Tíminn - 02.06.1977, Qupperneq 15

Tíminn - 02.06.1977, Qupperneq 15
Fimmtudagur 2. júni 1977. 15 FIMMTUDAGUR 2. júni 7.00 Morgunútvarp. Veöur- fregnirkl. 7.00, 8.15og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30 og 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barn- anna kl. 8.00: Baldur Pálmason heldur áfram aö lesa „Æskuminningar smaladrengs” eftir Arna Ólafsson (3). Tilkynningar kl.9.30. Léttlög milliatriöa. Viö sjóinnkl. 10.25: Ingólfur Stefánsson talar á ný viö Ólaf Björnsson útgeröar- mann i Keflavik. Tónleikar kl. 10.40. Morguntónleikar kl. 11.00: Pierre Fournier og Emest Lush leika á selló og pianó „Italska svitu” eftir Igor Stravinski viö stef eftir Pergolesi/ Erik Saedén og Elisabeth Söderström syngja söngva eftir Wilhelm Peterson-Berger viö ljóö eftir Erik Axel Karlfeldt, Stig Westerberg leikur á pianó/ Sinfóniuhljómsveit Lundúna leikur Gymnó- pediur nr. 1 og 2 eftir Erik Satie i hljómsveitarbúningi Debussys og „Blómaklukk- una” eftir Jean Francaix: André Previn stjórnar. Ein- leikari á óbó: John de Lancie. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynningar. A frivaktinni. Margrét Guömundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Miödegissagan: „Nana” eftir Emile Zola.Karl Isfeld þyddi. Kristin Magnús Guö- bjartsdóttir les (18). 15.00 Miödegistónieikar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Tónleikar. 17.30 Lagiö mitt. Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 18.00 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mál. Helgi J. Halldórsson flytur þáttinn. 19.40 Fjöllin okkar.Gestur Guöfinnsson skáld talar um Esju. 20.05 Einsöngur i útvarpssal: Hreinn Lindal syngur. Pianóleikari: Olafur Vignir Albertsson. 20.30 Leikrit: „Raddir I tóm- inu” eftir Ferenc Karinthy. Þýöandi: Eiöur Guönason. Leikstjóri: Brynja Bene- diktsdóttir. Persónur og leikendur: Stúlka/ Helga Jónsdóttir, Karlmanns- rödd/ Erlingur Gislason, Mjúkmáll/ Lárus Ingólfs- son, Gömul kona/ Þóra Borg, Slepjurödd/ Þorgrim- ur Einarsson, Simavörður/ Geirlaug Þorvaldsdóttir, Loðmæltur/ Pétur Einars- son, Gömul rödd/ Valdemar Helgason, Kvenrödd/ Sig- rfður Eyþórsdóttir, Kona/ Sigrún Björnsdóttir, Þyzk rödd/ Hilde Helgason, Barnsrödd/ Jón Ragnar ömólfsson. 21.25 Kórsöngur: Samkór Sel- foss syngur i útvarpssal. Söngstjóri: Dr. Hallgrimur Helgason. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Vor i verum” eftir Jón Rafnsson. Stefán ögmunds^ son les (17). 22.40 Hljómplöturabb Þor- steins Hannessonar. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan Frú Harris fer til Parísar @ eftir Paul Gallico svip, að París væri ekkert, sem hægt væri að bjóða æðri veru eins og Natösju upp á að skoða. - Della, sagði frú Harris. - Hvers vegna haldið þér að hún sé eitthvað f rábrugðin öðrum ungum stúlkum, þegar myndarlegur piltur er nálægt? Hún hefði farið með yður i gærkvöldi, ef þér hefðuð haft vit á að biðja hana um það. En segið henni bara, að ég hef i sagt að hún ætti að koma með. Um morguninn mættust þau andartak f stiganum með gráa teppinu hjá Dior. Þau námu staðar, bæði örlítið feimin. André tókst að stama: — ( kvöld ætla ég að sýna frú Harris eitthvað af París og hún biður yður um að koma líka. -Ó, sagði Natasja lágt. - Frú Harris biður mig þess. Er það hún, sem vill að komi með? Aðeins hún? André gat aðeins kinkað kolli, heldur klaufaleg. Hvernig gathann, í þessu kuldalega andrúmslofti í Dior- húsinu, krópað? - Nei, nei, það er ég sem vil þáð. Ég óska þess af öllu mínu hjarta! Ég tilbið mera að segja teppið, sem þér standið á! Loks sagði Natasja: - Ef hún vill það endilega, þá kem ég. Hún er ómótstæðileg, þessi elskulega kona. - Eigum við þá að segja klukkan átta? - Ég kem. Þau héldu áfram, hann upp stigann, hún niður. Ævintýralegt kvöld rann upp. Það hófst fyrir þremenningunum með siglingu upp eftir Signu að veit- ingahúsi viðárbakkann í úthverfi. Með stórkostlegu hug- boði tókst Fauvel að forðast þá staði, þar sem f rú Harris hefði ef til vill ekki kunnað við sig, dýru staðina, sem glitruðu og glóðu og hann gat ekki grunað hvað Natösju leið vel í þessu umhverfi, sem hann valdi. Þetta var lítill fjölskylduveitingastaður. Borðin voru úr járni, dúkarnir köf lóttir og brauðið nýbakað og stökkt. Frú Harris virti þetta allt fyrir sér með sælusvip - fólkið við borðin og gljáandi yfirborð árinnar. Yfir ána barst harmónikutónlist. - Hugsa sér, sagði hún. - Þetta er alveg eins og heima. Stundum, þegar hlýtt er á kvöldin, förum við vinkona mín, frú Butterfield uppána og fáum okkur bjórglas á lítilli krá í grennd við brugghúsið. En hún neitaði ákveðin að borða snigla. Hún rannsak- aði þá með athygli, þar sem þeir lágu í skálinni. Andinn var reiðubúinn, en maginn neitaði. - Ég get það ekki, sagði hún loks. - Ekki þegar ég hef séð þá skríða um. Upp f rá þessu var þögult samkomulag að þau hittust á hverju kvöldi og skoðuðu París. Á daginn, þegar hin voru að vinna f ór f rú Harris á eigin spýtur i könnunarferð um borgina, nema þegar hún fór að máta klukkan hálf tólf, eða lagaði til í húsi Fauvels. En kvöldið hófst, þeqar Natasja kom í sportbílnum og svo lögðu þau af stað. Frú Harris sá París af annarri hæð í Eiffelturninum, i kvöldhúminu og af tröppum Sacre Coeur i tunglsl jósi og i dögun, þegar borgin vaknaði og annirnar hóf ust í Höllun- um, en þar borðuðu þau morgunverð innan um verka- menn, sölufólk og langferðabílstjóra, einkum lauksúpu og egg. Einu sinni stakk Natasja upp því að þau sæju kabarettinn Revue des Nudes í Rue Blanche, en frú Harris var ekkert hrif in og heldur ekki hneyksluð. Það er merkilega notalegt andrúmsloft við slík fyrirbæri, heilu fjölskyldurnar koma, afar, ömmur, foreldrar og börn koma utan úr sveit til að halda upp á einhvern hátíðlegan atburð í f jölskyldunni, taka með sér matarkörf ur, panta vín og setjast so viður til að njóta skemmtunarinnar á sviðinu. Frú Harris var eins og heima hjá sér í þessu umhverf i. Henni fannst ekkert athugavert við að sjá raðir naktra, ungra kvenna. Ósiðsamlegt var i hennar augum aðeins áð gera eitthvað af sér. Hún horfði athugulum augum á stúlkurnar og sagði: - Já, sumar þeirra þyrftu að fara í megrun, ekki satt? Seinna, þegar dansmær sveiflaðist um, íklædd fíkjublaði einu fata, sagði frú Harris lágt. - Svei mér þá, ekki skil ég hvernig hún f er að þessu - Hverju þá? Spurði André utan við sig, því hann sá ekkert nema Natösju. - Að láta þetta hoppa svona. André eldroðnaði og Natasja skellihló, en stillti sig þó um að útskýra málið fyrir frú Harris. Þannig hætti f rú Harris alveg að vera hrædd við þessa stóru, ókunnu borg, því þau sýndu henni lif og borg sem var f ullt af fólki af hennar eigin sauðahúsi - venjulegt, ó- heflað, raunsætt og vinnandi fólk, sem allt barðist hlið við hlið fyrir því að komast af í líf inu, rétt eins og hún sjálf gerði heima hjá sér. Frú Harris, sem hafði allan daginn til umráða, nema þegar hún var að máta á morgnana, gat skoðað sig um í París, og hún vissi aldrei fyrirfram, hvert hún kynni að fara. Ekki var um að ræða Champs Elysées, Faubourg St. Honorés eða Place Vendome, því að glitrandi verzl- anirnar þar voru svipaðar og í dýru verzlanahverf unum í London, þangað sem hún kom aldrei. En hún elskaði fólk og furðuleg hverfi, og hún skemmti sér við að sjá, hvernig lífinu var lifað í óæðri hverfum borgarinnar. Hún kannaði hægri Signubakkann og vinstri bakkann og dag einn rakst hún af tilviljun á sérstaka Paradís mitt á milli þeirra blómatorgið við Quai de la Corse á lle de Cité. Heima í London hafði frú Harrris oft á leið til og frá vinnu horft löngunaraugum í glugga blómaverzlana, þar sem gat að líta orkídeur, rósir og gardeníur, en aldrei hafði hún verið stödd í öðrum eins blómagarði. Hér voru blóm af öllum tegundum, litum og gerðum, á gangstétt- inni, söluborðunum og í kössum. ( baksýn voru turnar Notre Dame-kirkjunnar. Þarna voru heilu göturnar, sem ekki voru annað en haf af azaleum í pottum, plöntur með bleikum, rauðum og f jólubláum blómum og stór búnt af rjómalitum, rauðum og gulum nellikum. Kassaraðir af stjúpmæðrablómum brostu móti vegfarendum, bláir írisar, rauðar rósir og langar afskornar gladíólur teygðu sig upp á móti sólinni. Ótal blóm voru þarna líka, sem frú Harris vissi ekki einu sinni hvað hétu, lítil gúmmíkennd bleik blóm og blóm, sem voru gul i miðjunni með dimmbláum reklum, margar tegundir af prestakrögum og auðvitað einhver ósköp af pelargóníum, eftirlætisblómum frú Harris. En það var ekki aðeins augað sem gladdist og hreifst af þessum f jölbreytileika lita og lögunar, því milda gol- an utan af fljótinu bar með sér svo ölvandi ilm, að hver einasti blómaunnandi, einsog frú Harris, hlaut að vera í sjöunda himni. Þar til frú Harris hafði sér Dior-kjólinn, höfðu blóm verið fegurðin í líf i hennar. Nú fylltust skiln- ingarvitin af ilminum af rósum og liljum. úr öllum átt- r „Þaö er rétfhjá þér, Jói, þaö er ekki alveg ólikt þvi aö einhver sé aö spangóla á tungliö.” DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.