Tíminn - 07.04.1977, Qupperneq 33

Tíminn - 07.04.1977, Qupperneq 33
Fimmtudagur 7. april 1977 hafði i svipinn enga löngun til að lenda i ævintýrum. Hún hafði fengið nóg af sliku. Hér i kyrrðinni, á heimili Sörensens, skildi hún fyrst, hve æsandi og erfið ferðalögin höfðu verið, og hve þreytt hún i raun og veru var. Nú vildi hún sitja og hvilast. Stundum var hún með handavinnu og stundum með bók. Lika þótti henni gaman að hjálpa frúnni við inniverkin. Það var svo langt siðan að hún hafði tekið þátt i heimilisverkum. Hér var gott að vera— frið- ur, kyrrð og ró. Nóg að borða, ágætt fólk og gott húsnæði. Henni hafði eiginlega aldrei liðið svona vel siðan hún lagði upp i þessa'ferð. Og svo komu bréfin frá Alexej. Á þessum árum gekk póstskipið yfir hafið að- eins tvisvar i viku. Pósturinn kom þvi til Samarkand aðeins á þriðjudögum og föstu- dögum. í hvert sinn var Berit full eftirvænting- ar. Skyldi vera bréf til hennar. Oftast var bréf, en þó kom það fyrir, að ekkert bréf kom. Þá var Berit miður sin, þar til næsti póstur kom. Bréfin frá Alexej voru alltaf jafn skemmtileg og hlýleg. Hann sagði frá lifinu i Moskvu, herdeildinni, veizlum, hersýningum og langur kafli var um það, hve mikið hann saknaði þeirra systkinanna. En ekkert svar kom við þeirri spurningu, sem Berit þráði mest að fá svarað, en það var, hvenær Alexej kæmi. Hann nefndi þetta þó i hverju bréfi, og hann talaði um það, hvað hann hlakkaði til að ferðast með þeim, og hvað þau skyldu skemmta sér i ferðinni. Og meira að segja fylgdi einu bréfinu nákvæm ferðaáætlun, þar sem gerð var áætlun um hvern gististað, hvað þá heldur annað. En jafn- framt þessu var i hver ju bréfi sagt frá nýjum hindrunum, sem frestuðu för hans frá Moskvu. Stundum var það hersýning, stundum sendiferð eða fundur, sem hann varð að sitja. Allt voru þetta skyldu- störf, eða störf sem fyrirskipun hafði verið gefin um, og ekki var hægt að skjóta sér undan.í fyrstu bréfunum bjóst hann við að losna i byrjun ágúst, siðan um miðjan ágúst, og loks i mánaðarlokin. Berit var alveg að missa þolinmæðina. Og svo kom loks bréf ii'HJiiii.uu1 10. september, sem eyddi allri von um að fá að ferðast með Alexej. Bréfið kom, er þau sátu við kvöldverðinn og hengilampinn logaði glatt uppi yfir borðinu. Alexej byrjaði bréfið með þvi að taka það fram, að þetta bréf flutti þeim slæmar fréttir. Frá herdeildarforingj- anum hafði honum bor- izt skipunarbréf, undir- ritað af sjálfum keisar- anum, þar sem honum var falið að gerast foringi fyrir visindaleg- um og hernaðarlegum leiðangri til Novaja Semlja og leggja upp eftir vikutima. Skipun- arbréfið skyldi gilda i eitt ár og á þessu ári átti hann ekki að fá neitt sumarleyfi. Það duldist ekki i bréfinu, að Alexej var sárhryggur yfir þessari útnefningu, þótt honum væri samtimis veittur hinn æðsti hern- aðarlegur heiður, þar sem hann var útnefndur kafteinn eða yfirforingi. Verst var þó, hve póst- samgöngur voru slæmar við Novaja Semlja og um vetrartimann næstum engar. Frá þvi að hann færi frá Arkan- gélsk gæti þau ekki búizt við að frétta af honum i langan tima, og hann gæti ekki fengið fréttir af þeim heldur. En þetta 33 DATSUN Við getum afgreitt bílana STRAX á mjög hagstæðu verði og með ábyrgð upp f 20.000 km akstur 160J Sedan Verð 4ra dyra 1.900.0l0| Hvað kostar bíll eftir 6 mánuði? INGVAk Hll^ASON Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 l Kópavogskaupstaiur H Vallarstjóri Staða vallarstjóra i Kópavogi er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 12. -april n.k. og skal skila umsóknum til félagsmálastjór- ans i Kópavogi sem veitir allar nánari upplýsingar. Umsóknum skal skila á þar til gerö eyöublöö sem liggja frammi á bæjarskrifstofu og á Félagsmálastofnun Kópa- vogs. Kópavogi 23. marz 1977 Bæjarritarinn i Kópavogi Útboð Tilboð óskast i að byggja i fokheit ástand grunnskólahús i Þorlákshöfn. Útboðsgagna má vitja á skrifstofu ölfus- hrepps, Þorlákshöfn, Selvogsbraut 2, gegn 15.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð fimmtudaginn 12. mai kl. 14. Byggingarnefnd. B.S.A.B. Orðsending til félagsmanna Byggingar- samvinnufélagsins Aðalból (áður Byggingarsamvinnufélag atvinnu- bifreiðastjóra). Þar sem félaginu hefur verið úthlutað lóð undir fjölbýlishús í Mjóddinni i neðra Breiðholti, eru þeir félagsmenn, sem hug hafa á að byggja ibúð á vegum félagsins, beðnir að leggja inn umsókn um aðild að 9. byggingarflokkiB.S.A.B., þar sem tiltekin er stærð og herbergjafjöldi þeirrar ibúðar, sem óskað er eftir. Umsóknir þurfa að berast skrifstofu félagsins fyrir 20. april nk. Athygli skal vakin á að Byggingarsamvinnufélagið Aðalból er opið öllum. Það reynir að verða við óskum sem flestra með blönduðum ibúðastærðum i fjölbýlishúsum sinum og byggir á kostnaðarverði. B.S.A.B. — Siðumúla 34 — Reykjavik. HÖFUM FLUTT í eigið húsnæði AÐÁRMÚLA 18 Frjáls verzlun - Sjávarfréttir Iðnaðarblaðið - íþróttablaðið Islenzk fyrirtæki FRJÁLST FRAMTAK H.F. Símar: 82300 - 82302

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.