Tíminn - 02.11.1976, Blaðsíða 17

Tíminn - 02.11.1976, Blaðsíða 17
TÍMINN 17 Þriðjudagur 2. nóvember 1976. FRANK WORTHINGTON.... hinn snjalli framherji Leicester, skoraði sigurmark liös sfns gegn „Boro”. Leicester-liðið hefur byrjað mjög vel á keppnistlmabil- inu — aðeins tapað einum leik. Best var í essinu sínu — skoraði giæsilegt mark ffyrir Fulham t annarri deildinni áttust við liðin, sem voru I öðru og þriðja sæti fyrir leikina á laugardaginn, þ.e. Blackpool og Wolves. Black- pool- náöi 2 marka forystu fyrst skoraöi Wolves sjálfsmark og sfð- an skoraöi Hart, en Hibbitt minnkaði muninn fyrir hlé. Munro tókst siðan að jafna metin fyrir Wolves I seinni hálfleik. Leikurinn markaðist mjög af stöðu liðanna I deildinni, hvorugt vildi gefa sig svo úr varð mjög haröur leikur, en samt skemmti- legur á aö horfa fyrir áhorfendur. Best skoraði mark Fulham á Burnden Park i Bolton en það dugði ekki til þess að ná öðru stig- inu, þar sem Whatmore og Allar- Ólafur Orrason ENSKA KNATT- , SPYRNAN dyce skoruöu fyrir Bolton Best og Marsh halda samt áfram aö draga að sér áhorfendur og voru rúml. 26.000 áhorfendur i Bolton. Þeir urðu ekki fyrir vonbrigöum með Best, sem var 1 essinu sfnu, en fékk litinn stuðning frá félög- um sinum I Fulham liðinu. Ian Ross, fyrrum leikmaður með Liverpool, skoraði sitt fyrsta mark fyrir Notts County I leikn- um á móti Carlisle. Notts hefur nýlega keypt Ross frá Aston Villa. Rafferty jafnaði fyrir Carl- isle fyrir leikhlé, en Probert sá ' svo um i seinni hálfleik aö Nottingham liðiö héldi báðum stigunum heima. Smith skoraði mark Burnley, er liöið vann góðan sigur I Plymouth og við þennan sigur færðist liðið af hættusvæðinu I deildinni a.m.k. I bili. Vic Halom skoraði sigur- mark Oidham á móti Notting- ham, og er Oldham liöiö ill- viðráðanlegt á heimavetli slnum Boundary Park. Silvester skoraði sigurmark Blackburn I sinum fyrsta leik fyrir liðiö. ó.O. „Gladbach" er gott lið, en ekkert jafnast á við Bayern Míinchen — Gerd „Bomber" Miiller skoraði 4 mörk gegn Hamburger SV ÞAÐ er engin furða, þó að áhorf- endur séu farnir að flykkjast aft- ur á knattspyrnuvellina I Þýzka- landi, þeir geta ávallt búizt við að eitthvað óvenjulegt gerist. Sér- staklega á þetta við um leiki Bay- ern Munchen. Það lið hefur löng- um sýnt, að alls ekki er hægt að gera sér fyrirfram grein fyrir úr- slitum I leikjum þess. Á laugar- daginn keppti Bayern Mtinchen viö Hamborg, — aö sjálfsögðú fyrir troöfullum Olympluleik- vanginum I Miinchen. Gerd Mull- er skoraði fyrsta mark leiksins eftir hálftlma leik, og leyföi sér siöan þann „munað” á 38. mfnútu að misnota vitaspyrnu. Kargus I marki HSV er sá markvörður I Bundesligunni, sem hefur lang- beztu prósentuna I vörðum vlta- spyrnum. Rétt fyrir leikhlé jafn- aöi siðan Reimann fyrir Ham- borg. Það voru svo ekki liönar nema tvær minútur af seinni hálfleik þegar Schwarzenbeck haföi náö forystunni aftur fyrir Bayern. Leit svo út fyrir að þetta mark myndi duga Bayern til sigurs, en eftir 78 mínútna leik jafnaði Daninn Björnmose fyrir Ham- borg. En nú reiddust guðirnir fyrir algöru, og liö HSV fékk á næstu fjórum minútum þá verstu útreið, sem þaö liklegast mun nokkurn tíma veröa fyrir. 79 min- Úta: Gerd Múller, 80. mlnúta Gerd M'úller, 81. mlnúta Jupp Kappelman, 82. minúta Gerd Miiller!! Sem sagt „hat-trick” hjá Múller á fjórum mínútum, og meira að segja mark inn á milli! Já, það er fjör I þýska boltanum. Órslitin á laugardaginn urðu annars bessi: -Gladbach”-T.B. Berlin ....3:0 Bremen-Kaiserslaut........2:0 Dortmund-RW Essen.........4:2 Karlsruhe-Köln ...........2:1 Saarbruck-Schalke 04......2:3 Bochum-Frankfurt..........3:1 Hertha-DÚsseldorf.........4:0 Duisburg-Braunsch.........1:1 Bayern-Hamborg............6-2 Mönchengladbach gekk fremur illa með nýliöana Tennis Bo- russia, en mark frá Heynckes rétt fyrirhlékom taugum leikmanna I lag. Heynckes bætti svo öðru marki við í seinni hálfleik og Stie- like innsiglaði siöan sigur „Glad- bach”. Janzon og Struth skoruðu mörk Karlsruhe I seinni hálfleik, og óvæntur sigur þeirra yfir Köln varð að veruleika. Mörk frá Kostedde og Hartl á siöustu fjór- um minútum leiksins við Essen gáfu Dortmund verðskuldaöan sigur. Hin mörk Dortmund gerðu Huber og Lippens. Bracht og Konschal skoruöu fyrir Bremen á móti Kaiserslautern. Gerd Múller hefur nú skoraö flest mörk I Bundesligunni eöa alls 14, Benny Wendt (Tennis) hefur skorað 12 og Jupp Heynckes hefur skorað 11 mörk. Eftir 11 umferöir hefur Mönchengladbach forystuna með 19 stig, næst kemur Braunsch- weig með 16stig. Þá koma Hertha og Bayern með 15 stig. Athygli vekur markatala Bayern, 38 mörk skoruð og 29 fengin á sig, eða að meðaltali eru skoruð 6 mörkiþeim leikjum, sem Bayern keppir! ó.O. Tyrkir sigruðu Ccmil hjá Trabzonspor-liöinu var hetja Tyrkja, cr þcir unnu stórsigur (4:0) yfir Möltu I IIM-kcppninni. Þessi snjalli leikniaöur, seni Skaganienn áttu I erfiöleikum meö — skor- aöi t.d. 2 mörk á Laugardals- vellinum og sigurmark Trabzonspor gegn Liverpool. Hann skoraöi nú þrjú mörk — „Hat-trick” gcgn Möltubúum. Póiverjar léku gegn Kýpur- búum i Varsjá, og voru þeir ekki ánægðir með leikinn og sigur sinn — 5:0. þeir ætluðu sér aö vinna Kýpur-búa með meiri mun og hressa upp á markatöflu sina, en þeim tókst þaö ekki. Einar aftur í landsliðshópinn — i körfuknattleik. Júgóslavinn Marcovich mun stjórna landsliðinu í vetur Júgóslavinn Vladan Marcovich/ þjálfari Njarð- víkinga/ mun stjórna körfuknattleikslandsliðinu i þeim landsleikjum sem framundan eru. Hann mun þjálfa landsliðið/ svo framarlega að það bitni ekki á æfingum Njarðvík- inga. Landsliðsnefndin i körfuknatt- leik hefur nú valiö21 leikmann til landsliösæfinga fyrir landsleikina gegn Norðmönnum, sem fara fram hér á landi, um næstu mán- aðamót. Landsliðshópurinn er skipaður þessum leikmönnum: Ármann: Jón Sigurðsson, Björn Magnússon, Simon ólafsson. KR: Kolbeinn Pálsson, Bjarni Jó- hannesson, Einar Bollason, Birg- ir Guðbjörnsson. Valur: Þórir Magnússon, Torfi Magnússon, Rikharður Hrafn- kelsson. UMFN: Gunnar Þorvaröarson, Kári Marisson, Brynjar Sig- mundsson, Jónas Jóhannesson. 1S: Bjarni Gunnar Sveinsson, Framhald á bls. 19. EINAR BOLLASON... hefur átt góöa leiki meö KR-liöinu aö und- anförnu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.