Fréttablaðið - 12.01.2006, Side 2
2 12. janúar 2006 FIMMTUDAGUR
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
DÓMSMÁL Mál ákæruvaldsins gegn
Jónasi Garðarssyni, formanni Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, var sent
ríkissaksóknara í gær en Jónas var
drukkinn á bát sínum þegar bátur-
inn sökk á Viðeyjarsundi, með þeim
afleiðingum að tveir létust.
Í framhaldinu tekur ríkissak-
sóknari ákvörðun um hvort ákært
verður í málinu. - mh
Sjóslysið á Viðeyjarsundi:
Mál Jónasar til
ríkissaksóknara
PALESTÍNA, AP Mahmoud Abbas,
forseti heimastjórnar Palestínu-
manna, endurtók hótun sína um
að aflýsa kosningum til palest-
ínska þingsins sem áformaðar
eru síðar í mánuðinum ef ísraelsk
stjórnvöld fallast ekki á að heim-
ila aröbum sem búa í Jerúsalem
að kjósa.
Varnarmálaráðherra Ísraels
sagði á þriðjudag að Palestínu-
menn í borginni fengju að taka
þátt í kosningunum með utan-
kjörfundaratkvæðagreiðslu. Slíkt
fyrirkomulag var einnig notað í
síðustu kosningum. Ísraelsstjórn
á eftir að leggja blessun sína yfir
ákvörðunina en búist er við að það
verði gert á ríkisstjórnarfundi á
sunnudag. - aa
Kosningar í Palestínu:
Abbas endur-
nýjar hótun
ABBAS BIÐST FYRIR Mahmoud Abbas
Palestínuleiðtogi tekur þátt í bænastund
í mosku í Gazaborg í gær, við upphaf Eid
Al-Adha-hátíðar múslima. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÍKNIEFNAMÁL Rannsókn lög-
reglunnar í Vestmannaeyjum á
fíkniefnamisferlinu sem upp kom
fyrir nokkru er nú meðal annars
farin að beinast að peningaþvætti
fíkniefnasala í Vestmannaeyjum.
Fréttablaðið greindi frá því
í gær að maðurinn, sem játað
hefur að hafa átt fíkniefnin sem
fundust, hafi þvætt peninga fyrir
mann sem seldi honum fíkniefni
til að selja í Vestmannaeyjum.
Tryggvi Kr. Ólafsson, lögreglu-
fulltrúi í Eyjum, segir umfang
málsins nú mun meira en það hafi
litið út fyrir að vera í fyrstu. „Við
höfum alltaf fylgst vel með eitur-
lyfjamálum hér í Vestmannaeyjum.
En það kemur óneitanlega á óvart
hversu stórt þetta mál virðist vera.
Nú er málið ekki lengur einung-
is fíkniefnamál, heldur snýr það
mögulega einnig að illa fengnu fé.“
Bergur Elías Ágústsson, bæj-
arstjóri í Vestmannaeyjum, skynjar
mikla ánægju meðal bæjarbúa með
störf lögreglunnar en segir jafn-
framt að fólk sé slegið yfir umfangi
málsins. „Lögreglan hefur staðið
sig frábærlega í þessu máli og tekið
á málinu af mikilli festu. Þetta er
áfall fyrir okkur íbúa í Vestmanna-
eyjum þar sem við höfum staðið í
þeirri trú að ekki væri mikið um
fíkniefni í bænum.“ - mh
Fíkniefnamálið í Vestmannaeyjum vindur enn upp á sig:
Spjótin beinast að illa fengnu fé
FÍKNIEFNIN SEM TEKIN VORU Í EYJUM Hér sjást fíkniefnin sem lögreglan í Vestmannaeyjum
gerði upptæk. Á myndinni sjást einnig hnífar sem gerðir voru upptækir. FRÉTTABLAÐIÐ/SÆÞÓRVÍDÓ
EFTIRLAUN Forsætisráðherra
Íslands er með næsthæstu eftir-
laun forsætisráðherra Norður-
landa. Hann kemur næst á eftir
norska forsætisráðherranum.
Danski forsætisráðherrann hefur
langlægstu eftirlaunin. Finnski
og sænski forsætisráðherrann
hafa svipuð eftirlaun, jafnvirði
um 425-450 íslenskra króna.
Norski forsætisráðherrann
hefur jafnvirði um 9.812.352
íslenskra króna í eftirlaun á ári
eða um 817.696 krónur á mánuði
þegar hann fer á eftirlaun. Ráð-
herrann fer á eftirlaun 67 ára
gamall hafi hann verið ráðherra í
sex ár eða lengur og skerðast eft-
irlaunin ef hann hefur aðrar tekj-
ur fram að 69 ára aldri. Frá sjö-
tugu fær forsætisráðherrann full
eftirlaun óháð öðrum tekjum.
Eftirlaun forsætisráðherra
miðast við 80 prósent af laun-
um forsætisráðherra á hverjum
tíma. Íslenski forsætisráðherrann
fengi 791.890 krónur í eftirlaun á
mánuði ef miðað er við úrskurð
Kjaradóms, sem tók gildi um ára-
mót. Sé miðað við launin áður en
hækkunin kom til yrðu eftirlaun-
in 732.130 krónur á mánuði. Hér á
landi getur ráðherrann hafið töku
eftirlauna 55 ára gamall og þegið
eftirlaun samhliða öðrum laun-
um. Hann getur tekið út eftirlaun
þó að hann sé í launuðu starfi.
Danski forsætisráðherrann
hefur tæpar 13,6 milljónir króna
í heildartekjur á ári miðað við
1. apríl 2005. Samkvæmt nýjum
lögum um eftirlaun ráðherra getur
hann mest fengið 2.806.730 krónur
í eftirlaun yfir árið eftir átta ár
sem ráðherra þegar hann fer á eft-
irlaun 60 ára gamall. Samkvæmt
gömlum lögum, sem núverandi
forsætisráðherra fengi að hluta til
greidd eftirlaun eftir, fengi hann
jafnvirði 1.875.686 danskar krón-
ur á ári að 65 árum fylltum. Þetta
nemur um 233.894 krónum á mán-
uði. Samkvæmt gömlu lögunum
væru eftirlaunin mun lægri.
Sænski forsætisráðherrann
fær um 434.850 íslenskar krón-
ur á mánuði þegar hann hættir
í haust og er þá 57 ára gamall.
Eftirlaun ráðherra nema 54.940
sænskum krónum fyrir 65 ára
aldur og 40.982 sænskum eftir 65
ára aldur. Við síðari upphæðina
bætast 15.800 sænskar krónur úr
öðrum eftirlaunasjóði þannig að
heildarupphæðin verður 56.800
sænskar. Þetta gera um 449.572
íslenskar krónur á mánuði. Sé ráð-
herrann í launuðu starfi dregst
það frá. Sænski forsætisráðherr-
ann verður að hafa verið ráðherra
í samtals sex ár og vera orðinn
50 ára gamall til að geta tekið út
eftirlaun.
Kjör forsætisráðherranna á
Norðurlöndum eru endurskoðuð
reglulega. Í nokkrum landanna
hafa ný lög tekið gildi og taka þá
sumir ráðherranna eftirlaun eftir
bæði gömlum og nýjum lögum.
Tölurnar hér að ofan eru hámarks-
tölur og miðuð við full réttindi.
ghs@frettabladid.is
Danir, Finnar og
Svíar borga minna
Forsætisráðherra Íslands er með næsthæstu eftirlaun forsætisráðherra Norðurlanda. Að-
eins norski forsætisráðherrann er með hærri eftirlaun. Danski forsætisráðherrann hefur
áberandi lægstu eftirlaunin. Finnski og sænski forsætisráðherrann hafa svipuð eftirlaun.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Norski og íslenski
forsætisráðherrann eru með hæstu eftir-
laun forsætisráðherra á Norðurlöndum en
danski forsætisráðherrann er sá lægsti og
það þrátt fyrir að eftirlaun hans hafi nýlega
hækkað nokkuð. Samanburðurinn er hér í
sinni einföldustu mynd en miðað er við full
réttindi og full eftirlaun. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
23
3.
89
4
81
7.
69
6
44
9.
57
2*
*
79
1.
89
0*
**
42
5.
89
2
EFTIRLAUN NORRÆNU
FORSÆTISRÁÐHERRANNA*
* Á mánuði. Miðað er við eftirlaun forsætis-
ráðherranna í dag og reiknað út frá gengi
nú í vikunni.
** Flókið er að reikna út eftirlaun sænska
forsætisráðherrans og eru þau því sýnd hér
í sínu einfaldasta formi. Tímabundið geta
þau orðið aðeins hærri.
*** Miðað er við laun forsætisráðherra eftir
úrskurð Kjaradóms um áramót.
Noregur Finnland Svíþjóð Ísland Danmörk
TYRKLAND, AP Á sama tíma og starfs-
menn Alþjóðaheilbrigðsstofnunar-
innar (WHO) reyna að róa Tyrki
og minna á að engin ástæða sé til
óðagots vegna fuglaflensunnar,
varar Landbúnaðarstofnun Sam-
einuðu þjóðanna við því að veiran
geti dreifst víða og að landbúnaði
í nágrannaríkjunum geti stafað
mikil hætta af flensunni í Tyrk-
landi.
„Það er engin ástæða til að
örvænta,“ sagði Marc Danzon,
yfirmaður Evrópusviðs stofnun-
arinnar, á blaðamannafundi í gær
og bætti við að heilbrigðisyfirvöld
gerðu nú allt sem í þeirra valdi
stendur til að hafa stjórn á málun-
um og að öll lönd heimsins verði að
vinna saman að lausninni á vandan-
um. Enn bendir ekkert til að veiran
smitist manna í millum, en þetta
afbrigði veirunnar er talið líkleg-
ast til stökkbreytingar sem gerði
þann smithátt gerlegan og gæti þar
með valdið heimsfaraldri.
Fimm manns til viðbótar hafa
smitast af skæða afbrigðinu H5N1 í
Tyrklandi að sögn tyrkneskra yfir-
valda og hundruð þúsunda fugla
hafa verið aflífuð þar í landi. - smk
FUGLAFLENSA Nágrannalönd Tyrklands
hafa flest tekið upp strangar varúðarráð-
stafanir vegna fuglaflensunnar. Hér rekur
búlgörsk kona gæsirnar sínar í hús.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir enga ástæðu til að örvænta út af fuglaflensu:
Heimurinn í viðbragðsstöðu
DÓMSMÁL Landspítalinn er
bótaskyldur vegna mistaka sem
urðu í læknismeðferð fimmtugrar
konu. Héraðsdómur Reykjavíkur
kvað upp úrskurð sinn í gær.
Konan greindist með brjósklos
í febrúar 2000 og fór þá í aðgerð.
Hún fann fljótlega aftur fyrir
verkjum en var ekki send aftur í
aðgerð fyrr en í apríl. Hún sagð-
ist hafa orðið fyrir tímabundnu
atvinnutjóni, þjáningum, var-
anlegum miska og varanlegri
örorku.
Dómurinn úrskurðaði því að
spítalinn væri skaðabótaskyld-
ur, en til að sækja bæturnar þarf
konan að höfða mál að nýju. - óká
Landspítalinn dæmdur:
Bótaskyldur
vegna mistaka
SPURNING DAGSINS
Guðmundur, var diskóið ekki
glæpur í sjálfu sér?
„Diskóið var skárri endaþarmur á
hippabylgjunni en sítt-að-aftan var á
pönkbylgjunni.“
Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikstýrir leik-
ritinu Glæpur gegn diskóinu sem frumsýnt
verður í Borgarleikhúsinu í kvöld.
Fangar í hungurverkfalli Tíu menn,
sem sitja inni í Melbourne í Ástralíu
grunaðir um aðild að hryðjuverkum, eru
í hungurverkfalli til að mótmæla ákvörð-
un fangelsisyfirvalda um að leyfa þeim
ekki að biðjast fyrir saman. Mennirnir,
sem allir eru múslimar, voru handteknir
í nóvember.
ÁSTRALÍA
LANDHELGISBROT Færeysk yfirvöld
rannsaka nú hvort þarlendur tog-
ari hafi stundað ólöglegar veiðar í
íslenskri landhelgi í síðustu viku.
Áhöfn flugvélar gæslunnar stóð
togarann að veiðum í landhelgi
Íslands rétt við miðlínu Íslands
og Færeyja en deilur standa um
legu þeirrar línu. Ekkert varðskip
var í grenndinni og því var leitað
á náðir færeyskra yfirvalda að
rannsaka viðkomandi togara. ■
Ólöglegar veiðar togara:
Rannsakað í
Færeyjum