Fréttablaðið - 12.01.2006, Síða 32

Fréttablaðið - 12.01.2006, Síða 32
 12. janúar 2006 FIMMTUDAGUR4 ÚTSALA F j a r ð a r g ö t u 1 3 - 1 5 • S í m i 5 5 5 - 4 4 2 0 Útsalan í fullum gangi Nýtt kortatímabil C M Y CM MY CY CMY K Zuuber 2x3.pdf 28.11.2005 14:27:02 Alltaf á Föstudögum Það er ekki alltaf auðvelt fyrir stóra menn að finna á sig föt. Þeir sem finna verslunina High and Mighty - Miklir menn í Hlíðasmára 13 í Kópvogi eru þó hólpnir. Verslunin High and Mighty - Miklir menn selur alls konar föt í yfirstærðum, hvort sem menn eru miklir á þverveginn eða lang- veginn. Verslunarstjórinn Guð- mundur Kárason er sjálfur vel að manni og þekkir því það vandamál frá fornu fari að hafa takmarkað úrval að velja úr í venjulegum fatabúðum. Hann segir viðskipta- vinina vera frá 17 ára aldri og upp úr, en hann hefur margs konar föt á boðstólum, bæði sportleg og fínni og yngri strákar fá líka á sig boli. Jakkafötin eru í stærð- unum 58-73 en algengustu fötin í öðrum herrafataverslunum eru í stærðum 52-54-56 og fara kannski upp í 60-62. Hjá High and Mighty - Miklum mönnum er líka tekið tillit til margvíslegs vaxtarlags og hægt er að blanda öllu saman því eins og Guðmundur segir rétti- lega: „Menn eru svo mismunandi í laginu.“ Extra síðu skyrturnar hjá Guð- mundi eru með 75 cm löngum ermum, en á venjulegum skyrt- um eru þær oftast í kringum 62 cm og gallabuxur fást í king size, allt upp í 1.70 – 1.80 cm í mittið. Þá fást buxur sem eru 40 tommur á sídd og ætlaðar þeim sem eru um 2,20 m á hæð og um 100 kíló að þyngd. En þar sem Íslendingar eru almennt ekki svona vaxnir er Guðmundur spurður hvort mark- aðurinn sé ekki of lítill. „Nei, það eru fleiri en þeir allra feitustu og stærstu sem versla hér, til dæmis er algengt að menn kaupi sér gallabuxur nr. 40 því aðrar versl- anir hætta oft í 38,“ svarar hann. (40 samsvarar 56-58). Hann tekur líka fram að High and Mighty sé verslunarkeðja sem dreifð er víða um lönd og því ekki um sérsaum að ræða fyrir íslenskan markað. Gallabuxur fást með margs konar sniði og af öllum gerðum. Miklir menn eru flottir Skyrta frá Pierre Cardin, stór í sniðum. Ldale stutterma bolur á stráka á öllum aldri. Ein af sportlega línunum heitir Animal og í henni eru bæði bolir og buxur. Stórir menn þurfa sumir extra löng bindi. Vans-skór sem verslunin flytur inn. Jakkafötin frá Bogart Mix and Match eru til teinótt og svört en líka brún og aðeins riffluð. BURBERRY BRIT GOLD Nú er komið á markað nýtt ilm- vatn frá Burberry sem ber heitið Burberry Brit Gold. Takmarkað magn verður framleitt og því er um að gera að tryggja sér tíman- lega flösku af þessu dýrðlega ilm- vatni. Það fæst í tveimur flösku- stærðum, annars vegar 50 ml og hins vegar 100 ml. Eðal ilmur frá Burberry Burberry Brit Gold er í glæsilegri flösku.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.