Tíminn - 20.08.1976, Page 19
Föstudagur 20. ágúst 1976
TÍMINN
19
flokksstarfið
- N
Ungt framsóknarfólk í Keflavík
V.
Félagsfundur verður haldinn næstkomandi mánudag 23. ágúst
kl. 20.30 i framsóknarhúsinu.
Dagskrá: Kjör fulltrúa á þing SUF að Laugarvatni.
Stjórnin.
Héraðsmót framsóknarmanna i Skagafirði verður haldið að
Miðgarði laugardaginn 21. ágúst og hefst kl. 21.00.
Ræðumenn verða Ólafur Jóhannesson, dómsmálaráðherra og
Steingrimur Hermannsson, alþingismaður.
Skemmtiatriði: Garðar Cortes og Ólöf Harðardóttir syngja
tvisöng og einsöng með undirleik Jóns Stefánssonar. Karl
Einarsson gamanleikari, fer með gamanþætti. Hljómsveit Geir-
mundar leikur fyrir dansi.
V -------------------------------------------------------/
-------------------
Austur Húnavatnssýsla
Aðalfundur félags ungra framsóknarmanna I Austur Húna-
vatnssýslu verður haldinn 1 félagsheimilinu Blönduósi, 20. ágúst
klukkan 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf og kosning fulltrúa á SUF þing.
V______________________________________________^
Austurríki — Vínarborg
Fyrirhuguð er ferð til Vinarborgar 5.-12. sept. n.k. Þeim, sem
hug hafa á"að láta skrá sig i ferðina, er bent á að hafa samband
við skrifstofu Framsóknarflokksins hið fyrsta.
Einnig eru laus nokkur sæti i ferð til Iriands 30. ágúst-3. sept.
Skrifstofa Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna Rauöarárstig 18
Simi 24480.
r
Árnesingar
Sumarhátið ungra framsóknarmanna i Arnessýslu veröur
haldin i Árnesi laugardaginn 21. ágústog hefst kl. 21.00.
Ræður flytja Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur og
Pétur Einarsson, ritstióri.
Tii skemmtunar verður: Söngtrióið Við þrjú, Baldur Brjánsson
og síöan leikur hljómsveit Ólafs Gauks fyrir dansi.
V________________________________________________________/
Orðsending til framsóknarmanna
í Kjósarsýslu
Framsóknarfélag Kjósarsýslu hefur nú náð hagstæöum samn-
ingum við Samvinnuferðir, sem gefa félagsmönnum kost á
ódýrum ferðum til Kanarieyja i vetur, en ferðirnar hefjast I
október. Upplýsingar gefur Kristján B. Þórarinsson Arnartanga
42 Mosfellssveit simi 66406 á kvöldin.
V ______________ —---------------------
O Jafntefli
vörður Fram, bjargaði
meistaralega með úthiaupi —
hann náði að slá knöttinn aftur
fyrir endamörk, og Valsmenn
fengu hornspyrnu — sem átti
eftir að skipta sköpum I leikn-
um.
Albert Guðmundsson var
fljótur og framkvæmdi spyrn-
una I snarhasti. Knötturinn
barst fyrir mark Framliðsins,
en hvað skeði. Ásgeir Eliasson
tók knöttinn niður með brjóst-
inu — og hann hrökk siðan út i
vitateiginn. Framarar hættu
— þeir stóðu hreyfingarlausir,
þegar Ingi Björn Albertsson
kom aðvifandi og skoraöi úr
mjög þröngu færi. Dómarinn
flautaði og dæmdi mark — en
Framarar áttu erfitt með að
sætta sig við dóminn og mót-
mæitu kröftuglega við dómar-
ann, Þorvarð Björnsson.
Áhorfendur áttu erfitt með
að átta sig á þessu atviki —
menn horfðu undrandi hver á
annan og spurðu: Hvað skeði?
— Hvers vegna hættu Fram-
ararog reyndu ekki að verjast
skotinu frá Ingi Birni? Já,
hvað skeði? Róbert ljósmynd-
ari Timans stóð fyrir aftan
markið, þegar atvikið átti sér
stað,hann sagði svo frá: Al-
bert var búinn að taka horn-
spyrnuna áður en Þorvarður
flautaði, að hann mætti fram-
kvæma spyrnuna. Knötturinn
var kominn i loftið, þegar
dómarinn flautaði og Framar-
ar stöðvuðu — og litu á dómar-
ann. Þeir héldu greinilega að
hann væri að flauta á eitthvert
brot og hættu þess vegna,
sagði Róbert. Ýmsir kunnir
knattspyrnuunnendur ræddu
um þetta atvik i hálfleik og
voru þeir allir á þeirri skoðun,
að þarna hefði dómarinn gert
mistök — hann hefði með réttu
átt að flauta aftur og láta
Valsmenn endurtaka horn-
spyrnuna.
Eftir markið jafnaðist leikur-
inn, en siöan fóru Framarar að
sækja. Sigurbergur Sigsteinsson
átti skalla, sem rétt strauk þver-
slá. Sigurbergur var siðan aftur á
ferðinni, þegar hann skoraði
jöfnunarmark (1:1) Fram á 35.
minútu. Trausti Haraldsson átti
þá góöa sendingu fyrir mark
Valsmanna, þar sem Sigurbergur
var á réttum staö — hann stökk
upp og skallaði knöttinn örugg-
lega upp undir samskeytin á
Válsmarkinu.
Eggert Steingrimsson fékk
gullið tækifæri til að bæta öðru
marki við, fyrir Fram, fimm
minútum siðar. Hann stóð þá
fyrir miöju marki, þegar hann
fékk knöttinn — en hann hitti
hann illa og knötturinn strauk
þverslá Valsmarksins. Valsmenn
náðu siðan góðum tökum á leikn-
um i siðari hálfleiknum, en þá
höfðu þeir þægilegan vind i bakið.
Framarar sóttu við og við, en þeir
náðu ekki að koma knettinum 1
netið hjá Valsmönnum, þrátt
fyrir nokkrar góöar sóknarlotur.
Hámark sóknar þeirra var svo,
þegar Rúnar skaut I stöng, eins og
fyrr segir — en Valsmenn sluppu
með „skrekkinn” og jafntefli
varð staðreynd.
Bergsveinn Alfonsson var bezti
maður Valsliðsins — hann var si-
fellt á ferðinni, stöðvaði sóknar-
lotur Framara og byrjaði jafn-
harðan að reyna að byggja upp
sóknarlotur fyrir Valsmenn, meö
vel hugsuðum og nákvæmum
sendingum. En varnarveggur
Fram var fastur fyrir — og
Framarar náðu að bæla niður
flestar sóknarlotur Valsmanna,
sem fóru að reyna langskot, þeg-
ar þeir sáu, að þeir áttu erfitt með
aö komast i gegnum Framvörn-
ina. Sigurður Dagsson átti einnig
góðan leik — varði vel og greip oft
vel inn I leikinn.
Ásgeir Eliasson, Sigurbergur
Sigsteinsson, Rúnar Gislason og
Trausti Haraldsson voru beztu
menn Fram. Eins og svo oft áöur
var varnarleikur Fram-liðsins
sterkur, en sóknarleikurinn nær
bitlaus. —SOS
0 Ingi Björn
markvörður Vals, meiddist Iltil-
lega I gærkvöldi — og treysti hann
sér þess vegna ekki til að leika
gegn Luxemborgarmönnum. Þá
mun Matthias Hallgrimsson vera
veikur — og kemur hann þvi ekki
frá Sviþjóð. —SOS
o Svartolía
brennslu svartollu er. En þeirri
hlið málsins hefur Óttar Karlsson
skipaverkfræðingur gert grein
fyrir.
Þá vil ég og lltillega minnast á
svartoliu þá, Intermediate No. 2,
erviö höfum mestmegnis brennt.
Þessiolla hefur yfirleitt veriö það
hrein, að nægt hefur að hreinsa
skilvindutvisvará sólarhring. En
við höfum ekki sjálfhreinsandi
skilvindur. Hins vegar höfum við
nokkrum sinnum tekið hérlendis
rússneska „Light Fuel” svart-
oliu. Hún hefur minni seigju en
Intermediate No. 2, en hefur
reynzt misvel hrein, svo að erfið-
leikum hefur vaidið. Þetta ætti þó
ekki að koma að sök hafi menn
sjálfhreinsandi skilvindu. En
þykkari eldsneytisoliu en Inter-
mediate No. 2 tel ég vafasamt að
brenna I vélum af þeirri stærð, er
við mest notum, þar eö slikt út-
heimtir kostnaðarsamari útbún-
að, svo sem hitasplrala 1
geymsluhylki o.fl., erekki svarar
kostnaöi, nema að notkun sé þvi
meiri, svo sem I mikið stærri
skipum en okkar eru.
Þá vil ég og geta þess, að
brennsla svartollu, sér i lagi i hin-
um meðalhraðgengu dieselvél-
um, gerir án efa meiri kröfur um
hæfni vélstjóranna, er þeim
stjórna, en þegar brennt er létt-
ara eldsneyti. Kemur þar margt
til.
Og aö lokum þetta. Væri þaö nú
ekki æskilegur áfangi, ef raðstaf-
anir væru gerðar til þess, nú
þegar, aðgera öllum þeim kleift,
ergetaogekki treysta sér til þess
aö brenna svartoliu á vélum sin-
um, að brenna nú Marine Diesel-
oil i' stað Marine Gasoil, sem nú er
gert. En sú olla er nú 1375,00 kr.
ódýrari pr. tonn i höfnum i
Evrópu. Og gerum viö nú ráð fyr-
ir að þessi skip noti um 120.000
tonn á ári af Marine Gasoil. Þá
sparastvið þetta um I65milljónir
króna, og munar um minna.
Jón örn Ingvarsson,
(sign), vélstjóri.
Rokkhátíð í
Laugardalshöll
Gsal-Reykjavik. — Miðvikudag-
inn 1. september næstkomandi
verður haldin rokkhátið I Laugar-
dalshöll, þar sem fimm af vinsæl-
ustu rokkhljómsveitum landsins
koma fram. Rokkhátið sem þessi
hefur ekki verið haldin hérlendis
frá þvi árið 1969, en frumkvöðull
og framkvæmdastjóri þessarar
hátlðar er Óttar Felixson.
Þær hljómsveitir sem koma
fram á hátiðinni, sem nefnist
„Rock’n’roll festival” eru
Paradis, Celsius, Cabarett, Fresh
og Eik.
Forsala aögöngumiða er þegar
hafin viðs vegar um land, en verð
hvers aðgöngumiða er 2000 krón-
ur.
Héraðsmót
Héraðsmót framsóknarmanna á Austurlandi verður haldið I
Valhöll .Eskifirði, laugardaginn 28. ágúst og hefst kl. 21.Avörp
flytja alþingismennirnir Tómas Arnason og Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráðherra. Skemmtiatriði auglýst siö-
ar.
Kjördæmisþing Austurlandi
Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Austurlandi verður
haldið dagana 28. og 29. ágúst I Valhöll Eskifirði
Þingið hefst laugardaginn 28. ágúst kl. 14. Auk hinna hefð-
bundnu starfa þingsins verða orkumál Austurlands rædd. Fram-
sögumenn og gestir þingsins verða Jakob Björnsson orkumála-
stjóri og Erling Garðar Jónasson rafveitustjóri Austurlands.
Ungt framsóknarfólk
16. þing SUF verður haldið að Laugarvatni dagana 27.-29. ágúst
n.k.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna sem fyrst og til-
kynnið þátttöku. stjórn SUF