Tíminn - 16.01.1977, Blaðsíða 7
Sunnudagur 16. janúar 1977
Blindir
vilja
mismun-
andi
stærðir
a
peninga-
seðlum
í nýútkomnu fréttabréfi
Blindrafélagsins er drepiö á tvö
hagsmunamál blindra, þar sem
eru seðlaútgáfa og kosninga-
réttur.
Myntslátta og seðlaút-
gáfa
Þegar islenzkir peningar eru
skoðaöir, kemur fljótt I ljós, að
þeireru tvennskonar, þ.e.mynt
og seðlar. Þetta er vist orðið svo
i vel flestum löndum.
Myntin er slegin i nokkrum
stærðum og þykktum, svo að
meö engu móti er hægt að villast
á þvi, hvaða mynt um er að
ræða hverju sinni, auk þess sem
tölustafirnir á myntpeningun-
um halda sér nokkuö vel.
Oðru máli gegnir hins vegar
um seðlana. Þar eru 4 tegundir i
notkun af tveimur stærðum, þ.e.
100 og 500 kr. seðlar sömu stæör-
ar og 1000 og 5000 kr. seðlar
sömu stærðar.
Blindrafélagið hefur margoft
vakið athygli Seðlabankans á
þvi, hversu óhagkvæmt þetta er
blindu og sjónskertu fólki, en
það hefur jafnan verið likt og að
berja höfðinu við stein. For-
ráðamenn Seðlabankans hafa
hreykt sér af þvi, að tölustafir á
seðlunum séu mjög auðfinnan-
legir og þess vegna þurfi ekki að
prenta seðlana i mismunandi
stærðum. Þeir athuga hins veg-
ar ekki, að seðlarnir lýjast ákaf-
lega fljótt við notkun og hinar
svokölluðu upphleyptu tölur
veröa gjörsamlega ófinnanleg-
ar.
Fyrir nokkrum árum var
þessu öðru visi varið, en þá voru
seölarnir mismunandi stærðar
og var það mjög hagkvæmt
blindu og sjónskertu fólki. Vlða
erlendis er þetta einnig svo, að
seðlar eru af ýmsum stærðum.
Benda mætti forráðamönnum á,
að þeir gætu kannski sparaö
pappir til seðlaútgáfunnar, ef
þeir minnkuðu t.d. 100 kr. seðil-
inn, létu 500 kr. seðilinn halda
sömu stærð, en breyttu hlut-
föllunum i 5000 kr. seðlum og
1000 kr. seðlum.
Blindrafélagiö skorar á
stjórnvöld að þrjóskast nú ekki
lengur við að koma þessum
málum i gott horf. Verði það
ekki gert, er hér með farið fram
á skýringar forráöamanna.
Kosningaréttur blindra
Vegna tillögu, sem kom fram
á aðalfundi Blindrafélagsins 30.
april siðastliðinn, viil stjórn
Blindrafélagsins koma eftirfar-
andi á framfæri:
Stjórn Blindrafélagsins skor-
ar á Alþingi að tryggja blindu og
sjónskertu fólki, að það geti
neytt kosningaréttar sins, hvort
sem það kýs á kjörstað eöa utan
kjörstaðar.
Vorið 1974, er gengið var til
kosninga til Alþingis og bæja-og
sveitastjórna, kom i ljós, að
bræðrunum Arnþóri og Gisla
Helgasonum var nær ókleift að
njóta kosningaréttar sins, þar
Volkswagen og Auói árgerð 1977
bllasýning
verður í sýningarsal okkar að Laugavegi 172
í dag sunnudaginn 16. janúar frá kl. 1-6 e.h.
Þar veróa sýndir hinir glæsilegu nýju Auöi-bílar
Au6l 80 LS
Audi ÍOO LS
Auú l-bílarnir eru frábærir að gæðum og með
fullkominn tæknibúnað. — Sjón er sögu ríkari. -
Komið, skoðið og kynnist Auól árgerð 1977
V.W. 1200
hefir aldrei verið betri
og hagkvæmari í rekstri
Golf
fallegur nútímabíll með
fullkomnum búnaði.
LT sendibíll
hagkvæmur og fáanlegur
af mörgum gerðum.
Voíkswagen OOOOAuAi HEKLA HF.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240
sem þeir voru staddir utan
heimahéraðs sins.
Þesser krafizt, þegar atkvæði
er greitt utan kjörstaöar, að
kjósandi riti sjálfur bókstaf á
flokki þeim, sem hann kýs, en
hins vegar er leyfilegt að hand-
sala undirskrift embættismönn-
um I votta viðurvist.
Margt blint og sjónskert fólk
hefur aldrei fengizt við að rita
bókstafi með rithönd, og segir
það sig þvi sjálft, að þetta
ákvæði gerir þvi afar erfitt fyr-
ir. Bæta mætti úr þessu meö t.d.
þvíaðtaka nánar fram ireglum
þessum, hversu blindir og sjón-
skertir skuli fara aö, þegar um
er að ræða utankjörstaðarkosn-
ingu. Má t.d. nefna notkun
stimpla eöa ritvéla.
Þess er vænzt, aö alþingis-
menn taki tillögur þessar til
gaumgæfilegrar athugunar.
Verði það ekki gert, veröur
kosningaréttur blindra enn sem
fyrr takmarkaður.
Til sölu
Hvolpar af skosku
f járhundakyni til sölu.
Upplýsingar veitir Sig-
urgeir Ágústsson, sími
um Bægisá Eyjafirði.
^ Kjötiðnaðarmenn
Kjötiðnaðarstöð Sambandsins óskar eftir
að ráða kjötiðnaðarmenn strax.
Nánari upplýsingar hjá deildarstjóra i
sima 86366 eða starfsmannastjóra i sima
28200.
Starfsmannahald
$ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA