Fréttablaðið - 29.12.2005, Síða 22

Fréttablaðið - 29.12.2005, Síða 22
 29. desember 2005 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRI: Arndís Þorgeirsdóttir VARAFRÉTTASTJÓRI: Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Eins og kunnugt er lét Einar Kárason rithöfundur frá sér fara doðrant einn mikinn fyrir þessi jól og nefnist Jónsbók og fjallar sem kunnugt er um Jón Ólafsson athafnamann. Þar er meðal annars að finna frásögn (bls. 421) af því þegar á lögmannsskrifstofu stjórnarfor- manns Sýnar, Sigurðar G. Guð- jónssonar, koma, einhvern tíma á árinu 1995, tveir „stafnbúar úr Sjálfstæðisflokknum, þeir Sigurð- ur Gísli Pálmason og Páll Kr. Páls- son fyrir hönd fjármálaráðsins og sögðu Sigurði að íslenska útvarps- félagið ætti að borga fimm millj- ónir á ári til Flokksins; sú upphæð væri bara reiknuð út frá stærð og veltu fyrirtækisins. En Sigurð- ur svaraði því til að þeir myndu ekki borga í flokkssjóði[...]. Svo að mennirnir gengu tómhentir á dyr.“ Ýmsir hafa orðið til að varpa rýrð á einhverjar einstakar frá- sagnir í bókinni og reyna að gera þær tortryggilegar. Það er athygl- isvert að enginn hefur orðið til að véfengja sannleiksgildi þessarar frásagnar. Ég hefði ekki orðið hissa á að sjá frásögn af þessu tagi í ítalskri ævisögu athafnamanns. En getur það verið að á Íslandi geti stjórnmálaflokkar verið í þeirri aðstöðu að skattleggja fyrirtæki „út frá stærð og veltu“ og kom- ist upp með að innheimta þetta fé? Hvaða þjónustu veitir stjórn- málaflokkurinn í staðinn? Ég væri ekki í neinum vandræðum með að ímynda mér hvað fyrir- tæki á Ítalíu fengju í staðinn: Þau mundu fá margvíslega vernd frá afskiptum og hnýsni opinberra stofnana og njóta margvíslegrar fyrirgreiðslu sem stjórnmála- menn geta veitt. En því verður einfaldlega ekki trúað að óreyndu að opinberir embættismenn hér á landi láti nota sig til óhæfuverka með þeim hætti. Samt veltir höf- undur Jónsbókar því fyrir sér hvort ekki megi segja að „Jón og félagar hafi verið að safna glóðum elds að höfði sér með því að vera með derring við Flokkinn.“ Og Jón Ólafsson veltir því fyrir sér að „í ljósi sögunnar hefði líklega verið viturlegra af Sigga að borga þetta - bara til að kaupa þeim frið; það hefði verndað þá fyrir miklu veseni“! Til skamms tíma bjuggum við reyndar við kerfi þar sem bisniss- mönnum var nauðsyn að njóta velvildar pólitísks flokks og pólit- ískra valdamanna til að fá fyrir- greiðslu í ríkisreknu bankakerfi og opinberum sjóðum, sem gjarn- an eru kenndir við „sjóðasukk“. Kannski var það talið „eðlilegt“ í slíku kerfi að menn borguðu í sjóði flokks síns til þess að eiga auðveldari aðgang að framámönn- um hans, þyrftu þeir á að halda. Flokkarnir gerðu sitt til að ýta undir slíkar hugmyndir með því að skipa framkvæmdastjóra sína í bankaráð, þar sem sumir þeirra að minnsta kosti notuðu aðstöðu sína til að hafa veruleg afskipti af einstökum lánveitingum og voru þá ekki alltof tilætlunarsamir um ábyrgðir og veð! Hollusta þeirra var semsé fremur við Flokkinn sinn en þá almannastofnun sem þeim hafði verið treyst fyrir að stýra. En þetta á að vera liðin tíð. Fróðlega frásögn af þessu tagi er að finna á öðrum stað í Jóns- bók (bls. 330). Þar er sagt frá því að þegar Ingimundur Sigfússon var stjórnarformaður Íslenska útvarpsfélagsins á árinu 1994 og í fjármálaráði Sjálfstæðisflokks- ins, var ákveðið að kaupa nýja myndlykla fyrir félagið og veitti Íslandsbanki vilyrði fyrir 300 milljóna króna láni til kaupanna. Áður en til greiðslu kom missti Ingimundur og félagar meirihlut- ann í ÍÚ og afturkallaði Íslands- banki þá lánsloforðið. Þá var leitað til Landsbankans. Formað- ur bankaráðs hans var þá Kjart- an Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Sjálfstæðisflokksins og formaður útvarpsréttarnefndar, sem úthlutar rekstrarleyfum til frjálsu útvarpsstöðvanna. Bank- inn hafnaði að eiga viðskipti við félagið. „Engar skýringar feng- ust, þó var okkur sagt [...] að Kjartan Gunnarsson legðist gegn því að Landsbanki Íslands ætti viðskipti við félag, sem Jón Ólafs- son ætti aðild að.“ Í óformlegum viðræðum við Búnaðarbankann kom í ljós að einnig hann myndi lokaður Íslenska útvarpsfélaginu. Að lokum voru það sparisjóðirn- ir sem leystu þennan vanda ÍÚ, en í framhaldinu komst félagið í viðskipti við amerískan banka og slapp úr pólitískri hnappheldu íslenska bankakerfisins! Nægja þessi tvö dæmi ekki til að sýna fram á nauðsyn þess, að hér á landi, eins og í flestum lönd- um hins vestræna heims, séu fjár- reiður stjórnmálaflokkanna uppi á borðinu og gerðar opinberar og hafnar með því yfir grunsemdir og tortryggni? Og meðal annarra orða. Hvað er framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins að gera í bankaráði einkarekins Lands- banka Íslands? Var það kannski gert að skilyrði við einkavæðingu bankans? Og hverra hagsmunum þjónar hann þar: bankans, sjálfs sín, einhvers hluthafahóps - eða bara Flokksins? Hvergi þar sem ég þekki til norðan Alpafjalla þætti við hæfi að framkvæmdastjóri stjórn- málaflokks úthlutaði leyfum til fjölmiðlunar og sæti í stjórn fjár- málastofnunar, sem á að vera óháð pólitískum valdhöfum. ■ Fjárkúgun eða flokksvernd? Í DAG FJÁRREIÐUR STJÓRNMÁLA- FLOKKA ÓLAFUR HANNI- BALSSON Hvað er framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins að gera í bankaráði einkarekins Landsbanka Íslands? Var það kannski gert að skilyrði við einkavæðingu bankans? Og hverra hagsmununum þjónar hann þar: bankans, sjálfs sín, einhvers hluthafahóps - eða bara Flokksins? AUGL†SINGASÍMI 550 5000Sögurnar, tölurnar, fólki›. Björgólfur Thor Björgólfsson er vel að því kominn að hafa verið valinn viðskiptamaður ársins í Markaðnum, fylgiblaði Fréttablaðsins um markaðs- og viðskiptamál. Það var sérstök dómnefnd skipuð fræðimönnum og óháðum sérfræðingum sem sá um valið fyrir Markaðinn. Fjármálaveldi þeirra Björgólfsfeðga byggist á velgengni þeirra í bjórframleiðslu í Pétursborg í Rússlandi, þegar þeir fluttu þangað bruggverksmiðju á réttan stað á réttum tíma, þegar miklar breytingar voru að verða á fjármála- og stjórn- málalífinu í Sovétríkjunum fyrrverandi. Eftir að hafa byggt upp mikið bjórveldi í Pétursborg héldu þeir þaðan með fullar hendur fjár, sem þeir hafa ávaxtað ríkulega síðan. Það þarf enginn að halda því fram að fjárfestingin og uppbyggingin í Rússlandi hafi verið auðveld og án áhættu. Þvert á móti tóku þremenningarnir, mikla áhættu þar, en þeim tókst það sem mörgum öðrum hefur ekki tekist á viðskiptasviðinu í Rúss- landi . Þetta er einmitt það sem margir hafa haft áhyggjur af, því ef bakslag verður á fjármálamarkaðnum og eitt fyrirtæki verður illa úti, að önnur tengd fyrir- tæki fái líka skell. Þarna talar maður með alþjóðlega reynslu og ættu menn að leggja við hlustir. Björgólfur Thor fer nokkrum orðum um íslensku útrásina svokölluðu í Markaðnum í tilefni af valinu á viðskiptamanni ársins . Þar segir hann : „Það sem ég hef mestar áhyggjur af er ef menn hanga allir á sama flekanum. Ef það kemur gat á flekann þá er ekki hægt að stökkva á annan fleka. Það væri mjög heppilegt fyrir íslenska fjárfesta ef þeir tækju í meiri mæli upp samstarf við erlenda fjárfesta og erlendar fjármála- stofnanir.“ Og síðar: „Það býður hættunni heim ef sömu aðilar fjárfesta alltaf saman og með sömu fjármálastofnanir á bak við sig,“ sagði hinn ungi íslenski fjármálajöfur í viðtali við Markaðinn. Þetta er einmitt það sem margir hafa haft áhyggjur af, því ef bakslag verður á fjármálamarkaðnum og eitt fyrirtæki verður illa úti, að önnur tengd fyrirtæki fái líka skell. Þarna talar maður með alþjóðlega reynslu og ættu menn að leggja við hlustir. Það er líka athyglisvert sem Björgólfur Thor segir síðar í samtalinu í Markaðnum: „Menn eru að vinna að því að tengja viðskiptalífið við metnaðarfull þjóðfélagsverkefni. Það er mjög gott þegar það næst. Það er fyrst á þessu ári sem ég hef farið að velta slíku fyrir mér af alvöru.“ Ekki er óhugs- andi að augu Björgólfs Thors hafi opnast fyrir ýmsum þjóð- félagsverkefnum, þar sem hann hefur fjárfest í fjarskipta -og lyfjafyrirtækjum í gömlu austantjaldslöndum, þar sem enn er mikið verk óunnið í þágu samfélagsins á mörgum sviðum. Miklar framfarir hafa orðið í þessum löndum á síðustu árum, en laun eru þarna lág og kröfur manna hafa ekki verið miklar, sérstaklega í dreifðum byggðum þessara landa. ■ SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Björgólfur Thor Björgólfsson viðskiptamaður ársins. Dreifum áhættunni Frá degi til dags Sök bítur sekan Halldór Ásgrímsson lagði ekki í að kalla saman Alþingi til að ræða niðurstöðu Kjaradóms, segir Össur Skarphéðinsson þingmaður Samfylkingarinnar á vefsíðu sinni. Á Össuri má skilja að Kjaradómur hafi afhjúpað dulda launastefnu ríkisstjórnarinnar og í ljós hafi komið - eins og Garðari Garðarssyni formanni Kjaradóms hafi tekist vel að sýna fram á - að hún hafi staðið fyrir verulegum launahækkunum til hálaunastétta umfram almenna kjaraþróun. Það er nefnilega svo, að lögum samkvæmt skal Kjaradómur gæta innbyrðis samræmis í starfskjörum þeim sem hann ákveður, að þau séu í samræmi við laun í þjóðfélaginu sem sambærileg geti talist með tilliti til starfa og ábyrgðar. einnig skal Kjaradómur lögum samkvæmt taka tillit til þróunar kjaramála á markaði. Í kjaradómi eru löglærðir menn og allt bendir til þess að þeir hafi farið nákvæmlega eftir lagabókstafnum þegar þeir hækkuðu laun æðstu embættismanna um tugi þúsunda á mánuði. Hver hækkaði viðmiðunina? Spyrja má hvort eitthvert vit sé í því að hlusta á æðtu embættismenn bera sig saman við launa- eða tekjuþróunina TIL DÆMIS á íslenskum fjármálamarkaði. Eða laun forstjóra hjá hlutafélögum í eigu ríkisins? Geta ekki aðrir tekið við ef þeir hóta uppsögn? Kjaradómur á lögum samkvæmt að setja sér sjálfur starfsreglur. Að höfðu samráði við þjóðkjörna menn hefur forsætisráðherra blandað sér í störf dómsins. Össur segir í pistli sínum að ef Kjaradómur hafi bein í nefinu og standi við forsendur sínar þá segi hann af sér. Þannig myndi hann setja þunga pressu á kröfuna um að Alþingi komi saman til að ræða hækkunina og forsendur hennar. Hitt telur hann líklegra að Kjaradómur fari að beiðni forsætisráðherra og taki hækkunina aftur. „Kjaradómur í núverandi mynd er jafndauður hvor leiðin sem er farin... Ríkisstjórnin þorði hins vegar ekki að kalla saman Alþingi af því þá hefði þjóðinni orðið ljós sú staðreynd, að hin mikla hækkun Kjaradóms var í rökréttu framhaldi af hálaunastefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart vildarhópum í ríkiskerfinu.“ johannh@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.