Tíminn - 04.08.1976, Blaðsíða 20
Miðvikudagur 4. ágúst 1976.
FÓÐURVÖRUR
þekktar
UM LAND ALLT'
fyrir gæði
Guöbjörn
Guðjónsson
Heildverzlun Siöumúla 22
■Sirnar 85694 & 85295
RAFDRIFIN
BRÝNI
Brýning tekur aðeins
1—2 minútur.
Stærö aöeins
25x20x15 sm.
EINNIG: 30 tegundir Victorinox
hnifa — ryöfrítt stál meö
Nylon sköftum.
ÁRNI ÓLAFSSON & CO.
... i 40088 zs* 40098
ALLAR TEGUNDIR"
FÆRIBANDAREIMA
FYRIR
Lárétta
færslu
'írS|
Einnig: Færibandareimar úr 0
ryöfríu og galvaniseruöu stáli
ÁRNI ÓLAFSSON & CO.
—" 40088 ZT 40098 —
Brottflutningur særðra úr Tel Al-Zaatar búðunum hafnir:
Halda áfram þar til allir
særðir eru komnir þaðan
Heuter, Beirút. — Alþjóða
Rauði Krossinn flutti i gær níu-
tiu og einn særðan frá Tel
al-Zaatar flóttamannabúðum
Palestinu i austurhluta Beirút i
Libanon, og æðsti fulltrúi Rauða
Krossins á svæðinu sagði eftir
flutningana að fólkið sem enn er
i flóttamannabúðunum, væri að
deyja úr hungri og þorsta.
Tel al-Zaatar flóttamanna-
búðirnar eru enn i umsátri
hægri manna og hefur vatns og
matarskortur rikt þar um
margra vikna skeið.
Rauði Krossinn flutti hina
særðu frá búðunum i gær, með-
an á skammvinnu vopnahléi
stóð, en það var jafnvel brotið á
meöan, með skothrið frá leyni-
skyttum og af vélbyssum. Þeir
sem igær voru fluttirfrá búðun-
um eru hinir fyrstu sem yfirgefa
þær á lifi siðan hægri menn hófu
skothrið sina á þær fyrir um sex
vikum.
Jean Höflinger, fulltrúi Rauða
Krossins,sem fór inn i búðirnar
i gær, sagði á fréttamannafundi
eftir flutningana að þeir myndu
halda áfram i dag og siðan
hvern daginn af öðrum, þar til
allir særðir hefðu verið fluttir á
brott úr búðunum.
Höflinger sagði að sér hefði
veriðtjáðað i Tel al-Zaatar búð-
unum væru um eitt þúsund illa
særðir, en alls eru i þeim um
þrjátiu þúsund manns.
Hann sagði ennfremur að
versta vandamál þeirra sem
enn eru á lifi i búðunum væri
vatnsskortur, en hann er orðinn
alvarlegur.
Höflinger sagði að i dag
myndu verða notaðir sextán
flutningabflar við brottflutning-
ana, en i gær voru aðeins notað-
ir niu. Þá hefur einnig tekizt að
fá tvo sjúkrabila til flutning-
anna.
, Hann sagði áð meðal þeirra
sem fluttir voru á brott i gær
hafi verið sænska hjúkrunar-
konanEva Stahl, en eiginmaður
hennar sem var yfirmaður i
skæruliðasveitum Palestinu, lét
lifið fyrir nær tveim mánuðum.
Eva Stahl er alvarlega sjúk,
eftir að annar handleggur henn-
ar var tekinn af henni og hún
missti fóstur, meðan á umsátri
Framhald á bls. 19.
Tjón í
Tientsin
llong Kong, Reuter. Kin-
verska iðnaðarborgin
Tientsin, varð fyrir
skemmdum og manntjón
varð þar i jarðskjálftunum
sem gengu yfir Kina i siðustu
viku, að þvi er fréttastofan
Nýja Kina skýrði frá i gær.
1 fréttinni var ekki tekið
fram hve margir hefðu misst
lifið i borginni, sem er um
hundraðogþrjátiu kilómetra
suðaustur af Peking og ekki
mjög fjarri borginni Tang-
shan, sem skjálftarnir lögðu
algerlega i rúst.
i Tientsin ollu skjálftarnir
miklu tjóni á verksmiðjum,
sprengdu veggi bygginga og
sködduðu orkulindir.
Sagði fréttastofan að
verkamenn i borginni hefðu
þegar i stað hafið viðgerð-
arstarf við verksmiðjurnar
og reyndu nú að koma fram-
leiöslunni i samt horf á ný á
eins skömmum tima og
mögulegt reynist.
Menguðu svæðin á Ítalíu:
Börnum haldið frá á daginn
— eyðing eitursins seinvirk
Reuter, Milan.— Héraðsyfirvöld
hafa ráölagt nær eitt þúsund
börnum og vanfærum konum að
yfirgefa svæði þau á norðurhluta
Italíu sem menguð eru af eitur-
efnum þeim sem lekið hafa úr
verksmiðju þar.
Brezkir sérfræöingar hafa,
aftur á móti, lýst yfir bjartsýni
sinni um, að þeim muni takast að
eyða eiturverkunum efna þeirra
sem láku úr verksmiðjunni i
Seveso fyrir þrem vikum.
Vittorio Rivota, yfirmaður heil-
brigðismála i héruðum þessum,
sagði i gær við fréttamann Reut-
er, að brottflutningar þessir yrðu
ekki skyldaðir.
— Börn geta snúið til heimila
sinna á kvöldin, ef þau vilja, en
okkur er mikið i mun að þau haldi
sig utan hættusvæðanna á daginn.
Það er ómögulegt að fylgjast með
þeim öllum að staðaldri og þau
gætu tekið á menguðu grænmeti
og öðru, sagði hann.
Frank Jackman, sem er einn af
brezku sérfræðingunum sem eru
Itölum til aðstoðar, sagði i gær að
hann væri b jartsýnn á að sérfræð-
ingaliði sinu tækist að finna leið
til að eyða eiturefnunum.
— Það er mögulegt að einhver
hluti þess fólks sem orðið hefur að
flýja heimili sin, geti snúið til
baka aftur innan fárra vikna,
sagði hann eftir fund með emb-
ættismönnum héraösyfirvalda i
gær.
Rivolta sagðiigær aðalls hefðu
sjöhundruð þrjátiu ogniu manns
verið fluttfrá heimilum sinum frá
því sprengingin varð i
Icmesa-verksmiðjunni þann 10.
júli siðastliðinn. Um tuttugu af
konum þeim sem búsettar voru á
hættusvæðinu voru þungaðar og
hafa þær siðan gengizt undir
rannsókn til þess að kanna hvort
ófædd börn þeirra hafa skaðazt af
menguninni.
Rivolta staðfesti i gær að rikis-
stjórn kristilegra demókrata,
sem samkvæmt hefð er mótfallin
þvi að höftum sé aflétt af fóstur-
eyðingum, hafi samþykkt að kon-
um af hættusvæðunum verði
heimilað að gangast undir fóstur-
eyðingu, ef læknar segja að hætta
sé á vansköpun barna þeirra.
Brezku sérfræðingarnir, sem
eigendur Icmesa-verksmiðjunnar
hafa ráðið, segja að það gæti tekið
allt aö þrem mánuðum að setja
upp raunhæfa áætlun um eyðingu
mengunar af völdum eiturefn-
anna.
Þeir eru þó bjartsýnir á að fólk
geti flutt til heimila sinna á svæð-
inu innan tiltölulega skamms
tima.
— Við höfum þegar átta eða niu
hugmyndir sem hægt er að nýta
tilað leysa vandamál þetta, sagði
Jackman i gær.
Flóttafólkið, sem dvelur i mik-
illi hótelsamstæðu í Milan, var þó
svartsýnt um framtið staa i gær.
' '
Amin neitar
allri vit-
neskju um
Bretana tvo
Reuter, Nairobi. — Jack
Tully, annar af tveim
Bretum sem talið er, að hafi
verið handteknir og fangels-
aðir i Uganda, hefur verið
sleppt að þvi er diplómatar i
Nairobi skýrðu frá i gær.
Var sagt að Tully, sem er
sextiu og fimm ára gamall,
hafi sézt á gangi á götu i
Kampala.
Enn hafa engar fregnir
borizt af Graham Clegg,
þrjátiu og átta ára gömlum
Breta, sem talið er að hafi
einnig verið fangelsaður.
Tully hefur ekki enn látið
vita af sér i franska sendi-
ráðinui Kampala, en það sér
um málefni Breta i Uganda,
eftir að brezka rikisstjórnin
sleit stjórnmálasambandi
við landið.
Franska sendiráðið neitar
að svara spurningum um
Bretana tvo.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum að Clegg hafi
verið handtekinn i Soroti, i
austurhluta Uganda, siðast-
liðinn miðvikudag og hafi
verið sakaður um njósnir.
Nokkrum klukkustundum
siðar fór Tully til lögreglu-
stöðvarinnar i Soroti til að
spyrjast fyrir um Clegg,en
var þá handtekinn sjálfur.
Ekki var vitað á hvaða for-
sendum hans handtaka fór
fram, eða hvort einhverjar
sakir voru á hann bornar.
RikisstjórnUganda neitaði
i gær að vita nokkuð um
Bretana tvo, sem saknað
hefur verið i sex daga, og
sagði að sögusagnir um að
þeir hafi verið handteknir
væru áróður og ekkert ann-
að.
fell»SHORNA
Á IVIILLI
Spánskir
fangarí
hungurverkfalli
Reuter, Madrid. — Meir en
fjörutiu pólitiskir fangar héldu
áfram hungurverkfalli sinu i
Carabanchel-fangelsinu i
Madrid á Spáni i gær, en það
hófst hjá þeim á mánudag.
Með hungurverkfalli þessu
eru fangarnir að mótmæla þvi
hve náðun sú á pólitiskum
föngum sem Juan Carlos,
Spánarkonungur, samþykkti á
föstudag i siðustu viku, nær til
takmarkaðs hóps.
1 gær var ekki að fullu ljóst
hve margir af pólitiskum
föngum á Spáni, sem taldir
eru um sex hundruð og þrjá-
tiu, myndi verða náðaðir, en
Landelino Lavilla, dómsmála-
ráðherra landsins, sagði á
föstudag aðhann teldi að þeir
yrðu um tvö hundruð.
Sérstaklega hefur það vakið
mótmæli i fangelsum á Spáni
að náðunin á ekki að ná til
neinna þeirra sem dæmdir eru
fyrir brot á almennum hegn-
ingarlögum, né heldur þeirra
sem dæmdir eru fyrir likams-
meiðingar.
Myrti sjúkl-
inga sína............
Reuter, Wuppertal. — Fyrrum
yfirmaður dvalarheimilis
aldraðrasem rekið er af kirkj-
unni i Wuppertal i
Vestur-Þýzkalandi, fannst i
gær meðvitundarlaus i fanga-
klefa sinum, eftir að hann
hafði gert tilraun til að hengja
sig, en hann var á mánudag
fundinn sekur um að hafa
myrt tvö gamalmenni, sem
dvöldu á heimilinu.
Fangelsisyfirvöld segja að
maðurinn, Rudolf Zimmer-
mann, sem er fjörutiu og sjö
ára gamall, hafi bundið
lampasnúru um háls sér og
fest hinn enda hennar við
rúmstæðið i klefa sinum. Hafi
hann reynt að kyrkja sig á
þennan hátt.
Zimmermann, sem er
hjúkrunarmaður að mennt,
var sakfelldur fyrir að hafa
myrt tvær konur með þvi að
gefa þeim of stóraskammta af
deyfilyfjum. Þá var hann
einnig dæmdur sekur um að
hafa reynt að myrða fjóra til
viðbótar af sjúklingum sinum.
Zimmermann hefur visað
ákærunum á bug og sagðist
hann aðeins hafa hjálpað
sjúklingunum að deyja. Hann
hefur lýst þvi yfir að veröld
hans hafi hrunið þegar Þriðja
riki Adolfs Hitler féll.
Dæmdur fyrir
njósnir....
Reuter, Dusseldorf. Dómstóll i
Dusseldorf i Vestur-Þýzka-
landi dæmdi i gær fjörutiu og
sjö ára gamlan sálfræðing til
tveggja ára og niu mánaöa
langelsisvistar, fyrir njósnir i
þágu Austur-Þýzkalands.
Sálfræðingurinn, Urlich
Reeps, sem starfaði i Afriku-
deild Konrad Adenauer stofn-
unar kristilegra demókrata,
afhenti A-Þjóðverjum skýrsl-
ur um ferðir sinar til Afriku
og aðrar upplýsingar sem
varða öryggi rikisins einnig.
Leitað orsaka
sjúkdóms...........
Reuter, llarrisburg. —
Embættismenn heilbrigðis-
yfirvalda hófu i gær ákafa
rannsóknarstofuleit að or-
sakavaldi óþekkts sjúkdóms,
sem virðist svipa mikið til
influensu, en sjúkdómur
þessi hefur þegar orðið nitján
manns að bana i Bandarikjun-
um.
Aö þvi er heilbrigðisyfirvöld
segja hafa þegar komið upp
fimmtiu ogniu önnur tilfelli og
eykst fjöidi þeirra sem sjúk-
dómurinn leggst á sifellt.
Framhald á bls. 19.'
Framhald á bls. 19.
✓
Rukkunarheftin
Blaðburðarfólk Tímans
er vinsamlega beðið að sækja
rukkunarheftin á afgreiðslu
Brazilíukaffi
Lrvalskaffi