Tíminn - 04.08.1976, Blaðsíða 2

Tíminn - 04.08.1976, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Miðvikudagur 4. ágúst 1976. | Verzlunarmannahelgin: Lítil drykkja og slysalaus umferð —hs-Rvik. Útisamkomur um verzlunarmannahelgina fóru mjög vcl fram og áfengisvanda- mál var sáralitið, að sögn lög- reglunnar, og virðast timarnir nokkuð breyttir til batnaðar hvað þetta snertir, þvi oftastnær á undanförnum árum hafa heyrzt hneykslunar- og varnaðarraddir að lokinni hverri verzlunar- mannaheigi. En helgin heppnaðist ekki vel bara að þessu leytinu, þvi hin geysimikla umferð um allt land var svo til óhappalaus og engin alvarleg slys urðu á mönnum. Virðist hinn mikli áróður fyrir bættri umferðarmenningu, sem dunið hefur á landsmönnum undanfarið og ekki sizt um sjálfa helgina, hafa borið árangur. Einn svartur punktur var þó á umf erðar- og vinmenningunni um helgina, þvi alls munu hafa verið teknir um 40manns, grunaðir um að hafa blandað þessu tvennu saman, þ.e. grunaðir um ölvun við akstur. Fjölmennasta útisamkoman var við Úlfljótsvatn, þar sem saman munu hafa verið komin um 5000 ungmenni. Engin áfeng- isleit var ogbar þvi litið eitt á ölv- un. Þeir sem sáust þannig á sig komnir voru látnir hvila sig um stund i þar til gerðri endurhæf- ingarstöð eða þurrkhúsi, eins og skátarnir, sem héldu mótið, köll- uðu það. 1 Galtalækjarskógi munu hafa veriö um 3000 manns og eitthvað svipaðiHúsafelliog ersömu sögu að segja frá báðum stöðunum — litið bar á áfengisneyzlu. Mjög svipaðar sögur er að segja af útisamkomum þeim, sem haldnar voru fyrir norðan og austan. Mun allt hafa farið mjög skikkanlega fram. Meðfylgjandi myndir tók blaðamaður Timans á útisam- komunni við Úlfljótsvatn á laug- ardaginn, en þann dag setti mikil rigning talsverðan svip á hátið- Vígahnöttur, hluti úr gervitungli eða eldflaug? — miklar drunur fylgdu í kjölfarið —hs-Rvik. — Þetta var mjög bjart og ég hafði það á tilfinning- unni að þetta væri ekki mjög veiðihornið Veiðin minnkar þegar veðrið batnar — Það hefur verið minnkandi veiði hér að undanförnu eða strax og hlýna tók i veðri á ný sagði Helga Halldórsdóttir, ráðskona i veiðihúsinu viö Laxá i Aðaldal i gær. Sagði hún að veiðin siðast- liðna viku hefði verið frekar dræm, laxinn tekur ekki i hitan- um. Um hádegi i gærdag voru alls komnir 862 laxar á land, sem er ekki langt undir þvi sem hafði veiðzt á sama tima i fyrra, en i bókum VEIÐIHORNSINS, sést, að þann 6. ágúst i fyrrasumar höfðu alls veiðzt rétt um niu hundruð laxar. Þyngsti laxinn sem veiðzt hefur i sumar reyndist 23pund, en i fyrra var sá þyngsti 28 pund, og veiddist um miðjan ágústmánuð. Sæmileg veiði i Laxá i Dölum — Þetta er önnur vikan i sumar sem veitt er á allar stang- irnar sjö hjá okkur, sagði Gunnar matsveinn i veiðihúsinu i gær, en sem kunnugter.eru það eingöngu erlendir laxveiðimenn sem stunda veiði i Laxá i Dölum. — Þeir stunda veiðina ekki af eins miklum krafti og áhuga eins og Islendingarnir, og eru sjaldnast við ána allan daginn, sagði Gunn- ar. I siðustu viku veiddust 67 lax- ar, en Gunnar kvaðst álita að i allt væru um 180 laxar komnir úr ánni i sumar. Gunnar sagðist hafa það eftir leiðsögumönnum við á.na, að þvi virðist vera nokkuð um lax i ánni, eða svipað og undanfarin ár. Nóg af laxi i Flókadalsá, en hann tekur illa — Laxinn er enn að ganga og það virðist vera nóg af honum i ánni, t.d. er fullt af laxi á neðsta svæðinu, sem er óvenjulegt þegar þetta er liðið á laxveiðitimann, sagði Ingvar Ingvason, Múlastöð- um i gærdag. Aftur á móti er lax- inn tregur að taka, hverju sem það svo má um kenna. Vatnið er ágætt i ánni, tært og mátulega mikið. Ingvar sagðist álita að um 230 laxar væru komnir á land i allt i sumar, sem er töluvert minni veiði en á sama tima i fyrra. — En siðastliðið sumar var lika metlaxveiðisumar hér hjá okkur eins og á svo mörgum öðrum stöðum, svo ekki má alltaf miða i við veiðina þá,sagði hann. Hann bjóst hins vegar við að veiðin i sumar væri nokkuð betri en sumarið 1974, en þá veiddust i allt 414 laxar i Flókadalsá. Þyngstu laxarnir, sem fengizt hafa i sumar, voru tveir 14 punda, en nokkuð hefur veiðzt af 12-13 punda laxi. -gébé- langt undan, sagði Magnús Odds- son, bæjarstjóri á Akranesi, en hann var staddur nálægt bænum Hrauni á Skaga, þegar það, sem flestir álita hafa verið vigahnött eða loftstein, þaut yfir himininn á sunnudagskvöld. — Um eða innan við 10 minút- um siðar heyrðust miklar drunur og undirgangur, sagði Magnús ennfremur, — og i kjölfar þessa glóandi hlutar myndaðist rák, sem siðar varð að einhvers konar skýi, ekki ósvipað og eftir þotu, nema mun meira. Magnús gagði að heimilisfólkið að Hrauni hefði verið við mjaltir, þegar skyndilega birti i fjósinu. Þaut það út og sá fyrirbærið einn- ig mjög greinilega, ásamt Magn- úsi og séra Tómasi Sveinssyni frá Sauðárkróki. Sólin lýsti upp skýjaslæðuna, sem myndaðist, alla nóttina, að sögn Magnúsar. Þorsteinn Sæmundsson, stjörnufræðingur, sagðist ekki hafa séð þetta sjálfur, en eftir lýs- ingum að dæma gæti hafa verið um að ræða annað hvort viga- hnött eða hluti úr gervitungli eða eldflaug. Væri hann að afla sér upplýsinga og vonaðist til að geta skorið úr um þetta á grundvelli þeirra. Þorsteinn kvaðst vona, að sem flestir hefðu samband við sig, hvaðanæva að af landinu, svo að hann fengi sem gleggstar upplýs- ingar um afstöðu hlutarins við sjóndeildarhring og hæð á himni. Fjöldi manns hafði samband 'við Slysavarnafélagið og tilkynnti um neyðarblys á lofti og eftir sögnum viðs vegar af að landinu aðdæma, virðisthlutur þessi hafa verið á ferð norður af Skaga. SX MKJ * ■ ■ ■ ■ v & *»:■ ■ * Þessa mynd af loftfyrir- brigðinu tók Magnús Magnússon i Flatey á Breiðafirði.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.