmundsson, málaram., ritari
Sigurður A. Björnss, málaram.,
gjaldk., Siguröur Ingólfsson,
málaram., meðstj., Jens Jónsson,
málaram.
Skrifstofa félagsins sá um inn-
heimtu hinna ýmsu gjalda, svo
sem lifeyrissjóðsgj., sjúkra-
sjóðsgj., orlofsheimilasjóðsgj., og
mælingagj., og greiddi til við-
komandi aðila eins og undanfarin
ár.
Starfsmenn skrifstofunnar eru
þeir Halldór Magnússon.og Jón
Pálsson. Meðlimir félagsins voru
i árslok 100.
Er dýr
chrome-kasetta
helmingi meira
virði en nýja
kasettan?
XI000
Einnig til:
nm[F>
Hy-Dynamic
60 - 90 - 120
mín.
Gerið verð og
gæða samanburð
Við vitum að svo er ekki og
þekktir atvinnutónlistarmenn
eru því sammóla.
En þú!
X 1000 60 - 90 mín.
Suðurlandsbraut 8 — sirni 84670