Fréttablaðið - 12.01.2006, Síða 31

Fréttablaðið - 12.01.2006, Síða 31
FIMMTUDAGUR 12. janúar 2006 Gjöfin þín með Visible Difference 75 ml kremi er; 2 in 1 Cleanser 50 ml Good morning Serum 4,7 ml Falleg snyrtibudda Fleiri glæsileg tilboð frá Elisabeth Arden í verslunum Hagkaupa. Komið og fáið ráðgjöf, við rakamælum húðina í Kringlunni og Smáralindinni. Kynning í Snyrtivörudeildum Hagkaupa Kringlunni, Smáralind, Skeifu, og Spöng Fimmtudag, föstudag og laugardag Útsölustaðir: apótek og snyrtivöruverslanir. Fáðu þínar eigin neglur sterkari með Trind Naglastyrkinu. Nú kaupauki 4,5 ml nail balsam fylgir PXR-5 úrin eftir Michael Young fást nú á Íslandi. Margir kannast við iðnhönnuðinn Michael Young sem hefur með ýmsum hætti tengst Íslandi og Íslendingum. Hann var búsett- ur hér á landi um hríð og kenndi meðal annars við Listaháskólann, og fyrir nokkrum árum hannaði hann skemmtistað í miðbæ Reykja- víkur. Michael Young hefur sýnt og selt hönnun sína út um allan heim og er talinn einn af framsæknustu ungu iðnhönnuðum í heiminum í dag. Ýmis húsgögn og muni eftir Michael Young má finna í versluninni Epal og það nýjasta þar eru PXR-5 úrin sem hann hannaði árið 2004. Þessi úr eru í stærri kantinum og henta því vel fyrir karlmenn. Margar konur eru þó fyrir stór úr og PXR-5 er því tilvalið fyrir þær. Formið er stílhreint og ólin er úr einföldum þykkum nælonborða svo verðið er viðráðanlegt en úrið kostar 6.800 krónur og er til í öllum regnbogans litum. ■ Þykkar nælonólar PXR-5 úrin þykja afar stílhrein. Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS Þá er það hinn árlegi fagnaður þeirra sem eru með kaupæði, vetrarútsölurnar. Þær hófust hér í París í gær samkvæmt ákvörð- un sýslumanns, en óheimilt er að hafa útsölur á öðrum tímum en yfirvöld ákveða. Oftast standa þær yfir í fjórar til sex vikur eftir því sem að kaupmönnum tekst að semja um við yfirvöld. Sumir vilja hafa útsölur sem lengst en hinir sem hafa gert það gott á yfirstandandi árstíð vilja heldur að þær standi stutt svo hægt sé að einbeita sér að nýju tískunni sem frá því fyrir jól er farin að koma í búðir. Það er þó líklegt að talsvert sé af varningi sem fæst með góðum afslætti að þessu sinni þar sem vetur kom hér ansi seint þó að nú þegar hafi snjóað nokkrum sinnum í París. Þetta hefur mikil áhrif á innkaup og í raun hægt að bíða eftir því að uppá- haldskápan eða dúnúlpan sem vantar verði seld á hálfvirði, svo milt var haustið. Fínu tísku- húsin eiga alltaf svolítið erfitt með sig í kringum útsölurnar. Opinberlega vilja þau helst ekki hafa neinar útsölur því það er ákveðin gengisfelling að selja dýra hönnun á útsöluverði. Fín handtaska sem hefur kostað sjö hundruð evrur er nú allt í einu látin gossa á þrjú hundruð og fimmtíu eða dragt á tvö þús- und evrur verður skyndilega ekki nema þúsund evra virði. Á sama tíma vilja tískuhúsin gjarnan fá sinn hluta af útsölu- ágóðanum svo að sölutölur í janúar verði góðar. Þess vegna er vor- og sumartískan víða komin í útstillingarglugga fínu tískuhúsanna þó svo að útsölur séu það sem viðskiptavinir hafi mestan áhuga á í upphafi nýs árs. Þannig fellur ekki á ímynd tískuhússins, en oft þarf að fara innst inn í búðirnar til að finna það sem er á útsölu, svo mikið er verið að pukrast með gengisfell- inguna á lúxusvörunni. Reynd- ar segir starfsfólk að það sé allt annar viðskiptahópur sem kemur á útsölur. Það er hins vegar staðreynd að útsölur eru það sem er næstmik- ilvægast í rekstri jafnt venju- legra verslana sem og tískuhúsa. Tveir fyrstu mánuðirnir í sumar- og vetrartískunni eru mikil- vægasti tíminn hjá flestum sem stunda verslun, þegar góðir við- skiptavinir koma og kaupa það sem þeim þykir áhugaverðast í hverri „collection“, þar á eftir koma útsölurnar. Útsölurnar eru jafnvel mikilvægari hjá tísku- húsunum en jólaverslunin. Svo eru það einkaútsölurnar. Sumir hafa þegar lokið þeim en aðrir bjóða góðum viðskiptavinum að koma rétt fyrir opinberar útsöl- ur því einkasölurnar eru ekki löglegar ef orðið útsala er notað. Tíska í gengisfellingu ÚTSALA 50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM KRINGLUNNI • S. 517 5790 NÝTT KORTATÍMABIL

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.