Tíminn - 22.03.1977, Blaðsíða 1
Greinargerð Heilbrigðiseftirlitsins um álbræðslur — Bls. 8og9
Wwwífiíim Slöngur — Barkar — Tengi
Áætlunarstaðir: Bíldudalur-Blönduóc BúðardalUr ! Flateyri-Gjögur-Hólmavík Hvammstangi-Rif-Reykhólar Sigluf jörður-Stykkishólmur Súgandaf jörður .. _I-M. Sjúkra- og leiguflug um allt land %
2-60-60 00 2-60-66 ■ 67. tölublað—Þriðjudagur 22. marz— 61. árgangur SMIÐJUVEGI 66 Kópavogi — Sími 76-600
Karin Söder, utanrikisráOherra Svíþjóöar, viö komuna til Keflavikur i gœr. Einar 4gústsson
utanrikisráöherra islands, tók þar á móti henni. Timamynd: Gunnar
Sænski utanrík
isráðherrann í
opinberri heim-
sókn á íslandi
— ræðir heimsmálin við
Einar Ágústsson í dag
HV-Reykjavík. Karin
Söder, utanríkisráð-
herra Svíþjóðar, kom í
gær í opinbera heim-
sókn til (slands. Einar
Agústsson, utanríkis-
ráðherra ísíands, tók á
móti henni á flugvell-
inum, svo og sænski
sendiherrann á (slandi
og aðrir embættis-
menn.
í dag mun Söder eiga
fund með Einari
Ágústssyni, þar sem
utanríkisráðherrarnir
munu ræða ástandið I
heiminum í dag, en að
því loknu mun hún sitja
hádegisverðarboð Ein-
ars í ráðherrabústaðn-
um. Síðdegis mun
Söder ganga á fund
Kristjáns Eldjárns,
forseta Islands.
Karin Söder hefur
borið f ram þá ósk að fá
að skoða Hitaveitu
Reykjavíkur, og er sú
skoðunarferð einnig á
dagskrá hennar i dag.
I kvöld verður svo
móttaka í sænska
sendiráðinu og þar
með lýkur opinberri
heimsókn sænska utan-
ríkisráðherrans hing-
að.
Karin Söder er
fyrsta konan sem
gegnir embætti utan-
ríkisráðherra Sví-
þjóðar, en hún tók við
því þegar stjórnar-
skipti urðu þar á
siðastliðnu ári. Hún er
fædd árið 1928 og hefur
átt sæti í sænska þing-
inu frá árinu 1971. Frá
sama ári hefur hún
verið annar varafor-
maður sænska mið-
f lokksins.
Karin Söder tók
stúdentspróf í Gauta-
borg árið 1948 og lauk
kennaranámi árið 1950
í Falun. Arið 1954 f lutti
hún til Stokkhólms og
lagði þar stund á nám í
stjórnmálavísindum
og hagfræði árin 1963
og 1964.
Eiginmaður Karin
Söder er Gunnar Söder
og eiga þau þrjú börn.
S tj órnarfrumvarp um Blönduvirkj un
Ein álitlegasta
virkjunin utan eld-
virknisvæðanna
— samkvæmt orkuspá þarf að reisa tvær stórvirkjanir
fyrir miðjan næsta áratug
MÓ-Reykjavlk — Eftir þeim
rannssóknum og áætlunum
sem þegar hafa veriö geröar,
er Blönduvirkjun i hópi hag-
kvæmustu vatnsaflsvirkjana á
tslandi. Hún hefur einnig þann
kost aö vera utan hinna eld-
virku svæöa. Stærstu raforku-
ver landins liggja á eldvirk-
um svæöum. Þvl fylgir áhætta
eins og gamlir og nýir atburöir
minna á. En um leiö og áhættu
veröur aö taka til þess aö nýta
vatns- og varmaorku landsins
er þaö mikilvægt aö upp risi
raforkuver utan eldvirknis-
svæöanna og aö þvi veröur aö
stefna. Þar er Blönduvirkjun
fremst i flokki, ein álitlegasta
virkjun utan þeirra svæöa.
Þetta segir m.a. I greinar-
gerö meö frumvarpi til laga,
um virkjun Blöndu, sem ríkis-
stjórnin lagöi fram á Alþingi i
gær. Samhljóöa frumvarp var
lagt fram á Alþingi i fyrra, en
varö þá ekki útrætt. Meö
frumvarpinu nú fylgir ný
orkuspá og ný kostnaöaráætl-
un.
Samanburöur á orkuspámog
vinnslugetu núverandi vatns-
orkuvera aö viöbættum Sig-
öldu- og Kröfluvirkjun sýnir
aö þessar virkjanir geta full-
nægt aflþörf fram til 1980,
samkvæmt raforkuspá þeirri
fyrir landiö i heild, sem rakin
er I fylgiskjali 4, en orkuþörf
fram til 1982. 1 þessari spá er
einungis reiknaö meö þegar
umsaminni stóriöju aö viö-
bættum vexti almennrar notk-
unar og rafhitun þeirra lands-
svæöa sem litla möguleika
hafa á hitaveitu. 1 henni er
reiknaö meö hitaveitu á Akur-
eyri og sums staöar á Vest-
fjöröum einnig.
Upp úr 1980 i siöasta lagi
þarf þvi ný virkjun eöa virkj-
anir aö koma til. Þaö fer eftir
þróun markaösins hversu
lengi sú virkjun endist, en mál
horfa þannig viö, aö iönþróun
á íslandi, vöxtur almennrar
raforkunotkunar og rafhitun
þeirra landshluta, er ekki eiga
kost á jaröhita, geri þaö
nauöáynlegt aö reisa tvær
stórar virkjanir fyrir miöjan
næsta áratug.
! frumvarpinu er gert ráö
fyrir aö heimild veröi veitt til
aö reisa allt aö 150 MW virkj-
un.
Spassky
ætlaði til
Sviss á
föstudag
Gsal-Reykjavlk — A sunnu-
dag varö Spassky að láta af
lendi eins vinnings forskotiö
i einviginu viö Hort, sem
hann haföi haldiö i 6 skákir.
Spassky haföi örugglega gert
sér vonir um þaö, aö honum
tækist aö halda jafntefli i
þeim skákum sem eftir væru
— þvi hann ætlaöi sér aö
halda frá Islandi á föstudag
og fara til Genf i Sviss, þar
sem honum hefur veriö boöin
þátttaka á sama móti og
Friörik og Guömundur tefla
á.
En nú hefur skyndilega
oröiö á breyting, sem getur
gertþessaráætlanir aö engu.
Staöaner5:5og einvigiö gæti
dregizt á langinn — og móts-
stjórnin I Genf getur ekki
haldiö frá sæti fyrir Spassky
nema fram á föstudag. Crslit
einvfgisins veröa þvi aö ráö-
ast I næstu tveimur skákum,
ef Spassky ætlar sér þátttöku
á mótinu. 11. einvigisskákin
veröur tefld I dag. Sjá nánar
um skák á bls. 4-5.
• Utanríkisráðherra fordæmir athæfi Varnarliðsins — Sjá bls. 3