Tíminn - 08.12.1976, Blaðsíða 20

Tíminn - 08.12.1976, Blaðsíða 20
Miðvikudagur 8. desember 1976 LEIKFANGAHUSIÐ Skólavörðustig 10 ■ Sími 1-48-06 Fisher Price leikföng eru heimsfrag Póstsendum Brúðuhús Skólar Benzinstoðvar Sumarhus Flugstoðvar Bilar G~ÐI fyrir yóöan mat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Minnk líkur á gosi í segir Rgqnar Stefánsson i orbz skiálfta- fræðinaur Gsal-Reykjavik. — Likur á gosi I Kötlu hafa minnkaö þar sem dregið hefur mjög úr jarðskjálftum á þessu svæði slðustu daga, sagði Ragnar Stefánsson jarðskjáiftafræðingur í samtali við Tfmann í gær, en bætti við, aöenn væri fullsnemmt að spá um það, hvort jaröskjálftahrinunni, sem hófst f ágústmánuði og var vaxandi fram f síðustu viku, væri lokiö. Ragnar sagði, aö jarðskjálfta- hrinan hefði gefið tilefni til þess að hafa mjög mikla aðgát á þessu svæði, einkum þar sem hún hefði vaxið i nóvembermánuði, og hefði veriö fylgzt mjög itarlega meö jarðskjálftamælum á þessu tima- bili og væri enn gert. — bessi hrina benti hugsanlega til þess að eldgos i Kötlu væri i nánd, sagði Ragnar, enda voru skjálftarnir þannig, að allt benti til þess, að þeir vær'u tengdir hreyfingu á eld- kviku. Það er hins vegar tiltölu- lega algengt, að jarðskjálftar vaxi á þessu svæði með haustinu, en að þessu sinni var sá vöxtur miklu meira afgerandi en áður. Þaö er ennfremur algengt, að úr þessum skjálftum dragi, þegar nálgast áramót. Ragnar sagði, að sennilegt væri, að hraunkvika væri undir Kötlusvæðinu á tiltölulega litlu dýpi, og kvað það sina skoðun, að þaö væri vaxandi þrýstingur upp á við frá þessari kviku, og þegar létti snjó af jöklinum siðari hluta sumars, minnkaði sú ytri spenna, sem héldi kvikunni niöri og hún smeygöi sér í glufur og sprungur. Þessar sprungur mynduðust, þegar létti á þrýstingnum og þeg- ar hraunkvikan næði að ryöjast fram, inn i þessar glufur og sprungur, mynduðust jarðskjálft- ar. Um ástæður þess, að jarö- skjálftar hætta oft i desember- mánuði, sagði Ragnar, aö sin skýring væri sú, að þá væri snjó- fargiö á jöklinum oröið þaö mikið aftur, aö þrýstingurinn héldi kvikunni algjörlega niðri. Ragnar kvaö þessa skýringu slna þó ekki eiga viö alla jarð- skjálfta, sem fram kæmu á þessu svæöi. Kröflusvæðið: Hola 10 mun breyta heildarmyndinni — segir yfirumsjónarmaðurinn með borholunum gébé Rvik. — Ég álit að hola tíu sem leirhverinn gaus upp I októ- komi til með aö breyta heildar- ber s.l. en eftir aö hann hvarf myndinni, og að hún sé jafn- aftur, var stóri borinn, Jötunn, framt bezta holan á virkjunar- aftur fluttur á borunarstað. — svæðinu, sagöi Valgarður Hola 8 er I blæstri, og viö mæl- Stefánsson eðlisfræðingur hjá um hana öðru hverju og fylgj- Orkustofnun en hann hefur yfir- umst meö henni, eins og holum umsjón með borholunum á 6. og 7. Þær tvær síðastnefndu Kröflusvæðinu. Hann sagöi aö eru nú að mestu leyti komnar I hola 10 hefði byrjaö aö blása s.l. jafnvægi, og fyrir nokkru kom I föstudagskvöld og gæfi góöar ljós, að til samans gáfu þær um vonir. — Viö fylgjumst náiö með 5megawött, og hefur þaö ekkert hvernig hún hagar sér og hvern- breyzt, sagði Valgarður. ig hún breytist og búumst við aö — Við höfum ákveöiö að segja geta gefið henni einhverja eink- til um áramótin hver staðan unn f næstu viku, sagöi Valgarö- verður á holunum á virkjunar- ur. svæðinu við Kröflu, en hola 9 veröur þó varla með I þeirri Þá sagði Valgarður, að heildarmynd, þar sem þá verö- dýpkun á holu 9 færi senn aö ur nýlokið viö aö bora hana og ljúka, og bjóst við, aö farið yrði lftiö hægt um hana að segja niöur a um 1200 m dýpi. Sem sagði Valgarður Stefánsson aö kunnugt er, var þaö við holu 9, lokum. Flugstöðin gangi fyrir — segja Flugleiðir HV-Reykjavik. — Það er ekki ein- falt mál að gera upp á milli þess- ara tveggja möguleika, það er hvort betra er að halda stefnum flugbrautanna á Reykjavikur- flugvelli eins og þær eru, eða skekkja austur-vesturbrautina. Afstaða Flugleiða er sú, að félag- ið stendur með þvi skipulagi, sem samþykkt hefur vefið af ýmsum orsökum, til dæmis vegna þess aö breytingar á brautarstefnu aust- ur-vestur brautarinnar myndu tefja mjög allar aðrar fram- kvæmdir á flugvallarsvæöinu, sagði Sveinn Sæmundsson, blaða- fulltrúi Flugleiða, I viðtali við Timann I gær. 1 viðtali viö Leif Magnússon, varaflugmálastjóra, I Timanum I gær, kom fram, að Flugmála- stjórn heföi þótt ráðlegra að skekkja stefnu astur-vestur brautar vallarins, þannig að öskjuhliöin kæmi ekki lengur sem hindrun I aðflugs- og flug- taksflöt hennar. Meö þvi mætti meðal annars minnka nokkuð flug yfir miðbæ Reykjavlkur. — Það er ekki verulegt vanda- mál hjá okkur, að Fokker Friend- ship vélarnar geti ekki nýtt flutn- ingsgetu sina að fullu vegna aust- ur-vestur brautarinnar, sagði Sveinn ennfremur i gær, og ef brautin hefði verið skekkt, þá heföi i fyrsta lagi tafizt mjög bygging flugstöövar þeirrar, sem risa á þar á flugvallarsvæöinu, og auk þess hefði þrengzt mjög að henni, þegar hún hefði loks kom- ið. Það er ákaflega mikilvægt, að þessi flugstöð risi sem fyrst, enda liggur það i augum uppi, þegar haft er i huga, að um Reykjavik- urflugvöll eru nú fluttir á þriðja hundrað þúsund farþegar árlega, það er I innanlandsflugi. Svo bæt- ist enn við i Færeyja- og Græn- landsflugi. Aðalfundur LIÚ hefst í dag gébé- Rvík.— Aðalfundur Lands- sambands islenzkra útvegs- manna hefst i átthagasal Hótel Sögu klukkan 14 i dag og stendur fundurinn til föstudags. Kristján Ragnarsson framkvæmdastjóri LtO setur aðalfundinn með ræöu. Fulltrúar á fundinum verða um eitt hundraö talsins. PALLI OG PESI 150 daga gæzlu- varðhald Gsal- Reykjavik — örn Hösk- uldsson, sakadómari sem stjórnar rannsókn Geirfinns- málsins svonefnda, staðfesti i samtaii við Tlmann I gær, að gæzluvarðhald Sævars Ciec ielskis hefði veriö framlengt um 150 daga, eða fimm mán- uði. Sævar er sem kunnugt er grunaður um aðild að hvarfi Geirfinns Einarssonar, auk þess sem hann er einn bana- manna Guömundar Einars- sonar. Gæzluvarðhaldsúrskurður þessi er sá lengsti sem kveö- inn heíur verið upp á Islandi, ef frá eru skildir gæzluvarð- haldsúrskurðir yfir mönnum, sem dæmdir hafa verið i saka- dómi, og biöa dóms Hæsta- réttar — en þeir hafa kveöið á um jafn langan tima. Að undanförnu hefur rann- sókn Geirfinnsmálsins miöað m jög vel og telja menn jafnvel liklegt, að rannsókninni ljúki innan fárra vikna. dagar til jóla n — Frændi minn var rekinn úr spari- i baukadeildinni. ’ — Jæja. — Já. Hann gaf kúnnunum á bauk- '7(o

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.