Fréttablaðið - 29.12.2005, Síða 32
[
Við óskum landsmönnum
gleðilegra jóla og farsældar
á komandi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða.
Starfsfólk Icepharma
Ef maginn fer í ólag
þá getur Silicol hjálpað.
Silicol
bindur
bakteríur
og önnur
skaðleg
efni
í maga og
gerir óvirk.
Silicol fæst í apótekum
um allt land.
Hreyfing er alltaf mikilvæg, líka um jólin. Það er ágætt að reyna
að finna tíma til þess að stunda einhverja líkamsrækt þó að það sé
ennþá jólafrí hjá mörgum.
Í Hestamiðstöð Reykjavíkur er
boðið upp á þjálfun fyrir fatl-
aða á hestbaki. Námskeiðin
gefa einstaklingunum mikið en
hálftími á hestbaki framkallar
um 3.000 hreyfingar í manns-
líkamanum.
,,Það er enginn svo fatlaður að ég
treysti mér ekki til að gera eitthvað
fyrir hann,“ segir Sigurður Már
Helgason en hann er einn þeirra
sem sér um hestanámskeið
fyrir fatlað fólk. ,,Við höfum
verið í þessu í átta ár. Fyrst var
það Reiðskólinn Þyrill en fyrir
stuttu síðan tók Birgir Helgason
við og stofnaði Hestamiðstöð
Reykjavíkur.“
Sigurður segir áhrifin af þjálf-
uninni ýmiss konar. ,,Sagt er að
ein hreyfing hestsins framkalli
30 hreyfingar í líkama manns
sem situr á honum. Eftir hálftíma
á hesti þar sem teymt er undir
í rólegheitum hefur líkaminn
myndað um 3000 hreyfingar. Þetta
er mikil þjálfun fyrir þann sem
bundinn er við hjólastól.“
Fyrir nemendur án setujafnvæg-
is er boðið upp á tvær aðferðir
til útreiða. Annars vegar er legið
á maganum berbakt. Höfuðið
vísar þá aftur á lend hrossins
og fæturnir eru niður með hálsi
hestsins. Hins vegar er tvímennt
og einstaklingurinn situr í fangi
aðstoðarmanns. ,,Það má segja
að hreyfing hestsins ýti við öllum
vöðvum líkamans, bæði stórum og
smáum. Auk þess virkar ylurinn
frá hestinum mjög vel á spastíska
nemendur og þeir ná góðri slökun
með því að liggja á maganum og fá
hreyfinguna samtímis yl og ilmi,“
segir Sigurður.
Íþrótta- og tómstundaráð Reykja-
víkur styrkir verkefnið og hefur
lánað Sigurð í það. ,,Eins og stend-
ur ná endar ekki saman til að við
getum klárað næsta starfsár. Við
höfum leitað til ýmissa aðila en
ekki fengið nein svör. Forsend-
ur landbúnaðarráðuneytis til að
styrkja þetta væru þær að vegur
hestsins yrði ennþá meiri. Íslenski
hesturinn er dásamlegur að vinna
með, smæð hans gerir verkið auð-
veldara og svo er hann svo bljúg-
ur.“
Námskeiðin eru haldin á veturna
og eru tímar á miðvikudögum og
fimmtudögum. ,,Miðað er við að
nemendur séu á hestbaki í 44 til
60 mínútur en maður stillir það
bara eftir getu,“ segir Sigurður að
lokum.
mariathora@frettabladid.is
Hreyfir og örvar vöðvana
Hér má sjá Sigurð ásamt Birgi Helgasyni aðstoða nemanda upp á hest.
Sala á flugeldum er hafin og
springa bomburnar víða. Fleiri
slysatilfelli verða um þetta
leyti og eru ungir drengir sá
hópur sem verður fyrir flestum
óhöppum.
Starfsfólk spítalanna og bráða-
móttakanna verður vart við fleiri
slysatilfelli um þetta leyti ársins,
vegna rangrar notkunar flugelda.
Þar eru ungir drengir í miklum
meirihluta og næst á eftir þeim
fólk sem hefur slasað sig á flug-
eldum undir áhrifum áfengis.
Foreldrar og ábyrgðarmenn
ættu að brýna fyrir börnum sínum
þær hættur sem geta stafað af
rangri notkun flugelda og er fólk
hvatt til að gæta ýtrustu varkárni
við meðhöndlun þeirra. Nauðsyn-
legt er að nota hanska, hlífðargler-
augu og tryggja að börn komist
ekki í flugeldana. Ekki er mælt
með að nota gamla flugelda frá
árinu áður þar sem þeir gætu hafa
skemmst, raki gæti hafa komist í
þá og þá eru þeir stórhættulegir.
Aukin slysatíðni um áramót
Ungir drengir eru þeir sem verða fyrir flestum slysum um áramót vegna rangrar notkunar
flugelda. MYND ÚR
RANNSÓKNARSETUR Í BARNA- OG
FJÖLSKYLDUVERND HEFUR VERIÐ
STOFNAÐ VIÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS.
MEGINMARKMIÐ RANNSÓKNARSET-
URSINS ER AÐ EFLA FJÖLSKYLDU-
OG BARNAVERND MEÐ VÍSINDALEG-
UM RANNSÓKNUM.
Félagsmálaráðuneytið ásamt
sjö öðrum samstarfsaðil-
um hefur gert samning
við Félagsvísindadeild
Háskóla Íslands um
stofnun og rekstur
Rannsóknarseturs í
barna- og fjölskylduvernd
við félagsráðgjafaskor
Háskóla Íslands. Aðstand-
endur rannsóknasetursins
telja mikilvægt að afla
þekkingar á samhengi samfélags-
áhrifa sem skapar barnafjölskyldum
mismunandi uppeldisaðstæður,
heilbrigði, afkomu og lífsgæði. Aukin
tíðni hefur verið á vanlíðunareinkenn-
um hjá börnum, ýmsum kvillum og
hegðunarröskunum sem talið er kalla
á frekari rannsóknir sem
snerta greiningu lífshátta
og samspil áhrifaþátta
innan og utan fjölskyldu.
Meginmarkmið rann-
sóknarsetursins verður
að efla fjölskyldu-og
barnavernd á grundvelli
vísindalegra rannsókna.
Með stofnun þess er
komið til móts við ákall
almennings og stjórn-
valda.
Efla fjölskyldu- og barnavernd
]