Tíminn - 16.01.1977, Blaðsíða 15
Sunnudagur 16. janúar 1977
15
Nýlega voru Héraösbókasafni Austur-Húnavatnssýslu á Blönduösi gefnar tvær góöar gjafir.
Annars vegar var þaö mjög gott eintak af Steinsbiblíu, sem prentuö var aö Hólum 1728 og var hún
gefin safninu á 100 ára ártiö Guörúnar Þorsteinsdóttur frá Alfgeirsvöllum. Bfblfan var i Gríms-
tungukirkju þegar kirkjan var lögö niöur og rifin áriö 1881, en var síöan í bænda eign í Vatnsdal
fram til 1937aöhún var flutt tilReykjavíkur og hefur veriöþar, þar til nú.
Hin gjöfin er handskrifaö almanak fyrir árin 1824-1841, sem útreiknaö er „eptir Vatnsdals sönnu
sólartiö”, eins og segir á titilblaöi almanaksins. Þaö var Jón Bjarnason bóndi og stjörnuspá-
maöur I Þórormstungu, sem reiknaöi þaöút og skráöi.
.
undanförnu hefur þó ekki leyft
að kaupa nema um 100 nýjar
bækur á ári. En stundum fær
safnið einnig gömul og góö
bókasöfn. T.d. keypti það ný-
lega 400 binda ljóöasafn, sem
Sigurður Jónsson frá Brún átti.
Samstarf við skólana
Grimur Gislason formaður
stjórnar héraðsbókasafnsins
sagði, að hann teldi það rétta
stefnu að leggja sveitabóka-
söfnin niður og sameina þau
hérbókasafninu. Leiðir ibúa
sveitanna lægju um Blönduós og
þvi væri alveg eins auðvelt fyrir
þá að nálgast bækur þar, og i
safni i sinni sveit. Og ef öll
söfnin væru sameinuð, notast
fjármagn það, sem til er á
hverjum tima mun betur, og
hægt er að veita mun betri þjón-
ustu.
Sonja Einarsdóttir bóka-
vörður sagði, að rætt hefði verið
um samstarf við skólana i hér-
aðinu um aukin not þeirra af
safninu og væri áhugi á þvi, og
einnig hafði hún mikinn áhuga á
að gera ibúum elliheimilisins og
sjúklingum á héraöshælinu auð-
veldara að nota sér safnið.
Sonja sagði, að enn sem
komið væri notfærði fólk sér
safnið ekki nægjanlega mikið.
En sifellt ykist það, að ungt fólk
kæmi til þess að fá lánaðar
bækur, og væri það mjög
ánægjuleg þróun.
Hljóðrita raddir Hún-
vetninga
Héraðsskjalasafnið hefur
þegar fengið til varðveizlu
margt merkra skjala, og Pétur
Pétursson vinnur að þvi að skrá
þau og skipuleggja safnið. Þá
var safninu nýlega gefið hljóð-
ritunartæki, og er ætlunin að
hljóðrita raddir Húnvetninga,
eftir þvi sem timi vinnst til.
Okkur skortir ekki viljann, en
okkur skortir fé til þess að gera
allt, sem við höfum áhuga á,
sagði Pétur. Við þurfum að
safna sem mestum fróðleik og
varöveita hann til siöari tima.
Með hverju árinu sem liður
glatast margt sem ástæða væri
til að geyma. I það þurfum við
að ná og varðveita hér, þvi hér
höfum við aðstööu til þess.
i Austur-Húnavatnssýslu
b komið í ný
lynni og
car
Grlmur Glslason form. stjórnar Héraösbókasafns Austur-Húna-
vatnssýslu, Sonja Einarsdóttir bókavöröur og Pétur Pétursson
starfsmaöur skjalasafnsins.
i ari
straum af byggingarkostnaöi og
kostnaði við að byggja söfnin
upp, hefur stór hluti af húsnæð-
inu verið leigöur út til annarra
nota. Ma. eru sýsluskrifstof-
urnar i húsnæðinu og lögreglan
hefur þar aðstöðu.
Alhliða bókasafn
í héraðsbókasafninu eru nú
um 8000 bindi og að undanförnu
hefur veriö unnið að þvi að skrá
það eftir kerfi, sem Bókavaröa-
félag Islands viðurkennir.
Stefnt er að þvi, aö öll bókasöfn
á landinu verði skráð eftir þessu
kerfi, og gefur það mikla mögu-
leika á samstarfi safnanna viðs
vegar um landið. Mikill kostn-
aður er við þessa skráningu, og
er hann talinn verða á aðra
milljón kr.
Arlega er reynt að kaupa úr-
val af þeim bókum, sem út
koma, en fjárhagurinn að
n héraösbóka- og skjalasafnsins. Hluti af
Tlmamyndir Mó.
járnbent steinsteypa í einingum
Traustar sperrur og tréverk, og
traustir menn til að reisa húsin. Ná-
kvæm stöðlun framleiðslu okkar þýðir
ekki, að öll húsin verði eins, heldur
það, að allir hlutar framleióslunnar
falla nákvæmlega inn í þá heild, sem
þið veljið. Þaó eru margvíslegir mögu-
leikar á fjölbreytni í útliti húsanna og
innréttingum.
Traust og fjölbreytileg
einingahús.
Við framleiðum bæði stór og smá
hús, atvinnuhúsnæði, bílskúra og ein-
býlishús eða raóhús. Einingabygg-
ing sparar ómetanlegan tíma, fé og
fyrirhöfn, bæði verktökum og atvinnu-
mönnum í byggingariðnaði og öðr-
um húsbyggjendum.
HUSASMIÐJAN HF
Súðarvogi 3, Reykjavík. Sími 86365.