Tíminn - 22.12.1976, Blaðsíða 11
Mi&vikudagur 22. desember 1976
frá Kanada
Olivia de Havilland vildi ekki
horfa á myndina A hverfanda
hveli, vegna þess að hún sagði
að auglýsingarnar myndu eyði-
leggja hana.
viöbrögð viö þeim spurningum,
sem raunverulega voru i könn-
uninni. Þá voru þau spurö: —
Hvort likar þér betur viö pabba
eða sjónvarpiö? Og hvort likar
þér betur við mömmu eöa sjón-
varpiö? Aðeins 56% barnanna
vildu fremur föður sinn en sjón-
varpiö, en 80% völdu móðurina
fremur en sjónvarpið. — Sjón-
varpiö hefur tekið viö að fóðurn-
um á heimilinu, eða er orðið
keppinautur hans, sagði dr.
Jung Bay Ra, Ph. D. við Long-
wood College i Farmville I
Virginiu i Bandarikjunum. —
Tengslin milli föður og barns
hafa aldrei verið jafnsterk og
tengslin milli móður og barns,
og nií bendir allt til þess að stöð-
ugt vaxandi áhrif sjónvarpsins
og sjónvarpsefnisins muni enn
draga úr sambandi föður og
barns. Dr. Ra segir ennfremur,
að sjónvarpið sé alltaf fyrir
hendi og hægt sé fyrir barnið að
hverfa til þess, hvenær sem það
þarfnast félaga, en þvi miður sé
ekki hægt að segja það sama um
föðurinn. Þess vegna liði börn-
unum oft betur i návist sjón-
varpstækisins heldur f návist
föður sins, enda þekki þau tækið
og efnið sem það flytur mun bet-
ur en hann.
Sjónvarpið sundrar —
en sameinar ekki
Þá hefur komiöfram, aö fjöldi
barna á aldrinum 2 til 5 ára eyð-
ir um 30 klukkustundum á viku
fyrir framan sjónvarpstækið.
Mörg börn verða svo háð ein-
staka sjónvarpspersónum, að
þau hverfa á vissan hátt frá
veruleikanum og fara að lifa i
draumaheimi sjónvarpsþátt-
anna. Sjónvarpið er siöur en svo
talið auka á samheldni fjöl-
skyldunnar, þvert á móti er það
talið sundra henni. Þetta finnst
mér nokkuð athyglisverð skoð-
un, vegna þess, að á íslandi hef-
ur oft heyrzt, að fjölskyldan
sameinist fyrir framan sjón-
varpið. Kann það að vera rétt,
þar sem sjónvarpsstöðin er að-
eins ein, en þegar þær eru orðn-
ar átta og fjölskyldan kannski
jafnstór og sjónvarpstækin jafn-
mörg, þá situr hver i sinu horni
og horfir á það, sem honum
finnst skemmtilegt, og samver-
an verður minni, — ekki meiri.
Dr. Ra hefur gert sjónvarps-
könnun sina i tveimur smábæj-
um i Virginia, en nú leitar hann
eftir fjárstuðningi til þess að
gera sams konar athugun i
fimm stórborgum. Heldur hann
þvi fram, að þar verði útkoman
enn verri, þvi þar muni börnin
miklu fremur velja sjónvarps-
tækið aö félaga heldur en þau
geri i minni bæjum eða úti á
landsbyggðinni.
í lok þessa sjónvarpsrabbs
langar mig til þess að nefna eitt,
sem er sérlega skemmtilegt i
sjónvarpinu hér. Alltaf annað
slagið má sjá á skerminum
hitastigið úti fyrir. Birtist það
neðst á skerminum með vissu
millibili. Areiðanlega myndu Is-
lendingar, sem eru öðru fólki
áhugasamari um veðrið, hafa
gaman af að sjá, hvaða hiti er
úti, eða hversu mikið frost er,
ekki siður en fólk hér um slóðir,
þótt frostið komist reyndar neð-
ar hér en heima á íslandi.
— fb
11
Lýðræðið á undanhaldi
í heiminum í dag
— segir Seán MacBride, friðar
verðlaunahafi Nóbels
gébé Rvik. — Ég er mjög
ánægður að vera á íslandi
Margra hluta vegna sérstaklega
þó vegna þess hve tslendingar
og irar eru skyldir og lfkir i
mörgu. Og þá ekki sizt vegna
þess, að island er eina landið i
heiminum, sem er til fyrir-
myndar um margt, eins og t.d.
aö hér eru engir hnepptir I fang-
elsi vegna pólitiskra sko&ana
sinna, hér er enginn her og hér
getur fólk sagt og komið
skoöunum sinum óhindrað á
framfæri, sagði Seán Macbride,
einn af stofnendum samtakanna
Amnesty International, en hann
hefur dvalib nokkra daga hér á
landi. MacBride sag&i, aö sam-
tökin gerðu sér vonir um mikinn
stu&ning frá Islandsdeildinni,
vegna sérstö&u þeirrar sem
iandið hefði.
Seán MacBride sagði, að I
mörgum löndum i heiminum
þar sem einræöis stjórnir réðu
öllu, væri ofbeldið ótrúlegt og
ráöamenn beittu andstæöinga
sina, skipulögðum pyndingum
hrepptu þúsundir manna i fang-
elsi fyrir litlar eða engar sakir,
og þar fengi þaö að dúsa oft I
mörg ár, án þess að mál þeirra
kæmu fyrir rétt. Lýðræðið er
mjög á undanhaldi i heiminum i
dag. — Það gerist þvi miður I
allt of mörgum löndum, að fólk
er brotið niður andlega og
likamlega. T.d. i siðustu viku I
Suður-Afriku, þar sem fjölda-
handtökur hafa farið fram að
undanförnu, þá tilkynntu yfir-
völd að sextán menn hefðu
„fyrirfarið” sér I fangelsum og
þar á meðal var einn þekktur
blakkur visindamaðúr, sem átti
að hafa „fallið” út um glugga á
5. hæð, sagði MacBride.
Tilgangur Amnesty Inter-
national er að hjálpa slikum
föngum, sem sitja inni vegna
skoðana sinna. Nýlega hófu
samtökin mikla herferð, sem
standa mun i eitt ár og er helguð
„Samvizkufanganum”, þ.e.
mönnum, sem fangelsaðir hafa
verið vegna skoðana sinna, en
hafa hvorki beitt ofbeldi né
hvatt tilofbeldis. Menn þessir fá
oft að dúsa í fengelsi árum
saman án þess að mál þeirra
s
Seán MacBride. Timamynd:
Róbert
komi fyrir dóm.— Islandsdeild
Amnesty tekur þátt i þessari
baráttu.
Seán MacBride tók virkan
þátt I frelsishreyfingu Ira og var
þá fange&iaður oftar en einu
sinni. Hann hefur átt sæti á
Irska þinginu og verið utanrikis-
ráðherra lands sins. MacBride
hefur verið virkur félagi I fjöl-
mörgum alþjóðlegum félögum
um friö og mannréttindi, m.a.
verið aðalritari Alþjóðalög-
fræöinganefndarinnar. Hann
hlaut friðarverðlaun Nóbels
árið 1974. Hann er nú umboös-
maður Sameinuðu þjóðanna
fyrir Namibiu og kemur sem
slikur fram sem aðstoðaraðal-
ritari Sþ.
áþökogvegginýrraoggamaUa
bjgginga.
Nýja hússtálið er fáanlegt í ýmsum litum, lengdum og
gerðum. Það er auðvelt að sníða, klippa og leggja.
Hefur verið sett á allmörg hús hér á landi og líkar
frábærlega vel.
Verð þess er lægra en á mörgum öðrum tegundum
klæðningar.
Komið — hringið — skrifið,
við veitum allar nánari upplýsingar.
(Sjfl)PLANNJA
VJ / Sænsk gæðavara
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
BYGGINGARVÖRUR
SUÐURLANDSBRAUT 32 SÍMI82033
VERZLUNIN 82180 SÖLUMENN 86550 TIMBURSALAN ÁRMÚLI 29 82242