Tíminn - 07.04.1977, Blaðsíða 19

Tíminn - 07.04.1977, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 7. aprll 1977 19 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Eitstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Auglýs- ingastjóri: Steingrfmur Gisiason. Ritstjórnarskrifstofur f Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrif- stofur f AOalstræti 7, sfmi 26SOO — afgreiöslusfmi 12323 — auglýsingasfmi 19523. VeröIlausasölu kr. 60.00. Áskriftar- gjald kr. 1.100.00 á mánuöi. Blaöaprenth.f. Kj aras amningar nir í ræðu þeirri, sem ólafur Jóhannesson dóms- málaráðherra flutti við setningu aðalfundar mið- stjórnar Framsóknarflokksins, vék hann m.a. að væntanlegum kjarasamningum og fórust honum orð á þessa leið: „Sé reynt að skyggnast inn i framtiðina og gera sér grein fyrir þvi, hver verði framvinda efnahags- mála á yfirstandandi ári, verða komandi kjara- samningar eflaust fyrst fyrir. Það hefur heyrzt, að þær samningaumleitanir, er nú standa fyrir dyrum, verði stærri i sniðum en þær, sem á undan hafa far- ið. Og þvi er ekki að leyna, að margir álita, að þær verði meðal þeirra erfiðari. Hvort sú spá reynist á rökum reist, skal ósagt látið, en við verðum að vona, að aðilar vinnumarkaðarins, launþegar og vinnuveitendur, gangi til leiks með það fyrir augum að ná skynsamlegum samningum. Það leikur ekki vafi á þvi, að hóflegir kjarasamn- ingar á siðustu tveimur árum eiga drjúgan þátt i þvi, að jákvæður árangur hefur náðst á sviði efna- hagsmála á siðasta ári. Verkalýðsforustan hefur þannig — þrátt fyrir erfiðar aðstæður — sýnt þá á- byrgu afstöðu að taka tillit til efnahagsástandsins. Efnahagshorfur eru nú nokkru bjartari en áður. Nokkurt svigrúm hefur gefizt til kaupgjalds- hækkunar. Það skal heldur ekki dregið i efa, að margir þurfa á slikri hækkun að halda. Það er t.a.m. óútreiknanlegt dæmi, hvernig mönnum tekst að lifa af lægstu umsömdum daglaunum, og þar verður sjálfsagt að leita ýmissa skýringa. En hvað sem um það er, munu flestir sammála um, að nauð- syn beri til, að laun þeirra lægst launuðu hækki. Það verður hins vegar ekki gert, nema þeir, sem hærri laun hafa, gefi nokkuð eftir. Ályktun Alþýðusam- bandsþings frá þvi i haust bendir til þess, að menn hafi gert sér grein fyrir þvi, en það á þó eftir að koma i ljós, hvernig staðið verður að þeirri stefnu- mótun. Á árinu 1975 er talið, að kaupmáttur kauptaxta hafi rýrnað um 12-15%. Á s.l. ári er talið, að kaup- máttargildi kauptaxta hafi enn rýrnað um 3-4%. Þar með er þó ekki öll sagan sögð, þvi að vegna launaskriðs og lengri vinnutima er talið láta nærri að kaupmáttur ráðstöfunartekna almennings hafi staðið nær i stað i fyrra. Um þetta kunna þó að vera skiptar skoðanir. Um siðustu áramót voru kauptaxtar flestra laun- þega 13-14% hærri en þeir voru að meðaltali á sið- asta ári. Verðlag var á sama tima 12% hærra en ársmeðaltalið. 1 spá Þjóðhagsstofnunar fyrir yfir- standandi ár er gert ráð fyrir þvi, að kaupmáttur geti aukizt um 3-4%, ef heildarlaunahækkun verður stillt i hóf. Sé byggt á sömu forsendu, er búizt við þvi, að verðbólga verði um 20% á árinu. Rætist þessi spá, tel ég, að við megum vel við una. í framhaldi af þessu er rétt að minna á það, að eitt af stefnumiðum núverandi rikisstjórnar er að koma fastri skipan á samráð rikisstjórnar og aðila vinnu- markaðarins, m.a. með það fyrir augum að draga úr hraða verðbólgunnar. Við slikar aðstæður gætu launþegar treyst þvi betur en nú er, að kauphækkun i krónutölu tryggði þeim raunverulegar kjarabæt- ur. Hitt er og rétt að leggja áherzlu á, að kjarabætur geta verið fólgnar i öðru en kaupgjaldshækkun i krónum. Er sjálfsagt að leita skynsamlegra leiða i þvi efni”. 1 framhaldi af þessu, vék Ólafur Jóhannesson svo að þvi, hve mikilvægt væri að haga kjarasamning- um þannig, að atvinnuöryggi væri tryggt og komið i veg fyrir atvinnuleysi. Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Acheampong er ólíkur Nkrumah Stjórn hans þykir hafa tekizt allvel A ÞESSU ári eru liöin tutt- ugu ár siöan fyrsta nýlendan I Afriku hlaut sjálfstæöi sitt. Þetta var brezka nýlendan Gullströndin. Viö sjálfstæöis- tacuna hlaut hún nýtt nafn, Ghana. Sá maður, sem átti mestan þátt i þvi, aö Gull- ströndin fékk sjálfstæði, var Khame Nkrumah. Hann haföi menntazt i Bandarikjunum og hóf merki sjálfstæöisbarátt- unnar strax eftir heimkomuna I byrjun siöari heims- styrjaldarinnar. Nkrumah tókst ekki aöeins aö ná miklu fjöldafylgi, þvi aö hann var snjall áróöursmaöur, heldur heppnaöist honum einnig aö vinna sér tiltrú brezku ný- lendustjómarinnar. Sennilega átti þaö hvaö mestan þátt i þvl, aö Bretar veittu GulJ- ströndinni sjálfstæöi á undan öörum nýlendum slnum i Afriku. Nkrumah reyndist i fyrstu dugandi stjórnandi, en færöist of mikiö I fang og of- metnaðist yfir frama sinum. Hann hófst handa um iönvæð- ingu, sem var landinu fjár- hagslega um megn, og barst mikið á út á viö, þvi aö hann fór aö llta á sig sem frelsis- leiötoga allrar Afriku. Hann setti þingið til hliöar og tók sér algert einræöisvald. Jafn- framt hóf hann aö láta dýrka sig sem yfirnáttúrulegan leiö- toga. Styttur voru reistar af honum viöa um land og fólk var látiö tilbiöja hann sem hálfguð. Svo kom, aö ýmsum samverkamönnum hans fannst of langt gengiö. Þeir gripu tækifæriö, þegar Nkrumah var i heimsókn I Peking i ársbyrjun 1966, til aö vikja honum frá völdum og átti hann ekki afturkvæmt til Ghana eftir þaö. Hann lézt I útlegð 1972. Fyrir nokkru er hafið aftur aö dýrka hann I Ghanaen á annan hátt en áöur var. Aö honum látnum er hægt aö veita honum þá viöurkenn- ingu sem honum ber sem aöalleiötoga sjálfstæöisbar- áttunnar. SIÐAN Nkrumah lét af völd- um, hefur oltiö á ýmsu I Ghana. Fyrst var sett á lagg- irnar herforingjastjórn, sem fór með völd i þrjú ár. Þótt hún stjórnaöi meö allharöri hendi, var stjómarfarið skap- legra i tiö hennar en á slöustu stjörnarárum Nkrumah, en þá rikti aö mörgu leyti ógnar- stjórn. Andstæöingar hans höföu veriö fangelsaöir hópum saman og sumir létust í fang- elsunum. . Ariö 1969 var borgaraleg stjórn endurreist og efnt til þingkosninga. Að þeim loknum myndaöi Kafi A. Busia, þingræöisstjórn, en hann haföi upphaflega fylgt Nkrumah aö málum, en snúizt gegn honum. Herinn þoldi hins vegar ekki stjórn Busia lengi. Eftir skamma stund var hon- um steypt af stóli og ný her- foringjastjórn mynduö. Slö- ustu fimm árin hefurhún ver- iö undir forustu Ignatius Kutu Acheampong, sem hefur veriö hinn raunverulegi einræöis- herra landsins. Hann hefur reynt á ýmsan hátt aö afla sér vinsælda, en tekizt þaö illa. Hins vega virðist hann vera allgóöur skipuleggjari og stjórn hans er talin alltraust i sessi. Oll pólitisk flokksstarf- semi er bönnuö og eru engar horfur á, aö Acheampong hyggist aö endurreisa borgaralega stjórn fyrst um sinn. Hann segir, aö jarö- vegur sé ekki fyrir lýö- Acheampong ræöisstjórn eins og sakir standa. Hins vegar muni stefnt aö þvi aö auka frjáls- ræöi á ýmsum sviöum. Frétta- mönnum, sem hafa heimsótt Ghana, ber og saman um, aö þegar pólitlsku frelsi sleppir, séfrjálsræöi þar öllu meira en viöast annars staöar I Afriku. ÞÓTT margar þær fram- kvæmdir, sem Nkrumah réö- ist i, reyndust landinu fjár- hagslega ofvaxnar i upphafi, hafa þær boriö góöan árangur siöar, t.d. stórfelld vatnsvirkj- un. Framfarir hafa þvl oröiö öllu meiri 1 Ghana en vlöast í Afriku . Ýms óhöpp hafa hins vegar oröiö til aö veikja Ghana fjárhagslega. Ghana hefur lengi veriö eitt helzta framleiösluland á kakói, og hagur landsins lit á viö hefur mjög mótazt af verölagi á þvi. Slöustu misserin hefur veröiö á þvi fariö hækkandi, en Ghana hefur ekki notiö þess, nema aö takmörkuöu leyti. Astæöanersú.aö sýking hefur komizt i kakó-trén og hefur enn ekki tekizt aö ráöa viö hana. Framleiöslan hefur þvi dregizt verulega saman. Menning er á margan hátt á hærra stigi i Ghana en annars staöar I Afrlku og rekur þar m.a. rætur til þess, aö evrópsk áhrif festu þar fyrr rætur og náöi á mörgum sviöum góöum árangri. Ghanamenn eru lika sagöir duglegir og fljótari öör- um Afrikuþjóöum til aö til- einka sér nýjungar og fram- farir. Nafniö Gullströndin var ekki út f bláinn, enda var hún talin fyrirmyndarnýlenda Breta i Afrlku. Heföi Nkrumah ekki ofmetnazt, en haldiö áfram á þeirri braut, sem hann fylgdi fyrstu stjórnarár sin, myndi hann sennilega hafa náö þvl tak- marki sinu aö gera Ghana aö mesta fyrirmyndarriki Afriku. Acheampong segist nú vilja fylgja i fótspor hans, en foröast þau mistök, sem hon- um hafi oröib á. Enn er Acheampong sagöur lifa óbreyttu lifi og berast ekki mikiö á. En hann hefur oröiö gaman af aö sjá af sér myndir I fullum hershöföingjaskrúöa og birtir þær 1 kynningargrein um Ghana I flestum stórblöð- um heims. Þaöþykirekki góös viti. Hann er enn ekki nema 45 ára aö aldri og getur átt eftir aö breytast.ef honum tekstaö halda völdum. Þ.Þ..

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.