Fréttablaðið - 12.01.2006, Page 65

Fréttablaðið - 12.01.2006, Page 65
FIMMTUDAGUR 12. janúar 2006 49 50% afsláttur af útsöluvörum Nýtt kortatímabil Opið til 21.00KRINGLUNNI • S. 517 3290 Ný sending vor 2006 ����������� � � � � � � � �� � � ��������������� �������������� ��������������������������� ���������� �������� ������� ��������� ������� ������ �������� ������������ ���� ��������� �������������� ������ ������ ������������� ��� FÓTBOLTI Liverpool hefur komist að samkomulagi við Bröndby um kaup á danska landsliðsmiðverðinum Daniel Agger. Evrópumeistararnir hafa fylgst lengi með Dananum og hafa nú fest kaup á miðverðinum. Kaupverðið er talið vera um 5,8 milljónir punda. Mun Daninn fara í læknisskoðun á allra næstu dögum og verður reynt að ganga frá lausum endum. Að sögn Rafaels Benitez, stjóra Liverpool, hefur hann haft augastað á Agger í nokkurn tíma, „Daniel er leikmaður sem við höfum verið að fylgjast með lengi. Við töluðum fyrst við Bröndby og spurðumst fyrir um hann þegar við spiluðum í meistarakeppni UEFA í Mónakó. Þá var okkur sagt að hann væri alls ekki til sölu. Okkur hefur verið sagt að hann sé besti miðvörður Dan- merkur í yfir 20 ár.“ Að sögn Benitez var hann mjög hrifinn af spilamennsku Aggers í landsleik við Englend- inga á dögunum. Kaup Liverpool á Aggers munu væntanlega valda öðrum enskum félögum nokkrum vonbrigðum, sérstaklega Totten- ham, sem hafði vonast eftir und- irskrift kappans. - toh Liverpool hefur keypt efnilegasta miðvörð Dana: Sá efnilegasti í yfir tuttugu ár DANIEL AGGER Gengur til liðs við Liverpool á allra næstu dögum. HANDBOLTI Íslendingar eru settir í 15. sæti á heildarstyrkleikalista Handknattleikssambands Evrópu sem birtur var í dag. Á þessum lista er tekinn saman allur árangur landsliða í kvenna- og karlaflokki, þar á meðal leikir í undankeppn- um og úrslitamótum. Karlalandslið Íslands er í 13. sæti á listanum en kvennalands- liðið er sett í 25. sætið. Efsta liðið í karlaflokki er lið Serbíu og Svart- fjallalands. Króatía og Danmörk eru síðan í öðru og þriðja sæti. Hjá konunum eru Rússar í efsta sæti en Danmörk og Ungverjaland fylgja fast á eftir í næstu sætum fyrir neðan. Annað árið í röð eru Danir efstir á heildarlistanum. Í öðru sæti eru Króatar og Rússar skipa þriðja sæti listans. - toh EHF gefur út styrkleikalista: Ísland í 15. sæti ÓLAFUR STEFÁNSSON OG FÉLAGAR Í 13. sæti yfir sterkustu landslið í Evrópu. TENNIS Næststigahæsti tennismað- ur heims, Spánverjinn Rafael Nadal, verður ekki með á opna ástralska meistaramótinu í tennis sem hefst í Melbourne á mánudag- inn. Ástæðan er sú að Nadal hefur verið frá keppni síðan í október á síðasta ári og hefur ekki enn jafn- að sig á þessum meiðslum sínum. Þá hefur rússneski tenniskapp- inn, Marat Safin, einnig útilokað þátttöku sína í þessu móti þar sem Safin hefur átt við hnémeiðsli að stríða síðustu fimm mánuði. Sömu sögu er að segja af gamla refnum Andre Agassi, sem er fjarri góðu gamni vegna meiðsla. - toh Tenniskappinn Rafael Nadal: Ekki með í Ástralíu RAFAEL NADAL Verður fjarri góðu gamni á opna ástralska mótinu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.