Tíminn - 08.12.1976, Page 5
Miðvikudagur 8. desember 1976
5
Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar hafin
gébé Rvik. —Þessa dagana er hin
árlega jólasöfnun Mæðrastyrks-
nefndar að hefjast. Þessi söfnun
hefur verið árviss atburður fyrir
jólin frá árinu 1928, og hefur
nefndin liðsinnt fjölmörgum á
þessum tíma, bágstöddum mæðr-
um, börnum, sjúkum og öldruð-
um. Fyrsta úthlutunin 1928 var
um 10-12 kr. á hvert heimili, en sú
upphæð hefur margfaldazt, svo
og hefur þeim fjölgað sem nefnd-
in styrkir. Hann er orðinn stór
hópurinn, sem sett hefur traust
sitt á Mæðrastyrksnefnd fyrir jól-
in.
Söfnunarlistar hafa þegar verið
sendir til fyrirtækja og stofnana,
en einnig er tekið á móti gjöfum i
skrifstofu nefndarinnar að Njáls-
götu 3 alla virka daga frá kl. 12-6.
Nefndin leggur áherzlu á, að
hjálparbeiðnir berist sem fyrst,
og ekki verður úthlutað eftir
gömlum beiðnum. Þá er einnig
lög áherzla á, að nefndin fái
framlög einstaklinga, fyrirtækja
og stofnana, sem fyrst, en ekki er
hægt að sinna úthlutun eftir 19.
desember. Að þessu sinni er ekki
hægt að taka á móti fatagjöfum,
og er ástæðan húsnæðisskortur
nefndarinnar.
Forráðamenn
æskulýðsmála
á Akureyri
lýsa van«
þóknun sinni
á ýkjuskrifum
dagblaðsins Vísis
um skemmtanahald
unglinga í
æskulýðsheimilinu
Dynheimum
KS-Akureyri. — Æskulýðsheim-
ilið Dynheimar á Akureyri hef-
ur verið mjög til umræðu
manna á meðal i bænum undan-
farnar vikur. Astæðan til þess
eru skrif i dagblaöinu Visi i
byrjun október, þar sem i um-
ræddri grein er rætt um starf-
semi Dynheima og mikinn
drykkjuskap unglinga á dans-
leik þar.
1 framhaldi af þessum skrif-
um fór formaður æskulýðsráðs
Akureyrar þess á leit við æsku-
lýðsfulltrúa og framkvæmda-
stjóra Dynheima, um að þeir
könnuðu þessi mál og skiluðu
skýrslu þess efnis.
Nú er könnun þessari lokið og
i greinargerð frá nefndarmönn-
um eru fyrrgreind skrif Visis
mjög gagnrýnd og þau talin
mjög ýkt. 1 skýrslunni segir, að
þótt alltaf séu einhver vanda-
mál i sambandi viö ölvun ung-
linga i Dynheimum eins og svo
viða annars staðar, sé samt
ljóst, að þeim unglingum fari si-
fellt fækkandi, sem forráða-
menn æskulýðsheimilisins þurfi
að hafa afskipti af vegna ölvun-
ar.
1 lok skýrslunnar segir, að i
fyrrgreindri frásögn i Visi um
dansleik þennan i Dynheimum,
sé mjög hallað á starfsemi þar
og margt fært til verri vegar
jafnframt þvi að verið sé að búa
til visvitandi nýtt „Tónabæjar-
vandamál”, sem alls ekki sé til
staðar i Dynheimum.
Höfunda Helgafells þarf ekki aö kynna.
Þeir eru ávallt í fararbroddi
HALLDOR
LAXNESS
//Ungur eg var" heitir
nýtt skáldverk eftir Hall-
dór LaxnesS/ unaðslega
fallegt verk, fyndið og
hreinskilið. Bók sem allir
kjósa sér að eignast
strax.
JON
HELGASON
Jón Helgason prófessor,
fyrrverandi forstöðu-
maður safns Árna
Magnússonar, er eitt af
fremstu Ijóðskáldum
okkar fyrr og síðar.
Komnar eru út nýjar
I jóðaþýðingar Jóns,
KVER, með útlendum
kvæðum. Sannkölluð
meistaraverk.
DAVIÐ
STEFÁNSSON
Davíð Stefánsson frá
Fagraskógi gaf á undan-
förnum áratugum út 10
Ijóðabækur. Nú er komin
út hjá Helgafelli skinandi
falleg útgáfa á öllum 10
Ijóðabókum skáldsins
ástsæla.
KRISTJAN
ALBERTSSON
Nýr stórróman, „Ferða-
lok" er komin út eftir
Kristján Albertsson,
raunar ástarsaga lífs-
reynds húmanista, bók-
menntamanns og mann-
vinar. Spennandi lista-
verk.
í Unuhúsi
kaupiö þér bestu
bækurnar til
jólagjafa.
Tvö hundruð
klassískar
bækur, dýrar
og ódýrar.
UNUHÚS
HELGAFELL