Tíminn - 08.12.1976, Qupperneq 4
4
Miðvikudagur 8. desember 1976
MEÐ
MORGUN
KAFFINU
Ný kvikmynd
um hjónin:
Clark
Gable
Carole
Lomba
Segja má, að ástarsagan
um hina skammvinnu
hjónabandshamingju
þeirra Clarks og Carole sé
orðin að hálfgerðri þjóö-
sögu i Hollywood. Hjóna-
band þeirra hafði sorgleg-
an endi, þvi að Carole fórst
i flugslysi i Nevada-fjöllun-
um rétt eftir 1940. Hún var
á ferðalagi til að skemmta
hermönnum i herbúðum,
en Clark var að leika i
kvikmynd og fór þvi ekki
með. Nú, meira en 25 árum
siðar, hefur fólk enn áhuga
á sögu þeirra, enda er eins
og einhver endurvakning i
sambandi við Clark Gable
eigi sér stað, cn hann lézt
fyrir nokkrum árum — og
jafnvel stendur til, að
semja framhald af kvik-
myndinni „Gone With the
Wind,” þar sem hann lék
Rhett Butler, en það var
hans frægasta hlutverk. 1
myndinni um þau hjón,
Carole og Clark, leikur
James Brolin hlutverk
Clarks, en Jill Clayburgh
leikur Carole. Myndin fær
aðeins tvær stjörnur i tima-
ritinu Photoplay, og sagt
er, að frá listrænu sjónar-
miði sé hún ekkert sérstök,
en þó þykir sem svo aö leik-
urunum hafi tekizt vel, að
fara með hlutverk
fyrirmynda sinna, og eink-
um fær Jill Clayburgh hrós
fyrirsinn leik. Clark Gable
var þvilikt átrúnaðargoð
margra — einkum þó
kvenna á öllum aldri — að
erfitt mun reynast að ná
fram þeim óútskýranlegu
persónutöfrum hans, sem
þeir muna er sáu hann i
kvikmyndum. Við sjáum
hér mynd af Clark Gable i
hlutverki glæsimennisins
Rhett Butlers, einnig er
mynd af James Brolin (i
peysu) i hlutverki sfnu i
ævisögu Clark og svo mynd
af James og Jill sem hjónin
Carole og Clark.
timans