Tíminn - 04.08.1976, Side 8
8
TÍMINN
Mi&vikudagur 4. ágúst 1976.
HAFNIA76
1©J
DANMARK
nefndar er sérstaklega heiðraö-
ur meö veglegum verölaunum.
Eru þetta verðlaun og heiður á
heimsmælikvarða innan stétt-
arinnar. Gjarnan er búiö sér-
staklega að unglingum, svo aö
þeir geti hitzt og skipt. Þá eru
jafnvel markaðir fyrir full-
orðna, uppboö, veizlur og borö
fyrir mismunandi áhugahópa.
Hápunktur alls er svo ,,Gala
Dinner’ sem haldinn er i sýning-
arlok eða á siðustu dögum sýn-
ingarinnar. Þar er kunngerð
skipan verðlauna, hver hefur
hlotið hvað og öll æðstu verð-
launin afhent, gjarnan af þjóð-
höfðingja viðkomandirikis, sem
nær alltaf er verndari sýning-
anna. Þetta er alltaf veglegasta
veizlan, og dýr fyrir þá er njóta|
vilja, hún kostar t.d. D. kr.
250.00á manná Hafnia '76,en þó
fá færri miða en vilja. isienzka
blaöamannaárshátiðin fölnar
hjá henni.
Póststjórnir á annað hundrað
landa taka þátt i þessum sýn-
ingum og sýna gjarna mark-
veröa hluti og selja frimerki sin
á nafnveröi. Bandarikin hafa
sýnt tunglpósthús sitt svo
nokkuð sé nefnt. Danir eiga vist
áreiðanlega eftir að sýna marga
og merkilega gripi á
„HAFNIÁ-76”. Einstaklingar
sýna fágætustu frimerki heims,
Brezka Guiana, Mauristsius
ofl., sem aldrei sést nema á
svona sýningum. Það er þvi
ekki að ástæðulausu að sagt
hefur verið, að Mekka fri-
merkjasafnaranna i ár veröi i
Kaupmannahöfn og árið hefur
veriö kallaö HAFNIAAR.
Sigurður H. Þorsteinsson.
Hvað er aiþjóðleg frímerkjasýning?
Þegar sagt hefur verið frá al-
þjóðlegum frimerkjasýningum
hér i þáttunum, hef ég stundum
orðið þeæ var af fyrirspurnum
lesenda, aö þeir viröast ekki
fullkomlega gerasérgrein fyrir
hvaö um er að ræða.
Ef viö berum saman við það,
sem þekkt er hér á landi, þar
sem stærsta sýningin hefur náð
um 300 römmum, þá hafa
minnstu alþjóðl. sýningar á sl.
lOárum verið 4500 rammar, en
þær stærstu 10.000 rammar, svo
að þvi er stærö varðar er strax
ljóst um hvilikan mismun er að
ræöa. Þá getursá einn fengiöað
sýna, sem á heimasýningum
hefur fengiö silfur eöa meira,
svo þá er ljóst i hvaða gæða-
flokki söfnin eru.
Undirbúningur að alþjóðlegri
sýningu hefst 2 árum fyrir sýn-
ingu. Þá eru skipaðir umboðs-
menn i öllum meðlimalöndum
Federation Internationale de
Filatelie, eða F.I.P. eins og
samtökineru oftast kölluö. Þeg-
ar tillögur hafa komið um um-
boðsmenn frá öllum löndunum
eru þær bornar undir stjórn
samtakanna, sem verður að
veita þeim viðurkenningu.
Þessu næst gerir sýningar-
nefndin tillögur um dómara á
sýningunni, sem einnig eru
bornar undir samtökin. Fyrst
hefur þó orðið að afla viöur-
kenningar og verndar samtak-
anna á sýningunni. Nú taka um-
boðsmennirnir að safna um-
sóknum frá þeim, er vilja taka
þátt i sýningunni. Þeir verða að
uppfylla skilyrðið um verðlaun
heima, auk þess að vera i' félagi,
sem er aðili að samtökunum.
Fyrst fara svo umboðsmenn
yfir lista umsækjenda og skera
niður. Silfursafn á ekki að fá
nema 5 ramma á slikri sýningu,
en gullsafn getur fengið 10.
Þessu næst fer svo sýningar-
ne&idin yfir umsækjendur, sem
oft hafa beðið um þriðjungi eða
helmingi meira rammapláss en
til er. Þá er enn skorið niður.
Dregið úrfjölda þeirra ramma,
sem tilheyra söfnum þar sem
mikil endurtekning er á efni og
mörgum söfnum neitað um
þátttöku. Islenzku safni hefur
aðeins tvisvar verið neitað um
þátttöku. Svona gengur papp-
irsvinnan fram og aftur. En
hvað getur svo að lita, þegar á
sýninguna kemur?
Það er þá fyrst og fremst öll
þessi veglegu söfn. En margt er
einnig gert fyrir gesti. Venju-
lega er til sölu frimerkjablokk,
eöa frimerki, sem aðeins fást
gegn kaupum á aðgöngumiða á
sýninguna. Þetta er nær þvi orð-
in regla. Er þá magn blokkar-
innar eða frimerkjanna bundið
þeim aðgöngumiðafjölda, sem
selst. Séu nokkur dæmi nefnd,
þá er nærtækust HAFNIA-76, en
af þeirri blokk var mynd hér i
blaðinu þann 25. júli. Veglega
sýningarskrá er hægt að fá
keypta, oft með svartprentun
frimerkja, sem þýtur upp i ótrú-
legasta verð á skömmum ti'ma.
A Spáni á fyrra ári kostaöi skrá-
in meö svartprentun 250 peseta,
en nú kostar svartprentunin ein
25.000 peseta.
Svo eru gerðir margir hlutir
til að skemmta gestum. Hóp-
ferðir um viðkomandi land, oft
tengdar sögum úr frimerkja-
fræði þess á staöi, sem birzt
hafa á frimerkjum. Fundir ým-
issa safnarahópa, einstakra
landa og sérsviöa. Fundir al-
þjóðlegra samtaka og þing,
fundirblaðamanna er skrifaum
frimerki og rithöfunda. A
Hafniu veröa t.d. fundir lands-
sambandsstjórna Noröurlanda
og ritstjóra málgagna lands-
sambandanna, vinnunefndar
þýzka landssambandsins um
Norðurlönd og svona mætti
lengi telja. Blaðamannaskrif-
stofa er starfandi með öllum
þægindum fyrir þá, sem fréttir
vilja senda. Sá erlendur blaöa-
maður er bezt hefur skrifað um
sýninguna, að dómi sýningar-
— Hvað kostar svo þetta umslag. — Þaö er mikið aö gera hjá Þaö er nóg aö gera hjá unga fóikinu.
kaupmönnum.
'SSthíBAín-iV,
(Ljósm.: Ib Eicner-Larsen)
Fyrstu gestirnir ganga inn.