Tíminn - 22.10.1976, Page 9

Tíminn - 22.10.1976, Page 9
Föstudagur 22. október 1976 TÍMINN Fækkun í stofni hafarnaríns í Evrópu Dagana 24.-26. september siðastlibinn var haldinn i Noregi ráðstefna á vegum WWF (World Wildlife Fund), og var þar margt til umræðu. Meðal annars sem bar á góma var á- standið i hafarnarstofninum. Frá næstum öllum þátttöku- löndunum komu fregnir um veika eöa rýrnandi stofna aö Noregi undanskildum. En þar er arnarstofninn tiltölulega sterkur, og er Noregur eina landið i Evrópu, sem getur Ut- vegað fugla til að styrkja stofn- ana i öðrum löndum. Bent var á nauðsyn þess aö fylgzt sé með norska stofninum, og stuðlað verði að viðhaldi hans eins og unnt er. Niöurstööur rannsókna sem gerðar hafa veriö eöa standa yf- ir I mörgum löndum, sýna glögglega, að fiskur og sjófugl erumeginuppistaðan f fæðu haf- arnarins. Þær rannsóknir, sem geröar hafa verið á vegum WWF i Noregi sýna, að hvorki kvikfénaði né hreindýrum stafi ógn af haferninum. Samhljóöa niöurstöður fengust viö rann- sóknir i öðrum löndum. Fjöl- margar athuganir sýndu, að hafernir, ær, geitur og hreindýr lifðu svo að segja hlið við hliö án þess að örninn gerði nokkurn usla i liði þeirra. Þetta var sannað með ljósmyndum og ná- kvæmum skýrslum. Hér á landi eru ófáar sögurn- ar, sem sagðar hafa veriö um örninn, og hve bændur hafi gold- iðmikið afhroð af hans völdum, þar sem hann hafi lagzt á lömb og meira að segja stundum hremmtbörn. Af þessum sökum lá við, að erninum yröi Utrýmt hér. En í Noregi og flestum öðrum löndum, þar sem haförn hefur aðsetur, viröist fólk almennt já- kvætt i skoðunum um örninn. Það var í örfáum löndum, þar sem aðra sögu var að segja, og oftast var það þá byggt á mis- skilningi eða þekkingarskorti á lifsháttum hafarnarins og hlut- verki hans i náttúrunni. Þaö sem einna helzt ógnar til- veru hafarnarins er eyöilegg- ing, bæði á hreiðrumog lifsvæöi hans, ólögleg veiði, aukaáhrif, sem eitranir (kvikasilfur, DDT, PBC o. fl.) hafa á eggja- og ungaf ramleiðsluna. Bent var á mikilvægi þess aö koma á framfæri við almenning háldgóðum upplýsingum um örninn til aö tryggja afkomu hans. önnur úrræði, sem bent var á, eru um að styrkja stofn- inn i löndum þar sem hann er á undanhaldi, fóðrun fuglanna að vetrum með fóðri sem engum eiturefnum hefur veriö blandaö i og að vaka yfir hreiörum. Undirstrikað var, að þörf væri á sterkari lögvernd og hertu eftir- liti, ásamt þeim ákvöröunum sem að framan eru taldar, og ennfremur bent á mikilvægi al- þjóðlegrar samvinnu viö rann- sóknarstörf. Vísindalegar rannsóknir eru nú í gangi i öllum „hafarnar- löndum”, og fela þær i sér skráningu og mat á stofninum, æxlun, athugun á lífsvæöum, hættum, sem ógna þeim osfrv. Ahrif, sem skógarhögg hefur á haförninn var sérstaklega rætt af fulltrúum landanna i kring- um Eystrasaltið; Finnlandi, Póllandi Sviþjóö og Vestur- Þýzkalandi, en i þeim löndum hefur skógarhögg skapaö mikið vandamál, sökum þess að hreið- urtrén eru höggvin niður, eða trén i kringum þau þannig að þau standa ein og skjóllaus á bersvæöi. A ráðstefnunni kom fram aö áriö 1975-1976 hafi fimm hundr- uð og áttatiu til fimm hundruö og niutiu verpandi hjón verið I v- evrópska stofninum, en þar af tilheyrðu fjögur hundruö og fjörutiu til fimmtlu hjón norska stofninum. 1 mörgum löndum er stofninn orðinn mjög þunnskipaður og aðeins örfá hjón eftir. 1 Vestur- Þýzkalandi t.a.m. var aðeins vitaö um fimm verpandi pör ár- iö 1976. Þaö sem er hvaö mest ógnvekjandi við ástandiö i haf- arnarstofninum i allmörgum löndum (þar á meðal Finnlandi, Sviþjóöog V-Þýzkalandi) er, að ungaframleiðslan hefur stór- lega minnkað vegna eitrunar. 1 þessum löndum er timgunin ekki lengur nógu ör til að við- halda stofninum og vofir þvi ekkert annað yfir en útrýming ef fram heldur sem horfir, og ef ekkert afgerandi veröur gert til bóta i málinu. 465 nefndir kostuðu 123.5 mi llj. kr. FJ-Reykjavík. Fjögur hundruð voru nefndirnar á vegum sextiu og fimm nefndir störfuðu menntamálaráðuneytisins, eða á vegum ríkisins á siðasta ári og 150 talsins, en næst aö nefnda- var kostnaðurinn af þeim 123,5 fjölda var iðnaðarráðuneytið milljónir króna. Langflestar meö 58 nefndir. Kostnaðurinn við nefndir menntamálaráöu- fjárlaga- og hagsýslustofnunar neytisins var 22,3 milljónir en fjármálaráðuneytisins um viö nefndir iðnaðarráöuneytis- stjórnir, nefndir og ráð rikisins ins tæpar 20 milljónir. Þessar árið 1975. upplýsingar koma fram i riti Heildarfjöidi nefnda 1975 Heildarfjöldi nefndarmanna Nefndaþóknun kr. Annar kostnaóur kr. Kostnaður samtals kr. Forsætisríðuneytið 20 110 5.565.140 860.219 5.425.359 Menr.ta.tálaráðuney tið 150 710 19.280.717 2.980.509 22.261.325 'Jtanríkisráðuneytii 6 22 1.435.959 27 2.666 1.753.627 L.indbúnaðarráðunaytið 22 107 4.861.599 2.192.744 7.054.343 S j áv srútve gsráðun s ytið 25 183 11.270.270 749.067 12.019.337 Dóúis- og kirkjumálaráðuneytið 45 231 5.784.609 1.035.404 5.920.013 Fáiat":r';íl.trsðuneytið 21 116 7.654.049 1.359.000 9.013.049 Heiibrigðis- og tryggingamálaráðun. 43 211 9.454.497 3.238.350 12.692.847 Fjármálaráðuneytið 23 131 11.663.980 1.080.453 12.744.433 Samgcnguráðuneytið 23 142 4.527.444 100.232 4.627.676 Iðnaðarráðuneytið 58 273 14.352.872 5.544.022 19.906.894 Viðskiptaráðuneytið 11 70 4.756.654 - 4.756.654 Hagstofa ísiands 1 4 245.560 - 245.560 Fjármáiaráðun. , fjárl. og 'nagsýslust. 7 30 1.784.000 1.348.453 3.132.453 Samtal s 465 2. 340 102.697.350 20.760.221 123.457.571 Vetrarverð i sólar- hring rneð morgunveröi: Eins manns kr. 2.500 2ja manna kr. 4.200 Vetrarverð i viku meö morgunverði: Eins manns kr. 13.500 2ja manna kr. 22.600 HÓTEL HOF Tíminn er peningar I AugtýsicT \ í Timanum i MMMMMMMfMMMMMMMM#

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.