Tíminn - 23.03.1977, Síða 7

Tíminn - 23.03.1977, Síða 7
C oa ce c Miövikudagur 23. marz 1977 7 Nú lepur Anne- marie Moser-Pröll aftur rjómann Arið 1975 héldu Austurrfkismenn andanum niðri í sér heilan dag, þegar Annemarie Moser-Pröll, frægasta skíðakona allra tíma, eftir að hafa sigrað í yfir 50 bik- arkeppnum, lýsti því yfir, að eftir þetta keppnistímabil myndi hún hætta keppni. — Nú ætla ég að lifa eðlilegu lífi með eigin- manni og tveimur börnum mín- um. Þegar 18 mánuðir voru liðnir stóðst hún ekki lengur mátið, og i nóv. 1976 lýsti hún þvi yfir á blaðamannaf undi: — Ég er kom- in aftur og ætla að keppa um heimsmeistaratitilinn 1978. I fyrstu heimsmeistarabik- arkeppninni á keppnistímabilinu í d'Ampezzo sigraði hún glæsi- lega. Og hinir keppendurnir sögðu: Nú er leikurinn úti hjá okkur, því að Moser-Pröll er komin aftur fílefld og lepur rjómann. Ekki aðeins í köku- búðinni sinni í Kleinarl, heldur líka á skíðabrautinni. Á því græð- ir hún líka meira en á kökum. Sá sem á sök eða heiður af skíða- frama Annemarie Moser-Pröll er eiginlega þorpspresturinn Anton Frischberger. Alltaf þegar sálnahirðirinn vann sigur í skíða- keppnum í sínum aldursflokki, var sigurvegarinn í hópi nemenda Ijóshærð, síðhærð telpa, Annemarie Pröll. Og árið 1967 tók presturinn telpuna sér við hönd (þótt hún væri ekki sérlega kirkjurækin) og fór með hanatil þáverandi frægasta þjálfara í Austurríki, Hoppichler. Og hann svaraði: Gott, yðar háæruverð- ugheit, skiljið telpuna eftir. — Prestinum mínum mun ég aldrei gleyma. Frá hverri bikarkeppni sendi ég honum kort, og nú getur hann haldið áfram að safna þeim. Hér með fylgja tvær myndir. önnur sýnir Annemarie AAoser- Pröll skera tertu, sem hún hefur sjálf bakað og faðir hennar stendur hjá í kökubúðinni í Klein- arl, en hin sýnir hana þegar hún bar sigur úr býtum i fyrstu bikarkeppninni eftir hléið. Anne- marie í miðið, Elena Matpus t.v. og Brigitte Toschnig t.h. ."^1 Sack skipstjóri' er i miklum vandræöum: ' Gæludýrið hans,^ Rusty orangutan-| api, hefur fleygt/^ honum og áhöfn' hans fyrir borö og 'hann kemst ekkij'' i , um borö i bát sinn* 1 aftur! Rusty varö fokillur viö' 'striöni Aka háseta, en x hvers vegná hann snerist gegn mér. ,lika, veit ég l ekki. ' Ég veit ekki hve lengi'^ hann veröur svona reiöur ég gæti þurft aö drepa, 'hgnn, nema.... © Bull's Tíma- spurningin Hvor heldurðu að vinni skákeinvlgið, Hort eða Spassky? Gisli Ingvarsson nemi Ég held meö Hort þessa stundina og vona aö hann vinni. Margrét Guöm undsdóttir húsmóöir Ég vona aö þaö veröi Spassky. Ég hef aö visu ekki fylgzt meö ein- vlginu aö ráöi, en er hrifnari af Spassky, hann er gamalkunnur hér. Sigurður Steindórsson gullsniöur Spassky vinnur. Ég tel aö þaö hjálpi honum, aö margir standa meö honum hér og fær hann þvi eins konar móralskan stuöning. lvar Björnsson vélstjóri Hort vinnur áreiöanlega. Ég hef nokkuö fylgzt meö einviginu og viröist Hort tefla af mun meira öryggi en Spassky. Jóna Guöm undsdóttir verzl- unarmær Ég vona aö Hort beri sigur lir byt- um. Hann er miklu skemmtilegri týpa.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.