Fréttablaðið - 29.12.2005, Side 18

Fréttablaðið - 29.12.2005, Side 18
18 29. desember 2005 FIMMTUDAGUR HELSTU FRÉTTIR ÁRSINS > 2005 Sjálfstæðismenn hafa um nokk- urt skeið vænst þess að nýtt leiðtogaefni kæmi fram á sjón- arsviðið í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins, karl eða kona. Ekki veitti af styrkri for- ystu sem væri þess megnug að vinna borgina aftur eftir tólf ára stjórnartíð Reykjavíkurlistans. Síðasta atlagan að R-listanum, með Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra í fararbroddi, mistókst og í aðdraganda borgarstjórnar- kosninganna 2006 voru marg- ir farnir að veðja á lands- þekktan ungan mann, Gísla Martein Baldurs- son. Það kom því mörg- um á óvart að reynslu- boltinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson skyldi leggja Gísla Martein að velli í prófkjöri flokksins í Reykjavík í byrjun nóv- ember. Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson hefur sömu stöðu í borgarstjórn og Halldór Ásgrímsson á Alþingi; báðir hafa þeir setið lengur en aðrir kjörnir fulltrúar, hvor á sínum staðnum, en Vilhjálmur var fyrst kjörinn í borgarstjórn árið 1982. Þátttakan í prófkjörinu sló öll met. Vilhjálmur hlaut 6.424 atkvæði í fyrsta sætið en keppi- nauturinn, Gísli Marteinn, 5.193 atkvæði. „Næsta skref er sigur í vor,“ sagði Vilhjálmur á forsíðu Fréttablaðsins þegar úrslit voru kunn. „Vilhjámur Þ. Vilhjálmsson er ákaflega rótgró- inn og virðist hafa mjög sterk tengsl innan f l o k k s i n s , “ sagði Gunnar H e l g i Reynslubolti sigrar Formannsskipti urðu í Sam- fylkingunni á árinu eftir einhverja lengstu kosn- ingabaráttu sem um getur hérlendis. Stóð hún meira og minna í fjóra mánuði og niðurstaðan varð sú að Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, fyrrverandi borgarstjóri, vann yfirburðasigur á svila sínum Össuri Skarphéðins- syni á landsfundi upp úr miðjum maí. Össur Skarphéðinsson hafði verið formaður Samfylkingarinnar frá því flokkurinn var formlega stofn- aður árið 2001. Þá var Ingibjörg Sólrún borgarstjóri í Reykjavík en eftir að hún hrökklaðist úr því starfi í aðdraganda alþingiskosn- inganna árið 2003 var ljóst að hún hugði á framboð til formanns flokksins og það jafnvel þegar á landsfundi síðla árs 2003. Svar við kalli Af því varð þó ekki en þegar Ingi- björg tilkynnti um framboð til formanns snemma á þessu ári gaf hún þær skýringar á því að fara ekki fram 2003 að ýmsir forystu- menn flokksins hefðu ekki talið það tímabært. „Ég féllst á þau sjónarmið þrátt fyrir að það væri mjög mikill þrýstingur á mig að fara í framboð. Mér fannst þó að ég yrði jafnframt að gefa það skýrt til kynna að ég stefndi að þessu engu að síður. Annað hefði mér þótt hálfgerð svik við það fólk sem bjóst við og þrýsti á að ég færi í framboð. Ég er í raun að svara því kalli,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Mikilvægt að fá málin á hreint Og þegar hún var spurð hvers vegna hún teldi sig verða að bjóða sig fram núna benti hún á að næsti landsfundur yrði væntanlega ekki fyrr en rétt í aðdraganda þing- kosninganna 2007. „Ég vil bjóða mig fram til formennsku núna vegna þess að ég tel mikilvægt að sá sem verður fyrir valinu leiði vinnuna innan flokksins í aðdraganda kosninganna og hafi mikið um það að segja hvernig skipulagi flokksins verður háttað í þeirri vinnu. Ég vil sækja umboð frá flokksmönnum til þess. Mér finnst ég verða að fá hreinar línur í þetta núna og ég held að það sé best fyrir flokkinn og okkur Össur að það sé engin óvissa um þetta,“ sagði hún. Fjölskyldutengslin ekki fjötur Ýmsum innan Samfylkingarinn- ar leist miður vel á þau átök sem óhjákvæmilega myndu fylgja for- mannskjöri, ekki síst vegna þess að frambjóðendurnir voru nánir samstarfsmenn til margra ára og tengdir fjölskylduböndum aukin- heldur. Ingibjörg sagði vissulega ekki auðvelt að heyja kosninga- baráttu þegar fjölskyldutengsl væru jafn náin og raun bæri vitni. „Þetta er engin óskastaða, en maður getur hins vegar ekki látið það yfirskyggja allt annað. Ég get ekki séð af hverju ég ætti að sitja á hliðarlínunni í fjögur ár og afskrifa möguleika mína til að láta reyna á þann stuðning sem ég hef í Samfylkingunni vegna fjöl- skyldutengsla. Það hljóta allir að sjá að í mínu tilviki er það spurn- ingin um að gefa kost á mér núna eða alls ekki,“ sagði hún. Slök staða formannsins Snemma í kosningabaráttunni kom í ljós að Ingibjörg átti mikinn stuðning vísan í formannskjör- inu og í almennri skoðanakönnun Fréttablaðsins í byrjun febrú- ar töldu 63 prósent aðspurðra að Ingibjörg yrði formaður en einungis 32 af hundraði nefndu Össur. Munurinn milli þeirra var enn meiri ef einungis var horft til þeirra sem sögðust myndu kjósa Samfylkinguna, Í þeim hópi töldu 77 prósent að Ingibjörg yrði næsti formaður en rétt rúm tuttugu af hundraði sögðu Össur halda velli. Persónuleg kosning einstaklinga Í mars jókst þungi kosninga- baráttunnar enn frekar þegar frambjóðendur opnuðu kosninga- skrifstofur og fóru að takast á opinberlega. Bæði lögðu samt áherslu á að kosningabaráttan færi fram í mesta bróðerni. „Ég hef alltaf lagt á það áherslu að við erum ekki að kjósa um mismun- andi stefnu í formannskjörinu. Þetta er persónuleg kosning ein- staklinga sem eiga að vera mál- svarar þeirrar stefnu sem Sam- fylkingin mótar á landsfundi,“ sagði Ingibjörg. Yfirburðasigur Ingibjargar Og það kom í ljós á landsfundin- um að kannanir fóru nokk nærri um fylgismun Ingibjargar og Öss- urar meðal flokksmanmna því þegar búið var að telja atkvæð- in tólf þúsund sem greidd voru í formannskjörinu hafði Ingibjörg fengið um átta þúsund atkvæði, tvo þriðju á móti einum þriðja Össurar. Var henni ákaft fagnað þegar úrslit kosninganna voru kunngerð. „Úrslitin í dag skipta því aðeins máli ef sigur vinnst í næstu kosningum. Þar skrifum við söguna og mótum framtíðina,“ sagði Ingibjörg í fyrsta ávarpi sínu sem formaður flokksins. Hún lagði áherslu á eindrægni innan flokksins eftir formanns- kjörið. „Forysta er hópstarf en ekki einstaklingsframtak. For- maður er fremstur þeirra jafn- ingja en kæmist hvorki lönd né strönd ef hann hefði ekki góðan málstað og gott fólk til að vinna með sér,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Össur tók tapinu vel Össur Skarphéðinsson tók tapinu af sannri karlmennsku og kvað þegar upp úr með það að hann væri alls ekki á leið út úr pólitík þrátt fyrir úrslitin. „Hvað get ég sagt? Ég hef tapað og er hafinn upp til skýjanna bæði af ykkur og þeim sem vinnur,“ sagði hann um leið og hann þakkaði stuðningsmönnum sínum og kvaðst þakklátur fyrir fimm ár á formannsstóli Sam- fylkingarinnar. „Ingibjörg Sólrún hefur sýnt það að hún er ákaflega sterkur leiðtogi og hún hefur líka sýnt það í þessari baráttu að það býr í henni mikill kraftur. Hún sigraði vegna sinna kosta og vegna þolgæðis síns,“ sagði Össur. ssal@frettabladid.is INGIBJÖRG SÓLRÚN 1994 Verðandi borgar- stjóri að loknum sigri R-listans í borgar- stjórnarkosningunum 1994. Stórsigur Ingibjargar ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Tók ósigrinum karlmannlega og berst ótrauður áfram. INGIBJÖRG SÓLRÚN 2003 Innkoma hennar í landsmálin í aðdraganda alþingiskosninga 2003 tókst ekki sem skyldi. AÐ LOKNU FORMANNSKJÖRI Á LANDSFUNDI 2005 Ingibjörg Sólrún ávarpar flokksmenn þegar niðurstaða formannskjörsins var ljós.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.