Tíminn - 10.11.1976, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 10. ndvember 1976
tíminn
15
Lárus Sigfússon, bifreiðastjóri: — Já, ég tel það faísælla. Þegar
kjördæmin voru smærri, voru þingmenn meira háðir kjósendum
sinum.
Jónmundur Einarsson, verkamaöur: — Já hiklaust. Flokkspóli-
tikin hefur nú alltaf verið of mikil, og ekki fer hún batnandi.
TÍAAA- spurningin
Tima-spurningin: Á að gera kjör alþingis-
mannapersónulegra en nú er?
Hörður Þórarinsson, hárskeri: — Já, endilega. Prófkjör myndu
að nokkru bæta ástandið og val þingmanna yröi með þeim ekki
eins fjarlægt kjósendum og nú er.
Flosi ólafsson, leikari:—Þvi ekki það. Enhræddur er ég um, að
slikt kæmi mörgum þingmanninum I koll.
Ragnhildur Palsdóttir, vinnur við auglýsingar: — Já, þaö finnst
mér sjálfsagt. Prófkjör ættu t.d. aö vera almennari.
lesendur segja
Sverrir Runóifsson:
Undirförulir
hagsmunahópar
af verstu gerð
VEGNA ummæla i fjölmiðlum
um tilraunakafla minn, vil ég
upplýsa eftirfarandi:
I skýrslu Vegagerðarinnar
segir: „verður sennilega að
leggja nýtt lag yfir það (veginn)
bráðlega”, en ekki, að „Sverris-
braut” verði jörðuð”, né að slit-
lagið allt sé ónýtt. Það eru niu
mismunandi tilraunir i gangi i
kaflanum og engin leið að sjá
hvað hefur heppnazt og hvað
„misheppnazt”, fyrr en eftir
veturinn. Mun ég þá gefa mitt
álit á útkomunni i heild. Enn-
fremur mun ég upplýsa allt, frá
byrjun til enda, sem gert var til
að gera þetta erfitt og dýrt. Þá
fyrst er hægt að dæma hvort ég
hafistaðið mig vel eða illa. Eitt
dæmi af tugum skal ég þó nefna
núna.
Valtari undirverktaka mins
hafði bilaö, hann fékk loforð frá
öðrum verktaka fyrir valtara,
en þegar átti að flytja hann, þá
kom náttúrlega i ljós hvert hann
átti að fara. Þegar eigandi valt-
arans frétti það, sagði hann, að
það kæmi ekki til greina, að
Sverrir Runólfsson fengi valt-
ara hjá sér. Varð ég þá að senda
öll tæki og menn heim. Vegna
þessa, varð margra daga töf,
auka flutningar og kostnaður.
Eins og einn vinur sagði, með
kimni vil ég segja: Það er ekki
auðvelt að standa einn á móti
heilli „mafiu”. Þegar ég segi
mafia, meina ég vitaskuld
undirförula (two faced) hags-
munahópa af verstu tegund.
GUÐ blessi heimilið.
Pétur Hólm, Gufunesi:
Gíróþjónustan alveg gagns
laus — en veldur fólki
miklum óþægindum
Pétur Hólm, Gufunesi, kom
að máli við umsjónarmann les-
endadálk blaðsins og sagði farir
sinar ekki sléttar: — Ég fæ
simareikninga mina senda i
giróreikningsformi, eins og
flestir aörir. 1 þessum mánuði
greiddi ég minn reikning i
banka þann 15. nóvember. Ell-
efudögumsiöar,eða 26. okt. var
simanum lokað hjá mér. Þegar
ég grennslaöist um hverju þetta
sætti, var svarið það, að
„gleymzt” hefði að færa á milli.
Sama dag og lokað var hjá mér,
vissi ég, aö það sama kom fyrir
þrjá kunningja mina. Þeir höföu
borgað girósimareikninga sina,
en simanum var lokað hjá þeim
nokkrum dögum siðar. Og þetta
er ekki það eina. Rafmagns-
reikningar eru lika sendir út i
giróformi. Kunningi minn einn
varð fyrir þvi, aö án þess að
hann vissi, var rafmagnið hjá
honum tekið af og mælar
innsiglaðir og þaö á föstudags-
eftirmiðdegi. Var heimilið þvi
rafmagnslaust heila helgi, og
getur nærri hverjum vandræð-
um þaö olli. Giróreikningurinn
hafði verið borgaður nokkru áð-
ur.
Af þessum dæmum, sem ég
hef tiltekið, og eflaust hafa fjöl-
margir aðrir sömu sögu að
segja , er ekki annaö aö sjá en að
giróþjónustan sé vita gagns-
laus. Ekki nóg með það, heldur
veldur hún fólki miklum vand-
ræðum og óþægindum. Upphaf-
lega skildist mér, aö þetta fyrir-
komulag ætti að vera til bóta
fyrir neytendur, en min reynsla
erþveröfug. Þaðsemhér virðist
gerast, er aö ef giróreikning-
arnir eru greiddir i banka, tekur
það slikan óratima að koma
þeim til viðkomandi þjónustu-
fyrirtækis, að búið er að loka
fyrir, eins og I áöurnefndum til-
fellum, sima og rafmagn, jafn-
vel þótt giróreikningarnir hafi
veriðgreiddir.á tilskildum tima
og I minu tilfelli ellefu dögum
áður. Nei, giró-,,þjónustan” er
alveg gagnslaus.