Tíminn - 10.11.1976, Page 17

Tíminn - 10.11.1976, Page 17
Miðvikudagur 10. nóvember 1976 TÍMINN 17 — hann er ekki eins fljótur, en betri knattspyrnumaður, segir Mike Ferguson í við- tali við ,,World Soccer" — segir Stan Bowles, sem er himinlifandi yfir því að vera kominn að nýju í enska landsliðshópinn Stan Bowles, hinn skotharði ieikniaður Queen’s Park Rang- ers, hélt nýlega upp á það, að hann er nú að nýju kominn i enska landsliðshópinn. Við það tækifæri lét hann hafa eftir sér: ,,Ég er STAN BOWLES... hinn skemmti- legi leikmaður Q.P.R. eldri, vitrari og skynsamari nú. Ég lenti venjulega i útistöðum við varnarleik mcnn og dómara vegna þess að ég lét ýmislegt út úr mér — en það eina, sem ég haföi upp úr þvi, var vandræði og sár liáls. — Ég geng þegjandi burt, þegar brotið er á mér núorðið, tek þvi eins og það er og held áfram að leika. Landsliðiö? Ég er himinlifandi. Ég hélt, að möguleikar minir þar væru úr sögunni, þegar ég neydd- isttil að fara af velli i leiknum við Portúgal vegna meiðsla. Það voru mikil vonbrigði, en nú, þeg- ar ég er27 ára gamall, finnst mér ég leika fullt eins vel ogTyrr, auk þess er ég þolinmóðari. — Bowles er ekki endilega kom- inn inn i liðið sjálft, þótt ég hafi valið hann i hópinn, sagði Don Revie, landsliðseinvaldur Englendinga við sama tækifæri, en ég held, að hann hafi komizt yfir örðugleika sina. Ég held að hann hafi þroskazt, og mér fannst frammistaða hans gegn West Ham i deildarbikarn- um framúrskarandi. Ég hef aldrei efazt um frábæra hæfileika hans. — Enski landsliðshópurinn, sem heldur til ftaliu, er skipaður þess- um leikmönnum, eftir að Revie hefur gert nýjustu breytingarn- ar: Clemence (Liverpool), Shilt- on (Stoke), Corrigan (Man. City), Hughes (Liverpool), Beattie (Ips- wich), Todd (Derby), Clement (Q.P.R.), Thompson (Liverpool), McFarland (Derby). Grenhoff (Man. Utd.), Doyle (Man. City), Brooking (West Ham), Mills (Ipswich), Towers (Sunderland), Cherry (Leeds). Keegan (Liverpool), Pearson (Man. Utd.), Channon (South- ampton), Royle (Man. City), Tueart (Man. City), Talbot (Ips- wich) og Bowles (Q.P.R.). — Pétur minnir mig óneitanlega á Alan Taylor, segir Mike Ferguson þjálf ari Akurnesinga í viðtali við hið víðiesna enska knattspyrnublað World Soccer", en þar fer hann lofsamlegum orðum um hinn 17 ára stórefnilega leikmann Skagamanna, Pétur Pétursson, sem átti góða leiki með Skagaliðinu sl. sumar. Ferguson segir að Pétur minni hann a Alan Taylor, miðherja og markaskorarann mikla hjá West Ham, þegar Ferguson lék með Taylor hjá Rochdale. — Pétur er ekki eins fljótur og Taylor, en hann er betri knattspyrnumaður, sagði Ferguson i viðtalinu við „World Soccer”. — Pétur hefur gifurlega hæfi- leika sem knattspyrnumaður, han er undrabarn, sagði Fergu- son og hann lýsti Pétri þannig fyrir blaðamanninum Jack Roll- PÉTUR PÉTURSSON...liinn efnilegi leikmaður frá Akra- nesi sést hér I Evrópuleik gegn l'rabzonspor. Litla mvndin i hægra horninu sýnir Alan laylor, sem skoraði bæði mörk YVest Ham á Wembley, þegar Lundúnaliðið vann silfur (2:0) á Fulham i úrslitaleik bikarkcppninnar ensku 1975. (Timamvnd Róbert) • Partur af greininni í „World Soccer”. in: — Hann er ljóshærður, örv- fættur — þú veizt hvað örvfættir leikmenn geta verið hættulegir. Ferguson sagði einnig, aö þegar hann flutti Pétur af miðjunni og i framlinuna, þá hefðu Skagamenn skorað 18 mörk i 7 leikjum. Þessi ummæli eru mjög mikið hrós fyrir Pétur, en þess má geta að Ferguson er ekki eini erlendi þjálfarinn, sem hefur hrósað Pétri. George Kirby, sem gerði Skagamenn að Islandsmeisturum 1974 og 1975, sagði eftirfarandi um Pétur, eitt sinn i blaðaviötali: — Hann er eitt mesta knatt- spyrnumannsefni, sem ég hef séð. Þá má geta þess, að Yri Ilchev, þjálfari Valsliðsins, hefur sagt þetta um Pétur: — Það hefur ver- ið mjög ánægjulegt að fylgjast með ungum og mjög efnilegum knattspyrnumanni frá Akranesi, Pétri Péturssyni, sem er afar- hættulegur og ógnaði hvaða vörn sem væri. -SOS Derby áfram Derby tryggði sér rétt il að leika I 8-Iiða úrslitum ensku bikarkeppninnar, þegar liöiö vannsigur (2:1) á Brighton á Baseball Ground. Colin Todd og Kevin Hector skoruðu mörk Derby, en Ian Mellor skoraði mark Brighton. -dá'i PETER OSGOOD „Ossie” til Norwich PETER Osgood — dýrling- urinn frá Southampton, sem átti stærstan þátt I þvi að Dýrlingarnir tryggðu sér bikarmeistaratitilinn 1976 I Englandi, þegar Southampt- on-liðið vann sigur (1:0) yfir Manchester United á Wembley, er nú kominn til Norwich. „Ossie”, eins og hann er kallaöur, hefur verið á sölu- lista hjá Southampton að undanförnu. Norwich hefur sýnt áhuga á að kaupa hann — og nú hefur félagiö fengið hann að láni I mánuð til reynslu. Ef Osgood fellur inn i Norwich-liðið, mun það ör- ugglega kaupa hann, en hann er metinn á 100 þús. pund. Þá má geta þess, að W.B.A. og West Ham eru á höttunum eftir Coventry- -leikmanninum David Cross. - Lands- liðið — til A-Þýzka- lands ISLENZKA landsliðið i handknattleik mun fara til Austur-Þýzkalands i desem- her og leika þar tvo vináttu- landsleiki við Austur-Þjóð- verja. Endanlega var gengið frá þessu I gærkvöldi, en þá barst H.S.Í. skeyti frá Austur-Þjóðverjum. þar sern þeir tilkynntu, að þeir væru reiðubúnir til þess að taka á moti handknattleikslaudslið- inu i na'sla mánuði og leika við það tvo leiki. — Fýrri leikurinn fer frant i Aust- ur-Berlín 9. desember og hinu siðari daginn eftir i Frankfurt An-Oder. islenzka landsliðið fær þvi nóg að gera i desember. þvi 12. desember mun það leika gegn Dönum i Kaupmanna- höfn og daginn eftir gegn Sjálandsúrvalt. Þá eru einnig miklar likur á þvi. að danska landsliðið korni hing- að til lands og leiki tvo lands- leiki i Laugardaishöll 1. og 2. desember. Ekki hefur þó endanlega veriö gengið frá þessum leikjum. , * „Ég er eldrí, vitrari og skynsamari nú"..

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.