Tíminn - 07.04.1977, Blaðsíða 12
Fimmtudagur 7. april 1977
12
Tíminn heimsækir nemendaleikhús Leiklistarskó)a ríkisins:
ans. Þaö er nýtt sjónvarpsleikrit,
sem Hrafn Gunnlaugsson er aö
semja og mun hann stjórna upp-
setningu á því.
En strax aö lokinni frumsýn-
ingu á þeim tveimur verkum,
sem nú er veriö aö æfa, hefjast
æfingará nýjuleikriti eftirSigurö
Pálsson. Það verk semur hann
sérstaklega fyrir leikhópinn og
verður þaö verk frumsýnt i mai.
Leikstjóri verður Þórhildur Þor-
leifsdóttir.
Leikritið, sem hópurinn er nú
aö æfa, eru eftir Bretold Brecht
og bæði skrifuö sem kennsluleik-
rit og hafa mikinn boöskap að
flytja. Annaö þeirra heitirUndan-
tekningin og reglan, en hitt Úr-
ræðið. Leikstjóri er Peter Micka
frá Tekkóslóvakiu. Fjóla Olafs-
dóttir hefur samið flest lögin i
leikritunum og leikur hún undir
og stjórnar söngnum.
1 þessum bekk leiklistarskólans
eru 9 nemendur. Konurnar eru 7
en karlarnir aðeins tveir. Þetta
hefur orðið til þess að oft þurfa
konurnar að leika karlahlutverk,
enda eru flest leikrit samin af
körlum og fyrir karla, eins og ein
stúlkan orðaði það þegar blaða-
maður leit þar inn á æfingu á dög-
unum.
Skólastjóri :Leiklistarskóla
rikisins er Pétur Einarsson, og
hefur skólinn starfað i tvö ár.
Kennarar við skólann eru fjöl-
margir, bæði leikarar og annað
sérhæft fólk.
M.Ó.
Fjóla ólafsdóttir samdiflest lögin Sigurbjörg Arnadóttir Edda Hólm horfir Ibyggin á Guönýju Helgadóttir dytta að kúllahatti.
i leikritunum og stýrir söngnum.
Jafnframt leikur hún undir ásamt
Kormáki Geirharðssyni.
Sviðsmynd úr leikritinu Undantekningin og reglan.. Kaupmaðurinn er að neyöa burðarmann sinn til
þess að fara yfir ófært fljót
Það er ekki ofsögum sagt, að
unniö sé myrkranna á milli i
Lindarbæ þessa dagana. Þar er
verið aö leggja siðustu hönd á æf-
ingu tveggja leikrita, og verða
þau frumsýnd 14. april nk. Verkin
æfir annar árgangur sem Utskrif-
ast úr Leiklistarskóla rikisins og
verður þessi sýning fyrsta opin-
bera sýning þessa hóps. Nem-
endurnir hafa nú stundað leik-
listarnám i fjögur ár og verða út-
skrifaðir um miðjan mai, en i
sumar vinnur hópurinn samt
saman að verkefni á vegum skól-
I
Nemendur Leiklistarskóla ríkisins:
USÝNA
VERK
VIKU
frumsamið leikrit
á fjalirnar í maí og
nýtt verk á skjáinn
með haustinu
Mikil orka og frjótt ímynd-
OT — sem þarf að virkja og leiða í réttan
llllctl d»ll farveg segir leikstjórinn Petr Micka
— Þessi hópur er búinn góðum
hæfiieikum og hefur mikia
orku og frjótt imyndunarafl,
sem þarf að virkja og leiða i
réttan farveg, sagði Petr
Micka, tékkneskur leikstjóri,
sem stjórnar uppsetningu á
ieikritunum, sem nemenda-
leikhús Leiklistarskóla rikis-
ins mun sýna i næstu viku. —
Ég er mjög glaöur, að hafa
fengiö tækifæri til þess aö
vinna meö þessum hópi og
leiöbeina honum, og ég er viss
um aö þetta verður góö sýn-
ing.
Sérstaklega er ég ánægður
með „Úrræöiö”, og þaö er
mjög gaman að fást við að
koma þvi á svið. Þetta er eitt .
umdeildasta verk, sem skrifað
hefur veriö fyrir leikhús og
hefur m jög mikinn boðskap að
flytja. Kjarna þess boðskapar
þyrftiað taka til greina, þvi þá
værihægt aö breyta heiminum
og gera hann betri, en hann er
nú.
Hlutverk listamanna á aö
vera aö fegra og göfga heim-
inn og hafa áhrif i þá veru að
viö lifum hér betra og gæfu-
rikara lifi en viö nú gerum.
Enginn listamaður á meiri
möguleika til þess, en leikar-
ar. Þeir eru prestar og
kennarar mannkynsins. Þeir
geta haft mikil áhrif. Þeir eiga
aö hafa áhrif og þeir þurfa aö
leggja sig fram um að nýta
áhrifin þannig að til góðs veröi
fyrir það samfélag, sem þeir
lifa i.
Ég vona að þessi sýning,
veröi ekki sú siöasta, sem ég
set upp hér á landi, þvi hér eru
góðir ieikarar, sem gaman er
aö vinna með sagöi Petr aö
lokum.
PetrMicka ertékkneskur að
ætt og uppruna, en nam leik-
list við Yale háskólann i
Bandarikjunum. Þaðan iauk
hann magisterprófi i leik-
stjórn og leikhúsfræöum, en
siöan hefur hann stjórnað upp-
setningu á leikritum i Banda-
rikjunum, Þýzkalandi og við-
ar. Hann kom hingaö fyrir
tveimur mánuðum til þess að
setja þessi tvö verk á svið fyr-
ir nemendaleikhús Leiklistar-
skóla rikisins.
MÓ.
Petr Micka leikstjóri
Texti: Magnús Ólafsson