Tíminn - 16.01.1977, Page 9

Tíminn - 16.01.1977, Page 9
Sunnudagur 16. janúar 1977 lllÍS'ilí „Skoðun mín er sú aö Vísnabókarplat- an „Einu sinni var" verði ein af fáum plötum í þessu margumrædda jóla- plötuflóði sem eiga eftir að heyrast, þegar frá líður." ÁsgeirTómasson, Dagblaðið. „Gunnar Þórðarson hefur enn bætt einni skrautfjöðrinni í hatt sinn og einn- ig Björgvin Halldórsson, sem syngur flest lögin." Gunnar Salvarson, Tíminn. „Vandaðasta plata ársins án nokkurs efa." Halldór Ingi, Vísir. ,, . . . breiðplata þessi $r tónlistarlegt listaverk . . . framlag Björgvins, er per- sónulegur sigur sem skipar honum sess á bekk með fremstu listamönnum úr stétt íslenskra söngvara." Slagbrandur, Morgunblaðið. IÐUNN William Shakespeare höfundur Makbeös. skal vera ósigrandi, þangaö til Birnamsskogur fer rakleitt til Dunsinans hæöa. Eftir þetta hyggur Macbeth, aö hann geti geysaö I grimmdarverkum án nokkurs ótta fyrir hefnd. Aö útlista hina aödáaniegu lýsingu skáldsins á þvi, hversu hinir tviræöu spá- dómar nornanna rætast Mac- beth sjálfum tii tjóns og glötun- ar, eða aö útskýra meö rökum hinn prýðilega gang i þvi af leiknum, sem eftir er, — þess gerist eigi þörf, þvi þaö er i sjálfusér fullljóst og veröur eigi misskiliö. Hér hefur i hinu undanfarna einkum veriö dvaliö viö aö skýra hina tvo höfuö- karaktéra leiksins, Macbeth og frú Macbeth, sem menn svo oft hafa misskiliö. Macbeth skiist nákvæmlega og til fulls af þvi, er hann sjálfur segir, og af hinum mörgu eintöl- um hans fáum vér svo glöggva sjón á honum, aö vér veröum aldrei i vafa. En þessu er ööru- visi háttaö um konu hans. Hún er dul og djúpsett, eðli hennar lykst inn i sjálft sig, og hin innsta vera hennar vottar sig ekki til fulls fyrr en i svefn- göngu-senunni. Þaö skýrist ekki sizt af orðum læknisins: Af voðaglæpum voöasturlan sprettur, og eitri sollnum sálum getur oröiö aö segja koddanum frá dularmálum. Hún þarfnast fremur prests en læknislistar. Guö náöi oss alla.” Skoðanir séra Matthiasar Jochumssonar Svo viröist sem séra Matthias hafi ekki veriö fyllilega sáttur viö efnisskýringar herra Stein- grims Thorsteinssonar. Geta má nærri, að konungs- hjónin Makbeð og laföi hans og drottning hafi verið honum ná- komin, meöan unniö var aö hinni stórbrotnu þýöingu Skáldið, eöa þýöandinn, hefur oröið að velta margvíslegu, dapurlegu efni fyrir sér, leggja lóö á vog. Þýöandinn hefur margtá valdi sinu, og spurning- ar leita á, eru hinir vondu of vondir, var til þessa ætlazt? Mynd séra Matthiasar af Makbeðhjónunum er dálltið önnur en við var aö búast. Hann segir hug sinn i athugasemd, sem ekki er liklegt, að hann hefði ritað, ef ágreiningurinn við Steingrim Thorsteinsson um skilning á persónum hefði ekki verið verulegur, en séra Matthias segir á þessa leið: ATHUGASEMD. „Efnisskýring leiksins og at- hugasemdirnar hefur herra Steingrimur Thorsteinsson samið, og lagt til grundvallar þýzkar skýringar (eftir skáldið Bodensted) yfir Macbeth, og er flest i þeim ágætlega skýrt og skarplega framsett. Ég skal þó geta þess lauslega, að ég hef skilið skapsmuni Macbeths og frúar hans ekki alls kostar eins og þeim er lýst, og hef hugsað mér Macbeth litlu skárri eða réttara að segja litlu veikari i vonzkunni, en frú hans töluvert verriog harðari i eðli sinu. Hún er Júdasar-karaktér skáldsins, „morðingi frá upphafi”, háð einni djöfullegri ástríðu, drottnunargirninni, hann er rammheiðinn vikingur I nor- rænum anda, sem tryllist gegn- um illvirki, hann likist illmenn- um I fornsögum vorum, sem byrjuðu lif sitt eins og mennskir menn, trylltust við ellina og gengu loks aftur. Þaö liggur nær að vér við enda leiksins búumst við, aö tröllskapur Macbeths komi aftur i ljós eftir fall hans I enn þá ferlegri mynd. Macbeth er að minni skoðun stálhjarta, sem þarf brýnslu við, en frú hans er steinninn, sem brýnir og brotnar siöan. En hér ræður hver sinni skoöun. ÞÝÐARINN.” Shakespeare og spæjarar Ég get ekki stillt mig um að nota tækifærið til þess að leið- rétta prentvillu, orðabrengl, sem uröu i gagnrýni minni á Makbeð Leikfélags Reykjavik- ur, er birtist hér I blaðinu siöastliöinn þriðjudag: Svo segir I blaðinu: Shakespeare er höfundur, sem leikarar mega hvorki nálg- ast eins og spæjarar, eöa fullir slepju. Þetta er rétt, nema hvað orðið spæjarar er ekki frá mér komiö. Þarna átti að standa „spjarar- ær” I staöinn fyrir spæjarar. Jónas Guðmundsson Já, nú er hún komin aftur hin geysivinsæla og vand- aöa vísnaplata þeirra Björgvins Halldórssonar og Gunnars Þóröarsonar, ,,Einu sinni var,“ þar sem þeir flytja vísurnar úr Vísnabókinni. húí| Ifomin ðftur fólk í listum

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.