Tíminn - 02.06.1977, Page 6
6
Fimmtudagur 2. júni 1977.
:.S*K> :
— Ekki sem 'verst. Skrifaöu nú
aöra linu.
‘liii Il.lj1,
—Viöþurfum á vætunniaö halda.
i timans
Kvikmyndastj arna
í 50 ár
Nýlega lézt i glæsiibúð sinni i New York
kvikmyndastjarnan fræga Joan Craw-
ford, 69 (sumir segja 71-73 ) ára að aldri.
Joan Crawford átti sér langan og glæsi-
legan feril i kvikmyndum að baki. Hún
vakti fyrst athygli á timum þöglu mynd-
anna, er hún þótti liðtæk dansmær. Þegar
talmyndirnar komu til sögunnar, misstu
margar af stjörnum þöglu myndanna tök-
in á aðdáendum sinum, en Joan Crawford
jók stöðugt vinsældir sinar, enda þótti hún
fjölhæf leikkona og dugleg að verða sér úti
um eftirsóknarverð hlutverk. Sjálf sagði
hún, að sinn bezti eiginleiki væri sjálfsagi,
sjálfsagi og aftur sjálfsagi. Joan Crawford
giftist fjórða eiginmanni sinum, forstjóra
Pepsi Cola, árið 1955, og þegar hann dó
fjórum árum siðar, tók hún við störfum
hans og gegndi þeim með prýði, eins og
öðrum störfum, sem hún tók að sér fyrr og
siðar. Kannski bera meðfylgjandi myndir
þess bezt vitni, hversu mikinn sjálfsaga
Joan Crawford hafði til að bera, en önnur
er frá þvi hún var á hátindi frægðar sinnar
fyrir u.þ.b. 30 árum en hin er nýleg. Ekki
virðist útlitinu hafa hrakað mikið á
þessum þrjátiu árum.
J
m^\
t: í !g
f
1 ■$ I Éf
IF
'tf. ,,:y., : . ■ '
m
verður
blóðbað og þú
munt deyja fyrsU/
I I I I I
Hver er Asolana hershöfðingi,
I i fangelsinu i Ivory-Lana?
Fyrir einu ári siðan geröi
hann samning við
glæpaflokk nokkurn.