Tíminn - 04.08.1976, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.08.1976, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Miðvikudagur 4. ágúst 1976. Forseti tslands flytur ávarp sitt við embættistökuna. Reglur eiga ekki að koma í stað eðlilegrar, mannlegrar umgengni Ávarp forseta íslands, dr. Kristjdns Eldjdrns, við embættistöku 1. dgúst Frá athöfninni I Dómkirkjunni. Biskup tslands flytur ávarp. Timamyndir: Róbert Góöir Islendingar og erlendir fulltrúar. tslenzka lýðveldið er enn ungt og þá um leið embætti forseta tslands. A þremur áratugum hefur eigi aö slður þegar skap- azt nokkur hefð um siði og venjur varðandi þetta embætti. t upphafi nýs kjörtimabils vinnur forseti það drengskapar- heit að halda stjórnarskrá lýð- veldisins. Þetta er hið raun- verulega innihald þeirrar athafnar sem hér fer fram í dag, annaö ekki. Hér er hvorki stað- ur né stund til að fjölyrða um landsins gagn og nauösynjar eða ástand og horfur i þjóð- félaginu, enda er forseti tslands þess ekki umkominn að flytja boðskap eða stefnuskrá, eins og embætti hans er stakkur skor- inn i stjórnkerfi landsins. Að þessu sinni er i engu brugðið út af þeim siðum, sem frá upphafi hafa tiðkazt við embættistöku forseta. Að öllu athuguðu hefur mér ekki þótt sérstök ástæöa til þess. Má þó vera að tiðarandi vildi nú gera hér nokkra breytingu á og færa þessa athöfn til viöaminna forms. Þetta er álitamál eins og svo margt annað af svipuðu tagi, en ekki neitt stórmál. Ég inni að þvi einungis vegna þess að það leiðir hugann aö forseta- embættinu yfirleitt, og þó eink- um stöðu forseta i samfélaginu, afstöðuna milli hans og annarra manna. Þetta er umhugsunar- efni i ætt við tilefni dagsins. Til eru þeir menn sem velta þessu fyrir sér, og nærri má geta að sá sem sjálfur gegnir þessu em- bætti muni leitast við að gera sér grein fyrir hver hlutur þess er I þjóðllfinu og leggja næmar hlustir viö skoðunum og tilfinningum samborgara sinna um það. Ég er hér ekki að tala um stöðu forsetans eins og hún er samkvæmt stjórnarskrá lands- ins, hlutverk hans i stjórnkerf- inu. öllum er kunnugt, sem lesið hafa stjórnarskrána, að I fljótu bragði mætti svo viröast sem vald forseta væri talsvert, en I ljós kemur að það er meira i orði en verki, þar sem forseti felur ráðherrum að fara með vald sitt og stjórnarathafnir hans eru á þeirra ábyrgð. Til eru önnur lýðveldi, og sum með stórþjóðum, þar sem mjög áþekkt fyrirkomulag tiðkast, auk þess sem staða konungs i konungsrlkjum þeim, sem vér höfum mest kynni af, er mjög á sömu lund I stjórnlagakerfinu, þótt á hinn bóginn hljóti ætlð af mörgum ástæöum að vera djúp- tækur munur á stöðu konungs og forseta meðal þjóðfélagsþegn- anna. Nú er stjórnarskrárnefnd að starfi hér á landi. Ég geri ráð fyrir að hún muni meðal annars taka til rannsóknar hversu gef- izt hafa þau ákvæði er lúta að hlut forsetans á liönum árum. Engu skal um það spáð hvort lagt verður til að gera þar ein- hverjar breytingar á eða hvort slikar tillögur næðu þá fram að ganga. Líklega mun mönnum " helzt finnast forvitnilegt hvort lágt verður til aö hrófla við þætti forsetans I myndun nýrra rikis- stjórna, en i þvi efni er honum ætlað veigamikið hlutverk. En umræöuefni mitt er ekki þetta, heldur afstaðan milli for- setans og þjóðarinnar. Mér segir svo hugur um að Islenzka þjóöin hafi tekiö tryggð viö for- setaembættið, vilji hafa slikan oddvita sem forsetinn er. Ef til vill á þjöðkjör forsetans ein- hvern þátt i þeirri tryggð. En hvers telur þjóðin sig geta af forsetanum vænzt, og til hvers má hann ætlast af henni? Hér er ekki um neitt að ræða sem ákveðið verður i lögum og reglugerðum, heldur sam- búðarform, sem með timanum hefur skapazt milli forsetans og þess fólks sem fengið hefur hon- um embætti sitt. Ég get ekki neitað mér um að gera ofurlitla sögulega athugun i þessu sam- bandi. Þegar að þvl dró að Islending- ar losuðu sig að fullu og öllu úr tengslum við erlendan konung, báru ýmsir nokkurn kviðboöa fyrir þeim vanda sem viö blasti i fyrsta sinn I sögu vorri, að finna innlendum þjóðhöfðingja eðlilegt rúm bæði i stjórnkerfinu og andspænis þjóðinni sem einingartákn hennar. ísl. kon- ungur kom vist ekki til greina, þvi að slikt er nánast ekki til i islenzkri vitund og hefur aldrei verið. Að visu höfðu Islendingar löngum mikið dyn á konungum, jafnvel þegar á þjóðveldisöld, og skrifuðu um þó meiri bækur en aðra menn. Með því bættu þeir sér upp konungsleysiö. En konungur á Islandi var utan við hugarheim þeirra. Hvergi örlar á þvi að neinn að höfðingjum Sturlunga- aldar, sem hvorki skorti þó metnað né valdafýsn, léti sér til hugar koma að gera sjálfan sig að konungi, þótt slikt hefði átt aö geta verið nærtækt þegar þjóðveldið var að liðast sundur og valdabaráttan var sem grimmilegust. Hugsun þeirra snerist hins vegar mjög um af- stöðuna til Noregskonungs. Og svo komu hinar mörgu konungsaldir og æ fastar brenndi það sig inn I hug þjóðar- innar, að vist vorum vér konungsþegnar, en konungur vor var I öðru landi, þar var hann á réttum stað, handan viö hafiö. Eigi að siður voru tslendingar konunghollir gegn- um þykkt og þunnt, og enn á

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.