Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 29.12.2005, Blaðsíða 8
 29. desember 2005 FIMMTUDAGUR NOREGUR Sovéskir vísindamenn rannsökuðu norðurpólinn, sjávar- botninn, dýpt sjávar, þykkt íssins og seltu sjávarins í kalda stríð- inu. Þessar upplýsingar þurftu kjarnorkukafbátar Sovétmanna til að geta falið sig undir norður- skautsísnum í kalda stríðinu. Þetta kemur fram í bók sem kom út í Rússlandi í fyrra og var þýdd nýlega á norsku. Á vefmiðli norska dagblaðsins Aftenposten kom fram í gær að Rússar ættu einstakt gagnasafn um hafsbotninn og fróðleik um það sem gerðist undir hafsbotni. Þetta væru dýrmætar upplýsing- ar sem engin önnur þjóð hefði aðgang að og gætu komið sér vel þegar farið yrði að leita að olíu og gasi svo norðarlega. Norskir vísindamenn segja rússnesku vísindamennina hafa notað aðrar aðferðir og dregið aðrar ályktanir. „Meðan talið er á Vesturlöndum að ísinn bráðni á norðurpólnum og að norður- póllinn verði íslaus eftir fimmtíu ár telja rússnesku vísindamenn- irnir að bráðnun leiði til þess að ferskvatn aukist og ísinn aukist því fremur en hitt,“ segir norskur vísindamaður. Verkefni Sovétmanna var svo leynilegt að vísindamennirnir höfðu fyrirmæli um að taka líf sitt ef þeir kæmust í hendur Banda- ríkjamanna. Vísindamennirnir voru allt að tuttugu talsins. - ghs NORÐURPÓLLINN Rússneskir vísindamenn rannsökuðu norðurpólinn gaumgæfilega í kalda stríðinu og búa yfir mikilli vitneskju um hafið og hafsbotninn. Rússneskir vísindamenn rannsökuðu Norðurpólinn í kalda stríðinu: Telja að pólísinn aukist HEILBRIGÐISMÁL Lyfjastofnun og landlæknir hafa enn til skoðunar markaðsátak lyfjaframleiðand- ans Novartis sem hófst um miðj- an desember í samstarfi við lík- amsræktarstöðina World Class. Lyfjafyrirtækið greiðir kostnað sjúklings af líkamsræktinni noti sá hinn sami blóðþrýstingslyfið Valsartan. Félag íslenskra heimilislækna hefur skrifað landlækni og varað við markaðsátaki fyrirtækisins, bæði vegna persónuverndar- og faglegra sjónarmiða. „Spurningin er hvort svona markaðsátak geti orðið til þess að einstaklingur komi til læknis og fari fram á að fá eitt- hvað ákveðið lyf vegna þess að hann sjái af því fjárhagslegan ávinning. Þetta getur sett lækni í dálítið sér- staka stöðu,“ segir Elínborg Bárð- ardóttir, formaður félagsins. Rannveig Gunnarsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að samkvæmt lyfjalögum sé bannað að beina auglýsingum um lyfseðilsskyld lyf til almennings. „Hugmyndin var alltaf sú að það væri læknir sem tæki ákvörðun um hvort sjúklingi yrði vísað á lyfið og bent á þetta markaðsátak eða ekki,“ segir hún og bætir við að málið sé enn í skoðun hjá Lyfjastofnun. Sigurður Guðmundsson landlæknir segir umfjöllun embættisins um málið ekki held- ur lokið. „Eina erindið sem okkur hefur borist um þetta er bréf Félags íslenskra heimilislækna,“ segir hann og bætir við að um átak- ið verði fjallað „ekki síður á sið- ferðilegum og faglegum nótum, en lagalegum“. Kristinn D. Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri Novartis, legg- ur áherslu á að fyrirtækið hafi eingöngu kynnt átakið læknum, en farið hafi verið af stað með það um miðjan nóvember. Þá segist hann hafa kynnt Lyfjastofnun fyrirætl- anirnar. Karl Andersen, formaður Hjartasjúkdómafélags íslenskra lækna, segist líta markaðsátakið jákvæðum augum. „Þetta er svo- lítið óvenjuleg markaðssetning og þegar eitthvað nýtt kemur fram fara sumir ósjálfrátt í varnarstell- ingar. Þarna er lyfjafyrirtæki sem ákveður að hætta að nota peninga til kynningarstarfs og setja frekar í eitthvað sem kemur sjúklingum til góða. Lyfið er gott og ég hætti ekki að nota það þótt sjúklingurinn fái einhvern bónus.“ Karl segist fagna því ef framtak fyrirtækisins verði til þess að blóðþrýstingssjúkling- ar fylgi frekar ábendingum lækna um aukna hreyfingu. „Ég veit að í kjölfarið mun sjúklingurinn þurfa minna af lyfjum og þar kemur sparnaður á móti, honum kemur til með að líða betur og lifa lengur.“ olikr@frettabladid.is LÍKAMSRÆKT Í LAUGUM Karl Andersen, sérfræðingur í hjartalækningum, segir alþekkt að sjúklingar fylgi ekki ráðleggingum lækna um breyttan lífsstíl og líkamsrækt og fagnar því nýstárlegri markaðssetningu á nýju blóðþrýstingslyfi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Markaðssetning nýs lyfs ennþá í skoðun Hvorki Lyfjastofnun né Landlæknisembættið hafa lokið skoðun sinni á markaðsátaki á nýju blóðþrýstingslyfi. Framleiðandi lyfsins borgar fyrir líkams- rækt sjúklinga. Hjartalæknir fagnar framtaki lyfjaframleiðandans. KARL ANDERSEN Karl er formaður Hjartasjúkdóma- félags íslenskra lækna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.