Fréttablaðið - 29.12.2005, Síða 16
29. desember 2005 FIMMTUDAGUR16
hagur heimilanna
SIGURBJÖRG KRISTFINNSDÓTTIR HAFÐI VERIÐ
LÁTIN Í ÞRJÁR VIKUR ÁÐUR EN HÚN FANNST
Presturinn gerði
lögreglu viðvart
á aðfangadag
GAMLA
FÓLKID
GLEYMT
Sleit öll tengsl
við annað fólk
DV2x15 28.12.2005 20:14 Page 1
„Ætli ég hafi ekki gert mín bestu kaup
árið 1990,“ segir Viktor Arnar Ingólfsson
rithöfundur sem er nýbúinn að senda frá
sér spennusöguna Aftureldingu.
„Þá keypti ég mér Toyota Hi-Lux jeppa
sem reyndist mér mjög vel og ég notaði
í heil fimmtán ár.“ Hann segist hafa
heiðrað bílinn í vor með öðrum
kaupum sem hann telur einnig
með sínum bestu kaupum. „Þá
fór ég og keypti annan eins
Toyota Hi-Lux. Eins á litinn og
allt - bara nýrri.“
Sá eldri tórir þó enn. „Hann
stóð sig svo vel að ég tímdi
ekki að selja hann og hann er
enn í notkun í fjölskyldunni,“
segir Viktor og hlýtur að teljast
heppinn að hafa hitt á svo endingargóðan
bíl.
Spurður um sín verstu kaup hefur Viktor
svar á reiðum höndum. „Ég var staddur
í útlöndum fyrir fjölmörgum árum og
ætlaði að kaupa mér föt. Ég hafði alltaf
notað gallabuxur af stærð 32 en
var hins vegar farinn að fylla ansi
vel út í þær. Ég lét samt ekki
bugast og keypti mér þrennar
gallabuxur - allar af stærð 32 - í
þeirri von um að ég næði mér
aftur niður í gamalt form. Ég fór
aldrei í þær buxur,“ segir Viktor
en bætir þó við að buxurnar
hafi að endingu verið gefnar
Rauða krossinum þannig að ein-
hverjum hafi þær gert gott.
NEYTANDINN: VIKTOR ARNAR INGÓLFSSON RITHÖFUNDUR
Hi-Lux og þröngar gallabuxur
Flugeldasalar bjóða fjölbreytt úrval flugelda til sölu fyrir áramótin. Svokallaðir
fjölskyldupakkar seljast alltaf vel enda þykir hentugt að geta keypt sitt lítið af hvoru
í einum pakka eins og stjörnuljós fyrir yngstu börnin, ýlur fyrir unglingana og tívolí-
bombur handa pöbbunum.
Ódýrustu pakkarnir innihalda hefðbundna flugelda sem eru
ómissandi þegar nýja árið gengur í garð. Samkvæmt upplýsingum
frá Landsbjörgu kostar ódýrasti fjölskyldupakkinn hjá björgunar-
sveitunum 1.900 krónur. Ódýrasti fjölskyldupakkinn hjá KR kallast
Bronsið og kostar 2.200 krónur. Hjá Fram kostar minnsti pakkinn það sama og
hjá KR-ingum eða 2.200 krónur, en ódýrasti pakkinn hjá Fylki kostar 2.000 krónur.
Dýrustu fjölskyldupakkarnir hjá íþróttafélögunum kosta hins vegar á bilinu 7.500
til 7.900 krónur. Þess má geta að verð á flugeldum hefur lækkað undanfarin tvö ár
vegna hagstæðs gengis krónunnar.
■ Hvað kostar... lítill fjölskyldupakki?
Flugeldar hafa lækkað í verði
■ Atli Þór Albertsson leikari, betur
þekktur sem Addi Idol, hefur að
geyma hafsjó af fróðleik um góð hús-
ráð. Hann segist iðulega grípa í eld-
spýtustokk í gestaboðum sínum þegar
„andrúmsloftið“ verður þrúgandi .
„Segjum sem svo að óprúttinn gestur hafi
gert sér glaðan dag inni á salerni heimilisins,
þá er hollráð að kveikja þar á eldspýtu og
viti menn, óværan hverfur eins og dögg fyrir
sólu“.
GÓÐ HÚSRÁÐ
LOGI Á ELDSPÝTU
HREINSAR LOFTIÐ
Best er að gæta ýtrustu varfærni
þegar flugeldar eru meðhöndlaðir.
Sumir kaupa svo mikið af flugeld-
um að ekki gefst tími til að skjóta
þeim öllum upp og þar af leiðandi
eru raketturnar geymdar fram að
næstu áramótum.
Að sögn Jóns Inga Sigvaldason-
ar, hjá Slysavarnafélaginu Lands-
björgu, ættu allir að vera búnir
að skjóta upp síðustu rakettunni
þegar þrettándinn er liðinn. „Ef
flugeldarnir eru orðnir ársgamlir
þá eru þeir orðnir varasamir og þá
á að koma þeim í förgun. Ástæð-
an fyrir því er sú að fólk er ekki
að geyma flugeldana við réttar
aðstæður og það getur komið raki
í púðrið og það svo þornað aftur,“
segir hann.
Jón Ingi segir að geyma eigi
flugeldana þar sem enginn getur
fiktað í þeim og þar sem hitastig
sveiflast ekki mikið. „Ef fólk
geymir flugeldana í bílskúrnum
þá á bíllinn alls ekki að vera þar
inni og þá á enginn umgangur að
vera um bílskúrinn á meðan flug-
eldarnir eru þar.“
Nánari upplýsingar um örygg-
isatriði sem nauðsynlegt er að
hafa í huga þegar flugeldar eru
annars vegar má finna á vefsíð-
unni flugeldar.is. ■
FLUGELDAR TIL SÖLU Sala á flugeldum hófst í íþróttahúsi Fram í gær og eins og sést á
myndinni er nóg til af rakettum og öðrum sprengjum.
Margt ber að varast við meðferð á flugeldum:
Gamlir flugeldar varasamir
Til að fyrirbyggja augnslys af völdum flugelda hafa Blindra-
félagið og Slysavarnafélagið Landsbjörg sent öllum tíu til
fimmtán ára börnum gjafabréf fyrir flugeldagleraugum.
Gjafabréfunum er hægt að framvísa á öllum sölustöðum
Landsbjargar og fá gleraugun afhent.
Þetta er fimmta árið í röð sem Blindrafélagið og Landsbjörg standa fyrir þessu átaki
og telur Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri slysavarnasviðs Landsbjargar að árangur-
inn sé greinilegur. Hún segir að augnslysum hafi fækkað eftir að ráðist var í verkefnið
en alltaf sé hægt að gera betur og reyni félögin hvað mest að ná til þeirra sem helst
slasa sig, ungra stráka sem eru að fikta. „Strákar í þessum aldurshópi eru þeir sem
eru að fikta, taka kökur í sundur og búa til sínar eigin sprengjur og eru að öllu jöfnu
ekki með hlífðargleraugu.“
■ Verslun og þjónusta
Krakkar fá hlífðargleraugu gefins
2002 20042003
10
4.
82
0
85
.4
41
32
.5
34
Heimild: Hagstofa Íslands
Útgjöldin
> Innflutningur á flugeldum (í þúsundum króna)
„Allir fá þá eitthvað fallegt“ segir
í jólavísunni en svo er ekki alltaf
raunin. Sumir fá eitthvað sem þeim
líkar við, aðrir ekki og enn aðrir fá
fleiri en eitt eintök af sama hlutn-
um. Því er mikið að gera hjá kaup-
mönnum landsins eftir jólahátíðina
að taka við gjöfum sem einhverra
hluta vegna fólk vill fá skipt í eitt-
hvað sem það óskar sér frekar.
Árið 2000 skipaði viðskipta-
ráðherra nefnd sem vann verk-
lagsreglur um skilarétt, gjafabréf
og inneignarnótur. Verslanir sem
samþykktu þessar verklagsregl-
ur eiga að hafa uppi límmiða sem
segir til um það. Meginatriði
þessa reglna eru þau að réttur
til að skila ógallaðri vöru eru að
minnsta kosti fjórtán dagar, vörur
sem eru merktar sem gjafamerki
gera kassakvittun óþarfa við skil
og inneignarnótur skulu miðast
við upprunalegt verð vöru.
Hjá raftækjaversluninni BT
sem selur allt frá rafmagnsrakvél-
um til plasmaskjáa gildir fjórtán
daga skilafrestur. Til að tryggja
að varan fáist endurgreidd á sama
verði og hún var keypt á verður að
skila henni innan skilafrestsins,
annars gildir það verð sem er á
vörunni hverju sinni. Samkvæmt
talsmanni búðarinnar er hægt
að skila öllu því sem BT hefur í
sölu án vandkvæða, svo lengi sem
varan sé enn í óopnuðum umbúð-
um. Þriggja ára ábyrgð er á flest-
um vörum sem keyptar eru í BT.
IKEA býður viðskiptavinum
sínum upp á sextíu daga skilarétt.
Ef vara er keypt í versluninni
fyrir útsölu, gildir það verð sem
varan var keypt á gegn framvísun
kassakvittunar, þá er ýmist hægt
að fá endurgreitt eða vörunni skipt
í aðra. Talsmaður verslunarinnar
vildi taka það fram að vörur eru
nær undantekningalaust teknar í
skil hjá IKEA nema að varan hafi
lent á útsölu, þá þurfi kassakvittun
til að sýna fram á hvenær varan
var keypt og á hve mikið. Ábyrgð
á vörum IKEA gildir í sumum til-
fellum í tíu ár, þó sé ábyrgð styttri
á sumum vörum eins og dýnum.
Verslunarstjóri Zöru í Smára-
lind segir verslunina hafa byrjað
að merkja jólagjafir með þar til
gerðum límmiða rúmlega tveim-
ur mánuðum fyrir jól sem gildir
sem kassakvittun til 31. desember
ef fólk vill fá endurgreitt. Eftir
það er eingöngu hægt að skipta
jólagjöfunum í aðrar vörur nema
að alvöru kassakvittun sé fram-
vísað, en hún gildir í þrjátíu daga
alla mánuði ársins samkvæmt
skilareglum búðarinnar. Ábyrgð
á vörum búðarinnar er metin í
hverju tilfelli fyrir sig. - æþe
ÚTSÖLUR ERU VÍÐA HAFNAR Misjafnt er hvort fólk getur skilað vörum og notað innleggsnótuna
á útsölu.
Búðir taka mislengi
við jólagjöfunum
Skilafrestur verslana til að skipta jólagjöfunum er afar mismunandi, hann get-
ur verið frá einni viku upp í tvo mánuði. Mismunandi skilareglur eru í gildi hjá
og sumum vörum þarf fólk að skipta bráðlega.
Neytendasamtökunum er umhugað um fjármálalæsi félagsmanna sinna og hafa
því um árabil boðið félagsmönnum sínum aðgang að heimilisbókhaldi á netinu.
Um er að ræða excel-skjal sem hægt er að nálgast á læstum síðum félagsmanna
samtakanna á www.ns.is, þar sem finna má ársáætlun, töflur fyrir mánaðarfærslur
og töflu fyrir heildartölur ársins. Nýjung þetta árið er tafla fyrir skuldabréf þar sem
sýnt er hvernig afborganir skiptast í nafnverð, verðbætur, vexti og annað svo hægt
sé að skoða nákvæmlega hvað lánið kostar. Áramót eru vinsæll tími til að líta yfir
farinn veg í fjármálum sem öðru og getur þetta framtak samtakanna eflaust hjálpað
einhverjum að átta sig á stöðunni.
■ Heimilisbókhaldið
Kostnaður við lán