Tíminn - 02.06.1977, Page 7
» c 03 «*“ c 7;
Fimmtudagur 2. júni 1977.
7
Hann var nærri
búinn að hvolfa
bátnum.
Furðulegt
að apinn
skuli vera
svona y?
hrifinn '4‘J
af
rækjum! J
Hæ Rustylj
_ Biddu! d
Sjálfvirkur sorpeyðingar-
ofn í Berlín
Fyrir stórborgir, sem ekki
eiga landrými, er sorpeyðing
erfitt mál til úrlausnar.
Þannig er það með V-Berlin.
En Austur- og Vestur-Berlin
sameinuðust um sjálfvirkan
sorpeyðingarofn, sem ekki á
sinn lika i Evrópu. Úr-
gangurinn úr ofninum er
siðan pressaður niður i
fjögurra tonna teninga (1/3
af rúmmáli sinu), sem eru
siðan fluttir i gáma, einn á
hverjum fimm minútum,
Flutningabilarnir aka siðan
25 mílur og hrúga ruslinu
upp i Austur-Þýzkalandi. I
þetta skipti urðu engar
stjórnmáladeilur um það, að
leyfa V-Berlin að hrúga upp
niutiu milljón tonnum af
rusli á staði i Austur-Þýzka-
landinæstu 20árin. Þaðhefði
verið kærkomnara að dengja
ruslinu einhvers staðar i
Vestur-Þýzkalandi, en þá
hefði þurft að fá annan ofn,
sem hefði haft meiri mengun
i för með sér og fórna bygg-
ingarlóðum, sem_ V-Berlin
hefur ekki of mikið af.
Það borgar sig að
vera frumlegur
Nafn hans er Friedensreich Hundertwasser. Hann er
listamaður og var orðinn þreyttur á að vera alltaf ásakað-
ur um að vera ekki nógu djarfur. Svo að hann fór að halda
fyrirlestra allsber og hneykslaði allan iistamannaheim-
inn. Fyrirlestrarnir f jölluðu um nýtizku húgsagerðarlist,
sem hann hélt fram að væri ónáttúrleg. Og hann sýndi mót
af skrúfumynduðum byggingum með trjám vaxandi uoui
á þökum og svölum húsanna. — Ég kysi að hafa gras á
hverju þaki, segir Friedensreich. Það væri betra innlegg
en komið hefur frá nokkrum stjórnmálamanni. Þessi
skeggjaði Vinarbúi dró lika að sér athyglina fyrir að nota
ýmis útlend efni i málverk sin, t.d. jarðveg úr mauraþúf-
um i Úganda. Nú virðast brellur Hundertwassers hafa
borið árangur, verk hans eru alls staðar eftirspurð, sér-
staklega i Japan. 1 Tokyo sagöi einn eigandi sýningarsala
nýlega: — Við dæmum verk hans tilfinningalega en getum
ekki rökrætt þau — og frá þvi sjónarmiöi er list Hundert-
wassers einstök. Meira að segja á tslandi er Hundert-
wasser vel þekktur, en sýning á verkum hans var haldin i
Listasafni tslands fyrir nokkrum árum.
Hann hverfur ur
augnsýn við næstu
hæð!
Tíma-
spurningin
i Hafnarfirði:
Attu nokkur gæludýr?
Jón Viöar Magnússon, 9 ára:
Ég á fiska I búri, en nénni satt að
segja ekki alltaf að gefa þeim.
Bróðir minn sér vel um þá fyrir
mig.
Róbert Bjarnason, 12 ára:
Nei, en ég hef átt kött, sem þvl
miður var sendur úr bænum. Mér
finnst kettir afar skemmtileg dýr.
Agúst Haraldsson, 14 ára:
Ég á hest. Ég veit ekki hvort það
má kalla hann gæludýr. Heyskap
stunda ég hérna upp I kirkju-
garöi.
Gunnþór Þórðarsson, 14 ára:
Já, ég á góðan kött, sem heitir
Snælda.
Elin Helga Steingrlmsdóttir 8
ára:
Nei, ég hef hvorki átt hund né
kött, en mig langar til að eignast
eitthvert dýr I framtlðinni. Litlar
kisur eru svo sætar.