Fréttablaðið - 29.12.2005, Page 40
29. desember 2005 FIMMTUDAGUR16
Vetrarfegurð á Þingvöllum. Fréttablaðið/Vilhelm
SJÓNARHORN
Hver er uppáhaldsbúðin þín? Ætli
ég verði ekki að segja Turntablelab,
en hún er staðsett bæði í New
York og Los Angeles. Hún er með
allar græjur sem dj-ar þurfa, mikið
af nýjum vínyl, flottum fötum og
hönnun, alls konar tímaritum, dvd-
diskum, bókum og fylgihlutum;
fimm stjörnu deluxe.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að kaupa? Ætli ég verði ekki að
segja plötur, sérstaklega ef maður
kemst í góðar plötubúðir úti. Mér
finnst einnig mjög gaman að
kaupa mér föt.
Verslar þú í útlöndum? Já, mjög
mikið. Sérstaklega þá í Bandaríkj-
unum, en ég verð að segja að flott-
ustu fatabúðir sem ég hef komið í
eru í London. Leiðinlegt bara hvað
pundið er hátt.
Einhverjar venjur við innkaup?
Ég reyni oftast að vera búinn að
taka út nokkra bláa til þess að hafa
í G-unit peningaklemmunni minni
áður en ég fer að versla. Það vill
nefnilega oft til að maður eyðir
meiru í rugl ef maður notar kredit.
Tekurðu skyndiákvarðanir í
fatakaupum? Já, eiginlega alltaf.
KAUPVENJUR
Með seðla
í G-unit
klemmunni
Daníel Deluxe Ólafsson plötusnúð-
ur heldur upp á búðina Turn-
tablelab í Bandaríkjunum. Hann
er alltaf búinn að taka út peninga
áður en hann fer í verslunarleið-
angur.
...að fyrsta loftárásin fór fram 1849?
Þá sendu Austurríkismenn loftbelgi
með tímasprengjum til Ítalíu en
óhagstæð vindátt bar belgina langt
af leið.
...að fyrsta loftárásin úr flugvél var
framkvæmd af Ítölum árið 1911? Þá
varpaði Guilio Gavotti 4 hand-
sprengjum á tyrkneskar herbúðir úr
185 m hæð.
...að þyngsta fallbyssa sögunnar er
rússnesk og var smíðuð árið 1868?
...að þyngsta fallbyssa sögunnar
kallaðist Tsar-fallbyssan? Hún vegur
144,1 tonn og kúlurnar eru 500 kg
á þyngd.
...að afríska risapokarottan er notuð
til að þefa uppi jarðsprengjur? Hún
er svo létt að hún getur stigið á jarð-
sprengju án þess að hún springi.
...að stysta milliríkjastríðið entist í 45
mín? Stríðandi fylkingar voru Bretar
og Zansibar og áttust þær við 1896.
...að lengsta stríðið er 30 ára stríðið?
Það byrjaði 1618 en í því áttust við
fjölmargar Evrópuþjóðir.
...að þyngsti skriðdrekinn sem not-
aður hefur verið var franski Char de
Rupture 2Cbis-skriðdrekinn?
...að hann var 75,2 tonn á þyngd og Í
áhöfn hans voru 13 manns?
...að hann komst heila 12 km á klst.
...að þyngsti skriðdrekinn í dag er 63
tonn? Það er M1A2 Abrams-orustu-
drekinn sem notaður er af Banda-
ríkjaher.
VISSIR ÞÚ...
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI