Tíminn - 10.11.1976, Blaðsíða 4
4
TiMINN
Miövikudagur 10. nóvember 1976
— 1 15 ár hef ég afhent konunni
minni öll mánaöarlaun min. Nú
hefur hún komizt að þvl, aö ég fæ
útborgað vikulega.
— Hvaö varö eiginlcga af þessu
öllu? Svolitlu eyddi ég I vin, dá-
iitiu i kvenfólk — en allt hitt fór I
einhvcrn óþarfa.
— Nei, þú þarft ekki aö láta mig
hafa neitt, en viö höfum ákveöiö
aö sýna tillitssemi I þessu hverfi
og halda þvi vinalegu.
Aldamótaverzlunar-
móti í Bremen...
Liklega er það sjaldgæft
að verzlunarinnrétting
hafi verið skráö til
varðveizlu sem söguleg
minning, en það gerðist
i Bremen, V-Þýzka-
landi. Eigandi verzlun-
arinnar hefur haldið
óbreyttum verzlunar-
háttum og óbreyttum
innréttingum siðan
1903. Hann hefur staöizt
allar freistingar i sam-
keppninni um sjálfsaf-
greiðslu og þess háttar.
Jafnvel vigtar hann enn
i brúna pappirspoka
alla þurrvöru, s.s.
hveiti, sykur, hrisgrjón,
sagógrjón og kúrenur.
Árum saman átti hann i
striöi við sjálfan sig um
hvort hann ætti aö gef-
ast upp og fara út i
sjálfsafgreiðslu, dag-
prisa o.þ.h., en nú er
verzlun hans hæst móö-
ins og opinberlega
skráö sem eitt af þvi
skoðunarverða i borg-
inni.
alansmvnd?
Nú er i undirbúningi í
Hollywood kvikmynd
um lif MacArthurs,
sem frægur varð i seinni
heimsstyrjöldinni.
Ýmsir velta nú fyrir sér
hversu sannsöguleg
ævisagan verður, og
svohljóðandi fyrirspurn
sást nýlega i spurninga-
dálki bandarisks blaðs.
Lesandi spyr: — Ætla
framleiöendur kvik-
myndarinnar að leggja
áherzlu á sannsögulegt
gildi frásagnar, t.d.
með þvi að segja allt um
kvennamál hershöfð-
ingjans — til að mynda
konuna, sem hann hélt
við i mörg ár? Eða ætla
þeir að segja frá hvern-
ig hann fór á bak við
Eisenhower hershöfð-
ingja, en litið hefur
komiö fram um það, og
segja frá öðrum miöur
hrósverðum staðreynd-
um um hershöföingann,
eða á þetta aðeins að
vera „söguleg
glansmynd”? Umsjón-
armaður lesendadálks
blaðsins hafði reynt að
afla sér upplýsinga til
að svara þessu, og
svariö var á þessa leið:
Gregory Peck á að leika
hinn hetjulega hers-
höfðingja Mac Arthur,
og framleiðendur
mvndarinnar segjast á
GENERAL MacARTHUR
engan hátt vilja rýra
frægð hershöfðingjans
— og það þýðir liklega
það, að þetta verður
„söguleg glansmynd”.
Reykingar
bannaðar
Burt Iteynolds, leik-
arinn frægi sem nú
stendur á fertugu, hefur
látið bæta sérstökum
skilmálum inn i samn-
ing sinn við kvikmynda-
framleiðendur: Hann
neitar algjörlega að
kveikja i vindli eða
sigarettu, — og ekki nóg
með það, heldur má
enginn af samstarfs-
fólki hans reykja,
hvorki i myndinni eða á
vinnustaðnum. Reyk-
ingar eru aðeins leyfðar
i kaffistofu. — Það ætti
að banna með lögum,
segir Burt, að „for-
pesta” andrúmsloftið
fyrir fólki.