Tíminn - 04.08.1976, Blaðsíða 1

Tíminn - 04.08.1976, Blaðsíða 1
4 Leiguflug—Neyöarflug • HVERT SEÁA ER HVENÆR SEM Éfi FLUGSTÖÐIN HE' Sirnar 27122 — 11422 — HÁÞRÝSTIVÖRUR okkar sterka hlið L_ Síðumúla 21 Sími 8-44-43 I dag Loðnuveiðin orðin rösk 30.000 tonn gébé Rvik — Bræla var á loðnu- miðunum fyrri hluta dags i gær, en þó að veðrið færi batnandi þeg- ar á daginn leið, var litil sem eng- in veiði hjá bátunum, sagði Eyjólfur Friðgeirsson, leið- angurstjóri um borð i Árna Frið- rikssyni i gær. — Við fundum ioðnu um 70 sjómiiur norður af Hornii morgun, en hún var innan um dreift Ishrafi sem hefur senni- lega rekið þangað i brælunni, sagði hann. Áður en þessi bræla kom, var loðnuveiðin hjá bátun- um hins vegar góð, og var sunnu- dagurinn bezti veiðidagurinn til þessa, en þá fengu bátarnir sam- tals um fimm þúsund tonn. Heildarveiðin var i gær orðin 30.100 tonn, að sögn loðnunefndar. A Raufarhöfn var fyrst tekið á móti loðnu s.I. laugardag, og gengur vinnslan þar fremur hægt, en einhverjir byrjunarörðugleik- ar komu upp. A Siglufirði er bræðslan hins vegar farin að ganga nokkuð vel og virðast Sigl- firðingar hafa yfirstigið sina by r junarerfiðleika. Eins og áður segir er heildar- veiðin orðin rúm þrjátiu þúsund t. en fyrstu loðninni var land- að þann 7. júli s.l. Aðeins fjórir bátar voru við loðnuveiðar til að byrja með, en smám saman hafa fleiri verið að bætast i hópinn og eru nú um tuttugu og fimm bátar við loðnuveiðar. Kolmunni: Fimm- tíu tonn í kasti — landar næst á Höfn gébé Rvik. — Skuttogarinn Run- ólfur lékk fimmtiu tonn i einu kasti um sl. helgi, og eftir aðeins tvö köst til viðbótar varskipið bú- ið að fá fullfermi, eða um niutiu tonn. Aflanum var landað á Nes- kaupstað um helgina, en meiri- hluti hans mun fara i bræðslu, þar sem ekki hafði vcriö búizt við neinum kolmunnaafla i Sildar- vinnsluna þar fyrr en siðar i vik- unni, reyndist ekki unnt að vinna marning og skreið nema úr 20-25 tonnum. Varpan gaf sig þegar skipverjar fengu þetta stóra kast en eftir að gert hafði verið við iiana á Neskaupstað hélt skipið þegar á ný til veiða og er áætlað að þaö landi næst á Höfn i Horna- firði um miöja vikuna. Að sögn Más Lárussonar i Sildarvinnsl- unniá Neskaupstaðhafa þeir ekki undan, þar sem einnig er tekið á nióti ioðnu til bræðslu, svo og fiskafla frá togurunum, en Bjart- ur landaði i gærmorgun 85 tonn- um og afli trillubátanna hefur cinnig verið góður að undan- lörnu. — Það er mjög mikið að gera hjá okkur og það vantar til- finnanlega fólk til starfa sagði liann. Aætlað var að skuttogarinn Runólfur myndi verða við kol- munnaleit um siðustu helgi, en landa siðan afla sinum næst á Höfn i Hornafirði. Hins vegar lundu þeir svo mikla kolmunna- torfu, eitthvað norðar en þar sem þeir hafa mest verið við veiðar fram aðþessu.eða á Héraðsdýpi. Áður hafa þeir mest verið við veiðar á Seyðisfjarðardýpi. — Meirihíuti aflans verður tek- inn i bræðslu sem Runólfur kom með til Neskaupstaðar nú.en ekki eráætlað að frysta neitt i beitu að svo stöddu, sagði Már Lárusson. — baðerekki mikil reynsla kom- in á kolmunnabeituna enn, en við erum að senda nokkuð magn vesturá firði núna, hitt höfum við notað sjálfir og gefur það góðar vonir. Már sagði að loðnubræðslan gengi þokkalega núna, eftir að byr junarörðugieikarnir voru yfirstignir. en það eru Neskaups- staðarbátarnir sem sigla til heimahafnar með afla sinn frá loðnumiðunum fyrir Norðurlandi og norður af Horni. Dr. Kristján Eldjárn var settur inn i embætti forseta islands á sunnudag og hófst þar með þriðja kjörlimabil hans. bessi mynd er tekin, þegar forsetahjónin komu fram á svalir Alþingishúss- ins cftir að forsetinn hafði undirritaðeiðstaf sinn. Á bls. 0-7 i blaðinu i dag er birt ávarp það, sém dr. Kristján Etdjárn flutti við embættis- tökuna. Timamynd: Róbert. Verzlunarmannahelgin reyndist sunnlenzkum bændum ekki eins nota- drjúg og vonir stóðu til ASK-Reykjavik. — Bændureru að reyna að reyta hey inn, en það gengur hægt. Heyin eru illa þurr og það má segja að þeir sem hafa öfluga súgþurrkun eru bezt á veg komnir með heyskapinn. Á túnum er inikið gras, en það er nær allt úr sér sprottið, sagði Iijalti Gestsson ráðunautur á Selfossi er Timinn ræddi við hann i gær. — Sumir eru að visu rétt að verða búnir, en aðrir eru stutt á veg komnir. Yfirleitt gæti ég trú- að þvi að bændur væru hájfnaðir. Aðspurður um veðrið um helg- hia til heyskapar sagði Hjalti að það liefði ekki nýtzt sem skyldi. Útlit var gott fyrir helgina, en svo fór að rigna á laugardag og að- faranótt sunnudags. bá hætti loks rigningin og sæmilegur þurrkur var á mánudag. bá náðist tölu- vert rnagn inn i hlöður. Nokkuð mikið magn af heyjum hefur verið verkað i vothey og sagði Hjalti að á nokkrum bæjum væri komin ágæt aðstaða til vot- heysverkunar. Þannig nefndi hann Dufþaksholt og Hrafnsstaði sem dæmi um slikt, en þar hafa verið byggðar flatgryfjur. Gamla túnaslættinum ætti að vera að ljúka núna, sagði Hjalti, en það þýðir aö við erum á yztu nöf hvað heyskapinn varðar. En við höfum oftáðurséðbliku á lofti hér á Suðurlandinu og heyskapur getur verið sæmilegur ef fer að stytta upp og koma góður þurrk- ur. Hitt er svo aftur annað mál að þegar hafa farið mikil verðmæti i súginn og fóðurgildið er viða orðið æði lágt. Þá sagði Hjalti að gæði þeirra heyja sem þegar hafa náðzt inn væru yfirleitt sæmileg, en viða væru þau meira eöa minna koluð. Engin afstaða tekin til kaupa á rækjubót Snorra Snorrasonar ASK-Reykjavik. — Málið var rætt litils háttar, en engin af- staða var tekin til þess, sagði Guðjón Halldórsson aðstoðar- forstjóri Fiskveiðisjóðs, en á fundi sjóðsins i gær lá fyrir bréf frá Snorra Snorrasyni útgerðar- manni á Dalvik. Snorri hefur nú um alllanga hrið reynt að fá Fiskveiðisjóð til að endurskoða afstöðu sina til kaupa á nýjum rækjubát, sér- staklega útbúnum til veiða á djúprækju. — Þetta er i rauninni nýtt mál, sagði Guðjón, sjóðurinn hefur þegar gefið Snorra nei- kvætt svar. Ekki er heldur vist hvenærmálið verður rætt innan sjóðsstjórnarinnar á nýjan leik. r Avorp forseta r Islands, dr. Kristjóns Eldjárns o Bylting í fatatízku © Akranes í 16-liða úrslit? © 1

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.