Tíminn - 08.12.1976, Qupperneq 10
Miðvikudagur 8. desember 1976
11
10
Hiiilífí
Miðvikudagur 8. desember 1976
Skyggnzt undir
hversdagshjúpinn
Guðmundur Halldórsson:
HAUSTHEIMTUR, smásögur.
128 bls. Almenna bdkafélagið
1976
Þær átta smásögur, sem eru
samferöa i þessari bók, fjalla
allar um lif og örlög islenzks
sveitafólks. Sögusviðið er hinis-
lenska sveit tuttugustu aldar-
innar, þegar holskefla nýrra
lifshátta er að steypast yfir
þjöðina með margvislegum af-
leiðingum og breytingum, illum
og góðum. Fólksfæöin á sveita-
bæjum er böl, og véltæknin, meö
öllum sinum tilkostnaði, borgar
sig kannski ekki alltaf.
Fyrsta sagan heitir Haust-
heimtur. Þar segir frá einum
réttardegi og þeirri spennu, sem
honum er tengd, en þar liggur
að visu fleira i loftinu en hin
gamalkunna eftirvænting
manna, sem fá nú að sjá fer-
fætta vini sina eftir sumarlang-
an aðskilnað. Gangnastjórinn,
sem er einbúi á jörð sinni, von-
ast eftir kaupakonunni, sem
hafði verið hjá honum um sum-
arið, hún haföi að visu brugöið
sér suður fyrir skömmu, en
hennar er von i réttirnar. Og að
visu kemur hún og fer ekki
erindisleysu á vit sveitarinnar,
— en ekki meira um þaö hér.
Næsta saga heitir Eins og
verða vill.Aftur er þaö einyrki i
sveit og samskipti hans við
kvenkyniö, sem eru uppistaða
sögunnar. Einsetumaðurinn
Hjörleifur Jónsson, sem er
kannski ekki alveg gallalaus,
sem einstaklingur og bóndi, en
hún Svalborg, sem hafði riðiö
með honum i kringum stóö og
hjálpað honum aö taka saman
hey, er ekki dyggðin holdi klædd
heldur, svo það er varla von á
öðru en þvi, sem kemur á dag-
inn, að hún verður honum til lit-
illa heilla.
Hylurinner saga, sem leynir
á sér. Hylurinn i ánni getur vel
táknaö hyldýpi mannlegra til-
finninga og örlaga. Allir menn
þrá hamingju, en það er ekki
sama hvar og hvernig hennar er
leitað — og hverful mun sú ham-
ingja reynast, sem fundin
veröur i koniaki og lauslátu
kvenfólki. — En áin með hyl
sinum og straumi, og maðurinn
sem situr á bakkanum, verða
okkur minnisstæð, löngu eftir
lestur sögunnar.
Sagan Raksturkemur lesand-
anum skemmtilega á óvart. Þaö
er komið fram undir göngur,
óþurrkar hafa gengiö lengi, viö
erum leidd á sveitabæ, þar sem
útlitið er siður en svo gott af'
þessum sökum, og nú teljum við
vist, að bráðum komi þurrkur
með tilheyrandi annriki,
rakstri og samantekt heys. En
það er þá reyndar allt annar og
annars konar rakstur, sem átt
er við, — og er nú bezt að segja
ekki gerr af tiðindum, en lofa
lesendum sjálfum að komast i
gott skap við að lesa þessa þræl-
hittnu og skörpu ádeilusögu.
Hallæriskorn er góð saga,
sem hittirbeintí mark. Hún ætti
að geta orðið stjórnmála-
mönnum holl lesning, og hún á
brýnt erindi til þeirrar uppvax-
andi kynslóðar, sem á að erfa
þetta land og gæta þess.
Afhjúpun segir frá sérkenni-
legum veizluspjöllum á hátiðar-
stundu. Ekki dylst, að hátiöin,
sem skáldið hefur i huga, er af-
hjúpun minnisvarða Stephans
G. á Vatnsskarði, en ekki er höf-
undi þessara lina kunnugt um
neitt hneyksli hafi orðið i sam-
bandi við þann atburð, enda
þarf sagan siður en svo á sliku
tilefni að halda. Hún getur vel
verið diktur frá upphafi til enda.
En óneitanlega er samtal
„ráðsmannsins” og forsætis-
ráðherrans i meira lagi bros-
legt.
Kal er stutt saga, en eftir-
minnileg. Liklega verða margir
bændur tregir til þess að fylgja
ráðinu, sem Pétur gefur Jóni
sambýlismanni sinum i sögulok,
en hvað sem þvi liður, er eftir-
minnileg myndin af þeim
bændunum, þarsem þeir standa
á túni sinu, kölnu til stór-
skemmda. Það eru hriðaráleið-
ingar i fjöllum, hafisinn lónar
fyrir landi, og komið fram i júni.
Siðasta sagan i bókinni heitir
Heimför . Þetta er ekki löng
saga, þótt hún sé i fjörum
köflum.Þar er sögð gömulog ný
saga um dyggð og trúmennsku
annars vegar, en leti og vinnu-
svik hins vegar. Vitaskuld lætur
Guðmundur gamla og slitna
bóndann vera fulltrúa vinnu-
seminnar og eljunnar. Hann
stendur i sifelldu striði við
strákana, sem eru með honum i
vegavinnunni, þótt höfundur
segi reyndar, að þeir hafi gllir
verið beztu strákar inn við bein-
iö, og að þeir hafi oftast unnið
mjög vel. En kynslóðabilið
lætur ekki að sér hæða. Þetta er
vel sögð saga, sem verðskuldar
að vera lesin oftar en einu sinni.
Þar er vikið að ýmsu, sem
okkur er hollt að hugleiða i erli
og annriki daganna.
Smásagan er heillandi bók-
menntaform en að sama skapi
vandasamt. Saga, sem kemst
fyrir á tiu til tuttugu blaðsiðum,
getur rúmað stærri heim en
mörghundruö blaðsiðna verk.
Sögurnar i Haustheimtum
lýsa hvorki stórbrotnum né
mikilfenglegum atburöum, fólk
þeirra er óbrotið islenzkt al-
þýðufólk, — oftast sveitafólk.
En á bakvið orð og athafnir,
sem kunna að viröast hvers-
dagsleg við fyrstu sýn, leynast
stórir heimar mannlegra ör-
laga, gleöi og harmar, sigrar og
ósigrar.
Still þessarar bókar minnti
mig víða á Indriða G. Þorsteins-
son, einkum samtöl persón-
anna. Þetta er ekki sagt til
hnjóðs, ég er ekki að bera Guð-
mundi á brýn að stæla Indriða.
Verið getur lika, að sögusviðið
og andblær sagnanna ráði hér
einhverju um.
Um málið á Haustheimtum er
það skemmst að segja, að sá
maður, sem ætlaði að smala þar
málvillum eöa ambögum til
réttar gæti með góðri samvizku
sparaö sér réttardaginn og riðið
heim að sofa, —hann fyndi ekki
eina einustu kind. Málfarið á
þessari bók er með öðrum
orðum svo hreint og tært, að
ýmsir sem telja sig þess um-
komna að dæma ritverk ann-
arra manna, mættu öfunda
Guðmund Halldórsson af þeirri
islenzku sem hann hefur ræktað
með sér.
Sm'ásögurnar, sem
Guðmundur Hallddrsson sendir
nú frá sér, eru liklegar til þess
að hljóta vinsældir þeirra, sem
hafa yndi af þessu formi skáld-
skapar. En menn ættu ekki að
gleypa þær i sig eins og bein-
lausa bita, heldur lesa þær
vandlega. —VS.
Heyrt, séð og lesið,
Fríða Björnsdóttir skrifar fró Kanada
bókmenntir
Islenzkar úrvalsgreinar.
Bjarni Vilhjápmsson og Finn-
bogi Guðmundsson völdu.
Bókaútgáfa Memiingarsj
óös og Þjóðvinafélagsins.
Hér eru 19 ritgerðir eftir 19
menn. Allir eru höfundarnir
látnir og allar eru greinarnar
birtar eftir aldamót. Og vist má
segja, að hér sé valinn maður i
hverju rúmi.
Auövitað er það smekksatriöi,
hvort okkur finnst, að jafnan
séu valdar beztu greinar hvers
höfundar. Þar finnst mér t.d.
að bresti nokkuð á með
Guðmund Finnbogason, og er þó
ritgerð hans um þorskhausana
og þjóðina skemmtileg og snjöll
og meö glöggum einkennum
sins höfundar. Hver hefði
skrifaö þetta annar? En geysi-
legt bil er frá þessari grein aö
ritgerð hans um aktaskriftina.
Enhér erá þaö aö lita, að I fyrra
var gefiö út ritgeröasafn eftir
Guömund, ágæt bók. Þvi heföi
kannske mátt finna nokkur rök
til að sleppa honum hér, og þarf
þó enginn að halda, aþ hann
dragi þessa bók niður.
Þegar komnar eru saman
greinar eins og Rúna í Baröi
eftir-Sigurö skólameistara, —
Eitt sá tómt helstríð — eftir Vil-
mund landlækni, Vatnadagur-
inn mikli eftir Þórberg, Þyrni
Valinn
maður
í hverju
rúmi
runnurinn brennandi eftir Þor-
kel Jóhannesson og Matthias viö
Dettifoss eftir Sigurð Nordal,
verða ritgerðir Bjarna
Benediktssonar og Þorsteins
Gislasonar um Hannes Hafstein
og Pál ölafsson heldur svip-
daufar, og eru þó mætar rit-
gerðir um merka menn. En allt
fer þetta mat eftir smekk
manna.
Ekki skal lasta hvernig menn
eru valdir I þessa bók. Safnarar
vita það vei, að enn er af ærnu
að taka og láta enda að þvi
liggja, að svo kunni að fara, að
önnur bók samkynja fylgi á
eftir. En til gamans skal þess
getið, aö mér komu i hug nöfn
annarra 19 manna, sem á sama
tima hafa lagt til efni I aðra bók
sambærilega. Það er svo gaman
að hugsa til afreksmanna að ég
læt eftir mér að nefna fólkið.
Benedikt Sveinsson, Bjarni frá
Vogi, Gísli Guðmundsson,
Grétar Fells, Guðmundur
Björnsson, sr. Guðmundur frá
Gufudal, Haraldur Nielsson,
Jakob Kristinsson, Jón Eyþórs-
son, Þorgils gjallandi, Krist-
leifur á Kroppi, Magnús Helga
son, Ólina Andrésdóttir, Ragnar
Kvaran, Siguröur Einarsson,
Siguröur Kristófer, Theodóra
Thoroddsen, Hulda, Þórhallur
biskup. Þá eru þó ótaldir ýmsir
sem vel þola samjöfnuð, svo
sem Arni Pálsson og Sverrir
Kristjánsson, en nú skal staðar
numiö.
Ég er ekki viss um, að á
þessari vertfð berist margt
bóka, sem betur eru fallnar til
að vera jólagjöf fyrir greinda,
hugsandi og bókhneigöa ungl-
inga. Svona bækur eru til þess
fallnar að vernda tryggðina viö
það, sem aö baki er, — vernda
tengslin við upprunann. Þær
eiga sinn þátt I þvi, aö þjóðin
haldi áfram að vera Islenzk.
H.Kr.
Fyrir utan þetta hús hefur veriö reist skilti, sem gefur til kynna, að þaö er tii sölu, og þarna er hægt að sjá
nafn fasteignasölunnar, sem er með það i sölu. (Timamynd FB)
á pappaspjöld, og gjarnan hefur
þeim verið tyllt við ljósastaur,
eða einhvern umferðarmerkis-
staurinn, og fyrir neðan stendur
svo götunafn og númer.
Hvorugu þessara skilta eigum
við að venjast i Reykjavlk, eöa á
Islandi yfirleitt, en kannski væri
ekki svo vitlaust aö taka upp
þessa auglýsingaaöferð.
Fasteignasölur hér nota
nefnilega þessa aðferð til þess
að auglýsp hús til sölu. Ekki er
svo aö skilja, að þær auglýsi
ekki i blöðunum lika, svo dag-
blöðin ættu ekki að þurfa að sjá
af miklum auglýsingum, þótt
þessi nýbreytni væri tekin upp
til þess að lifga upp á umhverf-
ið. Auglýsingaskiltinu er komið
fyrir utan við húsið, sem til sölu
er, og svo er nafn fasteignasöl-
unnar, og simanúmer. Ef ein-
hver er svo að hugsa um að
kaupa sér hús, getur hann byrj-
að á þvi að aka um þau hverfi,
sem hann hefur helzt augastað
á, og sjái hann þar hús, sem
hann gæti hugsað sér að eiga, og
auglýsingaskilti við húsiö, auð-
veldar það honum mjög leitina.
Dagblöðin eru lika full af fast-
eignaauglýsingum. Þar eru
mjög gjarnan myndir af húsun-
um, sem til sölu eru, og sama er
reyndar aö segja um auglýsing-
arnar frá bilasölunum. Þær
Hvernig væri, að fasteignasal-
amir brygðu á það ráð, að setja
upp auglýsingaskilti fyrir utan
þau hús, sem þeir eru með i
sölu? Hver veit, nema húsin
færu að seljast. Annars er ekki
óliklegt, að hugsunarháttur Is-
lendingsins leyfi ekki auglýs-
ingastarfsemi sem þessa.
Margir vilja helzt ekki láta
náungann vita, aö þeir séu að
hugsa um að selja húsið sitt, eða
ibdöina, og enn eimir eftir af
þeim hugsunarhætti, aö það sé
óttaleg forvitni, að spyrja fólk,
hvað það hafi fengið fyrir bilinn,
eða ibúðina, sem það var að
selja, eða hvað það hafi borgað
fyrir slika hluti. Bila- og húsa-
verð er þó venjulega i svo föst-
um skorðum, að það getur ekki
verið mikið leyndarmál, hvað
fengizt hefur fyrir þessar eignir
manna. Það hefði svo að segja
hver sem er fengið nákvæmlega
það sama fyrir bil sinn og ibúð,
efum sambærilegar eignirheföi
verið að ræða.
Annars gæti svo farið, aö sölu-
skilti við hús myndu skapa ó-
þarfa umferð forvitinna öku-
manna, og liklega þyrfti að fá
leyfi lögregluyfirvalda til þess
að setja þau upp.
En nú skulum við snúa okkur
að hinum söluskiltunum. Þau
visa fólki leiðina að bilskúrs-
himins og jarðar, sem það þarf
að losna viö, húsgögn, glugga-
tjöld, hjólbarða, lampa, gamlar
hljómplötur, svefnpoka, barna-
vagna, já allt, sem hægt er að
hugsa sér. Þessar bilskúrssölur
eru venjulega haldnar á laugar-
dögum, eöa sunnudögum, og
hefur aðeins þurft leyfi lögregl-
unnar til þess að hafa slika sölu.
Hefurþað leyfiverið auðfengið.
Nú fyrir skömmu var þó sagt
frá þvi i sjónvarpsfréttum, að
yfirvöld þyrftu að fara að hafa
betra eftirlit meö þessum söl-
um, þvi að nú væri svo komið,
að raunverulegir atvinnuforn-
salar væru farnir að selja dót
sitt undir merki bllskúrssölunn-
ar, I þeim einum tilgangi að
losna við að greiða gjöld, sem
þyrfti að greiða af atvinnu-
rekstri. Fréttamaðurinn sagði,
að ekki væri þó ætlunin að setja
nein höft á venjulegar bllskúrs-
sölur, þar sem venjulegt fólk,
eins og hann orðaði það, væri að
losa sig við óþarft dót, sem ein-
hver annar gæti haft not fyrir.
Það munu meira að segja
vera til þeir menn, sem fara á
milli bilskúrssalanna á laugar-
dögum, og kaupa þar ýmislegt
sæmilega gott dót fyrir litinn
pening, og setja svo upp sina
eigin bilskúrssölu laugardaginn
Um fasteignasölu í Winnipeg
Til sölu... Bilskúrssala
Tvenns konar skilti, sem bæði
gefa til kynna^ að eitthvað sé
verið að selja, vekja athygli
vegfarandans, ef ekið er um
ibúðarhverfin hér i Winnipeg. 1
öðru tilfellinu er stórt skilti, sem
á stendur TIL SÖLU, hengt á
staur fyrir utan næstum annað
hvort hús i sumum hverfunum,
en á hinu skiltinu stendur annað
hvort Garage Sale eða Base-
ment Sale. Þessi siðarnefndu
skiltieru venjulega handskrifuð
birta mjög gjarnan myndir af
söiuvarningi sinum.
1 i'slenzku blöðunum að heim-
anleség,að óvenju dauft séyfir
bæði bíla- og fasteignasölum.
eða kjallarasölum. Hvers konar
sölur eru það? spyrjið þið ef til
vill. Jú, þetta mætti helzt kalla
flóamarkaði i heimahúsum.
Þarna er fólk að selja allt milli
næstan á eftir, og hafa dágóðan
skilding upp úr öllu saman.
Undanfarin ár hafa flóa-
markaðir nokkuð færzt i vöxt á
tslandi. Þeir eru ekki siður vin-
sælir hér. Oftast eru þeir haldn-
ir i iþróttahúsum skólanna, eða i
félagsheimilum kirknanna.
Húsnæðið er svo rúmgott, að
engin þörf er á að troöast. Hér
hefur fólk ekki mikinn áhuga á
að selja eöa kaupa gamlan fatn-
að, og þess vegna er mest af alls
konar dóti, bæöi gagnlegu,
merkilegu og lélegu, á þessum
flóamörkuðum. Þarna er hægt
að fá fyrirtaks skauta með upp-
háum hvitum skóm fyrir 2
dollara, eöa um 400 krónur, og
svo kosta lika gamlar dollur
undan andlitsfarða 3 og 4 doll-
ara, eða helmingi meira en
skautarnir. Hvers vegna? Jú,
fólk segirað þetta séu söfnunar-
gripir, og dýrmætir mjög, þótt
ég sjái nú ekki gildi þeirra eða
dýrmæti. Hvaö um það
krukkurnar seljast svo eitthvað
hlýtur að vera til i þessu.
Aftur i
húsasöluna
Mikið er um einbýlishúsaaug-
lýsingar i blöðunum, enda
kaupa menn vistekki annaö hér
enslik hús. Verð þeirra er frá 30
þúsund dollurum upp undir 100
þúsund, en þó eru fá yfir 80 þús-
und. Verðið i islenzkum krónum
er þvi frá 6 milljónum i ca 19
milljónir. Auðvitað er hægt að
fá enn dýrari hús, en þau eru
ekki daglega auglýst i hinum
venjulegu fasteignaauglýsing-
um.
Húsin hér eru eins og trúlega
viðast annars staðar i heimin-
um, ólík steinsteyptum einbýlis-
húsum á Islandi. Þau eru mörg
hver glæsileg á að lita, og
skemmtilega innréttuö, en þau
eru úr timbri, klædd á ýmsan
hátt, bæði innan og utan. Hvort
þau hentuöu okkur, verður ekki
Framhald á bls. 19.
Höfundur þessarar bókar er
þegar landsþekktur af útvarps-
erindum sinum. Hann heitir
Agúst Vigfússon og er kennari
að menntun og atvinnu. Hefur
veriö kennari i um 40 ár. Hann
er þeirrar náttúru, að fólkið
leggur við hlustir, þegar hann
flytur mál sitt og les það, sem
hann skrifar. Hér hefur verið
safnað saman i bók nokkru af
þvi, sem hann átti i fórum sin-
um, og valið bókinni heitið
„Mörg eru geð guma”, og er
þaö vissulega réttnefni, svo ger-
ólik og margs konar er skaphöfn
þess fólks, sem við kynnumst i
þessari bók. Fólk er oftast við-
fangsefnið hjá Agústi og hug-
stæðastar eru honum þær per-
sónur, er orðið hafa utangarðs,
eða fara ekki alfaraleiðir. Hon-
um er einkar lagið að skyggnast
undir yfirborðið, finna að oft
búa sterkar tilfinningar og slær
heitt hjarta i tötrum klæddum
likama undir hrjúfu yfirborði.
Hér slæðast þó með i förina
andans jöfrar og skörungar. Má
þar til nefna séra Sigurð
Einarsson i Holti, Hannibal
Valdimarsson, Stein Steinarr
skáld, Sigurmund Sigurðsson
lækni að ógleymdum litt þekkt-
um manni, Eggerti Lárussyni.
Alls eru 16 þættir i bókinni, og
allt eru það þættir af persónum,
sem Ágúst hefir þekkt persónu-
lega, þvi hann hefir viða farið
um Vesturland sem verkamað-
ur og kennari. Hann hefur sýni-
lega haft opin augu fyrir þvi,
sem fyrir augu hefur borið.
Hann hefur fengið i vöggugjöf
þá eðliskosti aldamótakyn-
slóðarinnar að kunna að segja
vel frá.
Það er ljótt aö segja það, en
ekki get ég að þvi gert, að mér
finnst Islendingar vera aö glutra
niður þeirri þjóöariþrótt, sem
þeir eru frægastir fyrir, — að
kunna að segja vel sögu.
Samanber að Njála og Heims-
kringla eru taldar snjöllustu
sögur i heimi frá þeim tima sem
þær eru skrifaðar. Nú er rétt
einn og einn, og þá helzt eldri
menn, sem það kunna og þaö er
ánægjuefni ef þeir koma því á
prent, sem þeir sáu og heyrðu i
æsku sinni. Hvað verða margir i
næstu kynslóðum, sem segja
eins vel frá og Siguröur Nordal
og Pálmi Hannesson? Ég nefni
aðeins þessi tvö nöfn og tek þau
til samanburðar við alla þá fá-
dæma bögubósa, sem nú láta
ljós sitt skina, enda hafa þeir
sjálfir nefnt sig „listaskáldin
vondu”og þar sögðu þau þó eitt
orð að viti. Það er nú þegar
staðreynd, að Islendingar hafa
tapað skáldskapargáfunni, eins
og sagt var um Æra-Tobba forð-
um. Fer ekki frásagnargáfan
sömu leiðina. Mér finnst margt
benda til þess — og guð hjálpi
okkur þá.
Hún er áleitin i hugann visan
hans Páls gamla Ólafssonar,
sem er á þessa leið:
Satt og rétt ég segja vil
um sumra manna kvæði.
Þar sem engin æð er til
ekki er von að blæði.
Hvað halda menn að Páll
gamlisegði i dag? Halda menn
að hugsunarhátturinn sé eitt-
hvað breyttur frá þvi aö alda-
mótaskáldin voru að sýna listir
sinar, og Einar Benediktsson
ætlaði að setja met með þvi að
kveða rimu um Grænlendinga,
sem var eintóm sléttubönd, dýr-
asti bragarháttur sem til var?
Þetta var ofurefli, jafnvel fyrir
Einar Benediktsson. Þó er ein
og ein visa i rimunni listaverk.
Þar á meðal þessi:
Falla timans voldug verk
valla falleg baga
snjalla riman stuðla sterk
stendur alla daga.
Þetta hefur ekki orðið að
áhrifsorðum, þvi að nú kann
ekki nema einn og einn að rima
svo að i lagi sé, og manni virð-
ist að það sé að hverfa. En
Agúst Vigfússon getur kastað
fram snjöllum stökum við tæki-
færi, og það er bezt að lofa
mönnum að sjá eina snjalla eftir
hann til að sanna þetta:
Gæfa er að hafa létta lund,
ljúfur eðlis þáttur.
Geta að lokum guðs á fund
gengið alveg sáttur.
Þessi visa varð til i visnasam-
keppni hjá rimnafélaginu þegar
það var á skemmtiferð.
Agúst lýkur þætti sinum um
Hannibal á þessa leið: „Ég læt
hér fljóta með stöku, sem ég
gerði er Hannibal hafði lýst þvi
yfir að hann væri hættur þátt-
töku i stjórnmálum:
Þú hefur aflað ærinn skammt
á við flesta hina.
Ósköp litið áttu samt
eftir vertiðina”.
Það er þá bezt að gripa niður i
bókina til þess að lofa mönnum
Hann var kominn hátt á sex-
tugsaldur er hann kom til
Bolungarvikur. Sigurmundi
þótti gamanan að spila bridge,
og vorum við i nokkur ár spila-
félagar. Sigurmundur gat átt
það til að segja ýmsar kimni-
sögur af sjálfum sér. Hér kemur
ein, sem hann sagði mér. Til
skýringar verður aö geta þess
að hann eignaðist son áður en
hann kvæntist.
— Ég var, sagði hann, að
koma sunnan úr Reykjavik og
var kominn til ísafjarðar. Ég
fór þar inn i kaffihús til að fá
Helgi Haraldsson:
Mörg/
eru
geð
guma
Agúst Vigfússon
að heyra hvað þar er tekið til
meðferðar. Þetta er I þætti um
Sigurmund lækni: „Sama
haustið og ég kom til Bolungar-
vikur kom þar nýr læknir Sigur-
mundur Sigurðsson að nafni.
Hann var áður læknir i Flatey á
Breiðafirði, Laugarási I
Biskupstungum, Breiðumýri i
Þingeyjarsýslu og e.t.v. viðar.
mér hressingu og settist einn við
borð. Kemur þá til min eldri
kona, sem ég kannaðist ekki við,
en fannst þó hálfpartinn að ég
hefði séð einhverntima. Konan
heilsaði mér kunnuglega, og
spurði mig hvort ég væri aö
koma að sunnan. Kvað ég svo
vera. Hittirðu hann son þinn,
spurði konan. Jú, ég haföi hitt
hann. Ég undraðist þessa
spurningu konunnar og segi: —
Þekkir þú hann? Jú litillega,
sagði konan, ég er nú móöur-
myndin hans.
Vitanlega bauð ég henni kaffi
upp á gamlan og góðan kunn-
ingsskap, sagði Sigurmundur og
glotti.
Sigurmundur var draum-
spakur og trúöi á drauma. Hann
taldi sig hafa dreymt fyrir ýmsu
því, sem siðar átti eftir að koma
fram við hann. Eftirfarandi
draum sagði hann mér.
Ég var þá læknir á Breiðu-
mýri. Mér þóttisem ég og konan
min værum komin til Reykja-
vikur. Þótti mér sem við værum
þar inni i einhverri verzlun. Þá
segir konan min við mig: „Þú
ættir að gefa mér saumavél,
min vél er alveg orðin ónýt”. Jú
mér fannst þetta ekki nema
sjálfsagt. Búðarmaðurinn
spurði siðan hvert ætti að senda
vélina. „Til Bolungarvíkur við
ísafjarðardjúp” sagði konan
min. Þetta var mörgum árum
áður en ég fór að hugsa nokkuð
um Bolungarvik. En alltaf taldi
ég þetta fyrirboða þess, sem
siðar varð. Þennan draum
dreymdi mig áratugum áður.
Ég hitti Sigurmund lækni
nokkrum mánuðum áður en
hann dó, og þá bar eilifðarmálin
á góma; skoðun hans hafði litið
breytzt þá. Hann vissi auðvitað
aðhverju dró. Hann sagði: „Ég
veit ekkert hvað viö tekur eða
hvort það er nokkuð. Ég læt þar
nótt sem nemur, neitt skal ei
kviða þvi. Það er annars ein-
kennilegt, sagði hann, hvað
mestu andans menn orða þetta
svipað t.d. Egill sagöi: „Skal
svo óhræddur heljar biða”. Nei
ég veit ekki neitt, en ég óttast
ekkert og kviði engu?”
Held ég verði aö minnast
ofurlitið á það, sem Agúst segir
frá Dalakonunni skyggnu, er
Guðriður Guðbrandsdóttir hét.
Þau voru um tima á sama bæ,
Brautarholti i Haukadal hjá
Aöalsteini Baldvinssyni kaup-
manni. Guðriður gat venjulega
sagt fyrir um gestakomur. Ég
veitti þvi athygli að Aðalsteinn
sagði oft: — Jæja Gauja min.
Hver heldur þú að komi nú i
dag? Guðriöur var venjulega
sein til svars. — Jú, sagði hún,
ætli aö það komi ekki einhver
frá þessum bæ, sem hún tiltók
og það brást aldrei. Mér er eitt
atvik sérstaklega minnisstætt i
sambandi við þessa konu.
Það var einn dag, að Aðal-
steinn segir mér aö grafa skurð
rétt fyrir neðan ibúðarhúsið.
Ekki mældi hann fyrir skurðin-
um, en sagði mér svona hér um
bil hvar ég ætti að grafa. Seinna
iim daginn kom Aðalsteinn til
'min og segir: „Nú hefur þér
skeikað Ágúst minn. Þú ertfar-
inn aö sveigja skurðinn i öfuga
átt. Bætti siðan við dálitið kank-
vis á svipinn: „Hann hefur li'k-
lega verið að villa um fyrir þér
karlinn sem hún Guðriður segir
aö hafi verið að snúast I kring-
um þig og eins og væri að benda
þér eitthvað. Hann hefir liklega
séð að skurðurinn var að beinast
i öfuga átt hjá þér”.
Ég fór nú að gerast forvitinn,
svo að ég segi viö Aðalstein:
„Viltu ekki biðja hana Guðriði
að lýsa þessum manni?” Jú
Aðalsteinn gerði það. Ég reyndi
svo að festa lýsinguna mér i
minni, þvi að mér þótti þetta svo
sérkennilega skritið. Skömmu
siðar fór ég að heimsækja móð-
ur mina, sem bjó fram I Laxár-
dal. Þá barst þetta atvik á tal.
Þá segir móðir min: „Hvernig
var lýsingin á manninum?” Ég
sagði henni það. Ég tók strax
eftir þvi að móðir min varð eitt-
hvað undarleg á svipinn svo ég
sagði: „Kemur þessi lýsing
heim við nokkurn sem þú þekk-
ir?” Hún svaraði mér ekkilengi
vel.'Loks sagði hún: „Já, ég
kannast vel við lýsinguna. Þetta
er nákvæm lýsing á honum
pabba þinum sáluga”. En hann
lézt er ég var tæplega eins árs
gamall.
Finnst mönnum nú ekki, að
þessi saga komi vel heim við
það, sem er trú margra og dul-
skyggnir menn segja manni, að
framliönir ættingjar séu i fylgd
með manni. Til dæmis veit ég
velhvaða ættingi er i fylgd meö
mér, og ég er vel ánægður með
förunautinn, þvi hann hefur oft
vikið I veg fyrir mig. Það er min
trú.
Ég get ekki stillt mig um að
láta hérfylgja eina sögu enn um
þessa skyggnu konu, og er bezt
aö lofa henni sjálfri aö segja frá,
en það er á þessa leið: „Þegar
ég var rúmlega tvitug fór ég
suður i Reykjavik og var þar i
vetrardvöl. Ég held að það hafi
veriö 1927. Ég var hjá hjónunum
Júliusi Olfssyni vélstjóra og
konu hans Elinborgu Kristjáns-
dóttur. A heimili þeirra hjóna
bar fyrir mig sýn, sem var
nokkuð sérstök. Herbergi var
inn af eldhúsinu og þar sváfu
tveir synir þeirra hjóna. Þá er
það eina nótt að ég heyri að ann-
ar drengurinn lætur mjög illa i
svefninum, umlar og byltir sér
og æjar. Ég opna dyrnar og
langar til að grennslast eftir
hverju þetta sæti. Þá sé ég tvo
menn fyrir framan rúm drengs-
ins, báða i hvitum sloppum, likt
og læknar og hjúkrunarkonur
klæðast. önnur veran var með
einhver áhöld og er að segja
eitthvað við drenginn. Hin er
eins og hjálparmanneskja. Var
ýmist að ýta drengnum til eða
hagræða honum eða rétta hinni
verunni eitthvað. Þetta sé ég
greinilega.
Það var nokkru eftir að ég sá
áðurnefnda sýn að húsfreyjan,
móðir drengjanna, kom til min
og sagði: „Hvernig var það,
sástu ekki eitthvað um daginn
þegar drengurinn lét sem verst i
svefni.?”. Ég sagði henni þá
hvað fyrir mig haföi borið. Jú,
þetta er einkennilegt sagði kon-
an. Siðan sagöi hún mér eftir-
farandi: Drengurinn var i sveit i
sumar, þá vildi það til einu
sinni, að hann datt af hestbaki
og meiddi sig illa á öxlinni. Sið-
an hefun hann haft þjáningar i
henni. Læknar hafa ekki getað
hjálpaö honum. Þettá var jafn-
vel taliö svo hættulegt af lækn-
um, að þeirtöldu nokkra hættu á
að handleggurinn mundi visna.
Þetta var vitanlega mikið
áhyggjuefni. Þaö urðu svo úr-
ræöi okkar að leita til Margrét-
ar á öxnafelli. Viö skrifuöum
henni og fengum svar. Hún lof-
aði okkur aö senda okkur lækni
(að handan). Einmitt um sama
leyti og þú sást sýnina fann
drengurinn, eða fannst i svefn-
inum.aðkomiðværiviööxlina á
sér.
Framhald á bls. 19.