Tíminn - 02.11.1976, Blaðsíða 11
10
TÍMINN
Þriðjudagur 2. nóvember 1976.
Þriðjudagur 2. nóvember 1976.
TÍMINN
11
Kjarnorkuver reist undir vernd
vopnaðra varða og hunda
Þegar uppvíst var um áætlan-
ir um að byggja kjarnorkuver I
bænum Brockdorf við Saxelfi I
Vestur-Þýzkalandi, brugðust
borgarar i bænum og nærliggj-
andi héruðum hart viö og tóku
sig saman um að hindra þessar
framkvæmdir. Mótmæli þeirra
voru virt að vettugi og i fyrra
mánuði voru undirbúnings-
framkvæmdir hafnar. Eigin-
lega mætti kalla þessar fram-
kvæmdir myrkraverk, þvi aö
nótt eina um tvö leytiö, vöknuðu
Ibúar Brockdorf upp af værum
svefni viö mikinn vélargný, er
Nordwestdeutsche Kraftwerk,
byggingarfyrirtækið, sem haföi
tekiö verkið að sér, var að flytja
eitt hundrað og þrjátiu vörubila
og þungavinnuvélar á svæöið.
Jafnframt voru mættir á stað-
inn tvö hundruö lögreglumenn
til aö vernda framkvæmdirnar
fyrir almenningi.
Um fimm leytið sama morgun
var undirbúningur kominn svo
langt, aö farið var að reisa girð-
ingu umhverfis svæöið, og var
þvi lokið siðdegis sama dag. Er
þessi girðing svo rammbyggi-
leg, aö það er enginn leikur að
vinna á henni. A bak við háa vir-
netsgiröingu eru gaddavlrsrúll-
ur og vopnaðir veröir með
hunda.
Morguninn eftir tilkynnti for-
svarsmaður samtaka borgara,
að þetta væri hreint og klárt lög-
brot, þar sem ekki lægu fyrir
heimildir frá yfirvöldum til
byggingarinnar. En þar skjátl-
aöist honum. Kvöldið áður höfðu
yfirvöld I Kil gefiö grænt ljós á,
að undirbúningsframkvæmdir
gætu hafizt, þ.e. mælingar og
gröftur.
Baráttan heldur áfram.
Leyfi til sjálfrar verksmiöju-
byggingarinnar liggur enn ekki
fyrir, og yfirvöld segja, aö ekki
sé sjálfsagt að það verði veitt
þrátt fyrir þessar upphafsfram-
kvæmdir.
En fólki finnst þessi yfirlýsing
lltt trúvekjandi. Það gengur út
•frá þvi að næturævintýriö hafi
verið samantekin ráð milli yf-
irvalda Kilar og verktakanna.
Hins vegar segir NWK, að þeir
hafi hafið verkið að næturlagi til
að trufla ekki umferö, en ibúar
Brockdorf leggja ekki eyru viö
slikum útskýringum.
tbúar Brockdorf og nágrennis
hyggja ekki á uppgjöf. Þegar
hefur sjötiu og tvö þúsund
undirskriftum veriö safnaö
gegn uppbyggingunni, sem
veröur sú fjóröa sinnar tegund-
ar við Saxelfi, ef af byggingu
veröur. Áætlað er, að verkið
kosti tvo milljarða þýzkra
marka (þ.e. ca. 140 milljarða
Isl. kr.) og verður þetta með
stærstu kjarnorkuverum I
Evrópu með 1300 megawött.
Mótmæli borgaranna beinast
meðal annars að þvi, aö verk-
smiðjan kemur til með að þurfa
að fá kælivatn úr Saxelfi og ótt-
ast þeir, að hitnun árinnar af
þeim sökum flvti f.vrir llffræði-
legum dauöa hennar. Samtök
borgara hafa ákveðið aö beita
friösamlegum aðgerðum og
reyna að forðast, að til valdbeit-
ingar komi. Til að mynda eru
uppi áform um að loka veginum
að svæðinu. Ekki geta þeir
„hertekið” svæöið sjálft vegna
giröingarinnar og lögreglunnar.
Þess vegna geta þeir heldur
ekki fylgt fordæmi íbúa Wuhl I
Suöur-Þýzkalandi, sem þegar á-
kveðið var að reisa sams konar
verksmiðju þar „hertóku”
svæðið og héldu þvi nótt og dag I
mörg ár. Byggingarfram-
kvæmdir þar hafa enn ekki get-
að hafizt. (JBþýddi)
Mynd sem sýnir hvernig verktakafyrirtækið Nordwestdeutsche
Kraftwerke hefur búiö um sig til að forðast ágang almennings á
byggingarsvæðið.
/ ............. ....................-
Meðhöndlun í stað fangelsisvistar fyrir ástralska ökumenn, sem handteknir eru,
grunaðir um ölvun við akstur
I Astraliu, eins og liklega
flestum öðrum löndum, hefur
þeim ökumönnum, sem hand-
teknir eru grunaöir um ölvun
við akstur farið fjölgandi. Þetta
hefur leitt til þess, aö hópur
ástralskra visindamanna hefur
tekið sig saman um að reyna að
finna nýjar aðferðir til að koma
I veg fyrir þetta vandamál, aðr-
ar en þær venjulegu, þ.e. sekt,
fangelsisvist, eða ökuleyfis-
svipting um lengri eða skemmri
tima. Visindamennirnir telja,
að þessar refsiaðgerðir séu ekki
nægilega fyrirbyggjandi, enda
sé raunin sú, að ár frá ári f jölgi
þeim, sem aka drukknir.
Lykilorðiö i þessum nýju að-
gerðum er endurhæfing. Það á
ekki einungis að refsa mönnum
heldur einnig aö taka þá I með-
höndlun og reyna þannig aö
fjarlægja orsakirnar fyrir 'þvi,
að þeir settust undir stýri meö
ólöglegt áfengismagn i blóðinu.
Meö þvi aö lækna einstaka —
prómillökumenn — vonast
Ástralarnir auðvitað einnig til
að draga úr hættu annarra I um-
ferðinni og þar með að spara
þjóöfélaginu almennt, bæði
ónauösynlegar þjáningar og
efnahagsleg útgjöld.
Tilraunirnar fara fram i
ástralska fylkinu New South
Wales, þar sem Sidney stærsta
borg landsins er, og eru þær
byggöar á ameriskri fyrirmynd.
Það hefur orðið greinileg hugar-
farsbreyting til hins betra hjá
þeim mönnum, sem gengizt
hafa undir þessa meðferð, varð-
andi akstur og alkóhól. Þeir
hafa ennfremur gert sér betur
grein fyrir drykkjuvandamáli
sinu eöa hvert stefnir i þeim
efnum.
Prómillmörkin i Astraliu eru
0,8. Enn sem komið er eru það
bara ökumenn, sem hafa verið
gripnir með meira en tvöfalt
leyfilegt áfengismagn i blóðinu,
sem eru valdir úr og látnir taka
þáttí tilraununum. Þá eru einn-
ig ökumenn, sem hafa oftar en
tvisvar sinnum hlotið dóm fyrir
að aka drukknir, taldir hafa
þörf fyrir endurhæfingu, séu
þeir teknir aftur.
Þessi tilraunameðferð hefur
aðeins veriö i gangi i fjóra mán-
uöi, og hafa aðeins um eitt
hundrað og fimmtiu manns
gengið i gegnum hana. For-
svarsmenn hennar hafa því enn
ekki viljað draga neinar
ákveðnar niðurstöður af henni,
enfullyrða þó, að árangurinn sé
samhljóða og jákvæöur. Við
horf allra viðkomandi til
áfengisnotkunar hafi breytzt
og hafi það ekki eingöngu þýð-
ingufyrir þá sjálfa, heldur einn-
ig umhverfi þeirra i viðustu
merkingu.
Meðhöndluninni er þannig
háttað, að viökomandi ökumað-
ur verður fyrst, eftir aö úrslit
blóðprufunnar, skýrslur og ann-
að hefur veriö lagt fram, að
játa, að hann hafi gerzt sekur
um að hafa ekið með of mikið
áfengismagn i blóðinu. (Ella
veröur honum stefnt fyrir rétt
og hegnt á venjubundinn máta).
Siðan gefst honum færi á að
velja á milli þess, hvort hann
kjósi að heyra dóm sinn strax og
þá ákveðinn i samræmi við
venjuleg lög, eöa þá að fara i
meðhöndlun og siðan láta
ákveða refsinguna. Kjósi hann
það siðara, er árangurinn af
endurhæfingunni metinn og hef-
ur jafnan mildandi áhrif á dóm-
inn.Ef ökumaðurinn samþykkir
að fara i meðhöndlun, tekur hún
sex vikur. Tveim vikum eftir að
henni er lokið fellur svo endan-
legur dómur i málinu.
Þeir, sem óska eftir með-
höndlun, eru fyrst sendir á stórt
sjúkrahús, eða afvötnunarstofn-
un, þar sem áfengisvandamál
þeirra er skilgreint og ákveðin
meðferö fyrirskipuð. Hún getur
verið á þrjá mismunandi vegu,
allt eftir þvi hve alvarlegt
drykkjuvandamálið hjá hverj-
um einstökum virðist vera.
Þeir, sem verst eru staddir,
þurla að fara i meðhöndlun á
opinberri stofnun fyrir of-
drykkjumenn. Takmarkið þar
er að fá þá til að setja flöskuna á
hilluna fyrir fullt og allt. Meö-
höndluninni er stjórnaö af sál-
fræðingum, geðlæknum, félags-
ráðgjöfum, hjúkrunarfólki og
fulltrúum frá AA-samtökunum.
Þeir, sem falla i milliflokkinn,
verða að fara reglulega i sál-
fræðideildina i háskólann I New
South Wales, þar sem þeim er
leiðbeint og hjálpað á rétta
braut af prófessorunum og
mönnum, sem hafa gengið i
gegnum þetta á undan þeim.
Þar er stefnt að þvi að fá menn-
ina til að minnka áfengis-
neyzlu sina að þvi marki, að það
sé innan hæfilegra takmarkana,
bæði lagalega og félagslega séð.
Þeir, sem svo falla I þriðja
flokkinn, sækja kvöldnámskeið.
Þar eru haldnir fyrirlestrar um
áhrif alkóhóls I margvíslegu
samhengi, — þar á meðal i sam-
bandi við akstur. Þarna er reynt
að breyta þeirri viöteknu skoö-
un, að það sé undir öllum
kringumstæðum allt I lagi „að
fá sér i staupinu”.
Þegar meöhöndlunarvikurnar
sex eru liðnar, er staða hvers og
eins skýrgreind. Það er gert
meö persónulegum viðtölum við
mennina og samantekt á við-
horfum þeirra, sem hafa með-
höndlað þá. Niðurstöðurnar eru
siöan lagðar fyrir dómarann,
sem á næstu tveim vikum verð-
ur að semja siðasta kaflann i
sögu — prómillökumannsins —
þ.e. refsinguna. Hér um bil I öll-
um þeim tilfellum, sem dæmt
hefur verið i, i tengslum við
þetta, hefur dómarinn lagt með-
höndlunina til grundvallar að
miklu mildari refsingu en orðið
heföi, ef ökumaðurinn hefði
neitað að þiggja hjálp. 1 einstök-
um tilfellum er dómi um
fangelsisvist breytt i tveggja
ára skilorðsbundinn dóm. 1 öðr-
um tilfellum er ökuskirteinið
tdcið af viðkomandi i nokkra
mánuði i stað árs. Eina refsing-
in, sem ekki er milduð, er fjár-
sektin, en hún er frá tuttugu
þúsund upp i fimmtiu þúsund
krónur.
Ennþá hafa opinber yfirvöld
ekki viljað gefa út neina yfirlýs-
ingu varðandi niðurstöður þær,
sem liggja fyrir um þessar nýju
aðgerðir gegn — stúti við stýrið
— en segja þó, að þær gefi góð-
ar vonir. Forystumenn tiiraun-
anna halda þvi fram, að fólk,
sem tekið er við stýrið með
mjög mikið áfengismagn i blóö-
inu, sé ekki aðeins ófært um að
stjórna bil. Hér sé einfaldlega
um að ræöa drykkjusjúkling,
sem hafi misst alla stjórn á
hæfileikum sinum til að meö-
höndla áfengi, og þar með sjálf-
um sér i fjölmörgum tilfellum.
Slíkur maður er ekki einasta
hættulegur i umferðinni. Hann
er einnig meira eða minna
vandamál fyrir fjölskyldu sina,
vinnustað og allt umhverfi. 1
stuttu máli sagt, fyrir samfélag
það, sem hann lifir i. Þvi er það
verkefniþjóöfélagsins ekki bara
að hegna, heldur lika að hjálpa.
Einn af dómurum þeim, sem
starfað hafa i sambandi við
þetta og kynnzt þeim mönnum,
sem tekið hafa þátt i tilraunun-
um segir, aðhann sé viss um, að
með þessari aðferð sé mögulegt
að finna marga, sem þegar eru
orðnir alkóhólistar án þess að
gera sér grein fyrir þvi, og þá,
sem eru á góðri leið með að
verða þaö, og hjálpa þeim.
Samkvæmt opinberum tölum
eru um það bil átján þúsund
menn gripnir i New South Wales
á ári grunaðir um ölvun við
akstur. Af þessum átján þús-
undum fá sautján þúsund og
fimm hundruö dóm. Meira en
fjörutiu prósent af öllum þeim
ökumönnum, sem eru viðriönir
dauðaslys, þar sem annað hvort
þeir sjálfir eöa aðrir létu lifið,
höfðu meira en 1,0 prómill af
alkóhóli i blóðinu, þegar slysið
varð.
Herferðin gegn bjöllunum
Þær eru
felldar
á eigin
bragði
Alf Bakke, sem stjórnar her-
ferðinni gegn bjöllunum, að
skafa börkinn af tré sem bjöll-
urnar hafa tekiö sér bólfestu i.
Þegar þær hafa setzt þar að
þúsundum saman deyr tréö
smám saman, vegna þess aö
næringarefni berast ekki lengur
um þaö.
■<------m.
Þessi mynd sýnir hvernig bjöll-
urnar grafa i sundur stofn
trjánna.Fyrst koma karldýrin
og grafa herbergi, en kvendýrin
grafa svo ganga út frá þeim til
aö verpa eggjum sinum i.
Skordýr senda skilaboð sln á
milli með hjálp ákveðinna efna.
Þessi skilaboð berast I gegnum
loft og vatn og gera sérstaklega
útbúin skynfæri dýranna þeim
kleyft að taka viö þeim og túlka
á réttan hátt. Það hefur vakið
undrun margra, aö maurar
skuli fylgja ákveðnum stigum,
og að þeir skuli halda réttri
stefnu þó að tálmun sé sett á veg
þeirra. En það er vegna þess að
maurar merkja leið sína meö
þessum — merkjaefnum —. Um
alllangt skeið hafa vlsindamenn
fengizt viö að þýöa „mál” ým-
issa skordýra og finna út hvaöa
efni þetta eru, sem framkalia
viðbrögð hjá þeim, og hefur það
i mörgum tilfellum tekizt vel.
Tjáskiptakerfi grenibarkar-
bjöllunnar er eitt þeirra
„mála” sem þegar hefur tekizt
að ráöa, en þessi tegund bjallna
er mikill skaðvaldur i skógum i
Noregi og viöar. Þegar bjöllurn-
ar finna hentugt tré, senda þær
út merki til að kalla á meöbræö-
ur sina. Margar saman geta þær
auðveldlega drepið fullvaxin
grenitré á tiltölulega skömmum
tima.
A grundvelli uppgötvunar
sinnar hafa visindamennirnir
núfundiðaðferð, sem gefur góð-
ar vonir um að hægt sé aö tak-
marka bjöllustofninn, þannig að
hann geti ekki valdið tjóni.
Þessi aðferð er fólgin I þvi að
setja litil hylki, sem hafa aö
geyma — merkjaefnin — á á-
kveðin tré, og er þannig hægt
að safna bjöllunum á afmörkuð
svæði og ráðast svo til atlögu.
Alf Bakke heitir sá, sem
stjórnar herferðinni gegn bjöll-
unum i Noregi. Reyndar er
þessi barátta ekki ný af nálinni.
Arið 1861 skrifaöi Peter Chr. As-
björnsen bók um liffræöi bjall-
anna, lifsferil og skaðsemi. Og á
þessi bók jafnt við i dag og þá.
Asbjörnsen stakk upp á þvl, aö
fella tré, sem bjöllurnar gætu
boraö sig inn i, og notað sem
næringu fyrir afkvæmi sin. Sið-
an, þegar tréö væri oröiö þétt-
setiö bjöllum, skyldi flytja það
út úr skóginum ásamt öllum
ibúunum. eða þá aö skafa börk-
inn af þvi og ná þannig til þeirra.
Allt fram á þennan dag hefur
þessi aðferð verið notuð. Núna
vonast visindamennirnir til að
geta yfirbugað bjöllugerinn með
hjálp fyrrnefndra hylkja.
Þessi aöferð viröist mjög ein-
föld, en samt sem áður er hún
alveg nýtilkomin. 1 meira en eitt
hundrað ár hefur verið vitað,
aö skordýr gefa frá sér
merki með efnum. Vanda-
málið var bara að finna
þessi efni. En það heföi ver-
ið ómögulegt án tækja
þeirrra og tækniþekkingar, sem
viö búum yfir i dag. Þetta heföi
heldur ekki veriö hægt, heföi
ekki komiö til samvinna liffræð-
inga og efnafræöinga. Lars
Skatteböl, prófessor viö efna-
fræðistofnunina i ósló, og aö-
stoðarmenn hans fundu einfalda
aðferð til að framleiða merkja-
efni grenibarkarbjöllunnar, og
hafa þegar verið framleidd tiu
kiló af þvi. I mörgum öörum
löndum er einnig áhugi á þessu.
Aætlunargerö varðandi gagn-
aðgerðir gegn bjöllunni krefst
nákvæmrar þekkingar á lífs-
máta bjöllunnar. A veturna
liggja þær i dvala i jaröveginum
i skóginum. Þegar hlýna tekur i
mai, vakna þær til lifsins. Þá
hefst timgunin. Fyrstu bjöllurn-
ar, sem vakna úr dvalanum,
* karlkynsbjöllur, grafa sig inn
undir börkinn á grenitrjánum
Framhald á bls. 19.
Hylki með merkjaefnum er fest
við tré til að safna bjöilunum
saman á afmörkuðu svæði.
mnni
»ft»
lS
■lindgöfuna
næturgalinn
Ekki verður allur sannleikurinn sagður með
sætri röddu næturgalans.
Margt fólk harðneitar að hlusta á það sem
Megas hefur að segja — flest vegna þess, að
því líkar ekki rödd hans eða framsagnarmáti.
láttu þig hafa það
því flestir sem einu sinni fást til að HLUSTA,
skipta rækilega um skoðun.
NÚ ÞEGAR
HAFA SELZT
eintök af verkum Megasar á hljómplötum og
tónböndum og við vorum að fá 1000 eintök í
viðbót af nýjustu hljómplötu Megasar.
FRAM & AFTUR BLINDGÖTUNA
blöðin segja
....það bezta, sem Megas hefur sent frá sér.
Mbl.15.9.76.
...úrvalsplata, bráðskemmtileg og upplífg-
andi.... fjörug, melódísk og kurteis, ef svo
mætti segja..
Tíminn 17.10.76
...mjög gott rokk.... topp undirleikur.það
bezta sem ég hef heyrt frá Megasi.
Dagbl.27.10.76
....með frumlegustu listamönnum þjóðarinn-
ar...góð laglina, frábær undirleikur, ásamt
einstöku samspili framsagnarmáta og texta.
Mbl. 3.10.76
...Á engan sér likan hér á landi.... Uppbygg-
ingin öll afar góð.góð plata.
Vísir 31.10.76
...mestu tónlistarþrumur og eldingar, sem ég
hef heyrt..jafna þessari skífu við hvaða ís-
lenzka popp eða rokkskíf u sem er.þetta eru
tónlistarmenn á heimsmælikvarða.
Þjóðviljinn 3.10.76
HRÍM H.F.
Kirkjuteig 5 — Reykjavík
Sími 3-63-47
Sendum í póstkröfu