Tíminn - 02.06.1977, Qupperneq 2

Tíminn - 02.06.1977, Qupperneq 2
2 Fimmtudagur 2. júni 1977. Fyrsta flugvél F.l. TF-örn, kom til landsins iaprll áriö 1938. Fyrsta áætlunarflugiö fór hún 4. mai sama ár, frá Akureyri til Reykjavikur. Sihar kom ..þristurinn”, það er Douglas DC-3, sem lengi var I þjónustu félagsins. Vegna flughæfni oe bols er bessi vélargerö enn eins konar goösögn meöal flugáhugafólks. 24. júni 1967 kom svo fyrsta þotan, Boeing 727. Nú á F.í. tvær þotur af þeirri gerö. Fjörtíu ár frá stofnun Flugfélags íslands: og vonbrigða KH-Reykjavik — Um þessar mundir, nánar tiltekiö 3. júni, eru fjörutiu ár liöin frá stofnun Flug- félags tslands. Segja má, aö fjörutiu ár séu ekki langur timi I llfl þjóöar og máski ekki heldur ævi fyrirtækis, en timalengd hefur ekki allt aö segja, heldur einnig, og ekki siöur, þau áhrif, sem fyrirtækiö hefur haft og þau störf, sem þaö hefur innt af hendi á starfsævi sinni, segir I frettatil- kynningu, sem kynningardeild Flugleiöa h.f. sendi fjölmiölum I gaer. 1 fréttatilkynningunni segir ennfremur: — Flugfélag lslands, áöur Flugfélag Akureyrar, var stofnaö 3. júni áriö 1937 á Akureyri. Þáverandi flugmálaráöunautur rikisins, Agnar Kofoed-Hansen, hafði reynt stofnun flugfélags syöra, en ekki haft erindi sem erfiði. Norðlendingar tóku honum betur og fyrir þvi má segja, aö vagga samfelldra flugsam- gangna á tslandi hafi staðið á Akureyri. Þótt ötullega væri starfaö eftir geröri áætlun, kom fyrsta flugvél félagsins ekki til landsins fyrr en i april 1938. Hún var sett saman i Vatnagörðum i Reykjavik og henni flogið til Akureyrar 2. mai. Hinn 4. mai var fyrsta ferð með farþegum farin frá Akureyri til Reykjavikur. Siðan hófst óreglu- legt flug með farþega og póst. Ótrúlegir voru þeir erfiðleikar, sem mættu hinu unga flugfélagi og flugmanni þess. Engir radióvitar voru á landi, veður- spárþjónusta ófullkomin með tilliti til flugsamgangna og fylgja varð ströndum til öryggis. Flug- ferð milli Reykjavikur og Akureyrar tók þvi oft nokkuö á þriöju klukkustund. Ariö 1940 voru aöalstöövar félagsins fluttar frá Akureyri til Reykjavikur, nafni þess breytt I Flugfélag Islands, hlutafé aukið verulega og lögð drög að kaupum fyrstu tveggja hreyfla flugvél landsmanna. A næstu árum var flugflotinn stóraukinn og endur- bættur þannig, að farþegatala félagsins jókst úr nær átta- hudruðum I 7000 árið 1945. Forráöamenn félagsins hófu snemma árs 1945 undirbúning að millilandaflugi, en hér var viö ramman reip að draga þvl ótal leyfi þurfti hjá innlendum og erlendum aðilum. Félaginu tókst um siðir að fá tilskilin leyfi og um sumariö voru farnar þrjár feröir milli landa. 1 júli 1948 eignaöist svo Flugfélagið sina fyrstu milli- landaflugvél, Skymasterflugvél- ina Gullfaxa. A innanlandsvettvangi hafði einnig mikið gerzt. 1946 eignaöist félagiö sina fyrstu DC-3 flugvél, en siðar Catalina-flugvélar auk fleiri DC-3 flugvéla. Flugfélag Islands gerðist aðili að IATA, alþjóðasambandi flugfélaga 1950. A sjötta áratugnum stofnaði félagið skrifstofur vlöa I N-Evrópu m.a. i Hamborg og Stokkhólmi. Nú siöustu árin hefur félagiö enn aukiö umsvif sin, tekið I sina þjónustu fullkomnari flugvélar, og fjölgað áætlunar- leiðum. Upp úr 1970 var augljóst, að samkeppni Islenzku flug- félaganna á millilandaleiöum myndi báðum óhagkvæm og jafn- vel til tjóns. Þvl var ákveðið að sameina félögin. Hlutafélagið Flugleiðir var slöan stofnaö 20. júní 1973, en saga þess síöan er flestum landsmönnum kunn. — I lok fréttatilkynningarinnar segir svo: — Óhættmun að segja, að heföi sameining félaganna tveggja, F.I. og Loftleiða, ekki komiö til framkvæmda, hefði Islenzkt áætlunarflug beðið mikið afhroð og óvlst hvort félögin hefðu, annaö eða bæði, sloppiö lifandi úr þeim darraöardansi. Víst er, að sameining kraftanna á þessum vettvangi, er eina von okkar Islendinga til þess að viö getum haldiö okkar hlut I farþegaflutningum og annast loftsiglingar okkar sjálfra I framtlðinni. Erfiðleikar eru að baki, en þeir eru llka framundan. Saga Flugfélags tslands I fjöru- tlu ár geymir marga sigra, en einnig vonbrigöi. — veiðihornið 5 laxar úr Norðurá i gær I gærmorgun hófst laxveiöin i Norðurá, þ.e. á svæðinu frá Laxfossi og niður að Stekk. Þaö var aö venju stjórn Stangaveiði- félags Reykjavlkur sem hóf veiðina, en stjórnin verður þarna með tiu stangir við veiöar fram að hádegi á föstudag. I gærmorgun fengust fimm laxar, og var stærð þeirra frá átta til tiu pund. Þykir það gott miðað við aðstæður, sagði Ingibjörg i veiðihúsinu i gær, en flóð var i ánni, þar sem mikið rigndi i fyrradag, og vatnið kolmór- rautt. I gærdag var aftur á móti strax farið að sjatna i ánni og hun er fljót að hreinsast. Aður en rigndi I fyrradag hafði ekki komið dropi úr lofti i nokkra daga, og voru þá aðstæöur hinar beztu við ána, svo sem þær ættu að vera orðnar þegar á næstu dögum aftur. i fyrra veiddust úr Norðurá allrialis 1675 laxar. samkvæint upplýsingum Veiðimálastofn- unar. Metveiðiárið 1975 veidd- ust hins ve'gar 2132 laxar. Laxá á Ásum Klukkan 15 i gær hófst veiði i Laxá á Asum og reyndist ekki kleift að afla upplýsinga i gær um hvernig hún hefði gengið, enda var veitt til kl. 22 i gær- kvöldi. Veiði i Laxá á Asum hef- urfarið vaxandiá undanförnum árum og I fyrra fengust alls 1270 laxar úr ánni. Var meðalþyngd laxanna 7,2 pund. Sumarið 1975 veiddust alls 1881 lax i Laxá á Ásum. Urriðasvæðin i Laxá i S.-Þing. Veiöin hófst á urriðasvæöun- um I Laxá I Suöur-Þingeyjar- sýslu á laugardaginn var, 28. mal. Lltiö hefur enn veiðzt, einkum vegna þess að miklar leysingar hafa veriö og áin mjög vatnsmikil. Að sögn Sólveigar á Arnarvatni hafa menn þó eitt- hvað veitt, en ekki haföi hún handbærar tölur. Það veiði- svæði, sem veiöivörðurinn á Arnarvatni hefur umsjón meö, er frá Mývatni og niður fyrir Hamar. Þar eru átján stangir leyföar á dag og eins og undan- farin ár, er hámarksveiði á dag 12 silungar. A siðastliðnu sumri voru skráöir um tvö þúsund silungar á þessu svæði og sam- kvæmt bókum Veiðihornsins, mun sá stærsti hafa verið 10 1/2 pund en meðalþyngdin um 3 pund. Ekki tókst að afla frétta af hinu veiðisvæðinu á urriöasvæö- um Laxár I gær, en þaö er neðri hluti Laxár, fyrir ofan virkjun. Þar er leyft veiða á 14 stangir og veiðimenn geta haft búsetu I hinu myndarlega veiöihúsi I Laxárdal á meðan þeir stunda veiöarnar. Frá Stangaveiðifélagi Hafnarfjarðar: — Þaö hefur komið okkur sérstaklega á óvart hve mikil og góö veiði hefur verið I Kleifar- vatni. Þaö er mjög góöur fiskur sem þar hefur fengizt aö undan- förnu, sagði Benedikt hjá Stangaveiðifélagi Hafnar- fjaröar I gær. Félagar I SH hafa sjálfir ræktaö vatnið upp, en fyrstu seiðunum mun hafa verið sleppt I vatniö um 1955, og fyrst var veitt I þvl um 1958. Engin takmörkun er á stangafjölda I Kleifarvatni og kostar hver stöng vfir daginn aðeins kr. 400.- Að sögn Benedikts eru einnig seld svokölluð sumarkort fyrir fjölskyldur. Það eru kort sem gilda fyrir hjón og börn undir 14 ára aldri og kosta aðeins kr. 3000 fyrir allt sumarið. Aöstaöa öll er hin bezta við Kleifarvatn og tilvaliö fyrir fólk aö eyða þar nokkrum dögum viö silungs- veiðar. Stangaveiðifélag Hafnar- fjaröar leigir út fjórar stangir I Djúpavatni, sem er aöeins um þriggja kortera akstur frá Hafnarfiröi. Þar er fyrsta flokks veiðihús til umráða fyrir veiði- menn og aðstaða öll til fyrir- myndar. Djúpavatn er einnig, eins og Kleifarvatn, ræktað upp af félögum I S.H. Þá hefur fé- lagiö einnig helming Hllðar- vatnstil umráða, en þar er leyft að veiöa á fimm stangir á dag. Veiöi hefur veriö sæmileg I báö- um þessum síöasttöldu vötnum að undanförnu, en þó fer þaö mikiö eftir veöri. Stangaveiðifélag Hafnar- fjaröar leigir 40% af Flókadalsá I Borgarfirði á móti Keflviking- um og bændum á svæðinu. Þar eru þrjár laxveiðistangir, og eru leyfi I Flókadalsá öll seld fyrir sumarið. Sömu sögu er að segja um laxveiöistangirnar sem félagið hefur I Gljúfurá I sumar, þær eru allar seldar. Mikil eftirspurn hefur verið eftir veiöileyfum i fyrrnefnd silungsvötn að undanförnu, svo að þeim, er áhuga hafa á, er bent á að snúa sér til Stanga- veiðifélags Hafnarfjaröar sem fyrst. gébé ..... — Örbylgj usamband Mikill bandin HV-Reykjavik. — A þessu ári verður mikið unnið i uppsetn- ingu örbylgjukerfis Landssima islands. Fyrir nokkru var opnað örbylgjusamband milli Reykja- vikur og Vestmannaeyja, þar sem teknar voru i notkun eitt hundrað og tuttugu rásir, en auk þess að bæta mikið talsimasam- bandið milli lands og Eyja, hef- ur þetta nýja samband veruleg áhrif til bóta á talsamband við útlönd, sem nú fer um Vest- mannaeyjar og kemur til með að gera næstu tvö ár, að minnsta kosti, eða þar til jarð- stöðin kemst i notkun. Samband þetta er i' þrem áföngum. Sá fyrsti er frá Lands- simahúsinu i Reykjavik upp á Skálafell, þaðan á Hvolsvöll og svo þaðan til Vestmannaevja. Kerfi þetta. sem er tvöfalt, það er felur i ser varaleiöir fyrir jafnmargar rasir, kemur i stað- inn fyrir radiósambönd beint írá Grensásstöð og Vatnsenda-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.