Tíminn - 19.05.1977, Síða 3

Tíminn - 19.05.1977, Síða 3
Fimmtudagur 19. mal 1977 3 Rannsóknarlögregla ríkisins: VERÐUR FYRSTU MÁNUÐINA TIL HUSA I BORGARTUNI — hjá Sakadómi Reykja- víkur, en flyzt um áramótin í Kópavog í framtíðarhúsnæði Gsal-Reykjavik — Rannsóknar- lögregla rikisins tekur formlega til starfa 1. júli næstkomandi og verður stofnunin fyrstu mán- uðina til húsa i Borgartúni 7 ásamt Sakadómi Reykjavikur, en yfirmenn hennar verða hins vegar til húsa i lögreglustöðinni við Hverf isgötu. Aö sögn Eiriks Tómassonar aðstoðarmanns dómsmálaráðherra er búizt við þvi, að frumteikningar að innréttingum i hús rannsóknar- lögreglu rikisins við Auðbrekku i Kópavogi liggi fyrir eftir viku til tiu daga — og sagði Eirikur að stefnt væri að þvi að stofnun- in flytti inn i þetta framtiöar- húsnæði um áramótin næstu. Enn hefur ekki verið gengið frá ráðningu starfsliðs, enda rennur umsóknarfrestur um stöður við stofnunina ekki út fyrr en 27. þessa mánaðar. Tim- inn innti Eirik eftir þvi I gær, hvað margt manna kæmi til meö aö starfa við rannsóknar- lögreglu rikisins, og kvað hann það ekki ljóst enn sem komiö væri, en fjármálaráðuneytið væri að fjalla um það atriði. — Þó að ekki sé hægt að nefna neina tölu um fjölda starfsfólks, sagði Eiríkur, er stefnt aö þvi, að það veröi heldur fleiri menn við störf hjá rannsóknarlög- reglu rikisins en hjá rannsókn- arlögreglunni i Reykjavík eins og nú er. Síðan er ætlunin að fjölga starfsfólki smátt og smátt. Hjá rannsóknarlögreglunni i Reykjavik starfa rúmlega 30 mennog munu margir þeirra að likindum hefja störf hjá rannsóknarlögreglu rikisins 1. júli n.k. Timinn innti Eirik eftir þvl I gær hvort fyrirhugað væri að kaupa einhver ný tæki fyrir rannsóknarlögreglu rlkisins og kvað hann já við þvl. Sagði hann, að tæknideild rannsókn- arlögreglunnar í Reykjavik Byggingin, sem bfður rannsóknarlögreglu rikisins I Kópavogi. hefði það mál til athugunar og þegar væri farið aö huga að þvi aö panta einhver sérhæfð rannsóknartæki til landsins, en eins og ýmsir hafa bent á, svo sem Karl Schutz, er tækjabún- aði rannsóknarlögreglunnar nokkuð áfátt. Ekki hafa allir verið á eitt sáttir um staöarval rannsókn- arlögreglu rikisins, sem á aö vera til húsa I framtiðinni I Auð- brekku I Kópavogi. Eirikur Tómasson sagöi I gær, að hann og þeir starfsmenn dómsmála- ráðuneytis aðrir, sem unniö hefðu aö þessu máli, hefðuhaft fullt samráð við Hallvarð Ein- varðsson rannsóknarlögreglu- stjóra rikisins. — Það er rangt, sem fram hefur komið, m.a. aö Hallvarðurhafi verið algjörlega andvlgur staöarvalinu. Það er rétt, að hann lýsti nokkrum áhyggjum sinum vegna þessa, ogtaldi nokkra annmarka á þvi að velja rannsóknarlögreglu rikisins stað i Kópavogi, — en hann setti sig hins vegar ekki upp á móti ákvöröuninni. Eirikur sagði að lokum, aö starfsmenn dómsmálaráðu- neytis heföu reynt að koma til móts við allar óskir Hallvarðs varðandi rannsóknarlögreglu rikisins. Fjörug hestakeppni í Hverageröi — yngsti knapinn 9 ára PÞ Sandhóli — Firmakeppni Ljúfs var haidin I Hveragerði ný- lega. Dómarar voru frá Háfeta, hestamannafélagi Þoriákshafn- ar, sem stofnað var nýlega en 35 firmu tóku þátt I keppninni. Fyrstur varð Stigandi, ættaður úr Skagafirði, en eigandi er Sigur- borg Jóhannesdóttir, Kröggólfs- stöðum. Stigandi keppti fyrir Múrarafélag Helga Þorsteins- sonar, Hveragerði. Yngsti kepp- andinn á mótinu, Anton Tómas- son, 9 ára frá Hverageröi, vann sér til eignar veglegan bikar fyrir frammistöðu slna. Annar á mótinu varð Skuggi úr Hveragerði, en eigandi hans er Marla Þórarinsdóttir, Hvera- geröi. Skuggi keppti fyrir Hesta- flutninga Páls Sigurðssonar, Kröggólfsstöðum. Þriðji varð Kolskeggur úr Skagafirði, eig- andi Magnús Pétursson, en keppt var fyrir Gísla Brynjólfsson málara. Félagsstarfsemi Ljúfs hefur verið öflug i vetur. Farið hefur verið I útreiðartúra um héraðið. Rósmary Þorleifsdóttir, Vestra Geldingaholti, var með tamninganámskeið, sem var mjög fjölsótt og tókst með ágæt- um. Ráðunautarnir Þorkell Bjarnason, Gunnar Bjarnason og Pétur Hjálmsson héldu fræðslu- Yngsti knapinn I Firmakeppni Ljúfs var Anton Tómasson, Hveragerði, 9 ára, og sést hann hér á fáki sinum með veglegan bikar, er hann hlaut fyrir frammistöðuna. Ljósm. PÞ fundi, þá voru haldin spilakvöld, árshátið og fleira. Ahugi manna er mikill á að koma upp skeiðvelli, og helzt er hallazt að þvi að fá aðstöðu við fyrirhugaða réttarbyggingu ölfusrétta, er reisa á I landi Kröggólfsstaða. „Get selt allt sem ég hef” — segir Skúli í Laxalóni — Þcir eru ekki hræddir við regnbogasilunginn úr Laxa- lónsstöðinni, útlendingarnir, sagði Skúli Pálsson, er hann leit inn hjá Timanum, nýbúinn að selja regnbogasilungs- hrogn fyrir nær sex hundruð ‘þúsund krónur til Frakklands. Hann seldi þetta fyrir meðalgöngu aöila I Vejle I Danmörku. ■ — Og það er ekki aöeins, að ég geti selt þessi sjö hundruö þúsund hrogn, heldur hef ég verið beðinn um öll þau hrogn, sem ég get látið i té. Byggða- og landbúnaðaráætlanir: Nauðsyn á samræmingu og sMpulagi KJ-Reykjavik — ,,Þó vil ég minna á, að keðjan er ekki sterkari en veikasti hlekkur inn og þvl er það svo aö brest ir i samgöngumálum rafmagns máium, iæknisþjónustu eða menntamálum, svo eitthvað sé nefnt, getur ráðið örlögum dreifbýlisbyggðar þó að bú- rekstri sé þar i cngu áfátt.” Þetta segir Guðmundur Sig- þórssan, deildarstjóri I landbún- aðarráðuneytinu, i erindi sem hann hélt á fundihjá Samtökum sveitarfélaga á Suðuriandi þar sem hann fjaliaði um byggðaá- ætlanir i dreifbýli. Undanfarin ár og daga hafa byggðamál verið mjög I dags- ljósinu og menn ekki orðið á eitt sáttir um stefnuna i þeim mál- um. Hitt hefur flestum verið ljóst, að ef ekki yrði að gert, stefndi allt aö byggðahruni i ýmsum sveitum landsins. Til þess að koma i veg fyrir aö svo færi, þurfti til að koma skipu- lagning og áætlanagerð i land- búnaðiogbyggðamálum i miklu rikari mæli en áður haföi verið. Þvi var það, að Halldór E. Sig- urðsson landbúnaðarráðherra skipaöi síðla árs 1974 nefnd til að vinna að áætlunarmálum i landbúnaði. 1 nefndinni eiga sæti fulltrúar Búnaðarfélags Is lands, Stéttarsambands bænda, framleiösluráðs landbúnaðar- ins, Landnáms rlkisins, Fram- kvæmdastofnunar rikisins og land búnaðarrá öuney tisins. Nefndin hefur starfaö siðan, og ernú árangur starfa hennar óð- um að koma i ljós. Einna lengst eru störf nefnd- arinnar á veg komin I Arnes- hreppiá Ströndum. Barst beiðni þaðan um áætlanagerð. A6 lokn um itarlegum könnunum fór fram samstarf milli búnaðar hagfræöiráðunautar, byggöa- deildar Framkvæmdastofnun- arinnar og nefndarinnar um staðlaða byggingu útihiísa. Hóf- ust framkvæmdir i fyrrasumar, og reiknað er með að þeim ljúki aö mestu leyti I sumar. Var allt starfið skipulagt fyrirfram I sEunráði við yfirsmið, ráöinn af bændum, og stóöst áætlunin i hvlvetna. Voru notuð aðkeypt steypumót við byggingafram- kvæmdirnar, og talið er að þessi stöðlun i smiði og skipulagning framkvæmdanna hafi lækkað byggingarkostnað um 20-30%. Um árangur þessara aðgerða segir Guðmundur Sigþórsson i erindi sinu: „Af þeirri reynslu, sem hefur fengizt, er ljóst, aö vel skipulögö uppbygging á félagslegum grundvelli meö fullri ábyrgð heimamanna á framkvæmd og fjárreiðum, ger- ir alla uppbyggingu ódýrari. Jafnframt er einstökum bænd- um gert mögulegt að byggja upp á jöröum sinnum, sem að öðrum kosti yrði þeim ofviða.” Nefndinni hafa borizt beiðnir viða að, frá búnaðarsambönd- um og sveitarstjórnum, um gerð landbúnaðaráætlana og byggðaáætlana fyrir viðkom- andi staði. Jafnframt þótti nefndinni rétt að hafa frum- kvæði að könnun á stöðu og við gangi landbúnaöar I einstökum byggöalögum. Að mati nefndar- innar eru nokkrir staðir fremur en aðrir, sem þarfnastsérstakr- ar fyrirgreiðslu og átaks I upp- byggingu. Hér er um aö ræöa Norður-Þingeyjarsýslu, þar sem nefndin telur nauðsynlegt að styrkja búsetu, og þá ekki siður i Skeggjastaðahreppi i N-- Múlasýslu, þar sem talin er nauðsyn á hliöstæöum fram- kvæmdum og i Arneshreppi. A Vesturlandi og Vestfjöröum viða þarf að auka mjólkurfram- leiðsluna og á Mýrum og sunn- anverðu Snæfellsnesi þarf aö stuöla aö meiri votheysgerð. Frá Noröurlandi vestra og Suð- urlandi hafa einnig borizt óskir um áætlanagerö, og virðist þar ýmsu ábótavant. Guðmundur Sigþórsson sagöi i samtali viö blaðamann Tim- ans, aö nefndin væri mjög ánægð með útkomuna i Árnes- hreppi. Taldi hann, aö höfuö- keppikefli nefndarinnar væri i fyrstu að sporna við fótum þar sem byggö væri á fallandi fót- um, ekki sizt i kringum þéttbýli þar sem nauðsyn væri á fram- leiðslu sveitanna. Jafnframt þarf að koma til heildarsam- ræming um landbúnaöarmál svo ekki verði stefnt aö fram- leiðslu, sem enginn markaður er fyrir. Það sem þegar hefur verið gert, hefur gefið góða raun, og haldið verður áfram á sömu braut meö samstarfi sem flestra er hlut eiga að máli.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.