Tíminn - 04.08.1976, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.08.1976, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 4. ágúst 1976. TÍMINN 3 Hrossum smalað af afrétti landnáms Ingólfs Arnarsonar Austurlandsveita: Sveitarfélögin munu aldrei hafa áhuga á PÞ-Sandhól. Á síðast liðnu vori samþykkti sveitastjórnir i land- námi Ingólfs Arnarsonar að banna lausagöngu hrossa I af- réttinum. En þrátt fyrir bann þetta hefur hrossum verið sleppt i afréttinn og s.l. sunnudag fór fram hrossasmöiun að beiðni Sveins Runólfssonar land- græðslustjóra á svæðinu um- hverfis Kolviðarhól. Yfir tuttugu hross voru rekin til formanns af- réttarnefndar ölfushrepps Bjarna Sigurðssonar á Hvoli og eru þau þar nú I gæzlu. A næstunni verður kannað úr Lítið um inn- brot um helgina -hs-Rvik Svo virðist, sem sá eða þeir, sem iðnastir hafa verið við innbrotin I höfuð- borginni undanfarið hafi tekið sér fri um verzlunar- mannahelgina, eins og aliur þorri landsmanna gerði. Innbrot og þjófnaðir voru með minna móti um þessa helgi og yfirleitt var allt með ró og spekt á höfuöborgar- svæðinu. Umferðin i borginni var i algjöru lágmarki og óhöpp i umferðinni þar af leiðandi litil sem engin. Hins vegar var umferð i borginni geysilega mikil i gærdag, en gekk tiltölulega vel fyrir sig. Höföu 8 minniháttar árekstrar orðið um kvöldmatarleytiö. Þjófabjallan gerði viðvart ASK-Reykjavik.Heppnin elti ekki þjófinn, sem ætlaði að ná sér i armbandsúr hjá Ulrik Falkner, úrsmið, að- faranótt sl. sunnutiags. Eftir að þjófurinn hafði brotið sýn- ingarglugga og hirt þaðan tvö úr tók þjófabjalla að hringja. Ekki hringdi hún aðeins hjá lögreglunni heldur og hjá eiganda verzlunarinnar. Lögreglan brást hart við og náðist þjófurinn upp i Suðurgötu. Kom i ljós að þarna var um að ræða einn af föstum viðskiptavinum lögreglunnar, og kunnur fyrir margt annað en heiðar- leika og bindindissemi. eignaraðild flugvél hvort fleiri hross kunni aö vera á öðru svæði og reynist svo vera þá veröur þeim smalað á kostnað eigenda. Einnig þurfa eigendur að greiða fyrir fyrri smölunina. Talið er að afrétturinn sé of- beittur og eru þessar aðgerðir einn liður i að sporna gegn þvi. Einnig er verið að girða Hjalla- fjall, en það á að friða og sá I landiði Þar hefur verið mikill uppblástur á undanförnum árum. Þá var borið I affettina i fyrra og einnig I ár. ölfushreppur lagði eina milljón I þessar fram- kvæmdir og landgræðsla ríkisins sex milljónir. Þá hefur Grafn- ingshreppur einnig borið mikið á sinn afrétt á liðnum árum. Myndin hér fyrir neðan er tekin af hrossasmöluninni við Kol- viðarhól. Timamynd: P.Þ. ASK-Rvik. — Ég tel aö eignir RARIK á Austfjörðum séu of hátt bókaðar, þannig að þær geti ekki, hvort sem það eru Rafmagnsveit- urnar eða einhverjir aðrir sem reka þær, gefið af sér þann arð scm þarf til að geta staðið undir svo hátt bókuðum eignum. Þess vcgna geri ég ráð fyrir þvi að ef eignayfirfærsla færi fram, sem ég er alls ekki að mæla með, þá yrði að meta eignirnar upp á nýtt til lægra og raunhæfara verðs, sagði Helgi Bergs bankastjóri er Timinn innti hann eftir starfi nefndar þeirrar er vann að grein- argerö um viöhorf sveitarfélaga á Austurlandi um Austurlands- virkjun en Timinn hefur áður skýrt nokkuð frá þvi. — Þá liggur i augum uppi að Rikissjóður yrði að taka á sig mismuninn. Það þyrfti að gefa Austurlandsveitunni part af þessu til þess að þeir hefðu nokkurn möguleika á að reka veituna. Það hefur verið eytt hundruðum milljóna i alls konar óarðbærar framkvæmdir á svæð- um sem gefa ekki af sér neinn arð. Þeir væru komnir á hausinn eftir eitt tvö ár ef landshlutinn ætti að standa undir þvi öllu saman. Þá sagði Helgi Bergs að i sjálfu sér væri enginn annar kostur við Austurlandsvirkjun, en sá, að gefa heimamönnum tækifæri á að hafa stjórnaraðild að fyrirtæk- inu. — Niðurstaða nefndarinnar var annars sú, sagði Helgi, að engin eigayfirfærsla ætti að eiga sér stað heldur ætti einungis að stofna Austurlandsveitu sem væri sjálfstæð efnahagsleg eining sem heimamenn hefðu stjórnaraðild að. — Það mætti s vo siðar taka það til umræðu hvort sveitarfélögin helðu áhuga á að kaupa sig inn i fyrirtækið, en það er nokkuð sem þau myndu sennilega aldrei hafa áhuga á. Evrópumeistaramót unglinga í bridge: Jafnt við Pólland og Bretland MÓL — Reykjavik. Þetta voru mjög villt spil og skortölurnar nokkuð háar, sagði Páil Bergsson fyrirliöi islenzka unglingalands- liösjns I bridge, þegar Timinn tal- aði við hann I gær og spurðist fyrir um leikina i 7. og 8. umferö við Pólland og Bretland. Ég er nokkuð ánægður með þessi úrslit, því þetta eru mjög sterkar þjóðir, tsland gerði I gær jafntefli bæði við Bretland og Pólland (10:10) og báða leikina spiluðu þeir Helgi Sigurösson-Helgi Jónsson og Jón Baldursson-Guðmundur P. Arnarson. Eins og komið hefur fram I Timanum, þá hófst Evrópumeist- aramót unglinga I Lundi I Sviþjóös.l. sunnudag. í Islenzku sveitinni eru auk þeirra, sem áð- ur voru taldir Sigurður Sverris- son og Sverrir Armannsson. 8 umferðum af 17 er nú lokið og hefur leikjum islenzku sveitar- innar lyktað þannig: Island- Noregur (núverandi Noröur- landameistarar) 1:19, tsland- Danmörk 1:20, ísland-lsrael 15:5, Island-Sviþjóð (núverandi Evrópumeistarar) 1:19, Island-V- Þýzkaland6:14 (kæru tslands var hafnaö), Island-Ungverjaland 20:-2. I 7. og 8. umferð spilaði tsland svo við Pólland og Bret- land eins og áður segir og geröi jafnt viö báða. Staðan eftir 8 umferðir er þá þannig, að I fyrsta sæti eru Sviar með 122 stig, I ööru sæti eru Austurrikismenn með 118,1 þriöja eru Hollendingar með 115,1 fjórða Bretar með 110 stig. tslenzka sveitin hefur hlotið 62 stig og er i 12. sæti. t gærkvöldi spilaði tsland við Finnland, en i dag eiga spilararnir fri. BAÐIR DÆMDIR -hs-Rvik Skipstjórinn á færeyska skuttogaranum Polarborg I., sem tekinn var að meintum ólöglegum veiöum fyrir helgina, hlaut 1.6 milljón króna sekt og afli og veiðarfæri voru gerð upptæk. Skipstjórinn áfrýjaði dómnum, sem kveöinn var upp á Isafiröi, og setti tryggingu fyrir upphæðinni. Er skipið nú komið á veiðar á ný. Skipstjórinn á Þórunni Sveins- dóttur, sem einnig var tekinn fyrir ólöglegar veiðar um svipaö leyti, fékk 650 þúsund króna sekt og afli og veiðarfæri voru gerð upptæk. Hann hefur hálfsmán- aöar áfrýjunarfrest, og hefur lagt fram tryggingu. Norrænir biskupar þinga í Reykjavík ASK-Reykjavik. Siðastliðinn mánudag komu til landsins 32 biskupar frá Norðurlöndunum, en þeir munu þinga hér fram til föstudags. Þetta er 18. fundur hiskupa Norðurlandanna, en i fyrsta skipti sem slikur fundur er haldinn hér á landi. Fundir þcssir eru haldnir 3ja hvert ár. Þátttakendur af tslands hálfu eru biskup tslands, hr. Sigur- björn Einarsson og vigslu- biskuparnir Pétur Sigurgeirs- son og Sigurður Pálsson. Umræður hófust i gær, en þá var rætt um vandamál kirkj- unnar á Norðurlöndunum. Að þingstörfum loknum heimsóttu biskuparnir Hallgrimskirkju. t dag verður aftur á móti rætt um skirn, trú og uppfræðslu og eftir hádegi um samband kirkjunnar og rikisvaldsins. Siðar á dag- skránni er m.a. helgisiðir i kirkjum Norðurlandanna og um frelsi manneskjunnar i samfé- laginu. Jafnframt verður tekið fyrir umræðuefniðhvort prestar Norðurlandanna skuli hafa jafnan rétt til prestsembætta hvort sem um heimaland er að ræða eða ekki. A föstudag fara biskuparnir til Þingvalla og sið- ar til Skálholts, en þar verður mótinu slitið. Þess skal getið að i kvöld klukkan 20.30 verður guðsþjón- usta i Dómkirkjunni, en hún er opin fyrir almenning. Meðfylgjandi mynd tók Q.E. af biskupunum i upphafi þings- ins i gær.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.