Tíminn - 16.01.1977, Page 11

Tíminn - 16.01.1977, Page 11
Sunnudagur 16. janúar 1977 ÍSiJíÍÍÉJffi 11 milljónir kr. Af þeirri upphæð þyrftiað greiða um 8,3millj.kr. I verðjöfnunargjald og 16 millj. kr. 1 söluskatt. Báðar þessar upphæðir hleyptu verði á raf- orku til bæjarbúa verulega upp. Bundið siitiag á aliar götur Við stefnum aö þvi að hér verði allar götur lagðar bundnu slitlagi sagði Bogi Sigurbjöms- son. Við höfum gert 10 ára áætl- Texti og myndir: AAagnús Ólafsson un um framkvæmdir að þeim málum, og er ráðgert að steypa þær götur, sem ósteyptar eru á eyrinni, en malbika aðrar götur. Mikil bót verður að þessari framkvæmd, og allur annar bragur verður hér á bæ, þegar við erum laus við allar holumar og f orina sem berst um allt þeg- ar göturnar eru ekki lagöar bundnu slitlagi. Fiskiðjuver í byggingu Nokkru fyrir jól samþykkti stjórn Þormóðs ramma, að halda áfram byggingu nýja fiskiðjuversins á Rauðkulóð- inni. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdir hefjist I vor og húsið verði fokhelt á þessu ári. Stærð hinnar nýju byggingar veröur 2100 rúmmetrar á einni hæð. Húsið mun standa við væntan- legt stálþil, sem ramma á niður sunnan á eyrinni. Þá er fiskverkunarhús einnig 1 byggingu hjá Isafold hf., og varð það fokhelt i haust. AIls er það hús á nlunda hundrað rúm- metra. Frá Siglufirði eru nú gerðir út þrír togarar og tveir bátar sem eru 150 og 250 lestir á stærð. Auk þess eru nokkrir smærri bátar gerðir út þaðan. Mikiö lif er nú i fiskvinnslu og útgerð frá Siglufirði og öll hjól snúast þar af miklum hraða. Sildarsöltun fór aftur i gang i sumar eftir nokkurra ára hlé, Og loðnan er brædd af kappi. Og peningalyktin er aftur farin að anga frá bræðslunni, en Bogi sagöi, að nauðsynlegt væriað fá hreinsitæki á þá verksmiðju, eins og reyndar á alla stóriðju hér á landi. Tölva tekin í notkun Tölva var nýlega tekin i notk- un hjá Siglufjarðarbæ og verður hún notuð jöfnum höndum af Siglufjaröarbæ, rafveitunni og hitaveitunni. Þessi tölva kostaöi um 7,7 milljónir kr. með öllum fylgihlutum, en tölvur af þessari gerð eru i notkun i mörgun kaupstöðum á landinu. Fyrst um sinn verður tölvan til húsa i leiguhúsnæði bæjarins Fiskurinn lagður I kassa. i. útvegsbankanum, en siðar verður hún flutt i nýja ráðhúsið. Allt bókhald bæjarins verður fært i tölvunni, en auk þess er ráðgert að bjóða fyrirtækjum I bænum afnot af henni. Þær vorubrosmildaroghressar stúlkurnar Ifrystihúsi Þormóös ramnva, þegar viö iitum þar viö á dögunum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.