Tíminn - 16.01.1977, Page 30
30
Sunnudagur 16. janúar 1977
Brimkló byrjuð
að taka upp
nýja plötu
Hljómsveitin Brimkló er nú aftur komin inn i
stúdió Hljóðrit í Hafnarfirði og byrjuð að taka
upp nýja plötu. Svo sem kunnugt er er hljóm-
sveitin ekki starfandi lengur, en var mjög vin-
sæl fyrir nokkrum árum — og gaf hljómsveitin
út breiðskifu á siðasta ári, Rock ’n Roll öll min
beztu ár, sem fékk góðar viðtökur.
Þeir Brimklóarmeölimir, sem vinna aö gerö þessarar nýju
plötu eru Arnar Sigurbjörnsson, Björgvin Gislason, Ragnar
Sigurjónsson, Sigurjón Sighvatsson og Hannes Jón.
Vönduð vara
Mannlif
Jóhann G. Jóhannsson
★ ★ ★ ★
MIDAÐ viö þaö, aö tvö ár liöu á
milli þess aö út kom Langspil,
fyrsta sóióplata Jóhanns G., og út
kom önnur sólóplata hans, Mann-
lif — bjóst ég satt bezt aö segja
viö þvi, aö Mannlif væri meira af-
gerandien raun bervitni. A þess-
ari nýju plötu sinni sannar Jó-
hann þaö, sem jú alltaf hefur ver-
iö taliö, aö hann sé einn af meiri
háttar poppfrömuöum hér á
landi. En hann sannar litiö meira,
þvi miöur.
Galli — ef galli skal teljast —
þessarar plötu er sá, aö Jóhann
sýnir á henni heldur litil tilþrif i
þá átt aö glima viö erfiö viöf angs-
efni. Þvi slæég þennan vamagla,
aö ég efast um, aö poppunnendur
almennt telji þaö galla, þótt Jó-
hann gerist aðeins meira
„commercial”. En ég kalla þetta
galla, vegna þess aö ég ber mjög
mikla viröingu fyrir Jóhanni G.,
og þaö er i ööru lagi min bjarg-
tasta sannfæring, aö allir lista-
menn eigi aö reyna aö gera eins
vel og þeir geta.
Eg held nefnilega, aö Jóhann
hafiekki reyntaðgera sittbezta.
og raunar tel ég aö hans bezta
efni sé enn ókömiö á plötu. Þaö
skal þó tekiö fram til þess aö forö-
ast allan misskilning, aö Jóhann’
hefur unnið geysilega vel úr þvi
efni, sem hann valdi á Mannlif.
En þetta efni er aö minum dómi
valiö meö þaö markmiö of rikt i
huga, aö platan eigi aö seljast vel.
Og það er stórhættulegt, ef jafn
frábærir tónlistarmenn og Jó-
hann G. færa sig skör neðar, aö-
eins af þvi aö hluti þeirrar af-
þreyingartónlistar, em gefin hef-
ur veriö út, hefur selzt vel. Þetta
leiöir jafnframt hugann aö þeirri
spurningu, hvers vegna Jóhann
G. gefi út sinar plötur sjálfur og
þurfi þvi aö hafa eilifar fjárhags-
áhyggjur. Varla erástæöan sú, aö
hljdmplötufyrirtæki treysti sér
ekki til þess aö gefa út plötur
hans.
Jóhann G. Jóhannsson
. -n* VANTAR
o0' BLAÐAMANN
Nú-timinn óskar eftir að ráða blaðamann til
starfa. Starfið er i þvi fólgið að taka viðtöl við
islenzka popptónlistarmenn og myndi henta
vel ungum manni eða konu, sem gæti unnið að
þessu jafnhliða einhverju námi. Þeir, sem
áhuga hafa á starfinu, þurfa i fyrsta lagi að
uppfylla það skilyrði, að búa yfir góðri is-
lenzkukunnáttu, og i öðru lagi að þekkja sæmi-
lega vel til islenzkrar popptónlistar. Æskilegt
væri að viðkomandi hefði einnig tök á þvi að
vélrita greinar sinar.
Þeir sem hafa áhuga eru beðnir að hafa sam-
band við Gunnar Salvarsson umsjónarmann
Nú-timans i sima 18300 milli kl. 13.00 og 19.00.
BETUR MÁ EF DUGA SKAL
Gcimsteinn — Geimsteinn
Geimsteinn GS 103
Heima jólunum á — Ýmsir
Geimsteinn GS 104
NOKKRU fyrir jólin
sendi Rúnar Júlíusson og
fjölskylda frá sér tvær
plötur — plötu aö nafni
Geimsteinn með sam-
nefndri hljómsveit og
jólaplötu aö nafni Heima
jólunum á.
Geimsteins platan er tileinkuö
sveiflum, danssveiflum, dæmi-
sögusveiflum, dularfullum
sveiflum og réttlætissveiflum,
svo dæmi séu nefnd. Kjarni
þessarar hljómsveitar eru Rún-
ar Júliusson, kona hans, Marla
Baldursdóttir, og bróöir hennar
Þórir Baldursson, en auk þeirra
koma fram á plötunni ýmsir er-
lendir stúdiókarlar. Platan var
hljóörituð I New York og Miin-
chen.
★ ★ ★ +
Þessi plata á þaö sammerkt
öðrum plötum frá hendi Rúnars,
aö hún er geysilega vel unnin,
hljdöfæraleikur allur svo og út-
setningar eru vandaöar, en bæöi
skortir á, aö lögin séu sérstök,
og eins er söngurinn ekki alltaf
upp á marga fiska. Trúlega er
þetta þó bezta plata, sem Geim-
steinn hefur gefið út, aö frá-
taldri sólóplötu Rúnars.
Lögin á plötunni eru úr ýms-
um áttum, flest erlend lög meö
islenzkum textum, en auk þess
lög eftir Rúnar og Þóri. Lög
Rúnars eru yfirleitt misjöfn aö
gæöum, og svo er einnig um þau
★ ★ ★
þrjú lög eftir hann, sem eru á
þessari plötu. Bezta lagiö er
„Meö trega i sái” —- mjög snot-
urt lag viö ágætan texta Þor-
steins Eggertssonar, en hann
semur flesta textana.
Ég held að Rúnar sé of af-
kastamikill og ekki nógu gagn-
rýninn á sjálfan sig. Af þeim
sökum eru plöturnar aldrei
nema rétt miðlungs góöar.
Um jólaplötuna er ekki vert
aö hafa mörg orö, enda jólin um
garö gengin. Platan er vel unnin
i alla staöi, söngurinn á köflum
ágætur, einkum hjá Rúnari
sjálfum, — og talsverö hátiöa-
stemmning yfir plötunni.
Mannlif telst alls ekki til af-
þreyingartónlistar, langt i frá.
Platan er skemmtileg áheyrnar
og vex raunar aö gildi viö hverja
hlustun (alla vega ennþá). Fyrri
hliö plötunnarer „léttari”, og þar
ber mikiö á léttum rokklögum,
sem ættu aö falla i kramiö hjá
þeim, sem litlar kröfur gera.
Þetta eru einföld lög meö
skemmtilegum takti — en sýna
nákvæmlega ekkert um getu Jó-
hanns G. A þessari hliö vakti
mesta athygli mina lagið „Siöan
ég hef” — mjög hugljúft og
rómantiskt lag.
Á siöari hliöinni er aö finna
beztu lögin, og viröist Jóhann
hafa gert sér far um aö velja
vandaöraefniá þá hliö plötunnar.
Lög eins og „Draumsýn”, „Ann-
an mann” og „Hvaö er, hvaö
veröur” teljast meö betri lögum
Jóhanns G„ og ef öll platan væri i
svipuðum gæöaflokki, þyrfti ekki
aö draga i efa hver væri islenzk
plata siöasta árs.
Oll vinna á þessari plötu hefur
verið unnin af mikilli natni og
vandvirkni — og ég hef áöur hald-
ið þvi fram, aö Jóhann G. væri
meö snjöllustu útsetjurum okkar,
og sú skoöun min stendur óhögg-
uð. Til liös viö sig hefur Jóhann
fengiö fjölda hljóöfæraleikara, og
sýnist mér þeir allir skila hlut-
verki sinu meö prýöi, enda er Jó-
hann talinn kröfuharöur húsbóndi
hvaö snertir hljóöfæraleik.
Þáttur Jóhanns G. sjálfs er þó
aðsjálfsögöu mestur. Hann syng-
ur öll lögin, syngur allar bak-
raddir, leikur á bassa i öllum
lögunum og bregður einnig á leik
á rafmagnsgitar og syntesizer.
Jóhann er mjög „karakteriskur”
söigvari og hefur gott vald á
röddinni.Nýturhúnsin einna bezt
i rólegum lögum, þótt ekki sé það
einhlitt.
Jóhann semur alla texta viö lög
sin, og veröur þaö aö segjast, aö á
þvi sviöi er hann mjög liötækur.
Textarnireru aö visu dálitiö mis-
jafnir, en sé á heildina litiö, verö-
ur ekki á móti þvi mælt, aö þeir
eru mun betri en obbi þeirra
texta, sem heyrast á islenzkum
plötum. Þemaö er ástin i sinum
margvislegu myndum, og gera
textarnir plötuna mun heilsteypt-
ari en ella.
Textarnir fylgja með plötunni i
sérstakribókilitlu brotiog ec þaö
virkilega skemmtileg nýjung.
Mannlif er vönduö vara eins og
Jóhanns G. var von og visa — og
lýkur hér meö þessari umsögn
með þeirri frómu ósk, aö aldrei
aftur gerist tónlistarmenn þrælar
imyndaös markaðar.
G.S.
FRÆGASTA ræfla-rokk hljóm-
sveit Breta, Sex Pistols hefur
veriö rekin frá hljómplötufyrir-
tækinu EMI. Astæðan er sú, aö
hljómsveitin hefur hneykslað
margan Bretann meö uppátækj-
um sinum, sem eru ógeöfelld I
meira lagi, og treysti EMI sér
ekki lengur til þess aö standa
fyrir kynningu á hljómsveitinni,
og riftaöi einnig samningnum um
hljómplötuútgáfu.
Sex Pistols vöktu fyrst veru-
lega athygli I sjónvarpsþætti þar
sem þeir viðhöföu slikt oröbragö
að stjórnandi þáttarins var rek-
inn á stundinni. Siöan geröist þaö
að hljómsveitin gerði mikinn usla
á Heathrow-flugvellinum I Lond-
on, er þeir voru á leið til Amster-
dam. Hræktu þeir, bölvuöu og
ældu á leiöinni um borö I vélina.
Eftir þaö sagöi EMI stópp.
EMI gafst upp
á Sex Pistols