Fréttablaðið - 29.12.2005, Page 2
2 29. desember 2005 FIMMTUDAGUR
ÁRAMÓTAVEÐRIÐ Samkvæmt nýjustu
spám er útlit fyrir þokkalegasta ára-
mótaveður. Sigurður Þ. Ragnarsson
veðurfræðingur segir að á gamlárs-
dag verði líklega slydda á höfuð-
borgarsvæðinu en
þegar taki að líða
á daginn stytti upp
og að um miðnætti
megi búast við því
að aðstæður til að
horfa á flugeld-
ana springa verði
nokkuð góðar.
S a m k v æ m t
nýjustu veðurspá
Veðurstofunnar
er gert ráð fyrir
að hæg austanátt
verði á landinu og
helst má reikna
með úrkomu á Suðaustur- og Aust-
urlandi. Annars staðar er gert ráð
fyrir þurru veðri og jafnvel er von á
bjartvirði á Vestur- og Norðurlandi.
Samkvæmt spánni verður hiti á bil-
inu núll til fjögur stig við suður- og
austurströndina en annars staðar
má búast við smá frosti. - sk
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18
Opið virka daga: 10-18
laugardaga: 11-15
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
Allir með strætó Akraneskaupstaður
og Vegagerðin undirrituðu samning í
gær um almenningssamgöngur á milli
Reykjavíkur og Akraness. Um leið var
skrifað undir samning milli Akranes-
kaupstaðar og Strætó bs. um tengingu
Akraness við leiðakerfi Strætó. Það mun
kosta 150 krónur fyrir eldri borgara og
öryrkja að skreppa upp á Skaga.
SAMGÖNGUR
SJÁVARÚTVEGUR Starfsmenn Brims
hf. á Akureyri hafa verið boðaðir
á starfsmannafund í dag þar sem
kynntar verða breytingar á rekstri
félagsins.
Guðmundur Kristjánsson, for-
stjóri og aðaleigandi félagsins,
verst allra frétta af skipulags-
breytingunum og kveðst fyrst vilja
kynna þær fyrir starfsmönnum.
Samkvæmt frétt Ríkisútvarps-
ins er ráðgert að stofna sérstakt
félag um landvinnsluna undir nafni
ÚA. Þá verði einnig stofnað sérstakt
félag um útgerð fiskiskipanna, sem
að mestu er stjórnað frá skrifstofu
Brims í Reykjavík.
Aðalfundur Sjómannafélags
Eyjafjarðar verður haldinn í dag
og er ráðgert að fjalla um breyting-
ar í sjávarútvegi í byggðarlaginu.
Eftir því sem næst verður kom-
ist leggjast ýmsar breytingar illa
í þá, svo sem fækkun í áhöfnum
fiskiskipa.
„Við höfum beðið eftir sjómönn-
um og segjum ekkert um málið fyrr
en eftir starfsmannafund í dag,“
segir Guðmundur Kristjánsson,
sem segir fyrirhugaðar breytingar
ekki sérlega miklar.
Landsbankinn seldi núverandi
eigendum Útgerðarfélag Akureyr-
inga fyrir tæpum tveimur árum og
er Brim, arftaki þess, einn stærsti
atvinnurekandinn á Akureyri.
- jh
Starfsmannafundir eru haldnir í dag hjá útgerðarrisanum Brimi á Akureyri:
Félag stofnað um landvinnslu
KORTAVIÐSKIPTI Kreditkortavið-
skipti landsmanna fyrir þessi jól
voru í meðallagi samkvæmt upp-
lýsingum frá Vísa Ísland. Notkun
þeirra reyndist mest áberandi á
Þorláksmessu og einnig talsverð á
Aðfangadag.
Anna I. Grímsdóttir hjá Visa
segir engin met hafa verið slegin
í kortanotkun þessi jól, en hafa
beri í huga að tölur um notkun
debetkorta hafa ekki verið teknar
saman og því ekki um tæmandi
samanburð að ræða. „Fljótt á litið
er notkun kreditkorta þessi jólin
um 14 prósentum meiri en í fyrra
en sé litið lengra aftur í tímann þá
hafa nokkur jól verið svipuð eða
stærri en þetta hvað notkunina
varðar. Er þá bæði um upphæðir
og færslufjölda að ræða.“ - aöe
BLÓMSTRANDI JÓLAVERSLUN Kaupmenn
voru himinlifandi með verslun um jólin.
Viðskipti með kreditkort hjá Visa hafa þó
mælst meiri.
Kreditkortanotkun í meðallagi:
Jólaviðskiptin
hafa verið meiri
HARÐBAKUR EINN TOGARA BRIMS Útgerðarstefna Brims verður rædd á aðalfundi Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar í dag.
SIGURÐUR Þ.
RAGNARSSON
Veðurfræðingurinn
spáir ágætis veðri á
höfuðborgarsvæð-
inu á gamlárskvöld.
SPURNING DAGSINS
Jóhann, verða ekki íbúar Ísafjarð-
ardjúps bara að senda ráðherra
kvartanir sínar í pósti?
„Jú, ætli það sé ekki réttast þá að hann
sæki bréfin í gáminn“.
Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingar-
innar, hefur sett út á fyrirhugaðar breytingar á
póstþjónustu í Ísafjarðardjúpi þar sem póstur
verður geymdur í gámi við Rauðamýri áður
en hann verður borinn út.
Ágætt veður á gamlárskvöld:
Góðar líkur á
þurrviðri
Jeppi í veg fyrir vörubíl
Ökumaður jeppabifreiðar missti
stjórn á bifreið sinni og lenti
framan á vöruflutningabifreið
sem kom úr gagnstæðri átt á
Vesturlandsveginum, norðan
við Hreðavatnsskála um þrjú
leytið í gær. Bíllinn endaði utan
LÖGREGLUFRÉTTIR
DÓMSMÁL Mannréttindadómstóll
Evrópu hefur vísað frá máli Kjart-
ans Gunnarssonar, framkvæmda-
stjóra Sjálfstæðisflokksins á
hendur íslenska ríkinu. Dómurinn
tók málið fyrir 1. júní árið 2001 í
kjölfar þess að Sigurður G. Guð-
jónsson lögmaður var sýknaður
bæði í héraði og í Hæstarétti í
meiðyrðamáli sem Kjartan höfð-
aði á hendur honum.
Málið höfðaði Kjartan vegna
opnugreinar sem Sigurður skrif-
aði í dagblaðið Dag 31. október
1999. Greinin bar yfirskriftina
„Er nema von að Steingrímur joð
finni bananalykt!“ og fjallaði um
svokallað FBA-mál. Kjartan vildi
fá ómerkt ummæli sem lágu að
því að hann hafi beitt áhrifum
sínum sem formaður bankaráðs
Landsbankans til að koma í veg
fyrir lánaviðskipti bankans við
Íslenska útvarpsfélagið.
Kjartan vildi fá ómerkt ummæli
um höfnun bankans á lánaviðskipt-
um. „Engar skýringar fengust, þó
var okkur sagt sem stóðum í for-
svari fyrir viðræðum við bankann
að Kjartan Gunnarsson legðist
gegn því að Landsbanki Íslands
ætti viðskipti við félag, sem Jón
Ólafsson ætti aðild að.“ Og um við-
horf sparisjóðanna til sams konar
lánveitingar. „Þar var ákvörðun
um viðskipti við Íslenska útvarps-
félagið hf. tekin á grundvelli við-
skiptalegra hagsmuna sparisjóð-
anna, en ekki á þeim forsendum
hvað væri Sjálfstæðisflokknum
fyrir bestu og forkólfum fjármála-
ráðs flokksins þénanlegt.“
Meirihluti Hæstréttar taldi
Kjartan, vegna þess að hann
væri valdamaður í stjórnmálalífi
þjóðarinnar, verða að una því að
fjallað væri um hann á opinberum
vettvangi. Garðar Gíslason hæsta-
réttardómari skilaði sératkvæði
og vildi dæma kærðu ummælin
ómerk.
M a nnrét t i ndadómstól l i nn
féllst ekki á þau rök Kjartans
að honum hefði, þjóðfélagsstöðu
sinnar vegna, verið mismunað
fyrir dómstólum hér eða að ann-
markar hefðu verið á dómafram-
kvæmd. Af þeim sökum var málið
ekki talið tækt til dóms og því
vísað frá. olikr@frettabladid.is
SIGURÐUR G. GUÐJÓNSSON Sigurður
gegndi áður starfi forstjóra Norðurljósa,
fjölmiðlafyrirtæksins sem þá var í eigu Jóns
Ólafssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KJARTAN GUNNARSON Mannréttindadómstóll Evrópu féllst ekki á að Kjartani hafi, stöðu
hans vegna, verið mismunað fyrir dómstólum hér. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kjartani hafnað af
Mannréttindadómi
Mannréttindadómstóll Evrópu féllst ekki á rök Kjartans Gunnarssonar um að
honum hefði verið mismunað fyrir dómstólum hér. Kjartan tapaði meiðyrðamáli
sem hann höfðaði í ársbyrjun 2000 á hendur Sigurði G. Guðjónssyni.
ÞÝSKALAND Fangaflug Bandaríska
leyniþjónustan hóf fyrir fullum ára-
tug leynilega millilandaflutninga
á föngum grunuðum um að vera
viðriðnir hryðjuverkastarfsemi, en
ekki fyrst eftir hryðjuverkaárás-
irnar á Bandaríkin 11. september
2001. Þetta kemur fram í viðtali við
fyrrverandi CIA-mann sem þýska
vikuritið Die Zeit birtir í dag.
Michael Scheurer stýrði fanga-
flugsáætlun CIA þegar henni var
hleypt af stokkunum árið 1995.
Hann tjáði Die Zeit að Bill Clint-
on, þáverandi Bandaríkjaforseti,
öryggisráðgjafi hans Sandy Berger
og sérlegi hryðjuverkavarnaráð-
unauturinn Richard Clarke, hefðu
falið CIA, haustið 1995, að upp-
ræta Al-Kaída-hryðjuverkanetið.
Í þeim tilgangi hafi hið svokallaða
„sérstaka framsal“ („extraordin-
ary rendition“ á frummálinu) verið
tekið upp, en það heiti nota menn
í höfuðstöðvum CIA yfir aðgerðir
þar sem hinn grunaði er handsam-
aður hvar sem færi til þess gefst og
hann fluttur með leynd til annars
lands þar sem hann er yfirheyrður.
Alls er talið að síðan 11. sept-
ember 2001 hafi um 150 meintir
hermdarverkamenn verið teknir
með þessum hætti. Að því er AP-
fréttastofan hefur eftir háttsettum
CIA-manni lætur nærri að tæplega
tíu manns af þessum 150 hafi í raun
ekkert til saka unnið. Verið sé að
rannsaka þau mál.
Í viðtalinu í Die Zeit sakar
Scheuer Evrópumenn um að koma
óheiðarlega fram í umræðunni.
Leyniþjónustur Evrópuríkja hafi
aðstoðað við framkvæmdina og það
hafi ekki síst verið Evrópumenn
sem nutu góðs af því sem út úr
aðgerðunum kom. - aa
MEINT FANGAFLUGVÉL Á Reykjavíkurflugvelli í nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Nýjar upplýsingar um fangaflutninga bandarísku leyniþjónustunnar CIA:
Fangaflug hófst fyrir réttum áratug