Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 6
6 29. desember 2005 FIMMTUDAGUR Símennt HR býður upp á þrjú námskeið í spænsku á vorönn sem eru metin til þriggja eininga á háskóla- stigi: •Spænska með menningarlegu ívafi I •Viðskiptaspænska II •Viðskiptaspænska IV Námskeiðin eru fyrir byrjendur og lengra komna. Nemendum gefst tækifæri á að þreyta stöðupróf. Á námskeiðinu er lögð jöfn áhersla á ritun, hlustun, lesskilning og talað mál sem og menningu hins spænskumælandi heims. Kennsla hefst 9. janúar og lýkur með prófi 31. mars. Leiðbeinendur eru Margrét Jónsdóttir Ph.D. og Begonia Piedra Lanza Lic. kennarar við Viðskiptadeild HR. -Námskeiðin eru sniðin fyrir þá sem hafa hug á að byrja í háskólanámi og eru metin til þriggja eininga inn í B.s. nám í viðskiptafræði í HR. Verð fyrir eitt námskeið: 50.000,- Hagnýt námskeið í spænsku á háskólastigi Frekari upplýsingar og skráning: Charlotta Karlsdóttir Beinn sími: 599 6258 Skiptiborð: 599 6200 Charlotta@ru.is www.ru.is/simennt SÍMENNT HR www.ru.is/simennt NOREGUR Stór hluti af peningun- um, sem gefnir voru til hjálpar- starfsins í löndunum við Indlands- haf eftir flóðið í fyrra, hefur ekki verið notaður, að sögn Dagbladet í Noregi. Norski Rauði kross- inn hefur til dæmis aðeins notað þriðjung af því sem safnaðist. „Það tekur mörg ár að bæta tjónið,“ segir upplýsingafulltrúi Noregsdeildar Rauða krossins, og lofar því að peningarnir fari ekki í hjálparstarf annars staðar heldur verði notaðir í hjálparstarf vegna flóðbylgjunnar. ■ Hjálparstarf við Indlandshaf: Stór hluti gjafa- fjár ónotaður Mörg ný störf Um 400 þúsund ný störf voru sköpuð á yfirstandandi ári sam- kvæmt tölum stjórnvalda í Simbabve. Eru bundnar miklar vonir við að sama verði upp á teningnum næsta ár. Ferðamönnum fækkar Stjórnvöld hafa áhyggjur af fækkun ferðamanna átt- unda árið í röð. Aðeins 350 þúsund hafa heimsótt landið á þessu ári sem er fækk- un um hundrað þúsund frá síðasta ári. SIMBABVE FUGLALÍF Afkoma kríuunga og andarunga á Tjörninni í Reykja- vík hefur ekki verið verri frá því mælingar á fuglastofnum Tjarn- arinnar hófust 1973. Um mánaðamótin júlí-ágúst 2005 voru aðeins 18 stokkand- arungar á lífi. Engir kríuungar komust á legg og kríuvarpið hefur ekki verið eins fátæklegt frá upp- hafi rannsókna. Þetta kemur fram í skýrslunni Fuglalíf Tjarnarinnar árið 2005. Höfundar skýrslunnar, Ólafur K. Nielsen og Jóhann Óli Hilmars- son, benda meðal annars á að ekki hafi verið lokið við síki sem átti að girða friðlandið í Vatnsmýri af og að vesturhlið friðlandsins sé aðeins varin af girðingu sem er að mestu hrunin. Þá beri nokkuð á landbroti út frá síkjum í friðland- inu. „Mikið rask var samfara flutningi Hringbrautar og flest það ófrá- gengið sem snýr að friðlandinu og lofað var í úrskurði Skipulags- stofnunar, meðal annars hefur að mestu verið fyllt yfir aðallækinn sem rann til Tjarnarinnar, vatns- vegur undir Hringbraut er ófrá- genginn og ekkert bólar á girðingu eða vegg milli Hringbrautar og Vatnsmýrarfriðlands. Mikið land- brot hefur verið síðustu ár í Tjarn- arhólmanum og Litla-Hólmanum og á sama tíma hefur Þorfinns- hólmi orðið samfellt hvannstóð.“ „Við höfum áhyggjur af þessu máli í heild sinni,“ segir Ellý K. Guðmundsdóttir, forstöðumaður umhverfissviðs Reykjavíkurborg- ar. Hún segir skýrsluna verða formlega kynnta í umhverfisráði og þar verði ákveðið hvernig brugðist verði við. „Þetta er mál sem sýnir þann vanda sem við lendum oft í með náttúruverndar- framkvæmdir og ég tel að skoða megi þetta sem dæmi í stærra samhengi. Ég hef fullan hug á að skoða það betur með umhverf- isráði hvernig við getum tryggt betur náttúruvernd í borgarland- inu, þar sem er mikill uppgangur og hugað að enn frekari fram- kvæmdum.“ - jss ENDUR, SVANIR OG GÆSIR Á TJÖRNINNI Enginn kríuungi komst á legg þetta sumar- ið við Tjörnina. Rask á friðlandinu í Vatnsmýri vegna lagningar Hringbrautar: Fuglalífi á Tjörninni ógnað JEMEN, AP Fimm manna þýskri fjölskyldu var rænt í austurhluta arabaríkisins Jemen í gær. Er talið að mannræningjarnir séu af ættbálki al-Abdullah bin Dahha og þeir vilji neyða yfirvöld til að láta aðra meðlimi ættbálksins lausa úr fangelsi. Menn af ættbálkum í dreifbýl- inu í Jemen hafa þrisvar á árinu gripið til þess að ræna vestrænum ferðamönnum í því skyni að knýja fram tilteknar kröfur gagnvart stjórnvöldum í landinu. Iðulega er gíslunum sleppt heilum á húfi, en nokkrir létu lífið er öryggissveitir gerðu misheppnaða tilraun til að frelsa slíka gísla á árinu 2000. ■ Ferðamenn hverfa í Jemen: Þýskri fjöl- skyldu rænt KJÖRKASSINN Á að taka sérstakt gjald fyrir að aka á nagladekkjum í Reykjavík? Já 32% Nei 68% SPURNING DAGSINS Í DAG: Á að auka þjónustu við eldri borgara? Segðu skoðun þína á Vísi.is KJARAMÁL „Ég get sagt að það séu mun fleiri alvarlega að íhuga upp- sagnir um áramótin en ég gerði mér grein fyrir og mun fleiri en þeir sem þegar hafa tilkynnt um það,“ segir Björg Bjarnadóttir, for- maður Félags leikskólakennara. Allnokkrir kennarar í félaginu höfðu tilkynnt um uppsagnir sínar frá áramótum vegna óánægju með kjör sín og vegna virðingarleysis sem menntuðu fagfólki í geiranum er sýnt aftur og aftur. Nú hefur komið í ljós að ókyrrðin er mun víðar og umræður um uppsagnir fara fram á flestum leikskólum borgarinnar. Björg vildi ekki tjá sig um hversu marga hún vissi um sem stæðu frammi fyrir þeirri stóru ákvörðun að segja upp störfum en sagðist svartsýn á það sem koma skyldi. „Ég skal ekki segja hvað verður en Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur boðað leikskólakennara aftur á sinn fund í vikunni, en ekkert kom út úr fyrsta fundi þeirra fyrir jól vegna málsins. Erfitt hefur verið að manna leikskóla almennt í borg- inni um árabil og uppsagnir þeirra fáu sem menntun hafa til starfsins munu vart gera þá stöðu auðveld- ari. Ekki náðist í borgarstjóra áður en Fréttablaðið fór í prentun. - aöe Formaður Félags leikskólakennara svartsýn á stöðu mála: Mun fleiri íhuga uppsagnir Í frétt í gær var sagt að eignarskattur yrður lagður á í síðasta skipti á næsta ári vegna ársins 2005. Þetta er ekki rétt. Breytingin á sér stað á næsta ári þegar landsmenn fá álagningarseðla vegna ársins 2005. LEIÐRÉTTING LEIKSKÓLABÖRN Í KÓPAVOGI Formanni Félags leikskólakennara, Björgu Bjarnadótt- ur, var brugðið þegar hún mætti til vinnu eftir jólin. Hafði hún spurnir af mun fleiri leikskólakennurum sem íhuga uppsagnir frá og með áramótum. KJARAMÁL Kjaradómur komst að þeirri niðurstöðu í gær að úrskurður dómsins frá 19. desem- ber skuli standa. Halldór Ásgrímsson forsætis- ráherra bað dóminn bréflega í fyrradag um að taka umræddan úrskurð til endurskoðunar að því er varðar laun þjóðkjörinna full- trúa. Beiðnina sendi Halldór að höfðu samráði við formenn stjórnmálaflokkanna, formenn þingflokka og forseta Alþingis. Í svari sínu í gærkvöldi ítrek- aði dómurinn að úrskurðurinn frá 19. desember skyldi standa. Ákvörðun dómsins hefði verið tekin að virtum öllum þeim regl- um sem honum bæri að fara eftir samkvæmt lögum. „Ekkert það hefur komið fram sem bendir til þess að dómurinn hafi ekki gætt lögmætra sjónarmiða við þá ákvörðun,“ segir í svari Kjara- dóms. Halldór undrast þetta svar og kveðst hafa vænst ábyrgari viðbragða. Hann segir að ríkis- stjórnin hafi ákveðið að setja á fót nefnd sem falið verði að end- urskoða lögin um Kjaradóm og Kjaranefnd og búa málið í hendur þingsins þegar það kemur saman. Ekki verði sett bráðabirgðalög og Alþingi verði ekki kallað saman fyrr en til stendur. „Það er út af fyrir sig góðra gjalda vert að skipa nefnd sem endurskoða á lögin um Kjaradóm og Kjaranefnd,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. „Hins vegar stendur að þingið er best til þess fallið að taka á málinu.“ Halldór Ásgrímsson segir að ástæða hefði verið fyrir Kjara- dóm að taka tillit til þeirra aðstæðna sem uppi eru í þjóð- félaginu. „Með þessu svari sem ég hef fengið hafa þeir ekki gert það. Og það þarf engan að undra þótt ég sé ekki sáttur við það.“ Halldór véfengir ekki að Kjara- dómur hafi í störfum sínum farið að lögum. „Það þarf að taka tillit til þess sem er að gerast á mark- aði og tillit til þess að halda stöð- ugleika í efnahagsmálum. Það er svo brýnt að það er ekki hægt að láta þetta mál kyrrt liggja.“ Halldór kveðst þeirrar skoð- unar að rétt sé að lækka þau laun aftur sem hækka um áramótin að óbreyttum úrskurði Kjaradóms. „Það liggur alveg ljóst fyrir að það er hægt að mati lögfræðinga sem ég hef talað við.“ johannh@frettabladid.is Vænti ábyrgari við- bragða Kjaradóms Forsætisráðherra undrast niðurstöðu Kjaradóms sem stendur fast við úrskurð sinn um launahækkun þingmanna, dómara og fleiri. Nefnd verður skipuð til þess að breyta lögum um ákvörðun kjara embættismanna og þingmanna. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORSÆTISRÁÐHERRA Halldór telur að Kjaradómur hafi látið undir höfuð leggjast að taka mið af aðstæðum í þjóðfélaginu, en telur hann engu að síður hafa farið að lögum. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.