Fréttablaðið - 12.01.2006, Side 66

Fréttablaðið - 12.01.2006, Side 66
 12. janúar 2006 FIMMTUDAGUR50 HANDBOLTI Baldvin Þorsteinsson, hornamaður úr Val og Ernir Hrafn Arnarsson, leikmaður Aftureld- ingar í Mosfellsbæ, hafa ekki átt sjö dagana sæla undanfarið. Greindust þeir með einkirninga- sótt í seinasta mánuði eftir að hafa báðir verið veikir í nokkurn tíma án þess þó að vita hvað væri nákvæmlega að. Baldvin segist ekki gera sér nákvæmlega grein fyrir hvenær hann smitaðist. „Það er ávallt erfitt að setja niður nákvæma dagsetningu þar sem sýkingin getur leynst í líkaman- um í fleiri vikur án þess að maður finni fyrir henni. Við Ernir vorum herbergisfé- lagar í landsliðsferð sem var farin í lok október og síðan veiktumst við báðir í byrjun desember. Það er því líklegt að við höfum smitast í þessari ferð.“ Að sögn Baldvins er þetta afar slæm tímasetning fyrir hann eftir að hafa verið val- inn í lokahóp íslenska landsliðs- ins fyrir Evrópumótið í Sviss. „Það var auðvitað draumurinn að komast þarna út og það er rosa- lega svekkjandi að missa af því en svona er þetta bara. Ég ætla mér að hvíla vel allan janúar og mæta síðan ferskur aftur í slaginn í byrjun næsta mánaðar. Það þýðir ekkert að fara of geyst af stað þar sem það getur haft í för með sér að menn þurfi að hvíla enn lengur en ella.“ Ernir Hrafn segist einnig hafa fyrst fundið fyrir þessu í byrjun desember. „Við vorum að spila á móti Haukum í seinasta mánuði þegar ég fór fyrst að finna fyrir þessu. Í kjölfarið fékk ég grein- ingu á þessu og hef verið að hvíla nokkurn veginn síðan. Ég reyndi að æfa í seinustu viku en það gekk ekki sem skyldi. Ég hef því hvílt undanfarið en fer væntanlega á fullt á næstu vikum.“ Aðspurður um hvort hann gruni hvernig þeir félagar hafi náð í veikina segir hann að það sé erfitt að tilgreina það nákvæmlega. Það getur verið að við höfum til dæmis drukkið sama vatnið eða eitthvað slíkt í ferðinni úti í Póllandi.“ Að sögn Haraldar Briem sótt- varnarlæknis er einkirningasótt veirusýking sem smitast aðallega með andrúmsloftinu eða með vatni. „Veikin getur valdið slæmri bólgu í öllum eitlum líkamans. Einnig geta menn átt í töluverðum kyn- gingarörðugleikum vegna bólgu í hálsi. Þessu fylgir oft hár hiti sem getur staðið í þónokkurn tíma.“ Að sögn Haraldar ættu íþróttamenn sem smitast að hætta að æfa í nokkurn tíma. „Sóttin getur valdið bólgum í lifur. Það er því nauðsyn- legt að menn séu orðnir alveg hita- lausir og að öll bólga, bæði í hálsi og eitlum sé horfin áður en menn byrja í keppnisíþróttum aftur að einhverju ráði.“ tomas@frettabladid.is Veiktust báðir af einkirn- ingasótt í Póllandi Ernir Hrafn Arnarsson og Baldvin Þorsteinsson, ungmennalandsliðsmenn í handbolta, eru báðir frá í nokkurn tíma vegna veirusýkingar BALDVIN ÞORSTEINSSON OG ERNIR HRAFN ARNARSSON Báðir illa veikir þessa dagana og mega lítið hreyfa sig. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FÓTBOLTI Peter Hill-Wood, stjórn- arformaður Arsenal, hefur varað Thierry Henry við því að vera of gráðugur þegar kemur að því að semja um launagreiðslur við félagið. Henry hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning við Arsenal en hefur lýst opinberlega yfir áhuga á því að vera áfram í herbúðum félagsins. Hins vegar er búist við því að Henry fari fram á kaup og kjör sem myndu gera hann að best launaða leik- manni deildarinnar. „Við reynum að halda launum leikmanna á ákveðnu stigi. Þetta er engin kjarneðlisfræði,“ segir Hill-Wood. „Ef það tekst ekki er hætta á að lenda sömu vandræð- um og Leeds lenti í fyrir nokkrum árum. Það eru takmörk fyrir því hvað við erum tilbúnir að borga,“ bætti hann við. - vig Stjórnarformaður Arsenal: Henry fær ekki ofurlaun KÖRFUBOLTI New Jersey Nets varð að lúta í lægra haldi gegn meistur- um San Antonio Spurs í stórleikn- um sem fram fór aðfaranótt mið- vikudags. Lokatölur urðu 96-91 en fyrir leikinn hafði New Jersey unnið tíu leiki í röð. Það var Tim Duncan sem gerði útslagið, skoraði 27 stig og náði tólf fráköstum fyrir San Antonio en Tony Parker kom næstur með 18 stig. Hjá New Jersey var Vince Carter að venju stigahæstur með 34 stig en Jason Kidd skoraði 15 og tók átta fráköst. „Þeir höfðu okkur alltaf fyrir aftan og sýndu hvers vegna þeir eru meistarar,“ sagði Lawrence Frank, þjálfari New Jersey, um leikmenn San Antonio eftir leik- inn. „Þeirra aðall er vörnin og við áttum í erfiðleikum með að brjóta okkur leið í gegnum hana,“ sagði Carter eftir leikinn, ósáttur við sitt fyrsta tap í tæpan mánuð. Greg Popovich, þjálfari San Ant- onio, kvaðst sáttur viðað hafa unnið leikinn en var ekki ánægður með spilamennsku síns liðs. - vig NBA-deildin í fyrradag: Meistarnir sigr- uðu New Jersey REYNDU AÐ VERJA ÞETTA Tim Duncan hjá San Antonio reynir að verjast Vince Carter hjá New Jersey í leik liðanna í fyrrinótt. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Spænsku risarnir í Real Madrid hafa mikinn áhuga á því að fá bakvörð Arsenal, Ashley Cole, til liðs við sig næsta sumar. Ástæðan er sú að Brasilíumaður- inn Roberto Carlos hefur, að sögn, látið í ljós þá skoðun sína að hann langi aftur heim til Brasilíu eftir núverandi keppnistímabil. Cole skrifaði undir nýjan samning við Arsenal í fyrrasumar þó að Chel- sea hafi verið á höttunum eftir honum allt sumarið. Þrátt fyrir nýja samninginn við Arsenal er ljóst að Cole ber ekki hlýjar til- finningar til stjórnenda Arsenal og þá sérstaklega formannsins, Peters Hill-Wood. Af þeim sökum gæti flutningur til Spánar verið kjörinn fyrir Cole. - toh Real Madrid: Vill fá Ashley Cole

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.