Tíminn - 26.05.1977, Side 6
6
Fimmtudagur 26. mai 1977.
— Þetta var mikið sandfok.
— Hér stendur að þeir éti aðeins
páimaviðargreinar.
— Fínt hjá þér. Hverju beitir þú?
— Hann segir að þetta gangi betur
svona en með kylfunni og að þessi
aðferð fari miklu betur með kven-
fólkiö.
BÖK UM ÆVI
CHAKLES
LAUGHTON
Einaf frægustu kvikmyndum sem Charles Laughton lék
i var ,,The Private Life of Henry VIII. (Einkalff Hinriks
8.) Nú er komin út bók eftir Charles Higham, sem heitir
„Charles Laughton” og fjallar hún um einkalff þessa
fræga leikara, sem andaðist 15. des. 1962. í samvinnu við
ekkju leikarans, EIsu Lanchester, (sem skrifar áhrifa-
mikinn inngang að bókinni) hefur höfundurinn sett saman
lýsingu á manni, sem hefur átt i miklum vanda við sinn
innri mann. 1 bókinni er sagt opinskátt frá kynvillu
Laughtons og framkomu hans við samleikara sina. Hon-
um gekk illa að semja við Clark Gable, þegar þeir unnu
saman við upptöku myndarinnar „Mutiny On The
Bounty” („Uppreisnin á Bounty”) og einu sinni ásakaði
Gable hann um að koma fram við sig eins og eitthvert úr-
kast. En fyrstog fremst er reynt aö rannsaka hið einstæöa
samband hans við eiginkonuna. Laughton var eftirtektar-
verður maður, leikari, sem hataði sitt eigið útlit, en dáöist
aö fegurðhjá öörum. Elsa, eiginkona Laughtons, bað Hig-
ham að skrifa bókina og hafa þau I sameiningu reynt að
greina hið innra eðli hans, og hvaö það var, sem gerði
Laughton eins og hann var. Rithöfundurinn játar, að við
það að vinna við að kynna sér sálarlif Laughtons og siðast
hin alvarlegu veikindi hans, þá hafi hann (höfundurinn)
oröið algerlega uppgefinn, en þá hafi Elsa haldið honum
við efnið.En hann styrktist einnig við að kynnast hinu sér-
staka sambandi milli þeirra Elsu og Charles, en hjóna-
band þeirra hvildi á stoðum gáfna og hjartans málum.
Hérmeðermynd sem tekin var af þeim hjónum árið 1958.
Baðstranda-
drottning
í Ástralíu
Nú er farið að hausta i Astraliu og
þvi ekki seinna vænna að birta
mynd af fegurðardrottningu
Ástraliumanna, sem hlotið hefur
titilinn Ungfrú Ástraliubaðstrand-
ardrottning. Nú er sem sagt farið
að kólna þar, og má búast við, að
ungfrúin sé komin i skjóllegri flikur
en hún skartar i hér á myndinni.
Ég hefði ekki átt að'
láta hann fara einan.N
-\ Hlustunartæki hans