Tíminn - 15.09.1976, Síða 15

Tíminn - 15.09.1976, Síða 15
Miðvikudagur 15. september 1976. TÍMINN 15 „Mátti hrósa happi, að þurfa ekki að hirða knöttinn úr netinu" RÚNAR GÍSLASON... átti mjög gó&an leik gegn Slovan i gærkvöldi og lék hann lands- iiöskappa Tékka oft grátt meö hinum mikla hraöa sinum. Hér sést hann sækja aö marki Slovan, en Venvel náöi aö góma knöttinn á réttu augna- bliki. Pétur Ormslev sést I baksýn, fylgjast spenntur meö. (Timamynd Róbert). — sagði Alexander Venvel, markvörður Slovan Bratislava — Já, ég mátti hrósa happi, að þurfa ekki að hirða knöttinn úr netinu hjá mér — það skall oft hurð nærri hælum, sagði hinn leikreyndi markvörður Slovan, Alexander Venvel, fyrirliði Bratislava-Iiðs- ins, eftir leikinn, en hann varði tvisvar sinnum af mikilli snilld, skot frá Eggerti Steingrimssyni og Pétri Ormslev. — En til hvers er ég i markinu, nema til að verja og dekka upp mistök vamar- manna minna, sagði Venvel. — Hvaöviltu segja um leikinn? — Þaö var hroöalegt aö leika á þessum velli, hann er ónýtur. Ég skil ekki hvers vegna Islendingar, sem hafa allt þetta heita vatn, eru ekki búnir aö leggja hitalagnir undir grasiö, til aö halda þvi þurru. Já, völlurinn var lélegur — þannig aö bæöi viö og Fram-liöiö gátum ekki sýnt okkar beztu hliö- ar. — Hverju viltu spá um leikinn i Bratislava? — Viö vinnum Fram-liöiö meö svipuöum mun. Þá veröur leikiö á betri velli og verður knattspyrnan hjá Slovan og Fram þá miklu betri. — Hvaöa leikmenn hjá Fram fannst þér beztir? — Fyrirliðinn (Jón Pétursson) var mjög góöur og einnig leik- mennirnir nr. 9 (Rúnar Gisla- son),sem er afar fljótur, ognr. 10 (Asgeir Eliasson), sem er leikinn og skemmtilegur leikmaður. Ásgeir Eliassonátti mjög góöa leik — gaf Tékkunum ekkert eftir á miðjunni. — Við vorum klaufar aö skora ekki svona 1-2 mörk. Þaö var erfitt að leika gegn Tékkun- um, þar sem þeir eru m jög leiknir og halda knettinum vel — og þá eru þeir fljótari aö hugsa, heldur en viö, sagöi Ásgeir. Fyrsta markiö sem Fram-liöiö fékk á sig var afar ódýrt. — Ég vissi ekki af manninum fyrir aft- an mig. Hélt aö hann væri ekki svona nálægt, sagöi Trausti Haraldsson, sem ætlaöi aö senda knöttinn til Arna. — Knötturinn datt dauður niöur i svaðinu á vellinum, svo það var létt fyrir Tékkann, aö ná honum og skora, sagði Trausti. Arni Stefánsson markvöröur Fram, sagði aö þaö hafi verið grátlegt aö fá svona mörg mörk á sig. Jón Pétursson tók i sama streng og sagöi aö mörkin hafi öll komið eftir slæm mistök. — Viö vorum of ákafir aö sækja og gleymdum þess vegna aö dekka upp. Tékkarnir komust á auöan sjó, til að byggja upp mörkin, sagði Jón. —SOS Stór- sigur „Blóðugt að fó ó sig þessi ódýru mörk... - og misnota síðan mörg gullin marktækifæri, sagði Guðmundur Jóns son, þjólfari Fram, sem tapaði (0:3) fyrir Slovan á Laugardalsvellinum — VIÐ getum ekki verið annað en óánægðir — við feng- um á okkur ódýr mörk og síðan skoruðum við ekki í gullnum marktækifærum, sagði Guðmundur Jónsson, þjálfari Fram. — Knattspyrnulega séð, léku strákarnir góða sóknarknattspyrnu, en það vantaði aðeins enda- hnútinn. Við bárum of mikla virðingu fyrir Tékkunum í fyrri hálf leiknum, en í þeim síðari réðu strákarnir full- komlega við leikmenn Slovan, sagði Guðmundur. Bayern Evrópumeistarar Buyern Munchen unnu stórsigur (5:0) i Kaupmannahöfn i gærkvöldi, þegar þeir mættu Köge.Franz Beckcnbauer og Uli Höness tóku strax tökin á miöjunni i slnar hendur og Bayern skora öi 1 inörk í fyrri hálfleik — Sviinn Conny Torslenson skoraöi 2 mörk og aö sjálfsögöu skoraöi Gerd ..Bomber” Muller 2 mörk*. Bernd Durnberger skoraöi fimmta mark Bay- ern og stærsti ósigur sem danskt liö hefur hlotið á heimavelli i Evrópukeppni, varð staði-evnd. Liverpool sigraði á Anfield „RAUÐI herinn” frá Liverpool vann sigur (2:0) yfir Crusaders frá N-trlandi I Evrópukeppni meistaraliöa, þegar liöin mættust á Anfield Road i Liverpool. Phil Neal og John Toshack skoruöu mörk Mersey-liðsins. Framarar voru svo sannarlega óheppnir i gærkvöldi gegn Slovan. 2.200 áhorfendur sáu þá leika góöa knattspyrnu og veita tékk- nesku köppunum haröa keppni. En þeim tókst ekki aö skora, þrátt fyrir mörg gullin marktækifæri. Sigur (3:0) Slovan varofstór eftir gangi leiksins. Farmarar verða fyrir atalli Farmarar fengu fyrsta mark- tækifæriö i leiknum, þegar Egg- ert Steingrimsson tók hornspyrnu á 5. minútu og sendi knöttinn vel fyrir mark Slovan. Knötturinn barst til Kristins Jörundssonar, sem reyndi skot — en heppnin var ekki meö honum, þvi aö knöttur- inn strauk stöngina. Eftir þetta gullna tækifæri uröu Framarar fyrir áfalli — þeir þurftu aö hiröa knöttinn úr netinu hjá sér, eftir slæm varnarmistök. 1:0...Jan Capnovic brunaöi þá upp vinstri kantinn og sendi knöttinn fyrir mark Framara. Þar fékk Trausti Haraldsson knöttinn og ætlaöi aö senda hann aftur til Arna. Hann hitti knöttinn illa —og Jan Haraslin komst inn i sendinguna og skoraði auöveld- lega. Slovan bætti siöan öðru marki viö á 28. minútu, þegar þeir náöu góöu hraöaupphlaupi, sem endaði meö þvi að Haraslin skor- aöi glæsilegt mark, eftir sendingu frá Capnovic. Haraslin var á auö- um sjó og spyrnti knettinum úr vitateigi, viðstööulaust i mark Framara. Framarar vakna til lífsins Framarar mættu ákveönir til leiks i siöari hálfleik og strax á 3. minútu fékk Pétur Ormslev gullið tækifæri til að skora — hann stóö fyrir opnu marki, þegár hann fékk sendingu frá Simoni Krist- jánssyni, en hitti ekki knöttinn. Framarar náöu góöum tökum á leiknum og léku skinandi knatt- spyrnu, þar sem knötturinn gekk á milli manna. En þegar þeir sóttu sem mest (16. min.) náöu Slovan-leikmennirnir hraöaupp- hlaupi, sem endaöi meö þvi aö Josef Mrva skallaöi knöttinn yfir Arna Stefánsson, markvörö, sem var kominn of langt út úr mark- inu. Heppnin ekki með Fram Leikmenn Fram gáfust ekki upp viö þetta mótlæti — þeir héldu áfram að sækja aö marki Slovan og nokkrum sinnum mun- aöi ekki miklu, að þeim tækist að skora. Asgeir Eliasson átti þrumuskot aö marki Tékkanna, sem skall i þverslá. Eggert átti Framhald á bls. 19. Islendingar fengu skell ó Skaganum ISLENDINGAR máttu sætta sig við tap (18:20) gegn Svisslendingum ihandknatt- leik, þegar þjóöirnar mætt- ust á Akranesi I gærkvöldi. Viöar Sintonarson skoraöi flest mörkm, eöa 6, en þeir Björgvhi 5, Geir 4, Þorbjörn Guðmundsson 1, Agúst Svavarsson 1 og ölafur Einarsson I.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.